Morgunblaðið - 06.02.2004, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 9
„ÞETTA er í raun
ákaflega lítill þakkar-
vottur til að endur-
gjalda þá vináttu og þá
velvild sem mér hefur
hlotnast hjá starfsfólki
Árnastofnunar í gegn-
um árin,“ segir Jenny
Jochens, fræðimaður
og fyrrum prófessor í
miðaldasögu frá Balti-
more í Bandaríkjunum,
þegar hún er spurð um
35 milljóna króna
framlag sem hún og
eiginmaður hennar,
John Baldwin, gáfu
Árnastofnun nýlega til
að efla bókakost stofnunarinnar.
Jenny, sem oftsinnis hefur heim-
sótt Ísland og stundað hér fræði-
störf á liðnum árum, dvaldi á Íslandi
veturinn 1995-96 og hefur frá þeim
tíma komið til Íslands á hverju
hausti.
„Ég hef oft hugsað um það þegar
ég hef verið við vinnu á
Árnastofnun, að þar
eru margar bækur en
oft á tíðum ekki nægi-
lega margar. Ég
myndi vilja sjá bóka-
safnið efla bókakost
sinn og þess vegna
fékk ég þessa hug-
mynd,“ segir hún.
Stofna sjóð
Með fénu, sem feng-
ið er með tilstyrk son-
ar þeirra Peter Baldw-
in og tengdadóttur
Lisbet Rausing, verður
stofnaður sjóður til
minningar um dóttur Jenny og
Johns, Birgit Baldwin (1960-88) sem
lést í bílslysi. Verður ávöxtun sjóðs-
ins varið til að efla bókakost Árna-
stofnunar, sem fyrr segir.
Jenny er dönsk en hefur dvalist í
Bandaríkjunum alla starfsævina.
Hún var prófessor í sagnfræði við
Towson ríkisháskólann í Baltimore
og hefur skrifað fjölda greina um
norræna sögu og bókmenntir og
bækurnar Women in Old Norse
Society 1995 og Old Norse Images
of Women 1996. Hún er nú komin á
eftirlaun og dvelur hálft árið í París
og og hálft árið í Baltimore. Eig-
inmaður hennar, John Baldwin, hef-
ur gegnt stöðu prófessors við John
Hopkins háskólann í Bandaríkjun-
um.
Að sögn Jenny dvelur hún hér á
landi í tvær vikur í september á
hverju ári og hefur á þeim tíma
eignast mikið af góðum vinum. Á Ís-
landi sinnir hún jafnan fræðastörf-
um á Árnastofnun og hyggst halda
því áfram.
„Er í raun ákaflega
lítill þakkarvottur“
Fræðimaður sem stundað hefur rannsóknir á Árna-
stofnun gaf 35 milljónir króna til að efla bókakostinn
Jenny Jochens
REKSTUR á þriðju kynslóðar far-
símaþjónustu í Svíþjóð og Dan-
mörku hefur farið heldur rólega af
stað en Ericsson
og Nokia stefna
bæði að því að
setja á markað
sína fyrstu far-
síma fyrir
þriðjukynslóðar-
tækni síðar á
þessu ári.
Að sögn Ólafs
Magnússonar
verkfræðings,
sem starfar hjá fjarskiptafyrirtæk-
inu Tre í Stokkhólmi sem vinnur að
uppsetningu þjónustunnar í Sví-
þjóð og Danmörku, má rekja ró-
lega byrjun til þess að fyrirtækið
er fyrst á markað og margir þekkja
ekki muninn á hefðbundinni gsm-
tækni og þriðju kynslóðinni, 3G
símaþjónustu, sem svo er nefnd,
sem byggist á háum gagnaflutn-
ingshraða sem flytur upplýsingar á
rauntíma. Þá hafa eingöngu Mot-
orola og NEC boðið upp á 3G síma
en vörumerkin eru lítt þekkt í
Skandinavíu sem hefur torveldað
markaðssetningu.
Tre er í eigu Hutchison fjar-
skiptafyrirtækisins frá Hong
Kong, þeirra sömu og settu á stofn
Orange og seldu síðar til France
Telecom, og Investor sem er í eigu
Wallenberg-fjölskyldunnar. Ólafur
starfar í upplýsingatæknideild en
allri þjónustu í Danmörku og Sví-
þjóð er stýrt frá Stokkhólmi. Unnið
er að uppsetningu farsímakerfisins
og stefnt að því að hún nái til rúm-
lega 98% þjóðarinnar á næstu ár-
um en það er samkvæmt þeim skil-
yrðum sem sænska póst- og
símamálastofnunin, PTS, setti þeg-
ar leyfum var úthlutað árið 2000. Í
Danmörku eru skilyrði fyrir leyf-
inu þau að a.m.k. 60% þjóðarinnar
geti nýtt sér 3G þjónustu en fyr-
irtækið stefnir á að ná til fleiri.
Engar ákvarðanir um
uppsetningu í N-Evrópu
Þá hefur Tre tryggt sér leyfi til
að koma upp þriðju kynslóðar far-
símaþjónustu í Noregi en engar
ákvarðanir hafa verið teknar um
framhaldið eða frekara strandhögg
í Norður Evrópu.
En hvað kostar svo hefðbundinn
3G sími? Að sögn Ólafs er raunvirði
símans u.þ.b. 50 þúsund krónur í
Svíþjóð en kaupi fólk áskrift fær
það símann endurgjaldslaust og
greiðir tvö þúsund krónur á mán-
uði í fastagjald. Innifalin í verðinu
er klukkustundar notkun á daginn
og 1.000 mínútna notkun um helgar
auk ótakmarkaðrar myndsíma-
notkunar. Þá er greitt aukalega
fyrir ýmsa þjónustu, s.s. íþróttir,
tónlist og GPS staðsetningar, sem
menn geta keypt í gegnum símann.
Undirbýr þjónustu við þriðju kyn-
slóðar farsíma í Danmörku og Svíþjóð
Mikill hraði við
gagnaflutning
Ólafur Magnússon
Svörtu PAMELA buxurnar komnar
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Bankastræti 14, sími 552 1555
Nýjar vörur frá
Einnig útsala
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–16.00.
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Algjört verðhrun
Útsala
Hverfisgötu 6, Reykjavík, s. 562 2862
30-70%
afsláttur
Opið mánudaga-föstudaga
frá kl. 12-18 og laugardaga frá kl. 12-15
Skólavörðustíg 2 – sími 544 8880.
Nú er kalt úti
Vegna veðurs gefum við góðan
afslátt af völdum minkapelsum
Nýtt ár - Nýir möguleikar
Volare er framsækið fyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu á hágæða hár-,
húð- og heilsuvörum. Fyrirtækið hefur stækkað mikið undanfarna
mánuði og nú vantar okkur sölufólk um allt land til að kynna okkar
frábæru vöru. Ef þú ert jákvæð/ur, vilt ráða þínum vinnutíma sjálf/ur
og auka tekjur þínar þá áttu samleið með okkur.
Hlökkum til að heyra frá þér.
Eydís Björk
s. 462 7791 - 869 5226
netfang: eydis@nett.is
Lilja Dóra
s. 587 5658 - 865 7036
netfang: fiol@simnet.is
Glæsibæ – Sími 562 5110 - Opið virka daga 10-18.00 og laugardaga 10-16.00
Síðustu dagar útsölunnar
Ótrúlegt verð