Morgunblaðið - 06.02.2004, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRESTUR til að skila tillögum í hug-
myndasamkeppni Landsbankans um
miðborg Reykjavíkur rennur út í
dag, föstudag, en um miðja vikuna
höfðu þegar borist yfir 500 tillögur.
Í keppnisgögnum segir að hug-
myndum megi lýsa í orðum eða
myndum. Þær geti snúið að nýtingu
eða breytingum á byggingum eða
umhverfi, verið tillögur að starfsemi
fyrirtækja, þjónustu eða menningar-
starfsemi eða hvaðeina sem þátttak-
endur hefur langað að sjá, gera eða
upplifa í miðborginni. Dómnefnd
mun umfram allt leita eftir hrífandi
og frumlegum hugmyndum og því
standi allir jafnt að vígi í keppn-
inni.Valdar hugmyndir verða sýnd-
ar en veitt verða þrenn verðlaun fyr-
ir góðar hugmyndir auk tíu
sérstakra viðurkenninga. Fyrstu
verðlaun eru 750 þúsund krónur,
önnur verðlaun eru 400 þúsund
krónur og þriðju verðlaun eru 200
þúsund krónur. Höfundar tillagna
sem fá sérstaka viðurkenningu fá
loks 50 þúsund krónur hver.
Dómnefnd skipa Björgólfur Guð-
mundsson formaður bankaráðs, Eva
María Jónsdóttir íbúi í miðborginni,
Guðjón Friðriksson sagnfræðingur,
Hallgrímur Helgason rithöfundur,
Ingibjörg Pálmadóttir innanhúss-
arkitekt og Margrét Harðardóttir
arkitekt.
Vegna umfjöllunar um keppnina á
Stöð 2 í gær segir Kristján Guð-
mundsson, forstöðumaður markaðs-
og þróunardeildar Landsbankans,
að þar hafi menn verið að leggja
áherslu á fjölbreytnina í innsendum
tillögum og gefa fólki til kynna að
það mætti senda inn allt mögulegt.
Meira en 500
tillögur í sam-
keppni um
miðborg
Tinna J. Molphy, Björgólfur Guð-
mundsson og Kristján Guðmunds-
son skoða hluta tillagnanna.
HÆSTIRÉTTUR hefur lækk-
að bætur sem dæmdar voru
manni fyrir ólögmæta hand-
töku í Hafnarfirði fyrir þremur
árum. Voru honum dæmdar
120.000 kr. í bætur í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í desember
2002 en Hæstiréttur lækkaði
upphæðina í 50.000 krónur.
Maðurinn var ásamt syni sín-
um, sem þá var rúmra sex ára,
handtekinn í miðbæ Hafnar-
fjarðar vegna ætlaðra umferð-
arlagabrota og gruns um fíkni-
efnamisferli. Eftir líkamsleit og
yfirheyrslur var honum sleppt
um tveimur stundum seinna.
Mál þetta dæmdu Markús
Sigurbjörnsson, Garðar Gísla-
son og Guðrún Erlendsdóttir.
Bætur fyrir
ólögmæta
handtöku
lækkaðar
HÆSTIRÉTTUR Íslands hefur
staðfest dóm héraðsdóms og dæmt
Skífuna til að greiða Steinari Berg
Ísleifssyni rúmlega 1,8 milljónir
króna með dráttarvöxtum vegna
vanefnda á ráðningarsamningi.
Samkvæmt samningnum átti
Steinar að fá greitt hlutfall af hagn-
aði af útflutningi tónlistar á vegum
Skífunnar. Taldi Steinar að Skífan
hefði ekki staðið skil á þeirri hagn-
aðarhlutdeild og að Skífan hefði lagt
niður tónlistarútflutning, sem hefði
verið grundvöllur fyrir launakjörum
sínum.
Krafðist tæplega 20 milljóna
króna auk málskostnaðar
Í dómi héraðsdóms var staðfest að
Skífan skuldaði Steinari tiltekna
fjárhæð vegna hagnaðarhlutdeildar,
en Steinar skaut málinu til Hæsta-
réttar og krafðist tæplega 20 millj-
óna króna auk dráttarvaxta, auk
málskostnaðar í héraði og fyrir
Hæstarétti.
Þessu hafnaði Hæstiréttur í dómi
sínum og staðfesti dómurinn það álit
héraðsdóms að Skífunni bæri að
greiða Steinari rúmar 1,8 milljónir
króna auk dráttarvaxta.
Ákvörðun byggðist á mati á
afkomuhorfum fyrirtækisins
Varðandi ákvörðun Skífunnar um
að draga úr fjárframlögum til tón-
listarútflutnings var talið að sú
ákvörðun hefði byggst á mati á af-
komuhorfum fyrirtækisins í ljósi
markaðsaðstæðna og við það mat
yrði starfsmaðurinn að una. Ósannað
þótti samkvæmt dómi Hæstaréttar
að vakað hefði fyrir Skífunni að
leggja niður slíkan útflutning. Var
því krafa fyrirtækisins um staðfest-
ingu héraðsdóms tekin til greina.
Skífan var dæmd til að greiða
manninum 300.000 kr. vegna máls-
kostnaðar í héraði, en málskostnað-
ur fyrir Hæstarétti fellur niður.
Dóminn kváðu upp hæstaréttar-
dómararnir Guðrún Erlendsdóttir,
Hrafn Bragason og Pétur Kr. Haf-
stein.
Skífan dæmd til að
greiða fyrrverandi
starfsmanni bætur
BORGARFULLTRÚAR Sjálfstæð-
isflokksins telja óeðlilegt að mikil
hækkun sem orðið hefur á verði íbúð-
arhúsnæðis í Reykjavík leiði sjálf-
krafa til þess að eigendum íbúðar-
húsnæðis í Reykjavík sé íþyngt með
hækkuðum álögum, langt umfram al-
mennar verðlagsforsendur. Fulltrú-
ar Sjálfstæðisflokksins segja að
hækkun fasteignagjalda komi ekki
hvað síst illa við lágtekjufólk, aldraða
og öryrkja. Þetta var meðal þess sem
fram kom á blaðamannafundi borg-
arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Ráð-
húsi Reykjavíkur í gær.
Eðlilegt að taka mið af
almennum verðlagsforsendum
Fasteignamat íbúðarhúsnæðis í
Reykjavík hækkaði um 10% nú um
áramótin en borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins telja eðlilegt að við
hækkun fasteignagjalda á íbúðar-
húsnæði sé tekið mið af almennum
verðlagsforsendum. Lögðu fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins fram tillögu þar
farið var fram á að Borgarstjórn
Reykjavíkur samþykkti að endur-
skoða álagningarprósentu fasteigna-
gjalda á íbúðarhúsnæði, þ.e. fast-
eigna- og holræsagjald. Var
markmið tillögunnar að almennt
endurmat Fasteignamats ríkisins
um síðustu áramót leiddi ekki til þess
að heildarálögur á eigendur íbúðar-
húsnæðis hækkaði umfram þá 2,7%
hækkun sem varð á vísitölu neyslu-
verðs í fyrra.
Við afgreiðslu málsins í borgar-
stjórn í gærkvöldi var tillögu sjálf-
stæðismanna vísað frá. Þórólfur
Árnason borgarstjóri sagði að fjár-
hagsáætlun Reykjavíkurborgar hafi
þegar verið samþykkt í desember.
Sagði hann sérkennilegt að koma
fram með þessa tillögu nú tæpum
tveimur mánuðum seinna. Einnig
væri ekki ábyrgt að leggja fram til-
lögu, sem fæli í sér verulega tekju-
skerðingu fyrir Reykjavíkurborg, án
þess að tillögu liggi fyrir hvernig
minnka eigi kostnað á móti.
Björn Bjarnason, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, sagði alltaf
rétti tíminn fyrir góðar tillögur.
Áhyggjur Þórólfs væri dæmigerður
fyrir sífelldar áhyggjur vinstri
manna af minnkandi tekjum hins op-
inbera. Rangt væri að setja málið
þannig fram því með minni álögum
skapaðist meira svigrúm fyrir aukin
umsvif einstaklinganna. Tekjur hins
opinbera þyrftu því ekki endilega að
minnka þó skatthlutföll séu lækkuð.
Viðvarandi lóðaskortur
ein af orsökum verðhækkunar
Á blaðamannafundinum kom fram
máli Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar,
oddvita Sjálfstæðisflokksins, að frá
árinu 1999 hefði fasteignamat í
Reykjavík hækkað um 65% en vísi-
tala neysluverðs um 18,6% og bygg-
ingarvísitala um 21,4%. Væri tekið
tillit til endurskoðunar álagning-
arprósentu árið 2001 hefði hækkun
fasteignagjalda numið um 40% á um-
ræddu tímabili.
„Af hverju hefur fasteignamatið
hækkað svona mikið? Á því eru ugg-
laust margar skýringar. En stór
hluti af skýringunni er að okkar
hyggju ákveðinn og nokkuð viðvar-
andi lóðaskortur,“ sagði Vilhjálmur.
Hann benti á að þetta hefði haft þær
afleiðingar að byggingarkostnaður
hækkaði vegna þess að lóðargjöld
hafi hækkað. Vilhjálmur sagði að
þetta hefði gert það að verkum að
venjuleg meðalíbúð í fjölbýli hækk-
aði við þetta um 1,5 til tvær milljónir
króna. Í framhaldinu þýði þetta að
fasteignamatið hækki og síðan fast-
eignagjöldin þar sem þau reiknist
sem ákveðið hlutfall af fasteignamat-
inu.
„Við teljum að á undanförnum ár-
um hafi fasteignagjöldin hækkað
langt umfram allar verðlagsforsend-
ur sem menn almennt miða við, Við
teljum að þetta sé óeðlilegt og eigi
ekki að gerast sjálfkrafa. Þetta er
flatur skattur sem leggst á alla hús-
eigendur og það er talið 85% Reyk-
víkinga eigi sitt húsnæði,“ sagði Vil-
hjálmur.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn vildu létta álögum af borgarbúum
Lækkunartil-
lögu vísað frá
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins kynntu sjónarmið sín á blaðamannafundi, f. v.: Guðrún Ebba Ólafsdóttir,
Kjartan Magnússon, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Hanna Birna Kristjánsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson.
FARIÐ var yfir stöðu kjaraviðræðn-
anna við atvinnurekendur á for-
mannafundi stóru samninganefndar
Starfsgreinasambandsins í gær.
Samþykkt var á fundinum að veita
samninganefnd umboð til að taka
ákvörðun um að vísa kjaradeilunni
til meðferðar ríkissáttasemjara ef
hún telur ástæðu til.
Tímabært að hefja viðræður
um stærstu málin
Halldór Björnsson, formaður
Starfsgreinasambandsins, segir að
viðræður um sérmál og og málefni
einstakra hópa séu langt komnar og
nú sé orðið tímabært að snúa sér af
alvöru að stóru sameiginlegu málun-
um, þ.e. að launakröfum, nýrri
launatöflu og lífeyrismálunum.
Í dag munu forystumenn og samn-
inganefndir SGS og Samtaka at-
vinnulífsins koma saman til viðræðu-
fundar og á Halldór von á að þar
gæti komið í ljós hvert framhaldið
verður.
Telja að viðræðurnar
hafi gengið fullhægt
Farið er að gæta nokkurrar
óþreyju meðal félagsmanna í verka-
lýðshreyfingunni þar sem ekkert sé
farið að ræða af alvöru um stærstu
málin í væntanlegum samningum.
Halldór Björnsson staðfestir
þetta: „Mönnum finnst þetta hafa
gengið fullhægt og vilja að þetta
gangi hraðar fyrir sig. Svo er líka
hitt að í eina tíð voru húsin full af at-
vinnurekendum en nú er það allt orð-
ið breytt. Núna talast menn bara við
í tölvum. Menn hafa gert athuga-
semdir við að það séu ekki nógu
margir þarna.
Það hefur tekið talsverðan tíma að
komast út úr þessum þrengri málum
en ég á von á að við séum að komast á
leiðarenda þar og þá er hægt að fara
að takast á um það sem málið snýst
fyrst og fremst um, þ.e.a.s. kaup og
kjör.“
Stóra samninganefnd Starfsgreinasambandsins kom sam-
an til fundar í gær og fór yfir stöðu kjaraviðræðnanna
Umboð veitt til að vísa
deilunni til sáttasemjara
SEINNI áfangi í pílagrímaflugi flug-
félagsins Atlanta er nú hafinn en
flugið hófst um áramótin. Milli 1.100
og 1.200 manns starfa við verkefnið
með þrettán þotum félagsins. Píla-
grímafluginu lýkur í febrúarlok.
Garðar Forberg, deildarstjóri sölu-
og markaðsdeildar Atlanta, segir að
verkefnastaða félagsins fyrir árið sé
óvenju góð en 27 þotur eru í rekstri
um þessar mundir og útlit fyrir að
þær verði 32 eða 33 þegar líður á árið.
Hann segir samninga um ný verkefni
í burðarliðnum.
Flestar þotur Atlanta eru af gerð-
inni B747 og mun sá floti stækka enn
á árinu, ekki síst fraktþotur sem eru í
dag 7 en verða 10 til 12 í lok árs. Floti
B767 þotnanna stendur nokkurn veg-
inn í stað en fjölga á í B757 flotanum.
Síðari áfangi pílagríma-
flugs Atlanta hafinn
Úr stjórnstöð Atlanta í Jeddah. Haukur Eyjólfsson er við töfluna og sitjandi
í bakgrunni er Þorbjörn Guðmundsson og í forgrunni Ketill Gunnarsson.