Morgunblaðið - 06.02.2004, Side 34

Morgunblaðið - 06.02.2004, Side 34
34 FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. B osnískir lögreglumenn eru vel menntaðir og meirihluti þeirra vill sjá breytingar á löggæslu- starfinu í landinu, enda hefur okkur verið tekið vel,“ segir Björn Hall- dórsson, aðstoðaryf- irlögregluþjónn hjá rík- islögreglustjóra, sem starfar nú með staðarlögreglunni í Brèko-héraði (Briskó) í Bosníu og Herzegóvínu á vegum lögregluliðs Evrópusambandsins – EUPM (European Union Police Mission). Björn hefur á liðnum árum öðlast umtals- verða reynslu í alþjóðlegum lögreglustörfum og vann m.a. í Bosníu á árunum 1998 og 1999. Nýjasta verkefni hans er með EUPM og hófst í nóvember 2002 en fyrsta janúar 2003 tók EUPM við af alþjóðlegu lögregluliði Sameinuðu þjóðanna IPTF (International Police Task Force) sem annaðist uppbygg- ingu og þjálfun löggæslu í landinu eftir að vopnuðum átökum þar lauk í desember 1995 með undirritun Dayton-friðarsamkomulags- ins. Mikill munur er á starfsemi EUPM og IPTF þar sem EUPM er nánast eingöngu ráðgjafaverkefni, þar sem athyglinni er beint að millistjórnendum og hærra settum í lög- regluliðunum og ráðuneytum. Björn er yfirmaður hóps lögreglumanna, pólitískra og lögfræðilegra ráðgjafa frá Frakklandi, Þýskalandi, Búlgaríu, Rúmeníu, Englandi og Svíþjóð. Þeir starfa náið með héraðslögreglunni í Brèko en íbúafjöldinn er um 90 þúsund, þar af eru um 45 þúsund í samnefndum bæ, og héraðið spannar um 500 ferkílómetra. Þar búa Bosníu-Króatar, Bosn- íu-Serbar og múslimar, sem Björn kallar Bosníakka, enda er það opinbert heiti þeirra samkvæmt bosnísku stjórnarskránni. Einnig býr talsverður hópur tatara í Brèko. Áhersla á að rjúfa tengsl stjórnmála- manna og lögreglunnar „EUPM miðar að því að koma á fót var- anlegu fyrirkomulagi í Bosnísku lögreglunni í samræmi við bestu evrópska og alþjóðlega staðla, allt í samráði og samvinnu við þarlend yfirvöld,“ segir Björn. „Mikil áhersla er lögð á að rjúfa tengsl stjórnmálamanna eða stjórnmálaflokka við lögregluna en tilhneig- ing pólitíkusa til að stjórna lögreglunni með pólitíska hagsmuni í huga, er sterk. Starfinu er markaður tímarammi frá 2003 til 2005 og á þeim tíma er liðinu ætlað að sinna sjö meg- inverkefnum, sem hvert um sig hafa marga undirþætti. Í fyrsta lagi er unnið að endurskipulagn- ingu á bosnísku rannsóknarlögreglunni, sem miðar einkum að því að gera lögregluna hæf- ari til að takast á við skipulagða glæpastarf- semi og mansal, sem er umtalsvert vandamál í Bosníu og Herzegóvínu. Í öðru lagi er um að ræða verkefni, sem lýtur aðallega að samstarfi lögreglu og sak- sóknara en einnig að því að koma á fót sér- stakri dómstólalögreglu og veita þjálfun í nýjum lögum um meðferð opinberra mála og almennum hegningarlögum. Í þriðja lagi er um að ræða innra eftirlit í lögreglunni, sem fyrst og fremst lýtur að agamálum og meðferð mála, þar sem lög- reglumenn hafa framið lögbrot. Í fjórða lagi er sjónum beint að skipulagi lögreglunnar sem stofnunar; fjárlagagerð, birgðahaldi, þjálfun og starfsmannahaldi, m.a. með það að markmiði að tryggja rétt hlutfall mismunandi þjóðerna innan lögreglunnar og jafna kynjahlutföllin sömuleiðis. Þá lýtur þetta að því að tryggja að stríðsglæpamenn geti ekki orðið lögreglumenn eða geti ekki dul- ist í lögreglunni, en það eru tals- verð brögð að því að þeir sækist eftir lög- reglustarfi og allmörgum hefur tekist það. En með auknum lögreglurannsóknum og vaxandi trausti almennings til yfirvalda hef- ur fólk í æ ríkari mæli þor til að vitna gegn lögreglumönnum sem sigla undir fölsku flaggi og þannig hafa ófáir þeirra verið af- hjúpaðir. Í fimmta lagi er sjónum beint að öryggi bosnískra borgara með því að efla og bæta starfsemi hinnar almennu, einkennisklæddu lögreglu og sérsveita. Þetta verkefni fjallar einnig um endurkomu flóttamanna og grenndarlöggæslu. Afar mikilvægt er að borgarar finni sig örugga óháð þjóðerni, kyni, skoðunum, o.s.frv. en á það vantar mikið enn. Í sjötta lagi er unnið með landamæra- lögreglunni og í sjöunda og síðasta lagi er unnið með lögreglumönnum, sem annast ör- yggi æðstu stjórnar landsins.“ Í fararbroddi í Bosníu að mörgu leyti Brèko-hérað er um margt sérstakt. Í Dayton-friðarferlinu náðu stríðandi fylk- ingar; Bosníu-Serbar annars vegar og Bosn- íu-Króatar og Bosníakkar hins vegar, ekki samkomulagi um framtíð héraðsins, en það er afar mikilvægt, bæði út frá hern- aðarlegum og viðskiptalegum sjónarmiðum. Brcko-hérað var sett undir alþjóðlegan gerð- ardóm og fyrir vikið er það í fararbroddi í Bosníu að mörgu leyti, til að mynda á sviði nútímalegrar lagasetningar, skattheimtu og einkavæðingar. Laun eru há og greidd reglu- lega. Loks má nefna að í Brcko var fyrst komið á fót lögregluliði, sem samanstóð af Bosníu-Serbum, Bosníu-Króötum og Bosn- íökkum og erfiðustu vandamálin, sem fylgja slíkri sameiningu, eru að baki Sama gildir hvað varðar starfsemi EUPM í Brcko en starfið þar hefur um margt orðið að fyrirmynd lögreglusveita annars staðar í landinu. „Með því að gera áætlun sem nær allt til loka verkefnisins árið 2005 tókst alþjóðahópnum í Brèko að finna heilmörg atriði sem vert væri að vinna að til við- bótar þeim sjö meginmarkmiðum sem ég nefndi. Sem dæmi má nefna endurskipulagningu hinnar almennu, einkennisklæddu lögreglu sem hófst fyrst í Brèko og má nú búast við að verði innleitt sem áhersluverkefni EUPM í öllu landinu,“ segir Björn. Hann tekur þó fram að þessi árangur og ýmsar framfarir séu ekki eingöngu EUPM að þakka heldur ráði hér miklu samvinnan við heimamenn og frumkvæði þeirra sjálfra s.s. á sviði lagasetn- ingar, en löggjöf í Brèko er ein sú nútímaleg- asta á öllum Balkanskaga að sögn Björns. Áhugavert og spennandi starf Björn segist ekki líta á lögreglustörf sín í Bosníu sem ævintýramennsku heldur eðli- legan þátt í lögreglustarfinu. Friðargæsla og önnur alþjóðleg lögreglustörf eru orðin snar þáttur í starfi lögreglunnar um allan heim. Þannig hafa frá 1997 um 30 lögreglumenn frá Íslan anskaga og spenn „gaman“ áskorun félag sem nýju um fjölskyld og mun e fyrir fim starfi he Spurð lögreglu tekið vel gengið á áherslu á arlögreg ingar“. „Auðv og alls st anna er v andi. Há reglunni vilja bre leiðis fin anna vilj alvöru lö tekið EU lýst því y samstar fram aðr fordómu um svok ríkjum e ópusamf Umg „Samk lögreglu sem á an opnar þá í gegnum ekki um með kald yrði sam EUPM h vita sem nema að anleg re og við ky Heimamenn fljóti gegnum kunnáttu Björn Halldórsson starfar með lö Bosníu og segir mikilvægt að ges að bjóða heimamönnum í stað þe ins til að skemmta sér. Örlygur S ræddi við Björn um starfið á dög Björn Haldórsson lengst til vinstri á vinnufundi lögregl Bosnískir sérsveitarmenn á æfingu fyrir lögreglulið Br Meirihluti vill sjá breytingar á löggæslu- starfinu SINNASKIPTI SHARONS Yfirlýsing Ariels Sharons, for-sætisráðherra Ísraels, á mánu-dag um að hann hygðist rýma landnemabyggðir gyðinga á Gaza- svæðinu hafa komið róti á stjórnmál í Ísrael. Sharon átti sjálfur þátt í að móta þá stefnu, sem bjó að baki því að gyðingar tækju sér bólfestu á landi þar sem fyrir voru einkum Palestínumenn, með þeim rökum að þannig yrði öryggi Ísraels aukið. Nú segir hann að það verði „engir gyðingar í Gaza“. Hann hyggst rýma sautján svokallaðar land- nemabyggðir á Gaza-svæðinu, alls 7.500 manns, sem margir hafa búið þar áratugum saman, og þrjár á Vestur- bakkanum. Þetta hefur hann í hyggju að gera einhliða. Róttækir þjóðernis- sinnar í ríkisstjórn Sharons hafa hótað að ganga úr stjórninni vegna þessa máls og hann getur ekki verið viss um stuðning eigin flokkssystkina, en Verkamannaflokkurinn, sem er í stjórnarandstöðu, lýsti yfir því á þriðjudag að hann myndi verja stjórn- ina falli með því að styðja þessar að- gerðir. Sharon kvaðst fremur myndu reyna að mynda nýja stjórn en hverfa frá þessum fyrirætlunum. Fréttaskýrendur hafa ákaft velt fyr- ir sér hvað vaki fyrir Sharon og hvort hann hafi snúið baki við hinum svokall- aða friðarvegvísi, sem Bandaríkja- menn hafa reynt að hafa milligöngu um að farið verði eftir til að stilla til friðar fyrir botni Miðjarðarhafs. Sjálf- ur hefur Sharon ekkert sagt í þá veru og tekið fram að hann muni ekki láta til skarar skríða nema ljóst sé að vegvís- irinn hafi runnið út í sandinn. En Shar- on hefur hins vegar látið í ljósi að hann muni ekki leika sama leikinn á Vest- urbakkanum. Þar ætli hann að halda í eins mikið land og unnt er og ekki verði aftur snúið til landamæra Ísraels eins og þau voru fyrir sex daga stríðið 1967. Því hefur verið haldið fram að Shar- on hafi gripið til þessa ráðs vegna þess að hann óttist að hann verði kærður í framhaldi af rannsókn, sem nú stendur yfir á því hvort ísraelskur verktaki hafi keypt sér áhrif forsætisráðherrans til að greiða fyrir framkvæmdum á Grikklandi. Sharon var yfirheyrður vegna málsins í gær, en hann neitar því að þetta mál hafi haft áhrif á yfirlýs- ingu sína um Gaza-svæðið. Það er ljóst að Palestínumenn munu aldrei sætta sig við að Ísraelar dragi sig aðeins burt frá Gaza-svæðinu, en reyni að halda sem mestu eftir af Vest- urbakkanum. Með yfirlýsingu sinni er Sharon í raun að segja að hann hafi enga trú á því að hægt sé að koma á friði með samningum og því ætli hann að koma á nokkurs konar aðskilnaði við Palestínumenn. Ahmed Qurei, for- sætisráðherra Palestínumanna, brást reyndar jákvætt við yfirlýsingu Shar- ons á þriðjudag, en bætti við að nú biði hann sams konar yfirlýsingar um Vesturbakkann og að hann vildi sjá at- hafnir, en ekki orð, ætti eitthvað að breytast. Sharon hefur ekki átt auðvelt með að snúa baki við þeirri stefnu, sem hann hefur fylgt í áraraðir í sambandi við landnemabyggðirnar, en það er annað mál hvort sinnaskipti hans duga til að höggva á hnútinn fyrir botni Mið- jarðarhafs. Við fyrstu sýn virðist frem- ur að þau séu liður í þeirri viðleitni að einangra Ísrael á bak við varnarbrynju í stað þess að reyna að leita sátta með samningum. FRÁ ÖRBIRGÐ TIL BJARGÁLNA Þróunaraðstoð frá efnuðum þjóðumer oft á tíðum það sem skilur á milli framfara og hnignunar í fátæk- ustu löndum heims og þar sem neyðin er mest á milli feigs og ófeigs. Enginn sem er upplýstur um mannréttindi, mannúðarmál og siðferðislegar skyld- ur gagnvart náunganum efast um mikilvægi slíkrar aðstoðar, þótt menn greini oft á um í hvaða farveg er far- sælast að beina henni. Samstarfsverk- efni Þróunarsamvinnustofnunar Ís- lands (ÞSSÍ) og Hjálparstarfs kirkjunnar (HK), er miðast að því að hjálpa einstaklingum til að „brjótast úr örbirgð til bjargálna“ eins og það var orðað í frétt í Morgunblaðinu í gær, er gott dæmi um framsýnar áherslur í þróunaraðstoð. Hér er ekki einungis um tímabundna aðstoð að ræða, svo sem í formi matargjafa, heldur er markmiðið að hjálpa fólki að byggja upp samfélag er gerir því kleift að standa á eigin fótum til fram- búðar, í þessu tilfelli með því að stunda sjálfsþurftarbúskap með sér- stöku tilliti til vatnsöflunar og vatns- notkunar. Þróunarverkefnið verður unnið í Malaví, einu fátækasta landi heims, og að sögn verkefnisstjórans, dr. Eliaw- ony K. Meena, er markmið þess að gera íbúana færa um að „afla sér nægrar fæðu, annast sjálfir vatnsöfl- un og viðhald við veiðiræktartjarnir, rækta sitt grænmeti sjálfir o.s.frv.“. Áhersla er lögð á að aðstoða fátæk- asta fólkið í þeim héruðum þar sem þróunaraðstoðin er veitt og með þess- um hætti er ákveðnu verklagi og þekkingu komið til skila er haft getur varanleg áhrif á lífsgæði, afkomu og sjálfsmynd íbúa á viðkomandi svæði. Haft var eftir Jónasi Þóri Þórissyni, framkvæmdastjóra Hjálparstarfs kirkjunnar, í blaðinu í gær að starf þeirra hefði hafist í Mósambík, ná- grannaríki Malaví, fyrir tólf árum og að unnið hefði verið að samstarfsverk- efni með Þróunarsamvinnustofnun Ís- lands í landinu á undanförnum árum. „Sameiginlega höfum við útvegað yfir 200 þúsund manns hreint vatn í Norð- ur-Mósambík,“ segir hann og lýkur lofsorði á samstarfið. Sá ávinningur er hann nefnir er umtalsverður, því að- gangur að vatni er auðvitað höfuðfor- senda þess að fólk geti lifað af og búið við mannsæmandi skilyrði. Þar sem skortur er á vatni er afar mikilvægt að kenna fólki skynsamlega umgengni við vatn, notkun og viðhald á vatnsöfl- unarleiðum, svo sem brunnum, og undirstöðuatriði hreinlætis til þess að sjúkdómar berist ekki með sýktu eða menguðu vatni. Ferskt vatn er afar takmörkuð auðlind og sú þróunarað- stoð sem miðast við skynsamlega nýt- ingu á vatni getur skipt sköpum á ákveðnum svæðum – gert fólki kleift að sinna nauðþurftum sínum af sjálfs- dáðum og búa sér mannsæmandi líf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.