Morgunblaðið - 06.02.2004, Blaðsíða 58
ÍÞRÓTTIR
58 FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
KÖRFUKNATTLEIKUR
KR – KFÍ 111:84
DHL-höllin, úrvalsdeild karla, Intersport-
deildin, fimmtudagur 5. febrúar 2004.
Gangur leiksins: 0:3, 4:5, 9:7, 13:9, 19:17,
21:23, 23:25, 28:29, 32:35, 38:39, 44:41,
50:43, 55:45, 60:49, 68:56, 71:61, 76:65,
84:70, 91:75, 95:77, 101:82, 111:84.
Stig KR: Josh Murray 36, Steinar Kaldal
17, Magni Hafsteinsson 13, Baldur Ólafs-
son 13, Ólafur Már Ægisson 11, Hjalti
Kristinsson 8, Helgi Reynir Guðmundsson
8, Magnús Helgason 2, Skarphéðinn Inga-
son 2.
Fráköst: 38 í vörn, 10 í sókn.
Stig KFÍ: Troy Wiley 34, Bethuel Fletcher
21, Ja Ja Bey 17, Pétur Már Sigurðsson 7,
Pétur Þ. Birgisson 2, Haraldur Jóhannes-
son 1.
Fráköst: 21 í vörn, 18 í sókn.
Villur: KR 21 – KFÍ 16.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Gunnar
Freyr Steinsson, í góðu jafnvægi frá upp-
hafi til enda.
Áhorfendur: Ekki gefið upp en rúmlega
100 á að giska.
Staðan:
Snæfell 16 13 3 1365:1295 26
Grindavík 16 13 3 1424:1350 26
Keflavík 15 10 5 1461:1277 20
Njarðvík 16 10 6 1465:1367 20
KR 16 10 6 1486:1405 20
Haukar 16 9 7 1304:1280 18
Hamar 16 9 7 1354:1354 18
Tindastóll 16 8 8 1486:1415 16
ÍR 16 5 11 1374:1458 10
Breiðablik 15 3 12 1209:1321 6
KFÍ 16 3 13 1467:1658 6
Þór Þorl. 16 2 14 1306:1521 4
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
LA Clippers 95 Boston .........................95:86
Toronto 110 Orlando ...........................110:90
Memphis 103 Washington ................103:101
New Jersey 99 Miami ...........................99:88
Dallas 113 New Orleans....................113:104
Houston 103 Milwaukee .....................103:89
LA Lakers 111 Cleveland.................111:106
Eftir framlengingu.
Atlanta 97 Minnesota............................97:89
Chicago 95 Utah ....................................95:79
Portland 101 Phoenix..........................101:97
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla
Víkingur – FH.......................................29:31
Mörk Víkings: Bjarki Sigurðsson 7, Ás-
björn Stefánsson 6, Tomas Kavolius 4,
Benedikt Árni Jónsson 3, Andri Haralds-
son 3, Davíð Ólafsson 2, Björn Guðmunds-
son 2, Þröstur Helgason 1, Brjánn Bjarna-
son 1.
Mörk FH: Logi Geirsson 9, Arnar Péturs-
son 8, Guðmundur Pederssen 6, Jón Helgi
Jónsson 5, Hjörtur Hinriksson 3.
Selfoss – Breiðablik .............................35:32
Mörk Selfoss: Ramunas Kalendauska 11,
Haraldur Þorvarðarson 9, Ramunas Mika-
lonis 6, Ívar Grétarsson 5, Arnar Gunnars-
son 2, Hörður Bjarnason 1.
Mörk Breiðabliks: Björn Guðmundsson 13,
Ólafur Snæbjörnsson 8, Gunnar Jónsson 3,
Sigurður Jakobsson 3, Davíð Ketilsson 2,
Orri Hilmarsson 1, Kristján Hallgrímsson
1, Ágúst Guðmundsson 1.
Þór A. – Afturelding ............................33:25
Mörk Þórs: Goran Gusic 12, Árni Þór Sig-
tryggsson 11, Þorvaldur Sigurðsson 3, Orri
Stefánsson 2, Sigurður Sigurðsson 2, Berg-
þór Morthens 2, Sindri Viðarsson 1.
Mörk Aftureldingar: Hilmar Stefánsson
10, Hrafn Ingvarsson 5, Jens Ingvarsson 4,
Daníel Grétarsson 2, Ernir Hrafn Arnar-
son 3, Einar Hrafnsson 1.
BLAK
1. deild karla:
HK – ÍS.......................................................1:3
(22:25, 25:21, 23:25, 20:25)
KNATTSPYRNA
Spánn
Bikarkeppni, undanúrslit, fyrri leikur:
Alves – Zaragoza .......................................1:1
Ítalía
Bikarkeppni, undanúrslit, fyrri leikur:
AC Milan – Lazio.......................................1:2
Skotland
Deildabikarkeppnin, undanúrslit:
Hibernian – Glasgow Rangers.................1:1
Hibernian vann 4:3 í vítaspyrnukeppni.
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, RE/MAX-deildin:
Ásgarður: Stjarnan - KA ......................19.15
Framheimili: Fram - ÍR .......................19.15
Hlíðarendi: Valur - Grótta/KR..................20
Ásgarður: Haukar - HK.............................20
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Laugardalsh.: Ármann/Þróttur - Fjölnir.20
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmót karla, A-riðill:
Egilshöll: Valur - KR .................................19
Egilshöll: Þróttur - ÍR ...............................21
Í KVÖLD
ÚRSLIT
Gestirnir frá Ísafirði voru frískirá meðan þrekið var fyrir hendi,
Troy Wilson, miðherji liðsins, lét
mikið að sér kveða
undir körfunni og
sópaði villum á Josh
Murray landa sinn
úr KR. Þeir virtust
ekki vera neinir perluvinir í upphafi
leiks og háðu margar rimmur undir
körfunni.
Trevor Diggs lék ekkert með KR
vegna meiðsla og hinn danski Jesper
Sörensen verður frá í einhverjar vik-
ur til viðbótar vegna tábrots. Því
þurftu íslensku leikmennirnir í liðinu
að axla meiri ábyrgð, sem þeir og
gerðu.
Helgi Reynir Guðmundsson, Ólaf-
ur Ægisson og Steinar Kaldal áttu
fínar rispur, auk þess sem Baldur
Ólafsson sýndi á sér sparihliðarnar
að þessu sinni. Steinar átti reyndar
körfu kvöldsins er hann tróð með til-
þrifum í lok leiksins eftir sendingu
frá Ólafi. Vel gert drengir.
KFÍ hafði yfirhöndina eftir fyrsta
leikhluta, 21:23, en náði ekki að
fylgja þeirri byrjun eftir. Í hálfleik
hafði KR skorað 50 stig en Banda-
ríkjamennirnir í liði KFÍ höfðu skor-
að samtals 39 stig og Pétur Sigurðs-
son 4.
Um leið og draga fór af leikmönn-
um KFÍ náðu KR-ingar að skora
auðveldar körfur. Og 111 skoruð stig
þeirra segja meira um lélega vörn
gestanna en lipran sóknarleik KR.
Hrafn Kristjánsson, þjálfari KFÍ,
hlýtur að leggja áherslu á samvinnu
á næstu æfingum. Og við Bethuel
Fletcher, leikstjórnanda liðsins, ætti
hann að segja: „Gefðu boltann á fé-
laga þína sem eru fyrir utan þriggja
stiga línuna.“ Það var sorglegt að sjá
leikmenn á borð við Baldur Jónasson
og Pétur Sigurðsson standa og horfa
á 85% af leiknum. Ekki fengu þeir
boltann frá félögum sínum. Ja Ja
Bey var fínn í fyrri hálfleik hjá KFÍ
og skoraði þá 14 stig en hann bætti
aðeins við þremur stigum í þeim síð-
ari.
KR-liðið á enn mikið inni, af leikn-
um í gær að dæma. Nái þeir að slípa
leik sinn enn betur má búast við
miklu af liðinu. Þá þurfa leikmenn á
borð við Baldur, Steinar og Ólaf að
leggja meira af mörkum í sókninni;
þeir sýndu það í gær að þeir geta vel
sett boltann ofan í körfuna. Murray
virðist vera happafengur fyrir liðið
en Hjalti Kristinsson setti svip á
leikinn er hann skoraði átta stig und-
ir lok leiksins við mikinn fögnuð
heimamanna. Níu leikmenn af tíu í
liði KR komust á blað en aðeins
Diggs kom ekki inná í leiknum að
þessu sinni.
KFÍ skorti þrek gegn KR
KR er lið sem ætlar sér að vinna titla í körfuknattleiksíþróttinni og í
gærkvöldi var lið KFÍ engin hindrun fyrir Reykjavíkurliðið í úrvals-
deild karla. Lokatölur 111:84. Hins vegar þarf margt að breytast í
næstu leikjum KR ætli liðið sér að leika alla þá leiki sem í boði eru í
úrslitakeppninni í vor. Af og til smella hlutirnir saman, en þess á
milli eru leikmenn liðsins ekki að lesa sömu bókina. Bandaríkja-
mennirnir þrír í liði KFÍ skoruðu um 90% af stigum liðsins og höfðu
ekki þrek til þess að draga vagninn enn lengra að þessu sinni.
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar
Könnunin náði til alls landsinsog af 1.350 manna úrtaki
svöruðu 803. Af þeim vildu 52,1
prósent að leikirnir hæfust á bilinu
18 til 19 á kvöldin, 13,6 prósent að
þeir hæfust kl. 19.15 til 19.30 og
34,3 prósent að þeir hæfust kl. 20.
Geir Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri KSÍ, sagði við Morgunblaðið
að í kjölfarið á þessum niðurstöðum
væri full ástæða til að skoða alvar-
lega að hefja leikina fyrr, eða á
bilinu kl. 18 til 19. „Heildarniður-
staðan er sú að tveir þriðju hlutar
fólks vilja að leikirnir hefjist kl.18
til 19.30 en þriðjungur að þeir hefj-
ist kl. 20, og það staðfestir í mínum
huga að færslan til kl. 19.15 átti
fullan rétt á sér. Það verður farið
mjög vel yfir þessar vísbendingar á
næstunni,“ sagði Geir.
Aðstaða á völlum
Í könnuninni kom einnig í ljós að
41,4 prósent aðspurðra töldu að-
stöðu fyrir áhorfendur á íslenskum
knattspyrnuvöllum vera slæma en
33,8 prósent töldu hana góða.
„Það kom eiginlega á óvart að þó
þetta margir skyldu telja aðstöð-
una góða, því við gerum okkur
grein fyrir því að þar þarf að gera
miklar úrbætur. Sú uppbygging er
að mestu langtímamarkmið, en þó
er ljóst að á mörgum völlum er
hægt að bæta aðstöðuna verulega
með litlum tilkostnaði. Bæði á því
sviði, og hvað það varðar að auka
stemningu á leikjunum, eru margir
litlir hlutir sem skipta máli,“ sagði
Geir.
Þetta er í fyrsta skipti sem KSÍ
gengst fyrir mælingu eins og þess-
ari og Geir sagði að hún væri sam-
bandinu afar mikilvæg. „Þetta er
fyrsta skrefið hjá okkur til að rann-
saka þann hóp fólks sem sækir
knattspyrnuleiki, og við viljum
nýta þá vitneskju sem mælingin
gefur okkur til að komast nær okk-
ar markhópi og auka aðsóknina.
Þarna komu fram fleiri atriði, eins
og það að fólk sækir fyrst og
fremst heimaleiki hjá sínu eigin fé-
lagi, sem er mjög jákvætt. Við höf-
um gert fleira en þetta, í haust
sendum við til dæmis forystumenn
KSÍ og formenn allra félaga í
Landsbankadeildinni til Svíþjóðar
til að kynna sér þær leiðir sem Sví-
ar hafa farið til að auka aðsókn á
leikjum. Þeir hafa náð verulega at-
hyglisverðum árangri á því sviði
síðustu árin og af því viljum við
læra,“ sagði Geir Þorsteinsson.
Gallup vann markaðsrannsókn fyrir KSÍ
Knattspyrnu-
áhugamenn vilja
fara fyrr á völlinn
KNATTSPYRNUSAMBAND Íslands skoðar þessa dagana þann
möguleika að hefja leiki á Íslandsmótinu í knattspyrnu enn fyrr en
áður. Undanfarin tvö ár hafa flestir leikir í efstu deild karla hafist kl.
19.15, í staðinn fyrir kl. 20 sem var hefðbundinn leiktími um langt
árabil, en markaðsrannsókn sem Gallup vann fyrir KSÍ bendir til
þess að knattspyrnuáhugamenn vilji fara fyrr á völlinn – jafnvel
strax eftir vinnu, þannig að þeir eiga kvöldin frí.
ENSKA knattspyrnufélagið Charl-
ton Athletic, sem Hermann Hreið-
arsson leikur með, á von á veruleg-
um hagnaði í kjölfar þess að
Tottenham keypti sóknarmanninn
Jermain Defoe frá West Ham fyrr í
vikunni fyrir tæpar 900 milljónir
króna. Defoe er uppalinn hjá Charl-
ton og félagið fékk um 180 milljónir
króna, samkvæmt úrskurði enska
knattspyrnusambandsins, þegar
hann fór til West Ham fyrir fimm ár-
um, þá 16 ára gamall. Reiknað er
með að Charlton fái um 90 milljónir
króna í sinn hlut að þessu sinni.
Peter Varney, framkvæmdastjóri
Charlton, segir að knattspyrnustjór-
inn, Alan Curbishley, fái peningana
til að styrkja liðið, í viðbót við þá 1,3
milljarða sem félagið fékk fyrir söl-
una á Scott Parker til Chelsea í síð-
ustu viku. Það er því viðbúið að
Charlton styrki leikmannahóp sinn
nokkuð næsta sumar.
Charlton
hagnast vel
á Defoe
PÁLL Ólafsson er tekinn við þjálf-
un Íslandsmeistaraliðs Hauka í
handknattleik og mun stýra því út
tímabilið í stað Viggós Sigurðs-
sonar, sem hættur er störfum.
Páll hefur verið aðstoðarþjálfari
Hauka undanfarin þrjú og hefur
verið hægri hönd Viggó þennan
tíma. „Ég ákvað eftir góða um-
hugsun að taka starfið að mér,“
sagði Páll við Morgunblaðið í gær
en hans fyrsta verk verður að
stýra liðinu gegn bikarmeisturum
HK í fyrstu umferð úrvalsdeild-
arinnar sem hefst í kvöld.
Spurður hvað hefði vegið
þyngst í ákvörðun hans sagði Páll;
„Það má eiginlega segja að Viggó
hafi gert útslagið. Hann hvatti
mig eindregið til að taka við og
svo er Haukahjartað stórt í mér.
Mér fannst þeir komnir upp að
vegg og voru í vandræðum og
mér fannst erfitt að skilja við þá á
þessum tímapunkti. Stjórn og leik-
menn hafa lýst trausti á mig og
ég hefði ekki tekið við þessu ef
annað hefði verið uppi á ten-
ingnum.“
Litháinn Dalius Racikevicius
hefur yfirgefið Hauka en mun
ganga í raðir Badel Zagreb. Landi
hans Robertas Pauzuolis er að
jafna sig af meiðslum og verður í
leikmannahópi liðsins gegn HK í
kvöld, en línumaðurinn Aliaks-
andr Shamkuts verður hins vegar
ekki með.
Páll Ólafsson tekur
við Haukaliðinu
KARLALANDSLIÐ Íslands í tennis
lék í gær gegn Mónakó í 3. deild
Davis Cup keppninnar sem fram fer
í Litháen þessa dagana. Arnar Sig-
urðsson og Raj Bonifacius töpuðu
einliðaleikjum sínum en unnu tví-
liðaleikinn. Raj tapaði í tveimur
settum, 4:6 og 2:6. Arnar lék einnig
tvö sett og tapaði 3:6 og 2:6. Í tví-
liðaleiknum unnu þeir í tveimur
settum, 7:5 og 6:4. Í fyrradag lék
liðið gegn Makedóníu og tapaði 3:0.
Í dag leikur íslenska liðið gegn
Andorra og verður það að vinna
þann leik ef liðið á að eiga mögu-
leika á að keppa til úrslita um
helgina. Að öðrum kosti þarf liðið
að berjast fyrir því að Ísland haldi
sæti sínu í þriðju deild.
Tap gegn
Mónakó
OTTMAR Hitzfeld, þjálfari þýska
knattspyrnuliðsins Bayern Münc-
hen, brást illa við tapleik sinna
manna gegn 2. deildarliðinu Alem-
annia Aachem í þýsku bikarkeppn-
inni á miðvikudag, 2:1. Hann hefur
nú meinað leikmönnum sínum að
taka þátt auglýsingum og öðru
slíku. Hitzfeldt vill að leikmenn ein-
beiti sér alfarið að fótboltanum en
hann telur að utanaðkomandi trufl-
anir eins og að taka þátt í auglýs-
ingum sé ein af ástæðunum fyrir
því hversu illa hefur gengið á leik-
tíðinni.
„Mig grunar að sumir leikmenn
hafi um of margt annað að hugsa
og það hafi tekið frá þeim einbeit-
inguna,“ segir Hitzfeldt, sem ætlar
ekki að aflétta auglýsingabanninu
fyrr en lið hans fer að spila betur.
„Við stöndum á ákveðnum kross-
götum hvað tímabilið varðar. Það
hriktir aðeins í stoðum hjá okkur
en ég vil ekki tala um neina krísu.
Ég hef trú á því að við vinnum okk-
ur út úr erfiðleikunum,“ segir Hitz-
feld
Ottmar Hitz-
feld argur