Morgunblaðið - 06.02.2004, Blaðsíða 54
DAGBÓK
54 FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn-
:Skaftafell og Dettifoss
fara í dag. Haukur kem-
ur í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Haukur kemur í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, bað og jóga,
kl. 14 bingó. Hársnyrt-
ing, fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 13–
16,30 smíðar. Bingó
spilað 2. og 4. föstudag í
mánuði.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 bað, kl. 9–12 vefn-
aður, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–17 fótaað-
gerð, kl. 13–16 vefnaður
og frjálst að spila í sal.
Kl. 10 helgistund með
sr. Kristínu Pálsdóttur.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9 bað og hár-
greiðslustofan opin, kl.
14 söngstund.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin, kl. 10–
13 verslunin opin.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Opin vinnu-
stofa, kl. 9–16.30,
gönguhópur, kl. 9.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13 opið hús,
spilað á spil.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. vinnuhópur í
gleri kl. 9, ullarþæfing
kl. 13.30.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Opnað
kl. 9, brids kl. 13, biljard
kl. 13.30.
Gerðuberg, félagsstarf,
kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar m.a. almenn
handavinna, frá hádegi
spilasalur opinn kl. 10
létt ganga, kl. 13.30 kór-
æfing.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.05 myndvefnaður,
kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 13 bókband.
Á morgun, laugardag-
inn 7. febrúar, kl. 12–13
býður Hjörtur M. Guð-
mundsson gestum á
opnun sýningar á
handavinnu sinni í til-
efni 80 ára afmælis síns.
Sýningin er opin til 29.
febrúar.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 glerlist, kl. 10
ganga, kl. 13 brids-
kennsla. Kl. 14 Gleði-
gjafarnir syngja.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
baðþjónusta, fótaaðgerð
og hárgreiðsla, kl. 11
spurt og spjallað, kl. 14
bingó.
Hvassaleiti 58–60.
Fótaaðgerðir virka
daga, hársnyrting
þriðjudag til föstudags.
Norðurbrún 1. Kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 10–11
boccia, kl. 14 leikfimi.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
handavinna, kl. 10–11
kántrídans. Kl. 13.30
sungið við flygilinn við
undirleik Sigurgeirs, kl.
14.30 dansað við lagaval
Sigvalda, kl. 15 kennir
Sigvaldi salsa, rjóma-
terta með kaffinu.
Þorrablót verður haldið
föstudaginn 13. febrúar.
Húsið opnað kl. 17. Sig-
urgeir Björgvinsson
leikur á flygilinn. Þorra-
hlaðborð. Veislustjóri:
Gísli S. Einarsson vara-
þingmaður, flytur gam-
anmál o.fl. Minni karla:
Valdís Samúelsdóttir.
Minni kvenna: Þórarinn
Á. Samúelsson. Fjölda-
söngur. Happdrætti.
Karlakórinn KKK
syngur, kórstjóri og
undirleikari Ulrich
Ólasson. Sæmi rokk og
Didda sýna dans.
Hljómsveit Hjördísar
Geirs leikur fyrir dansi.
Upplýsingar og skrán-
ing í síma 562 7077.
Vitatorg. Kl. 8. 45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla
og myndlist, kl. 9. 30
bókband og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og leikfimi, kl. 12.
30 leir, kl. 13. 30 bingó.
Þorrablót Vitatorgs
verður haldið fimmtu-
daginn 12. febrúar, allir
velkomnir, upplýsingar
í síma 561 0300.
Þjónustumiðstöðin,
Sléttuvegi 11. Opið frá
kl. 10–14.
Félag eldri borgara í
Gjábakka. Spilað brids
kl. 19 þriðjud. og kl.
13.15 föstud.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka, kl. 10.
Félag einhleypra.
Fundur á morgun kl. 21
í Konnakoti, Hverf-
isgötu 105, nýir félagar
velkomnir. Munið göng-
una mánu- og fimmtu-
daga.
Slysavarnadeild
kvenna í Reykjavík. Að-
alfundurinn verður
fimmtudaginn 13. feb.
kl. 20 í Höllubúð. Venju-
leg aðalfundarstörf.
Þorramatur.
Í dag er föstudagur 6. febrúar,
37. dagur ársins 2004.
Orð dagsins: Í kærleika sínum
ákvað hann fyrirfram að veita oss
sonarrétt í Jesú Kristi. Sá var vilji
hans og náð, sem hann lét oss í té í
sínum elskaða syni.
(Ef. 1, 5.-7.)
Töluvert hefur veriðfjallað um fjarveru
forseta Íslands frá við-
burðum tengdum heima-
stjórnarafmælinu á póli-
tískum vefritum í vikunni.
Ásthildur Sturludóttirritar grein um málið á
vefritið Tíkina. „Þau eru
einkennileg viðbrögðin
sem forseti Íslands sýnir
vegna ríkisráðsfundarins
sem haldinn var 1. febr-
úar sl.,“ segir Ásthildur.
„Sérstaklega eru við-
brögð hans einkennileg í
ljósi þess að aðdragandi
fundarins eru heil 100 ár
þó seint hafi verið til hans
boðað. Auðvitað er sjálf-
sagt að haldinn sé rík-
isráðsfundur á 100 ára af-
mæli heimastjórnarinnar.
Það hefði hins vegar verið
óeðlilegt að halda ekki
ríkisráðsfund og beinlínis
skrýtið að nýta ekki tæki-
færið og staðfesta nýja
reglugerð um stjórn-
arráðið á afmælisdegi
þess. Þetta allt mátti for-
setinn vita. Það er því hjá-
kátlegt að hann beri því
við að fundinum hafi verið
haldið leyndum fyrir hon-
um og að hann hafi lítið
vitað um hátíðahöldin í
kringum afmæli íslensku
heimastjórnarinnar.
Hátíðahöldin áttu ekkiað fara fram hjá nein-
um þeim sem þekkja ís-
lenska stjórnmálasögu.
Hvað þá þeim sem hafa
doktorspróf í íslenska
stjórnkerfinu líkt og for-
setinn. Þess vegna átti
Ólafur Ragnar Grímsson
að sjálfsögðu að gera ráð
fyrir því að vera á Íslandi
þann 1. febrúar 2004 til
þess að fagna með ís-
lensku þjóðinni á þessum
hátíðisdegi. Annað er
hrein móðgun við íslenska
lýðveldið og fram-
kvæmdavaldið. Forseti Ís-
lands fer ekki til Banda-
ríkjanna til þess að opna
sögusýningu og fara í
vetrarfrí þegar slík hátíð-
arhöld standa fyrir dyr-
um hjá þjóðinni. Slíkt get-
ur varla talist brýn
nauðsyn. Það er skylda
hans sem forseta að vera
viðstaddur afmæli sem
þetta, jafnvel þó sérstakt
hlutverk hans sé ekkert
nema að votta fram-
kvæmdavaldinu virðingu
sína.
Sá ljóti grunur læðisthins vegar að, að for-
seti lýðveldisins hafi ekki
haft áhuga á að taka þátt í
dagskránni sem haldin
var í tilefni afmælis
heimastjórnarinnar
vegna þess að skilgreint
hlutverk hans var ekkert.
Hann var í aukahlutverki
en ekki í aðalhlutverki. Ef
það er svo að forseti lýð-
veldisins sér sér ekki
lengur fært að mæta á svo
mikilvægan viðburð
vegna þess að einhver
annar er í aðalhlutverki
má fara að efast um til-
gang forsetaembættisins
og það geri ég eftir yf-
irlýsingar forsetans.
Skömmin er því hans en
ekki ríkisstjórnarinnar,“
segir Ásthildur Sturlu-
dóttir í grein sinni á Tík-
inni.
STAKSTEINAR
Forsetinn og heima-
stjórnarafmælið
Víkverji skrifar...
Listamaðurinn Ólafur Elías-son, sem er fæddur í Dan-
mörku af íslenzku foreldri, hef-
ur undanfarin ár verið í þeirri
stöðu að bæði Íslendingar og
Danir gera tilkall til hans – sem
Ólafur lætur sér reyndar í léttu
rúmi liggja. Hann sagði í viðtali
við Morgunblaðið fyrir tæpum
tveimur árum um þá ákvörðun
danska menningarmálaráðu-
neytisins að velja hann til að
taka þátt í Feneyjatvíæringnum
fyrir hönd Danmerkur: „Getan
til að taka þátt í menningar-
umræðunni á þrepinu fyrir ofan
þjóðlega planið; – þ.e. á alþjóðlegum
vettvangi og mikilvægi þess fyrir
Danmörku, ráða vali þeirra á lista-
manni til að sýna í Feneyjum. Þeir
áttu þess vegna ekkert í vandræðum
með að leita til mín, enda kalla þeir
mig dansk-íslenzkan listamann.“
x x x
Ólafur Elíasson er auðvitað fyrstog fremst mótaður af alþjóð-
legum straumum – hann er af ís-
lenzku foreldri, uppalinn í Dan-
mörku, býr og starfar í Þýzkalandi
og vinnur með fólki víða um heim.
Það, sem er mikilvægt fyrir Íslend-
inga, er að hann er virkur þátttak-
andi í íslenzkum myndlistarheimi,
eins og sýningar hans hér á landi
hafa borið vott um, ekki sízt sú sem
nú stendur í Listasafni Reykjavíkur í
Hafnarhúsinu. Sú ræktarsemi, sem
Ólafur hefur sýnt Íslandi, er til þess
fallin að vekja athygli umheimsins á
íslenzku listalífi yfirleitt.
x x x
Þegar forsetafrúin lýsti því yfir aðekki ætti að láta Dani eina eigna
sér Ólaf, hugsaði Víkverji til þess að
listamaðurinn væri kominn í svipaða
stöðu og myndhöggvarinn Bert-
el Thorvaldsen fyrir rúmlega
hálfri annarri öld. Þá og lengi
síðan hafa Danir og Íslendingar
ekki verið sammála um það
hvort Ísland geti gert tilkall til
listamannsins, sem var fæddur í
Danmörku en átti íslenzkan föð-
ur. Thorvaldsen, rétt eins og
Ólafur, bjó reyndar lengst af í
þriðja landinu, í Rómaborg á
Ítalíu. Líkt og Ólafur Elíasson
var hann alþjóðlegur listamað-
ur, því að í nýklassískum verk-
um hans er fátt, sem vísar sér-
staklega til Danmerkur eða
Íslands. En í þá daga skipti þjóðerni
meira máli en nú og Thorvaldsen
sendi Íslendingum hjartfólgna sönn-
un þess að hann liti á sig sem Íslend-
ing, a.m.k. öðrum þræði. Hann gerði
skírnarfont í Dómkirkjuna í Reykja-
vík og hjó á bakhlið hans áletrun, þar
sem hann segist gefa landi feðra
sinna listaverkið. Ólafur Elíasson
gæti auðvitað sýnt mönnum í eitt
skipti fyrir öll að hann liti á sig sem
Íslending með því að höggva það ein-
hvers staðar í stein – en líkast til ger-
ir hann það ekki. Rétt eins og Thor-
valdsen er hann „á þrepinu fyrir ofan
þjóðlega planið“.
Morgunblaðið/Sverrir
Ólafur Elíasson: Engar yfirlýsingar klappaðar
í stein eins og hjá Thorvaldsen.
Fordómar
KRISTJANA Vagnsdóttir
skrifar í Velvakanda 3. febr-
úar sl. undir fyrirsögninni
öryrki eða ekki. Hún segist
vera sammála Davíð Odds-
syni þegar hann talaði um
breytt mat á örorku. Ég
heyrði ekki þessi orð hans,
en mér finnst Kristjana
geysast fullhratt fram á rit-
völlunn og tala um að allir
öryrkjar gangi ekki undir
því nafni. Hún talar um að
margir vilji vera það en sigla
undir svörtum fána.
Það er nógu slæmt að
vera öryrki vegna slyss eða
veikinda og þurfa að skrimta
af lágum bótum þó að þessu
fólki mæti ekki tortryggni
og sé látið jafnvel liggja að
því að það sé að gera sér upp
veikindi sín. Ég veit um
marga öryrkja sem óska sér
einskis frekar en að geta
unnið, því tími þessa fólks
er oft lengi að líða og sumir
einangrast félagslega. Ég
vil ráðleggja Kristjönu að
kynna sér málin betur áður
en hún tjáir sig um málefni
öryrkja.
Sigrún Ármanns
Reynisdóttir.
Þriðja
kryddið
KONA frá Selfossi undrast
yfir því að þriðja kryddið
skuli notað í uppskrift í
Morgunblaðinu, en þriðja
kryddið er miklu algengara
í mat en hún heldur. Má
nefna spægipylsu frá kjöt-
vinnslu á Suðurlandi og
olívur í dós frá Spáni, seld-
ar í sælkerabúð í Reykja-
vík. Fleiri dæmi gæti ég
nefnt. Gaman væri að fá álit
Laufeyjar Steingrímsdótt-
ur matvælafræðings á
þriðja kryddinu, öðru nafni
monosodium glutamate
E621.
Ingi Stein.
Síróp frá Karó
BRYNDÍS spyr um síróp
frá Karó í Velvakanda 4.
febrúar sl. Samkvæmt upp-
lýsingum okkar flutti
Heildverslunin Karl K.
Karlsson þetta vörumerki
inn en er því miður hætt því
og veit ekki til þess að
neinn hafi tekið við inn-
flutningnum.
Kveðja,
Helga Þorsteinsdóttir,
Þjónustuveri
Gulu línunnar.
Er Háskólinn í óreglu?
ÞAÐ heyrir nú til undan-
tekninga í HÍ að mæta í
fyrirlestra eða svokallaða
dæmatíma. Þess í stað hef-
ur það þótt æ sjálfsagðara
að mæta í svokallaðar vís-
indaferðir sem eru í raun
afsökun fyrir áfengis-
neyslu. Þetta er neikvæð
þróun. Ef fram heldur sem
horfir mun brottfallið
aukast, atvinnuleysi einnig
í kjölfarið ásamt öðrum
vandamálum. Háskólanem-
ar: Snúum þróuninni við og
mætum í skólann.
Ólafur Þórisson.
Dýrahald
Kettling vantar
heimili
YNDISLEGUR átta vikna
kassavanur högni óskar
eftir góðu heimili sem allra
fyrst.
Upplýsingar í síma 562-
4766.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 sax, 4 hnusar af, 7 ekki
djúp, 8 kvabbs, 9 tók,
11 tóma, 13 ilma, 14 gál-
an, 15 bráðum, 17 brúka,
20 hlass, 22 alir, 23 fisk-
urinn, 24 skynfærin,
25 hreinar.
LÓÐRÉTT
1 mæla, 2 smyrsl, 3 karl-
ar, 4 görn, 5 stygg,
6 þvaðra, 10 dáð,
12 beita, 13 elska, 15 fást
við, 16 næstum ný,
18 heiðursmerki, 19 get-
ur gert, 20 heiðurinn,
21 slæmt.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 termítana, 8 fælir, 9 feita, 10 ill, 11 móður,
13 asnar, 15 sögðu, 18 ólgan, 21 Róm, 22 tórum,
23 iðnað, 24 riklingur.
Lóðrétt: 2 eplið, 3 mærir, 4 tafla, 5 náinn, 6 ófim,
7 maur, 12 urð, 14 sál, 15 sótt, 16 gerpi, 17 urmul,
18 óminn, 19 gengu, 20 næði.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16