Morgunblaðið - 06.02.2004, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 06.02.2004, Blaðsíða 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 41 ✝ Björn I. Krist-jánsson fæddist 12. janúar 1933. Hann lést á líknar- deild Landakotsspít- ala 31. janúar síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Sigurást Sturlaugsdóttir, f. 16.4. 1894, d. í nóv- ember 1986, og Loft- ur Kristján Haralds- son, f. 3.4. 1994, d. í ágúst 1980. Björn var fjórði í röð fimm barna þeirra hjóna. Hin eru Rannveig, f. 25.3. 1926, Ingibjörg, f. 11.8. 1927, Vilborg Helga, f. 20.9. 1930, og Kristinn Herberg, f. 12.4. 1936. Björn ólst upp á Barmi á Skarðsströnd í Dalasýslu. Kynnt- ist þar eiginkonu sinni, Sirreyju Kolbeinsdóttur, f. 6.1. 1937, d. 28.6. 1996. Foreldrar hennar voru Sigríður María Erlendsdótt- ir, f. 25.3. 1904, d. í febrúar 1980. Kolbeinn Brynjólfsson, f. 3.12. 1895, d. í júní 1953. Þau eign- uðust þrjár dætur. Þær eru: 1) Kolbrún Bryndís, f. 18.6. 1953, giftist Valgarði Einarssyni, f. 19.1. 1955. Þau skildu. Er nú í sambúð með Ómari Morthens, f. 4.12. 1953. Börn hennar eru a) Sirrey María, f. 11.8. 1972, börn Sirreyjar eru: Kol- beinn Elí, f. 8.11. 1991, og Aron Örn, f. 29.4. 2001. b) Björn Ingi, f. 23.4. 1976, í sambúð með Húbert Nóa, f. 21.9. 1980. 2) Ásta María, f. 22.3. 1957, maki Steinn Steinsen, f. 20.2. 1953. Börn þeirra eru: a) Stein- unn Dögg, f. 2.3. 1979, b) Steinarr Logi, f. 15.5. 1985, c) Auðun, f. 19.1. 1993. 3) Birg- itta Önfjörð, f. 9.1. 1963, maki Jó- hannes Skagfjörð Sigurðsson, f. 7.10. 1960. Börn þeirra eru a) Svava Önfjörð, f. 12.7. 1982, b) Eva Önfjörð, f. 3.10. 1984, c) Hlín Önfjörð, f. 30.4. 1992. Björn og Sirrey hófu sambúð sína í Reykjavík. Þau voru með búskap að Níp á Skarðsströnd frá 1956, en fluttust árið 1963 bú- ferlum til Reykjavíkur. Björn vann ýmis störf í Reykjavík en frá árinu 1968 vann hann hjá SVR. Seinustu árin hefur Björn verið búsettur í Búðardal. Útför Björns fer fram frá Frí- kirkjunni í Hafnarfirði í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Þú söngst mér guð þinn, gleði á liðnum árum, þann guð, sem fegrar hverja menska sál, þótt líf þitt værı́ein þraut af þúsund tárum, sem þöktu hjartans dýpstu leyndarmál. Þú komst og fórst með ást til alls, sem grætur, á öllu slíku kunnir nákvæm skil. Þín saga er ljós í lífi einnar nætur, eitt ljós, sem þráði bara að vera til. Ó, minning þín er minning hreinna ljóða, er minning þess, sem veit hvað tárið er. Við barm þinn greru blómstur alls þess góða. Ég bið minn guð að vaka yfir þér. (Vilhjálmur frá Skáholti) Elsku afi, takk fyrir allt. Sirrey Maria og Björn Ingi. Síminn hringdi og ég sá að á hin- um endanum var mamma. Ég vissi strax hvert erindið var. Langaði að sleppa því að svara og sjá hvort – ef ég fengi ekki fréttirnar – ég gæti flúið raunveruleikann. Engar fréttir eru góðar fréttir. Herti upp hugann á þriðju hringingu og heilsaði. Ég hafði rétt fyrir mér ... afi er dáinn. Svo núna sit ég hérna alein í út- löndum, en það skemmtilega er að mér finnst ég miklu minna alein núna heldur en þegar ég var alein í útlöndum og afi fárveikur heima á Íslandi. Núna finnst mér hann vera kominn til mín. Ein mynd segir oft meira en þús- und orð. Svo ég ætla með nokkrum orðum að reyna að teikna upp mynd af afa eins og hann er geymdur í mínum huga. Það er sól úti. Í hlaðinu stendur vel bónaður bíll. Húsið sem hann stendur við er mjög snyrtilegt. Á húsinu og í kringum húsið er fullt af allskonar skrítnu garðskrauti. Í miðjum garðinum er lítill bónda- bær. Og þar stendur hann afi minn, nýbúin að raða legó-körlunum, sem eiga heima í litla bóndabænum í kringum hann. Hann sér mig koma í heimsókn, hleypur til og faðmar mig. Elsku besti afi minn. Ég ætla að fá að kveðja þig hérna í útlönd- unum. Því eftir allt saman er ekki mikið sem ég get gert fyrir þig núna annað en að halda áfram að reyna að taka eins réttar ákvarð- anir og ég get í lífinu. Þú hefur allt- af verið rosalega stoltur af allri skólagöngunni minni. Svo ég hef ákveðið að velgengni hér í Dan- mörkinni gleðji þig meira en við- vera mín í jarðarförinni. Svo þangað til næst. Mamma, Kolla, Birgitta og allir hinir. Ég vildi að ég gæti faðmað ykkur öll. Sendi ykkur öllum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Steinunn Dögg. Elsku besti bróðir minn, nú er komið að kveðjustund okkar í bili. Við sjáumst aftur hjá ástvinum okk- ar þar sem ég er viss um að vel verður tekið á móti þér. Það er svo margs að minnast þegar ég hugsa til baka sem ekki er skrítið þar sem við vorum svo náin á okkar upp- vaxtarárum. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Gleðin og sorgin eru systur sem fylgja okkur gegnum lífið. Orð eru til lítils megnug en þá er gott að eiga góðu minningarnar um þig sem munu lifa áfram. Guð geymi þig, elsku bróðir. Ingibjörg Kristjánsdóttir. Nú kveð ég þig hinstu kveðju, elsku bróðir minn. Sárt er vinar að sakna. Sorgin er djúp og hljóð. Minningar mætar vakna, margar úr gleymsku rakna. Svo var þín samfylgd góð. Daprast hugur og hjarta. Ómskuggi féll á brá. Lifir þó ljósið bjarta, lýsir upp myrkrið svarta vinur þó félli frá. Góða minning að geyma gefur syrgjendum fró. Til þín mun þakkir streyma, þér munum við ei gleyma. Sofðu í sælli ró. (Höf. ók.) Ég sendi dætrum Björns og fjöl- skyldum þeirra mínar innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi minningu þína. Þín systir Vilborg (Bogga). BJÖRN I. KRISTJÁNSSON víðar um landið og var borið sér- stakt lof á þessa ferðalanga fyrir góða umgengni hvar sem þeir komu. Hilmar var virkur félagi í Odd- fellowreglunni, stúku nr. 12, Skúla fógeta, og sat um skeið í stjórn stúkunnar. Það var löngum venja um helgar að renna austur í Grímsnes og heimsækja Hilmar og Sigrúnu í sumarbústaðinn enda gestagangur- inn þar slíkur að þeim hefur eflaust stundum þótt nóg um. En þar var öllum tekið af höfðingsskap og gestum sýndar með stolti endur- bætur á bústaðnum, gróðurinn og ekki síst allar hríslurnar sem þau höfðu nostrað við að gróðursetja og sem nú eru orðnar að risatrjám. Grænir fingur þeirra hjóna nutu sín líka vel þegar þau byggðu sér hús við Sævargarða á Seltjarnar- nesi. Garðurinn við húsið var ein- staklega fallegur og bar fagurt vitni alúð þeirra hjóna við garð- ræktina. En 1988 dundi yfir reiðarslag því Hilmar fékk heilablóðfall, lamaðist á vinstri hlið og varð af þeim sök- um óvinnufær. Hann náði sér þó að nokkru með dyggilegri aðstoð Sig- rúnar sem reyndist honum þá sem endranær ómetanleg stoð og stytta. Þau nutu þess mjög að ferðast en fötlun Hilmars skerti nú verulega getu hans til þess. En árið 1991 keyptu þau hús í Ventura nærri Orlando í Flórída þar sem þau dvöldust oft löngum stundum og þar sem Hilmar undi sér ákaflega vel. Var jafnan rómuð eljusemi Sig- rúnar við að keyra hann um allar jarðir í hjólastólnum og gera hon- um lífið sem ánægjulegast. En 1999 reið annað áfall yfir þegar stóll brotnaði undan Hilmar svo hann skall með hnakkann í hvasst horn og slasaðist svo illa að hann lamaðist nú líka hægra meg- in. Eftir nokkra legu sárþjáður á sjúkrahúsi var hann fluttur heim í sjúkrakörfu. Var hann mikið til rúmfastur upp frá því en hann naut til æviloka góðrar umönnunar Hjúkrunarheimilisins Skógarbæjar sem hér með er þakkað fyrir. Ég votta að lokum Sigrúnu, dætrum hennar, tengdasonum og barnabörnum innilega samúð við fráfall vinar okkar, Hilmars Guð- mundssonar. Í huga okkar sem kynntumst honum mun minningin lifa um góðan mann. Guðmundur Þorsteinsson. Hilmar Guðmundsson er látinn og verður hann kvaddur í dag. Ég ólst upp erlendis, þar sem ég bjó með foreldrum mínum og systk- inum, og þekkti ég því frændfólk mitt ekki mjög vel, enda hitti ég þau oftast bara einu sinni eða tvisv- ar á ári. Elsta minningin um Hilm- ar er frá því ég var barn, en okkur var alltaf boðið í mat til Sigrúnar og Hilmars þegar við vorum á Ís- landi. Í matarboðunum voru þá oft dætur þeirra hjóna, Dóra og Ólöf, tengdasynir og barnabörn. Hilmar náði vel til okkar barnanna með brellum og margs konar gríni. Alla vega var hann sá fyrsti sem sýndi mér að hægt væri að taka putta í tvennt! Þegar ég ákvað að fara í mennta- skóla hér á Íslandi buðu Sigrún og Hilmar foreldrum mínum mér dval- arstað hjá sér. Ég fékk því einstakt tækifæri til að kynnast þeim mun betur og áttum við margar góðar stundir saman, þrátt fyrir að vera unglingur á mótþróaskeiði. Minnist ég sérstaklega kjötsúpunnar, sem okkur Hilmari fannst góð, sérstak- lega þegar hún var hituð upp dag- inn eftir. Hilmar hefur verið lengi veikur en nú er kvölinni lokið. Ég trúi því að lífslok séu ekki endalok, heldur er ferðinni haldið áfram á öðrum vettvangi, þar sem hann mun nú hitta systur mína og aðra ættingja og vini, sem eru farnir á undan. Þar bíða margir eftir að taka hlý- lega á móti honum. Ég kveð Hilm- ar með þakklæti fyrir allar sam- verustundirnar og votta Sigrúnu, dætrum hennar og fjölskyldum þeirra samúð mína. Halldóra. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og stjúpmóðir, SIGURÁST GÍSLADÓTTIR, Valhúsabraut 13, Seltjarnarnesi, andaðist á líknardeild Landakots að morgni miðvikudagsins 4. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Ólafur Valur Sigurðsson, Sigríður Ólafsdóttir, Árni Rafnsson, Ólafur Valur Ólafsson, Sigurlín Ólafsdóttir, Gísli Ólafsson, Agnes Garðarsdóttir, Sigurður Ólafsson, Ágústa Gunnlaugsdóttir og barnabörn. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, PÁLS SIGURÐSSONAR bifreiðastjóra, Austurbrún 6, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar L5, Landspítala Landakoti, fyrir kærleiksríka umönnun og alúð. Guð blessi ykkur öll. Þrúður Pálsdóttir, Þorgeir J. Yngvason, Hákon H. Pálsson, Ingibjörg Hafsteinsdóttir, Ingólfur Pálsson, Sigurður Pálsson, Margrét E. Kristjánsdóttir, Sigurjón Pálsson, Theodóra Ragnarsdóttir, Halla Pálsdóttir, Sigsteinn Sigurðsson, Guðlaugur Pálsson, Dagmar Pálsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓSKAR NIKULÁSSON, elliheimilinu Grund, áður Grettisgötu 12, andaðist að morgni miðvikudagsins 4. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni mánudag- inn 9. febrúar kl. 13.30. Íris Ingibergsdóttir, Ingibergur Óskarsson, Anette Mogensen, Oddfríður Ósk Óskarsdóttir, María Óskarsdóttir, Andrés Magnússon og barnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, stjúp- móðir og dóttir, BÁRA SVEINSDÓTTIR, Búhamri 28, Vestmannaeyjum, lést miðvikudaginn 4. febrúar 2004. Jarðarförin auglýst síðar. Jóhannes Steinólfsson, Aðalbjörg Jóhanna Bárudóttir, Þóra Birgit Jóhannesdóttir, Steinunn Lilja Jóhannesdóttir, Helga Rut Jóhannesdóttir, Hjördís Inga Jóhannesdóttir, Þóra Birgit Bernódusdóttir, Sveinn Halldórsson. Eiginmaður minn, faðir, og stjúpfaðir, MATTHÍAS VIÐAR SÆMUNDSSON, Bárugötu 35, lést þriðjudaginn 3. febrúar. Steinunn Ólafsdóttir, Jóhanna Steina Matthíasdóttir, Nanna Elísa Jakobsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.