Morgunblaðið - 06.02.2004, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 06.02.2004, Blaðsíða 59
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 59 Aðalfundur Aðalfundur Íþróttafélagsins Fylkis verður haldinn í Fylkishöll föstudaginn 13. febrúar nk. kl. 17.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Önnur mál Stjórn Íþróttafélagsins Fylkis KEVIN Keegan, knattspyrnustjóri Manchester City, segir að mark- varsla Árna Gauts Arasonar í síðari hálfleik þegar hann varði glæsilega aukaspyrnu Þjóðverjans Christians Ziege og í kjölfarið skalla Úrú- gvæans Gustavo Poyet hafi verið vendipunktur leiksins þegar læri- sveinar hans unnu á magnaðan hátt bikarleikinn gegn Tottenham, 4:3, eftir að hafa lent 3:0 undir. „Árni var frábær fyrir okkur og þvílík eldkírn sem hann fékk. Hann gat lítið gert í mörkunum þremur sem hann fékk á sig og ekki hjálp- aði vörnin honum, svo mikið er víst. Þegar maður lítur til baka þá er ég ekki í nokkrum vafa að frábær markvarsla Árna þegar hann fyrst varði spyrnu Ziege og tók svo skall- ann frá Poyet af marklínunni hafi verið vendipunktur leiksins og hann á hrós skilið,“ sagði Keegan á heimasíðu Manchester City. Árni Gautur fékk hæstu einkunn hjá enska blaðinu Manchester Evening News ásamt Shaun Wright Phillips en báðir fengu þeir 8 í ein- kunn fyrir frammistöðu sína. „Frammistaða Árna var galla- laus. Hann varði í það minnsta þrisvar sinnum á meistaralegan hátt eftir að hafa lent í miklu áfalli í fyrri hálfleik,“ sagði í umsögn blaðsins um Árna Gaut. Peter Schmeichel, fyrrverandi landsliðsmörkvörður Dana, hrósaði Árna Gaut mikið í útsendingu BBC. Keegan hrósar mark- vörslu Árna Gauts  STEFAN Kretzschmar, skraut- fuglinn í þýska handknattleiksliðinu Magdeburg og þýska landsliðsins, hefur skrifað undir samning við Magdeburg sem gildir til ársins 2010. Kretzschmar, 31 árs, mun spila undir stjórn Alfreðs Gíslasonar hjá Magdeburg til ársins 2007, en vinna eftir það við markaðsmál hjá félag- inu. Kiel og Barcelona hafa ítrekað reynt að bera víurnar í Kretzschmar, sem heldur tryggð við Magdeburg sem hann hefur leikið með síðan 1996.  AÐ sögn breska blaðsins The Gu- ardian mun David Beckham, fyrir- liði enska landsliðsins og leikmaður með Real Madrid á Spáni, græða 12,6 millj. ísl. kr. á viku við það að skattar af tekjum erlendra knatt- spyrnumanna á Spáni fara úr 45% af launum þeirra í 25%.  NEWCASTLE hefur lánað Nott- ingham Forest sóknarmanninn unga, Michael Chopra, í einn mánuð og einnig framlengt leigusamning Michael Bridges, sem verður í láni hjá Leeds næstu þrjá mánuðina. Newcastle gerði þetta þegar ljóst var að Craig Bellamy væri búinn að ná sér eftir meiðsli.  OLE Gunnar Solskjær lék sinn fyrsta leik síðan hann meiddist í september með varaliði Manchester United í gærkvöldi. Upphaflega átti hann aðeins að leika með í fyrri hálf- leik á blautum vellinum, en hann var svo vel upplagður að hann lék einnig með í seinni hálfleik gegn Aston Villa. Hann þótti besti maður leiks- ins og átti þátt í sigurmarkinu, sem Kieran Richardsons skoraði, 1:0. FÓLK Landsliðsmarkvörðurinn lék sinnfyrsta leik fyrir Manchester City í fyrrakvöld þar sem hann tók þátt í ótrúlegri endurkomu liðsins en eftir að hafa lent 3:0 undir tókst City að fara með sigur af hólmi, 4:3, þrátt fyrir að hafa misst mann út af með rautt spjald í hálfleik. „Okkur leið ekki vel í búningsklefanum í hálf- leik. Staðan var nánast vonlaus en við settum okkur það markmið að vinna seinni hálfleikinn. Það sást strax í byrjun seinni hálfleiks að Tottenham gaf eftir og við færðum okkur það í nyt. Leikmenn Tottenham hafa talið sig örugga með að landa sigri og ef- laust reiknuðu allir með því.“ Þér hefur líklega ekki staðið á sama þegar Tottenham komst í 1:0 eftir rúma eina mínútu með sínu fyrsta skoti og að þið skylduð lenda 3:0 undir í fyrri hálfleik? „Nei, að sjálfsögðu var þetta ekki sú byrjun sem ég óskaði mér. Ég stefndi að því að halda hreinu í mínum fyrsta leik en svo kom mark eftir tæp- ar tvær mínútur. Ég gat lítið við því gert en þegar tvö mörk bættust svo við þá leið mér auðvitað mjög illa eins og öllum leikmönnum liðsins. “ Nú hefur þú séð mörkin sem þú fékkst á þig. Telurðu að þú hefðir átt að geta komið í veg fyrir þau? „Ég hef ekki grandskoðað þau en ég hef séð þau einu sinni í sjónvarp- inu. Það var lítið sem ég gat gert í fyrsta markinu og þó svo að annað og þriðja markið hafi kannski ekki verið óverjandi þá er lítið við þeim að segja. Ég hélt mig vera búinn að loka á Rob- bie Keane en hann náði að vippa yfir mig með vinstri fætinum en ég held að flestir hefðu reynt að nota hægri fótinn. Ég hélt mig vera með auka- spyrnuna hjá Ziege en boltinn kom aðeins of hátt og skotið var það fast að þó svo að ég næði að snerta boltann með fingurgómunum gat ég ekki stýrt honum í burtu.“ Kevin Keegan sagði að markvarsla þín í seinni hálfleik þegar þú varðir skotið frá Ziege og tókst svo frákastið hjá Poyet hefði verið vendipunktur leiksins. Ert þú samþykkur því? „Það kom ekki til greina að láta Ziege skora tvisvar. Ég náði sem bet- ur fer að krafla í boltann og var fljótur upp svo mér tókst að ná frákastinu frá Poyet. Þegar ég lá með boltann í fang- inu hélt ég að boltinn færi fyrir innan línuna en sem betur fer var það ekki. Ég veit ekki hvort þetta hafi verið ein- hver vendipunktur en vissulega hefði staðan versnað ef við hefðum fengið á okkur fjórða markið. Það er gaman að Keegan skyldi segja þetta og eftir á að hyggja voru þetta mikilvægar markvörslur hjá mér.“ Árni segist hafa fengið verk í öxlina þegar hann henti sér á eftir boltanum en hann gekkst undir uppskurð í öxl í desember. „Ég er ekki alveg orðinn góður í öxlinni og þar sem ég lenti illa á henni fann ég fyrir verk.“ Árni segir að Keegan hafi verið í sjöunda himni eftir leikinn. „Það hef- ur verið mikil pressa á honum og hann var manna glaðastur eftir leik- inn. Hann þakkaði mér fyrir leikinn og hrósaði mér og öllu liðinu fyrir mikið baráttuþrek. David James var ekki á leiknum en hann sendi SMS til Steve McManaman og skilaði sér- staklega kveðju til mín.“ Það er enginn smáleikur sem bíður Árna Gauts og félaga hans í 16 liða úr- slitum bikarkeppninnar – heimsókn til Englandsmeistara Manchester United á Old Trafford og fer leikurinn fram um miðjan febrúar. „Ég get nú varla beðið eftir því að fá að taka þátt í þeim leik þó svo að maður geti ekki gengið að því vísu að spila þann leik. Ég held samt að möguleikarnir séu mjög miklir á að ég standi í rammanum þar sem David James má ekki spila. Þetta verður enginn smáleikur og það verður draumur fyrir mig að leika á Old Trafford gegn mönnum eins og Nis- telrooy, Keane og þessum körlum.“ Árni Gautur segist gera sér grein fyrir því að hann verður látinn víkja fyrir David James á sunnudaginn þegar Manchester City tekur á móti Birmingham í úrvalsdeildinni. „Það er nokkuð víst að James tekur stöðu sína að nýju en ég verð bara að nýta vel þau tækifæri sem ég fæ og reyna að standa mig sem allra best. Ég er búinn að æfa mjög vel og er hægt og bítandi að komast í gott form. Mig vantar leikform enda var þetta fyrsti leikurinn hjá mér síðan ég lék með Rosenborg í Meistaradeild- inni í desember.“ Þú samdir við Manchester City út leiktíðina. Hefur eitthvað verið rætt um að gera lengri samning og hefur þú áhuga á slíku? „Nei, það hefur ekki verið gert. Ef Manchester City hefur áhuga á að framlengja minn samning þá gæti það verið góður kostur í sjálfu sér. Ég ætla bara meta stöðuna í vor þegar samningi mínum lýkur.“ Finnst þér ekkert óþægilegt að vera áfram hjá City vitandi það að þú ert í samkeppni við enska landsliðs- markvörðinn? „Jú, auðvitað er það atriði sem ég þarf að hugsa vel út í og þar af leið- andi mun ég meta stöðu mína í vor og hvort einhverjir aðrir möguleikar séu í stöðunni. Eins og staðan er í dag mun ég einbeita mér alfarið að Man- chester City. Mér líkar mjög vel hjá liðinu. Þetta er stór klúbbur sem hef- ur stóran og góðan áhorfendahóp og aðstaðan hjá liðinu alveg fyrsta flokks.“ Þú hlýtur að hafa fagnað tíðindun- um þegar greint var frá því að Ísland mætir Japan og Englandi á æfinga- móti í Manchester í sumar? „Það verður frábært að spila þessa leiki og sérstaklega að mæta Eng- landi. Ekki skemmir fyrir að leikirnir verða á okkar heimavelli í Manchest- er og ef að líkum lætur munum við David James standa í sitt hvoru markinu,“ sagði Árni Gautur sem átti frí frá æfingum í gær en í dag hefst undirbúningur City fyrir mikilvægan leik á móti Birmingham. Reuters Árni Gautur Arason stóð sig mjög vel í fyrsta leik sínum í marki Manchester City og hrósar Kevin Keegan, knatt- spyrnustjóri City, honum óspart. Hér ver Árni Gautur glæsilega í bikarleiknum, sem City vann á White Hart Lane í London, 4:3, og næstu mótherjar þeirra í keppninni verða grannarnir í Manch- ester United. Peter Schmeichel, fyrrverandi landsliðsmarkvörður Dana, hrósaði Árna Gaut fyrir leik sinn gegn Tottenham, í BBC Árni Gautur Arason landsliðsmarkvörður hjá Manchester City Draumur fyrir mig að leika á Old Trafford „ÞESSUM leik kem ég aldrei til með að gleyma. Það var magnað að okkur skyldi takast að snúa leiknum okkur í vil en mann óraði ekki fyrir því þegar maður gekk út af eftir fyrri hálfleikinn að við ættum eftir að fara fagnandi af vellinum í leikslok,“ sagði Árni Gautur Ara- son, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, við Morgunblaðið í gær, en hann var varla búinn að átta sig á úrslitunum í leik sinna manna gegn Tottenham í fyrrakvöld. Guðmundur Hilmarsson skrifar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.