Morgunblaðið - 06.02.2004, Síða 8

Morgunblaðið - 06.02.2004, Síða 8
FRÉTTIR 8 FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Við höfum verið gabbaðir, mr. Blair, ekkert sinnepsgas bara hauskúpusafnið hans. Aldarafmæli Ragnars í Smára Meðal gegn mannvonsku Hefði Ragnar íSmára verið meðlanglífari Íslend- ingum hefði hann orðið hundrað ára á morgun, 7. mars. Fjölskylda hans og velunnarar hafa af því til- efni undirbúið viðamikla helgardagskrá til heiðurs hinum mikla og merka list- unnanda. Erna Ragnars- dóttir er dóttir Ragnars og hún hefur unnið við skipu- lagningu á dagskránni, sem verður bæði í Reykja- vík og á Eyrarbakka, en þar fæddist Ragnar. Morg- unblaðið ræddi við Ernu um afmælið og dagskrána. „Við erum komin með virkilega flotta alvöru- dagskrá og hún fer fram víða og ekki aðeins í Reykjavík heldur einnig á Eyrarbakka þar sem Ragnar fæddist,“ segir Erna og hún er beðin að útskýra nánar. „Afmælisdagurinn er á morgun, laugardaginn 7. febrúar, og við byrjum þá klukkan 14 í galleríi ASÍ á Skólavörðuholtinu. Þar verða valin verk úr gjöf Ragnars til sýnis, þau sem þar komast fyr- ir, og með Power Point-sýningu verður hægt að skoða öll verkin. Þetta verður bara stutt dagskrá, m.a. ávörp Grétars Þorsteinsson- ar, forseta ASÍ, og Dagnýjar Bjargar Davíðsdóttur, barna- barns Ragnars. Síðan verður há- tíðardagskrá í Þjóðleikhúsinu og hefst þar klukkan 16. Það verður fín veisla.“ – Verkin sem þú ert að tala um? „Faðir minn þekkti fjölmarga listamenn síns tíma og eignaðist mjög mörg málverk. Þetta eru verk sem eru jafn fjölbreytileg og þau eru mörg. Árið 1961 gaf hann ASÍ 120 málverk, síðar 30 til við- bótar, sem urðu stofninn að Lista- safni ASÍ. Reglulega hafa hlutar af þessari gjöf verið til sýnis. Þetta eru verkin sem verða til sýnis á morgun.“ – Og til Þjóðleikhússins … „Já og eins og ég gat um verður þar glæsileg hátíð. Það er mikil- vægt að það komi fram, að þessi hátíð er öllum opin á meðan hús- rúm leyfir og það kostar ekkert inn. Við höfum boðið nokkrum framámönnum þjóðarinnar, en að öðru leyti vonum við að sem flestir komi til okkar. Meðal þess sem boðið verður upp á í Þjóðleikhús- inu er verk eftir Bach flutt af fiðlu- og strengjasveit frá Tónlistar- skóla Reykjavíkur. Það er fyrsta atriðið eftir setningarræðu. Síðan flytur Hjalti Rögnvaldsson leikari erindi sem Ragnar flutti sjálfur árið 1956 sem heitir „Listin er eina meðalið gegn mannvonsku“, sem er orðið að nokkurs konar mottói listamanna hér á landi, og afmæl- iskvæði eftir Kristján Karlsson til- einkað Ragnari, Gunnar Guð- björnsson syngur við undirleik Jónasar Ingimundarsonar. Síðan kemur Anna Sigríður Pálsdóttir, dóttir Páls Ísólfssonar, á sviðið og segir frá kynnum sín- um af Ragnari, en Páll og pabbi voru miklir vinir. Jón Þórarinsson, einn af gömlu dátunum sem voru hvað virkastir í menningarlífinu á þessum tíma, tekur einnig til máls og gleðiefni að enda þennan fyrri hluta dag- skrárinnar með því að kynna Ju- dith Serkin, dóttur Rudolfs Serk- ins píanóleikara, sem kemur hingað ásamt dóttur sinni Rose og flytja þær verk eftir Mozart fyrir selló og fagott. Rudolf Serkin var heimsþekktur píanóleikari sem ásamt fiðluleikaranum Adolf Busch varð, að öðrum ólöstuðum, einhver nánasti fjölskylduvinur okkar og hollvinur íslenskrar tón- listar. Þessi tengsl hafa haldist til þessa dags. Síðan er hlé þar sem Edda – miðlun býður upp á veitingar, en síðan segir Bragi Hannesson frá Ragnari sem listunnanda og iðn- rekanda. Þá koma aftur tónlistar- atriði, Auður Gunnarsdóttir syng- ur þrjú lög eftir Halldór Kiljan Laxness, Þorsteinn frá Hamri flytur ljóð og Tríó Reykjavíkur flytur verk eftir Brahms. Að því loknu flytur Júlíus Vífill Ingvars- son, formaður Tónlistarfélags Reykjavíkur, ávarp, en pabbi var fyrsti formaður þess. Síðan kemur „grand finale“ þar sem Karlakór Reykjavíkur og Karlakórinn Fóst- bræður syngja tvö lög og síðan bætast við Sinfóníuhljómsveit Ís- lands, sem flytur ásamt kórunum sannkallaðan íslenskan hátíðar- mars eftir Pál Ísólfsson og Davíð Stefánsson undir stjórn Kjartans Óskarssonar, skólastjóra Tónlist- arskóla Reykjavíkur.“ – Síðan er það Eyrarbakki? „Já, og það er sérstaklega gleði- legt að halda upp á afmælið þar einnig og á bæjarstjórn Árborgar þakkir skildar fyrir hlut sinn í því. Eftir guðsþjónustu klukkan 14 verður hluti myndlistargjafarinn- ar til ASÍ til sýnis í Húsinu á Eyr- arbakka. Í kirkjunni klukkan 17 verða einnig tónlistaratriði með Gunnari Björnssyni, Hauki Guð- laugssyni og Hauki Arnarr, en Gylfi Gísla- son myndlistarmaður flytur ávarp. Á Staf verður svo kvölddag- skrá fyrir vini og að- standendur, Barnakór Selfoss- kirkju syngur, Kventettinn, blásarasveit skipuð konum, flytur verk og Diddú tekur lagið, en einnig verða sagðar sögur af Ragnari. Þess má geta að Guðný Laxness er að vinna að heimilda- mynd um Ragnar í Smára og verð- ur helgardagskráin öll kvikmynd- uð.“ Erna Ragnarsdóttir  Erna Ragnarsdóttir fæddist í Reykjavík 1941. Nam innan- húss- og iðnhönnun í Bretlandi og Frakklandi og hefur unnið við hönnun um árabil. Hefur bú- ið lengi erlendis, síðustu árin í Finnlandi þar sem hún hefur starfað sem meðferðarfulltrúi með ungu fólki með fíkniefna- vanda. Á tvo uppkomna syni, Ragnar Gestsson myndlist- armann og Hrólf Gestsson for- ritara. Hún á og fimm barna- börn. Þar verða einnig tón- listaratriði KRISTJÁN Már Magnússon, sálfræð- ingur, hefur verið ráð- inn verkefnisstjóri á vegum heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra til að sinna sér- staklega geðmálum barna og ungmenna og tekur hann strax til starfa. Kristján út- skrifaðist með emb- ættispróf frá Kaup- mannahafnarháskóla 1984 og hefur rekið Reyni – ráðgjafastofu á Akureyri frá árinu 1996. Í frétt frá heilbrigð- is- og tryggingamálaráðuneytinu segir að í samræmi við fyrri yfirlýs- ingar Jóns Kristjánssonar, heil- brigðis-og tryggingamálaráðherra, verði meginhlutverk verkefnisstjóra að stuðla að og gera beinar tillögur um það hvernig koma má þjónustu við einstaklinga sem glíma við geð- raskanir í einn farveg og bæta með því þjónustu við þá. Verkefnisstjóra er í þessu sambandi falið að leiða saman þá að- ila, sem veita hjálp börnum og ungmenn- um með geðraskanir, á sviði heilbrigðis-, fé- lags- og menntamála. Verkefnisstjóra er einnig ætlað að kort- leggja þjónustuna sem veitt er á þessu svið af hálfu ríkis og sveitarfé- laga, kanna og gera til- lögur um með hvaða hætti auka má sam- starf á þessu sviði í því skyni að bæta þjón- ustuna við börn og ungmenni. Þjónustan verði markvissari „Verkefnisstjóra er einnig ætlað að gera tillögur um þjónustu við börn og ungmenni með geðraskanir á landsvísu, skýra og skilgreina verkaskiptingu og ábyrgð þeirra sem veita þjónustu á þessu sviði og leggja til breytingar á lögum og reglugerðum í því skyni að gera bæði þjónustu og samstarf aðila á þessu sviði markvissara. Kristján Már Magnússon er ráðinn tíma- bundið til sex mánaða. Heilbrigðismálaráðherra er með ráðningu verkefnisstjórans að leggja drög að endurskoðun skipu- lags og framkvæmdar geðheilbrigð- isþjónustu við börn og ungmenni, sérstaklega hvernig þjónustuþættir vinna saman og jafnframt að láta skoða hvaða þjónustu er skynsam- legt að veita á mismunandi þjón- ustustigum. Framkvæmd þessara mála er á hendi fjölmargra aðila sem flestir falla undir stjórnsýslu heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, fé- lagsmálaráðuneytisins, mennta- málaráðuneytisins og sveitarfélag- anna. Það er skoðun ráðherra að samhæfing og samstarf í þessum málaflokki sé með þeim hætti að nokkuð skorti á skilvirkni og hag- kvæmni,“ segir m.a. í frétt ráðu- neytisins. Endurskoðun þjónustu við ungmenni með geðraskanir Verkefnisstjóri ráðinn í sex mánuði Kristján Már Magnússon TÆPLEGA þrítugur maður hef- ur verið dæmdur í 30 daga skil- orðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir líkamsárás en hann sló sér 10 árum eldri mann í andlitið septembernótt árið 2002 með þeim afleiðingum að hann marðist í andliti og framtönn vinstra megin í efri gómi brotn- aði. Maðurinn var dæmdur til að borga fórnarlambi sínu rúmar 348 þúsund krónur með vöxtum og dráttarvöxtum, auk 50 þúsund króna þóknunar lögmanns brota- þola og 70 þúsund krónu mál- svarnarþóknunar skipaðs verj- anda síns, auk alls annars sakarkostnaðar. Fullnustu refsingar mannsins var frestað skilorðsbundið til þriggja ára og fellur hún niður að þeim tíma liðnum haldi maðurinn almennt skilorð. Hann játaði brot sitt greiðlega og var tekið tillit til þess við ákvörðun refsingar. Dóminn kvað upp Ingveldur Einarsdóttir héraðsdómari. Þrjátíu daga fang- elsi fyrir hnefahögg BROTIST var inn í nýbyggingu í Grafarholtshverfi og stolið verkfær- um að verðmæti um 500.000 kr. Lög- reglunni í Reykjavík var tilkynnt innbrotið um tíuleytið í gærmorgun, og er þjófurinn eða þjófarnir enn ófundnir og málið í rannsókn. Einnig var brotist inn í fyrirtæki í Síðumúla í nótt og stolið tækjabún- aði í bíla. Brotin var rúða og farið inn, og var lögreglu tilkynnt um inn- brotið um kl. átta í gærmorgun. Áætlað verðmæti þess sem stolið var er um 35.000 kr., og leitar lög- regla nú þeirra sem þar voru að verki. Stolið verkfær- um að andvirði 500.000 króna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.