Morgunblaðið - 06.02.2004, Side 19
Verið velkomin á LANCÔME daga í dag og á morgun, laugardag.
Vantar þig ráðleggingar varðandi húðumhirðu?
Viltu fá nýjar hugmyndir varðandi förðun?
Láttu ráðgjafa frá Lancôme aðstoða þig.
Nýir litir, ýmis flott tilboð og veglegir kaupaukar.
Hylur línur,
jafnar húðlitinn.
Fyrsti farðinn með MICRO-LIFT™
sem þéttir yfirborð húðarinnar.
LYFTIR OG VEITIR ÞÆGINDI,
JAFNAR HÚÐLITINN OG
TRYGGIR BJARTAN
OG FALLEGAN HÚÐLIT.
w
w
w
.la
nc
om
e.
co
m
Smáralind,
sími 554 3960
Kringlan,
sími 533 4533
Laugavegur 21,
sími 511 4533
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Sumarhús á Uppsölum | Landbún-
aðarráðuneytið hefur uppi áform um að
skipuleggja um það bil tíu sumarhúsalóðir á
jörðinni Selárdal í Arnarfirði og nálægum
jörðum, svo sem Uppsölum þar sem hinn
þjóðþekkti einsetumaður Gísli Gíslason bjó.
Fram kemur í erindi ráðuneytisins til bæj-
arstjórnar Vesturbyggðar að fólk sýni því
stöðugt áhuga að gera upp gömul hús á
jörðum sem ríkið á í Selárdal. Ráðuneytið
vill afmarka þarna nokkrar lóðir og gefa
fólki kost á að byggja þar hús sem tækju
mið af þeim byggingum sem fyrir eru.
Jafnframt kemur fram að landbún-
aðarráðuneytið hefur í hyggju að láta vinna
svæðisskipulag fyrir Selárdal. Bæjarráð
Vesturbyggðar lýsti yfir ánægju með þessi
áform á fundi sínum á dögunum.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Listamaður með barnshjarta | Fyrir-
hugað er að ráðast í viðgerðir á mann-
virkjum og listaverkum alþýðulistamannsins
Samúels Jónssonar á hjáleigunni Braut-
arholti í Selárdal í
Arnarfirði. Samúel
Jónsson, listamað-
urinn með barns-
hjartað, reisti kirkju,
listasafnshús og gerði
allmörg útilistaverk í Brautaholti. Mannvirki
þessi liggja öll undir skemmdum en ferða-
fólk hefur lagt leið sína þangað til að skoða
þau. Jörðin er í eigu ríkisins og hefur land-
búnaðarráðuneytið lýst áformum um að ráð-
ast í viðgerðir á húsum og listaverkum og
ljúka verkinu fyrir sumarið. Bæjarráð Vest-
urbyggðar fagnar þessum áformum.
Myndir úr mannshári | Sýningin Hárið
stendur nú yfir í sal Listasafns Ísafjarðar í
Safnahúsinu. Ekki er hér um að ræða
söngleikinn vinsæla, að því er fram kemur
í frétt á vef Ísafjarðarbæjar, heldur er
þetta sýning sem Byggðasafn Vestfjarða
stendur fyrir. Á henni eru myndir sem
unnar eru úr mannshári. Á sýningunni eru
tólf verk eftir listakonur við Ísafjarð-
ardjúp, unnar á 150 ára tímabili, en þang-
að barst þessi listiðja með Karítas Hafliða-
dóttur frá Fremri-Bakka í Langadal.
Sýningin er opin á sama tíma og Safna-
húsið út mánuðinn.
KARLAKÓRINNHeimir er á leið-inni suður yfir
heiðar til að halda skag-
firskt þorrablót á Broad-
way laugardagskvöldið
21. febrúar.
Hið óvenjulega við
þorrablót Heimismanna
er að þeir heita allsér-
stökum happdrættisvinn-
ingum fyrir þá sem
mæta. Í verðlaun eru
skagfirskt og vel ættað
folald, lambhrútur á fæti
og hangikjötslæri. Páll
Dagbjartsson, formaður
Heimis, segir að það hafi
þótt einkar vel við hæfi
að bjóða upp á þessi
verðlaun, til að minna á
helstu vörumerki Skag-
firðinga.
Metsölutenórinn Óskar
Pétursson frá Álftagerði
kemur fram með Heim-
ismönnum á Broadway
og skagfirskir hagyrð-
ingar munu láta ljós sitt
skína. Að loknu þorra-
blótshaldi og söng-
skemmtun munu Mið-
aldamenn leika fyrir
dansi.
Lifandi laun
Viðurkenningar fyrir bestu slagorðin gegn einelti íslagorðasamkeppni grunnskólanna við ut-anverðan Eyjafjörð voru afhentar á kaffihúsinu
Sogni á Dalvík nýlega.
Viðurkenningar hlutu Ingibjörg Víkingsdóttir, Dalvík-
urskóla, fyrir slagorðið Allir saman, enginn einn, Svan-
hildur Kristínardóttir, Grunnskólanum í Hrísey, fyrir
slagorðið Einelti brýtur, vinátta styrkir og Adda María
Ólafsdóttir fyrir slagorðið: Einelti. NEI TAKK. Þessi
slagorð eru nú komin á barmmerki sem dreift verður til
allra nemenda og starfsfólks grunnskólanna við ut-
anverðan Eyjafjörð. Markmiðið með útgáfu barmmerkj-
anna er að gera verkefnið sýnilegt meðal þátttakenda
þess og einnig meðal þeirra sem utan verkefnisins eru.
Félagasamtök við utanverðan Eyjafjörð styrktu út-
gáfu barmmerkjanna. Slagorðasamkeppnin var liður í
Olweus-verkefninu gegn einelti. Allir grunnskólarnir sex
við utanverðan Eyjafjörð taka þátt í því verkefni.
Ljósmynd/Ingileif Ástvaldsdóttir
Gegn einelti: Ingibjörg Víkingsdóttir, Svanhildur Krist-
ínardóttir og Adda María Ólafsdóttir hlutu viðurkenn-
ingu í samkeppni um bestu slagorðin gegn einelti.
Allir saman, enginn einn
Friðrik Stein-grímsson í Mý-vatnssveit fylgdist
með umræðum um rík-
isráðsfundinn.
Á skíði þó að skreppi Óli um stund
skyldum sínum má hann ekki gleyma
því sækja verður sjö mínútna fund
sameiningartáknið okkar heima.
Ekki er allt jafn gáfulegt í
þjóðmálaumræðunni. Frá
því segir í Austfirskum
skemmtiljóðum að á
sýslufundi í Suður-
Múlasýslu hafi maður
einn komið í ræðustól,
sagst hafa ætlað sér að
hugsa um það mál sem til
umræðu var en ekki haft
tíma til þess. Hann talaði
þó um efnið nokkra hríð.
Þá orti Hjálmar Guð-
mundsson frá Berufirði:
Skyldi ég eiga að leggja’onum lið
eða láta hann bara mala.
Hann ætlaði að hugsa en hætti við
og hélt svo áfram að tala.
Í svipuðum dúr er vísa
Helga Seljan um mann
sem lét mikið af visku
sinni í spurningaþætti,
sem hafði þó ekki skilað
sér sem skyldi:
Ég valdist í liðið og vel mig bjó,
þó varð ekki komist hjá því,
að vissi ég allt en valdi þó
að vera ekki að segja frá því.
Þjóðmálaumræðan
pebl@mbl.is
Hveragerði | Ólafur Helgi
Kjartansson, sýslumaður á Sel-
fossi og lögreglustjóri, heimsótti
nemendur og starfsfólk Garð-
yrkjuskólans á Reykjum nýver-
ið til að kynna það helsta sem er
að gerast á sviði löggæslumála í
sýslunni. Hann fjallaði um
helstu verkefnin og svaraði fjöl-
mörgum fyrirspurnum.
Í máli hans kom meðal annars
fram að 27 lögreglumenn starfa
hjá lögreglunni í Árnessýslu en
fimm einstaklingar standa
hverja vakt, varðstjóri og fjórir
lögreglumenn. Lögreglan sér
einnig um sjúkraflutninga í sýsl-
unni en á síðasta ári voru farnir
720 sjúkraflutningar og tók
hver flutningur að meðaltali um
fjórar klukkustundir.
Heimsókn sýslumannsins í
skólann þótti fróðleg og
skemmtileg en hún er hluti af
fundaröð í sem efnt er til í vetur.
Ýmsir gestir eru fengnir til að
fræða fræða nemendur og
starfsmenn um það helsta sem
viðkomandi er að fást við í starfi
sínu.
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir
Sýslumaður skoðaði gróðurhúsin í heimsókn sinni og vöktu bananaplönturnar sérstakan áhuga hans.
Sýslumaðurinn í heimsókn
Suðrænir ávextir
Reykjanesbær | Sex myndlistarsýningar
verða í Listasafni Reykjanesbæjar í Duus-
húsum í Keflavík á þessu ári. Fimm lista-
menn eru með einkasýningar auk þess sem
Listasafn Reykjavíkur verður þar með
sýningu á verkum Errós í sumar.
Um 16 þúsund gestir komu í Duus-hús í
Keflavík á síðasta ári. Í Duus er sýning-
arsalur Listasafns Reykjanesbæjar og
sýning á Bátaflota Gríms Karlssonar auk
þess sem þar eru haldnir tónleikar og ýms-
ar samkomur. Valgerður Guðmundsdóttir,
forstöðumaður Listasafnsins, segir að þó
ekki sé hægt að segja nákvæmlega til um
hversu margir gestanna hafi komið á sýn-
ingar Listasafnsins sé hún afar ánægð með
aðsóknina á þessu fyrsta ári sýningarhalds
á vegum safnsins. „Við sjáum ekki betur en
að þessi nýjung í Reykjanesbæ, að bjóða
fagfólki í myndlist að sýna hér, hafi mælst
vel fyrir, jafnt af listamönnunum sjálfum
og bæjarbúum sem hafa verið duglegir við
að sækja listviðburði hér,“ segir Valgerður.
Listasafnið veitir þeim listamönnum
sem þar sýna endurgjaldslaus afnot af sýn-
ingarsalnum, gefur út sýningarskrá og að-
stoðar þá á ýmsan hátt.
Færri komust að en vildu
Búið er að skipuleggja sýningarhald árs-
ins í Listasafninu. Myndlistarmönnum var
boðið að sækja um og segir Valgerður að
hún hafi haft úr góðum hóp að velja. Fyrsta
sýningin opnar á morgun, laugardag, en
það er einkasýning portúgalska málarans
Carlos Barão. Í mars verður opnuð sýning
á verkum Kristjáns Jónssonar og í maí
sýnir Margrét Jónsdóttir. Listasafn
Reykjavíkur setur upp sýningu á verkum
Errós sem verður í safninu í sumar. Í haust
sýnir Ása Ólafsdóttir og árinu lýkur með
sýningu Valgarðs Gunnarssonar. Allir
listamennirnir hafa numið myndlist við ís-
lenska og/eða erlenda listaskóla og hafa
haldið fjölmargar einkasýningar.
Sýning á
verkum Errós
haldin í sumar