Morgunblaðið - 06.02.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
LÖG UM SPARISJÓÐI
Frumvarp um fjármálafyrirtæki,
sem fjallar um sparisjóði, varð að
lögum á Alþingi í kvöld. Var frum-
varpið samþykkt með 43 atkvæðum
gegn 1 atkvæði Péturs H. Blöndals,
þingmanns Sjálfstæðisflokksins, eft-
ir að nokkrar breytingar höfðu verið
gerðar á því samkvæmt tillögum frá
meirihluta efnahagsnefndar.
170 milljarða eignaaukning
Heildareignir Landsbankans juk-
ust um 170 milljarða króna, eða 61%,
á síðasta ári, sem þýðir að mælt í
heildareignum er Landsbankinn
orðinn stærri en Íslandsbanki og þar
með annar stærsti banki landsins á
eftir KB banka.
Sýknudómur í Þýskalandi
Dómstóll í Þýskalandi sýknaði í
gær marokkóskan námsmann af
ákæru um aðild að hryðjuverkunum
í Bandaríkjunum 11. sept. 2001
vegna skorts á sönnunargögnum.
Hægt að rækta hveiti
Áhrif hlýnandi loftslags á íslensk-
an landbúnað eru að mestu jákvæð,
hægt verður að rækta nýjar plöntu-
tegundir en þær tegundir sem nú
eru í ræktun þola aukinn hita vel,
segir Bjarni E. Guðleifsson, plöntu-
lífeðlisfræðingur hjá Rannsókna-
stofnun landbúnaðarins á Möðru-
völlum. Hann nefnir sem dæmi
nýjar korntegundir eins og hveiti og
hafra, en hingað til hefur kornrækt
hér á landi að mestu takmarkast við
bygg.
Hafna frétt um ákvörðun
Bandarískur embættismaður
sagði í gær, að ekkert væri hæft í
frétt Financial Times þess efnis, að
Bandaríkjastjórn hefði tekið ákvörð-
un um að fækka hermönnum sínum í
Evrópu um allt að þriðjung.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Þjónusta 37
Úr verinu 13 Viðhorf 38
Viðskipti 14/15 Minningar 38/48
Erlent 15/18 Kirkjustarf 48
Minn staður 19 Bréf 52
Höfuðborgin 20 Myndasögur 52
Akureyri 21 Dagbók 54
Suðurnes 22 Staksteinar 54
Austurland 23 Íþróttir 56/59
Landið 24 Leikhús 60
Daglegt líf 26/27 Fólk 60/65
Listir 28/31 Bíó 62/65
Umræðan 31/33 Ljósvakamiðlar 66
Forystugrein 34 Veður 67
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir Dagskrá vikunnar. Blaðinu er
dreift á landsbyggðinni.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is
Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport-
@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Röddin
verður
sýnileg
Sigríður Árnadóttir
nýráðinn fréttastjóri
TÍMARIT
MORGUNBLAÐSINS
FYLGIR MORGUNBLAÐINU
Á SUNNUDAG
BRYGGJUGERÐ við Skarfabakka á
Klettasvæði Reykjavíkurhafnar hefst í
sumarbyrjun en undirbúningsfram-
kvæmdir hafa staðið yfir undanfarin ár
og er áætlað að framkvæmdum ljúki vor-
ið 2007.
„Bygging Skarfabakkans er megin-
framkvæmdarverkefni Reykjavíkur-
hafnar næstu árin,“ segir Jón Þorvalds-
son, forstöðumaður tæknideildar
Reykjavíkurhafnar. Hann segir að í
fyrra hafi verið keypt stálþil og komi það
til landsins í tveimur áföngum á næstu
mánuðum. Útboð vegna byggingar bakk-
ans verði síðan snemma í vor og reiknað
sé með því að framkvæmdir hefjist í
sumarbyrjun.
Umhverfismati vegna fram-
kvæmdanna lauk árið 2000 og síðan var
hafist handa við byggingu fyrsta áfanga
Skarfagarðsins og undirbúnings-
framkvæmdir vegna byggingar Skarfa-
bakkans. Um þessar mundir er verið að
fylla og fergja svæðið áður en bygging
bakkans getur hafist.
Vegna framkvæmdanna hefur þurft að
færa aðstöðu Viðeyjarferjunnar og er
hún nú á móts við Kornhlöðuna en í
framtíðinni er gert ráð fyrir að hún hafi
aðstöðu á milli Skarfagarðs og Skarfa-
bakka, að sögn Jóns.
Skarfabakki er skilgreindur sem fjöl-
nota bakki og nýja landið við hann, sem
er tæplega 10 hektarar, kemur til úthlut-
unar innan skamms. Jón segir að ýmis
starfsemi komi á lóðirnar á Klettasvæð-
inu og bakkinn sé ætlaður til mjög víð-
tækrar þjónustu. Í því sambandi nefnir
hann að þar verði góð aðstaða fyrir
skemmtiferðaskip af öllum stærðum og
þar opnist möguleiki til að taka að hafn-
arbakka langtum stærri skip en mögu-
legt sé í Sundahöfn.
Bryggjugerð við Skarfabakka
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Sanddæluskipið Sóley fyllir upp í svæðið þar sem Viðeyjarferjan var
vön að leggast að bryggju við Klettagarða í Reykjavík. Bryggjugerð
við Skarfabakka hefst í sumar og verður verkið boðið út bráðum.
JÓN Ólafsson kaupsýslumaður hef-
ur greitt tæplega 97 milljóna króna
viðbótarskattaálag, sem ríkisskatt-
stjóri hefur úrskurðað að honum
beri að greiða vegna gjaldáranna
1998 og 1999. Í fréttatilkynningu frá
Jóni segir að hann hafi jafnframt
tekið ákvörðun um að höfða dóms-
mál gegn skattyfirvöldum til þess að
fá framangreindum úrskurði ríkis-
skattstjóra hnekkt. Innir hann
greiðsluna af hendi með fyrirvara
um endanlegar niðurstöður dóm-
stóla.
Í tilkynningunni segir: „Eins og
kunnugt er af fréttum er ágrein-
ingur á milli skattyfirvalda og Jóns
Ólafssonar um skattalega meðferð á
ýmsum viðskiptum Jóns á árunum
1998–2002. Bæði er deilt um hvar
Jón, sem búsettur er í Englandi, er
skattskyldur og beri að greiða
skatta sína og hvort einstök atriði í
skattframtölum Jóns á þessu fimm
ára tímabili séu í samræmi við gild-
andi skattalög.
Ríkisskattstjóri hefur með úr-
skurði frá 30. desember 2003 ákveð-
ið að Jón og eiginkona hans hafi
skattalega heimilisfesti og fulla og
ótakmarkaða skattskyldu á Íslandi
allt árið 1998 og áfram uns annað
verður ákveðið. Jafnframt hefur
Ríkisskattstjóri gert breytingar á
opinberum gjöldum Jóns Ólafssonar
vegna gjaldáranna 1998 og 1999.
Ástæða þeirra breytinga tengist að
langstærstum hluta túlkun skattyf-
irvalda á viðskiptum milli Jóns og
sonar hans með 10% eignarhlut í
Skífunni.
Alls er Jóni gert að greiða
96.884.900 krónur til viðbótar áður
greiddum opinberum gjöldum á Ís-
landi. Í samræmi við fyrri yfirlýs-
ingar hefur Jón þegar staðið skil á
þessari viðbótargreiðslu. Jafnframt
hefur hann í samráði við endurskoð-
endur sína og lögmenn tekið
ákvörðun um að höfða mál gegn
skattyfirvöldum til þess að fá
framangreindum úrskurði Ríkis-
skattstjóra hnekkt. Jón innir viðbót-
argreiðsluna af hendi með fyrirvara
um endanlegar niðurstöður dóm-
stóla.“
Mest vegna Skífuviðskiptanna
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins eru um 80 milljónir af
heildarfjárhæðinni sem Jóni Ólafs-
syni er gert að greiða vegna fram-
angreindra viðskipta Jóns og sonar
hans með eignarhlutinn í Skífunni í
gegnum aflandsfyrirtæki (offshore)
Jóns Inuit en um 17 milljónir vegna
ráðgjafargreiðslna til Jóns og
greiðslna til ritara sem eru reikn-
aðar Jóni til tekna.
Jón Ólafsson greiðir við-
bótarálag með fyrirvara
MJÓLKURFRAMLEIÐSLA í jan-
úar var minni en væntingar stóðu til
samkvæmt bráðabirgðatölum frá
Samtökum afurðastöðva og er sk.
innvigtun mjólkur á verðlagsárinu,
þ.e. frá september í fyrra, 5,4%
minni en á sama tíma í fyrra, að því
er fram kemur á vef Landssambands
kúabænda.
Að sögn Snorra Sigurðssonar,
framkvæmdastjóra Landssam-
bandsins, reiknuðu bændur með
aukningu í mjólkurframleiðslu í jan-
úar en burður hjá stórum hluta kúa
sem hefðu átt að bera í haust færðist
til og því eru margar kýr komnar það
nálægt burði nú að þær mjólka ekki.
„Við erum ekki komnir í þrengingar
en það breytir því ekki að þetta er
undir væntingum,“ segir Snorri.
Afurðastöðvar kaupa líklega
umframmjólk
Að hans sögn bíða bændur nú eftir
ákvörðun frá Samtökum afurða-
stöðva um hvort og í hvaða magni
þeir kaupi umframmjólk af bændum.
Að sögn Snorra eru margir sam-
verkandi þættir sem orsaka minni
mjólkurframleiðslu nú. Auk þess
sem burður hafi færst til hafi gæði
heys frá síðasta sumri ekki verið
nógu mikil. Þá hafi greiðslumark
minnkað síðasta haust samhliða því
að fleiri kúm var slátrað á síðasta ári
en á fyrra ári.
Mjólkurframleiðsla und-
ir væntingum í janúar
MAÐUR klemmdist á lærum á
vinnusvæðinu við Kárahnjúka í
gærmorgun þegar tankbíll
rann af stað í hálku og lenti á
loftpressu. Pressan rann svo
með bílinn á eftir á starfsmann
og klemmdi hann fastan upp við
steypumót sem hann var að
vinna við. Bílstjóri tankbílsins
náði að losa manninn og reynd-
ist hann ekki mikið slasaður, og
var hugað að meiðslum hans á
svæðinu.
Klemmdist
milli bíls
og steypu-
móta