Morgunblaðið - 06.02.2004, Qupperneq 38
MINNINGAR
38 FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
S
ameinandi stundir eru
dýrmætar í lífi ís-
lenskrar þjóðar. Ís-
lendingar fyllast stolti
þegar þeir fylgjast
með látlausri en öruggri fram-
göngu ráðamanna þjóðarinnar á
erlendri grundu. Fátt er betur
fallið til að sameina þjóðina en
íslenskt íþróttafólk með glæsi-
legum afrekum sínum. Fulltrúar
menningarlífs og lista gleðja ís-
lenska alþýðu með því að vekja
verðskuldaða athygli í útlöndum.
Sameinandi dagar eru að
sönnu réttnefndir gleðidagar á
Íslandi. Stærstu stunda í sögu
þjóðarinnar er minnst með þakk-
læti og virðingu. En einn er sá
atburður sem jafnan fangar at-
hygli alþýðu
manna á Ís-
landi.
Hér ræðir
að sjálfsögðu
um ríkisráðs-
fundina.
Enda er það svo að vart koma
tveir Íslendingar saman án þess
að talinu sé ekki bráðlega vikið
að spurningunni sem jafnan
brennur á vörum þjóðarinnar:
Hvenær verður næsti fundur
ríkisráðsins?
Og víst er að seint verður sagt
um Íslendinga að þolinmæðin sé
þeirra höfuðdyggð. Enda gætir
oftar en ekki óþreyju í röddinni:
Hvenær kemur ríkisráðið eig-
inlega næst saman til fundar?
Á fundum ríkisráðsins rennur
ríkisvaldið saman við þjóðina og
myndar eina, órjúfanlega heild.
Fundina sitja oddvitar fram-
kvæmda-, löggjafar- og dóms-
valds en forseti lýðveldisins er
fulltrúi alþýðu manna á Íslandi.
Samruninn er táknrænn fyrir
þann almenna vilja að ríki og
þjóð séu eitt (þ. Volk und Reich).
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti Íslands, hefur á síðustu dög-
um gert ágætlega grein fyrir
hlutverki þjóðhöfðingjans á
fundum ríkisráðsins. Fáir eru
betur til þess fallnir en hann.
Sjálfur sagði Ólafur Ragnar
Grímsson er hann var kjörinn
forseti Íslands árið 1996 með
rúmum 40% greiddra atkvæða
að sú niðurstaða væri „sigur
þjóðarinnar allrar“. Forseti Ís-
lands hefur því einstakan skiln-
ing á hlutverki ríkisráðsins.
Tilefni ofangreindrar umfjöll-
unar forseta lýðveldisins er að
ekki tókst að boða hann á fund í
ríkisráðinu (þ. Tagung des
Reichsrates) á sunnudag þegar
þess var minnst að 100 ár voru
liðin frá því að íslensk þjóð fékk
heimastjórn. Jafnframt reyndist
ekki unnt að bjóða forseta Ís-
lands til hátíðarsamkomu í Þjóð-
menningarhúsi (þ. Reichshaus
der Volkskunde) sem mikilvæg-
ustu Íslendingar samtímans
sóttu þann sama dag.
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti lýðveldisins, var í leyfi er-
lendis og ekki reyndist unnt að
ná af honum tali til að greina
honum frá því að heimastjórn á
Íslandi ætti 100 ára afmæli og
ætlunin væri að minnast þeirra
tímamóta.
Þess misskilnings hefur gætt í
umfjöllun um mál þetta að
fulltrúar ríkisvaldsins hafi vísvit-
andi boðað til fundar ríkisráðsins
án þess að greina kjörnum full-
trúa alþýðunnar frá því að ætl-
unin væri að efna til þeirrar
samkundu. Þessi misskilningur
hefur m.a. birst í ummælum for-
seta lýðveldisins sjálfs og hafa
þau orðið tilefni til fréttaflutn-
ings og blaðaskrifa.
Harma ber að þessi misskiln-
ingur skuli ekki hafa verið leið-
réttur. Slík ónákvæmni er fallin
til þess eins að grafa undan rík-
isráðinu.
Ykkar einlægur getur upplýst
að líklegasta ástæða þess að ekki
tókst að boða forseta Íslands til
fundar í ríkisráðinu er sú að
hann hefur engan síma. Þetta
getur hver og einn sannreynt
sem leitar að símanúmeri Ólafs
Ragnars Grímssonar í síma-
skránni.
Ykkar einlægur hringdi í
símanúmer þau sem finna má í
skránni undir skilgreiningunni
„forseti Íslands“. Upplýst skal
hér að allt annar maður svaraði í
símann þegar hringt var í skrif-
stofu forseta Íslands. Og Ólafur
Ragnar Grímsson svaraði ekki
heldur í símann þegar hringt var
í forsetasetrið á Bessastöðum.
Hefði nú ekki verið ráðlegra
fyrir fréttahaukana og rann-
sóknarblaðamennina að kanna
þetta áður en pressurnar voru
ræstar og kvikmyndavélunum
snúið í gang?
Ljóst er á hinn bóginn að tæp-
ast er viðunandi, hvað þá ásætt-
anlegt, að ekki sé unnt að ná í
forseta lýðveldisins þegar greina
þarf honum frá stóratburðum í
sögu þjóðarinnar eða boða hann
til fundar í ríkisráðinu. Und-
arlegt má það heita að vegið sé
að einingu ríkis og þjóðar með
svo afgerandi hætti. Því skal eft-
irfarandi lagt til:
1. Íslenska ríkið fjárfesti í far-
síma og fái forseta lýðveldisins
hann til afnota.
2. Íslenska ríkið fjárfesti í svo-
nefndum „fjarfundabúnaði“ til að
forseti lýðveldisins geti stýrt
fundum ríkisráðsins þegar hann
er á meðal alþýðunnar í hinum
dreifðari byggðum landsins eða
með erlendum þjóðum.
3. Íslenska ríkið fjárfesti í far-
þegaþotu til afnota fyrir forseta
lýðveldisins og aðra æðstu emb-
ættismenn þjóðarinnar. Með því
að samnýta farsímann nýja og
þotuna á að vera unnt að tryggja
að forseti lýðveldisins geti með
skömmum fyrirvara sótt þær há-
tíðarsamkundur sem honum er
boðið til hér heima og erlendis.
Með sama hætti geta ráðherrar
haldið uppi eðlilegum sam-
skiptum við Rússa, Írana og Kín-
verja, helstu vinaþjóðir Íslend-
inga, og lýðræðissinnana sem
þar hafa valist til forustu.
Embættisþota Bandaríkja-
forseta mun kallast „Air Force
One“. Við hæfi sýnist að opinber
ríkisþota Íslendinga nefnist
„Fálki 1“.
---------------------------------------
Eftirfarandi kosta Viðhorfs-
dálka Ásgeirs Sverrissonar:
Stigaleigan.is – Farðu lengra
Útflutningsstofa ríkismenn-
ingar – Ljós úr norðri
Þjóðarvilji
í ríkisráði
Harma ber að þessi misskilningur skuli
ekki hafa verið leiðréttur. Slík óná-
kvæmni sameinar ekki þjóð og vald og
er fallin til þess að grafa undan rík-
isráðinu.
VIÐHORF
Eftir Ásgeir
Sverrisson
asv@mbl.is
✝ Eugenia IngerNielsen, Sinna,
fæddist í „Húsinu“
á Eyrarbakka 19.
nóvember 1916.
Hún lést í hjúkrun-
arheimilinu Víð-
inesi 27. janúar síð-
astliðinn. Hún átti
ættir að rekja til
dönsku kaupmann-
anna á Bakkanum.
Foreldrar hennar
voru: Jens Daníel
Nielsen verslunar-
stjóri á Eyrar-
bakka, f. 22.1. 1883,
d. 8.6. 1948, og Karen Nielsen
húsfreyja, f. 23.1. 1888, d. 3.5.
1948. Foreldrar Karenar voru:
Pétur Mats Nielsen verslunar-
stjóri, f. 27.2. 1844, d. 9.5. 1931,
og Eugenia Jakobína Nilsen
húsfrú í Húsinu, f. 2.11. 1850, d.
9.7. 1916. Foreldrar Eugeniu J.
voru: Guðmundur Geir Jörgen
Thorgrímsen faktor, f. 7.6. 1821,
d. 2.3. 1895, og Sylvía Sólveig
Níelsdóttur Thorgrímsen, f. 22.7.
1819, d. 21.6. 1904. Systkini
Sinnu voru: Edith Jóhanna, f.
24.3. 1911, d. 12.6. 1932, og Pét-
ur, f. 10.11. 1920, d. 7.10. 1990.
Sinna var tvígift. Fyrri maður
hennar var Ámundi Hjörleifsson
brunavörður, f. 7.10. 1914, d.
mann Ómarsson, f. 27.11. 1976.
Sonur þeirra er Hlynur Freyr, f.
6.9. 2003. B) Steinunn Fríður, f.
1.9. 1985.
Vinur Sinnu og sambýlismaður
til margra ára var: Ámundi K.J.
Ísfeld, skósmiður og stöðumæla-
vörður, f. 3.6. 1913, d. 22.9. 1989.
Sinna ólst upp í Húsinu á Eyr-
arbakka. Á æskuárum fóru for-
eldrar hennar til Danmerkur.
Eftir það ólst hún upp hjá Guð-
mundu Nielsen móðursystur
sinni, fyrst á Eyrarbakka og Ölf-
usá, síðar fluttu þær til Reykja-
víkur. Þar starfaði hún í bak-
aríinu hjá Guðmundu frænku
sinni í Tjarnargötu. Ung að árum
fór hún til Kaupmannahafnar og
nam þar bakstur og matreiðslu.
Sinna stofnaði heimili og varð
húsmóðir á Vesturgötunni, nánar
tiltekið í gamla Gröndalshúsinu.
Bjó hún þar alla sína tíð eða í
u.þ.b. 70 ár. Hún starfaði ætíð ut-
an heimilisins meðfram húsmóð-
urstarfinu, fyrst í gömlu Sund-
laugunum í Laugardal og við
ræstingar í Landsbanka Íslands.
Lengst af starfaði hún í Sundhöll
Reykjavíkur eða frá 1966 og þar
til hún lét af störfum vegna ald-
urs.
Kransakökubakstur var henn-
ar sérgrein. Þær voru margar
kökurnar sem hún bakaði fyrir
vini og vandamenn.
Sinna dvaldist á hjúkrunar-
heimilinu Víðinesi síðastliðið ár.
Útför Sinnu fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 13.30.
20.12. 1945. Börn
þeirra eru: 1) Jóhann
Hörður, f. 4.10. 1934,
d. 9.5. 1982. 2) Guð-
munda Nielsen
(Stella), f. 3.1. 1937,
d. 17.3. 1939.
Hinn 21. júlí 1948
giftist Sinna Þor-
steini Hjálmssyni
sundlaugarverði í
Sundhöll Reykjavík-
ur, f. 19.11. 1921, d.
9.4. 1966. Synir
þeirra eru: 1) Ámundi
Hjálmur, f. 8.9. 1949,
kvæntur Arnbjörgu
Hjaltadóttur, f. 26.3. 1954. Þeirra
börn eru: A) Guðrún Ingibjörg, f.
6.3. 1974. Synir hennar og
Bjarka Sveins Smárasonar eru:
Sighvatur Bjarki, f. 16.1. 1995,
og Gabríel Brynjar, f. 19.12.
1998. B) Björgvin Hrafn, f. 30.5.
1980. Sonur hans og Margrétar
Láru Esterardóttur er Nökkvi
Baldur, f. 26.7. 1999. C) Jökull
Tandri, f. 1.9. 1990. Sonur
Ámunda Hjálms fyrir hjónaband
er Guðmundur Þór, f. 6.9. 1970.
Móðir hans er Lovísa Guðmunds-
dóttir. 2) Jens Karel, f. 15.6.
1951, kvæntur Þóru G. Thor-
arensen, f. 16.11. 1952. Þeirra
dætur eru: A) Vigdís, f. 9.5. 1977.
Sambýlismaður hennar er Krist-
Þá ert þú horfin, móðir mín!
Minningin eftir lifir þín
í ótal margföldum myndum.
Allt frá því ég var ungur sveinn,
ómálga barnið, æskuhreinn
ég nærðist af lífs þíns lindum.
Tvískinnung áttir þú engan til,
á orðum og hugsun hvergi skil,
það féll allt sem flís að blaði.
Á þinn hátt gafstu þar dæmi’ um
dyggð,
drengskapar hreináog sanna hygð
sem fylgdı́okkur fersk úr hlaði.
Í þögn hef ég reynt að þakka og tjá
þelið, sem býr mér dýpst í hjarta,
ef orð, sem ei ritað fingur fá
fengju um nafnið þitt skarta
og dýrðin, sem enginn áður sá
um þig ljómann sinn vefði bjarta.
(Jón Hjörleifur Jónsson)
Elsku mamma, ég vil að lokum
þakka þér fyrir allt sem þú hefur
gert fyrir mig og mína fjölskyldu.
Ég kveð þig með söknuði og trega
og geymi allar ljúfu minningarnar
innra með mér. Far þú í friði.
Þinn sonur,
Jens Karel.
Elsku amma Sinna mín. Loksins
hefurðu fengið hina langþráðu
hvíld og nú ertu laus frá öllum
þjáningunum. Ég kveð þig hér í
síðasta sinn með Maístjörnunni,
laginu sem ég söng svo oft fyrir þig
þegar ég var yngri:
Ó hve létt er þitt skóhljóð
og hve lengi ég beið þín,
það er vorhret á glugga,
napur vindur sem hvín,
en ég veit eina stjörnu,
eina stjörnu sem skín,
og nú loks ertu komin,
þú ert komin til mín.
Það eru erfiðir tímar,
það er atvinnuþref,
ég hef ekkert að bjóða,
ekki ögn sem ég gef,
nema von mína og líf mitt
hvort ég vaki eða sef,
þetta eitt sem þú gafst mér
það er allt sem ég hef.
En í kvöld lýkur vetri
sérhvers vinnandi manns,
og á morgun skín maísól,
það er maísólin hans,
það er maísólin okkar,
okkar einingarbands,
fyrir þér ber ég fána,
þessa framtíðarlands.
(Halldór Laxness.)
Vertu kært kvödd, elsku amma
Sinna. Takk fyrir öll spilin sem við
spiluðum og allar góðu stundirnar
sem við áttum saman. Ég veit að
þú verður alltaf nálægt og heldur
verndarhendi yfir mér. Guð geymi
þig.
Þín sonardóttir
Steinunn Fríður.
Elsku amma Sinna mín, nú hefur
þú loksins fengið hvíldina og ert
komin á stað sem þér líður miklu
betur á. Þú varst samt ekki á leið-
inni að kveðja, ætlaðir að fara aftur
á Vesturgötuna, í hornið þar sem
þú varst svo vön að sitja og fá þér
kaffi og sígarettu. En líkaminn
þinn var orðinn gamall og lúinn
eftir langa og vinnusama ævi.
Nú þegar þú ert farin reikar
hugurinn aftur á bak og margs er
að minnast. Þú og ég áttum svo
margar yndislegar stundir saman.
Þegar ég var lítil var ég oft í pöss-
un hjá þér og Ámunda. Ég fékk að
leika mér með stóru dúkkuna þína
sem þú hélst svo mikið upp á og
fína dúkkustellið, sem þú eignaðist
þegar þú varst lítil. Það notaði ég
til að elda handa ykkur mat í þykj-
ustunni sem þið borðuðuð auðvitað
með bestu lyst. Þú settir rúllur í
hárið á mér í gamni, ég dundaði
mér að lita í litabókina mína og svo
spiluðum við, þú kenndir mér
Svarta Pétur, Ólsen ólsen, Rugl og
Klukkukapal. Úti í garðshorni lék
ég mér við að moka og búa til kök-
ur í sandkassa sem var gerður úr
dekki, svo tíndi ég handa þér blóm
sem þú settir í vasa. Einu skipti
man ég eftir þegar ég svaf yfir nótt
hjá þér, að við fórum snemma
kvölds í náttkjólana okkar, þú í
rósóttan og ég bláan, svo þóttumst
við vera voðalega fínar dömur á
leið á dansiball. Við dönsuðum
saman og eftir á sátum við með
krosslagða fætur og drukkum kaffi
og skellihlógum. Auðvitað var ég of
ung til að drekka kaffi, fékk bara
kók í rósótta bollann minn sem ég
átti hjá þér.
Þegar ég var yngri var ég frekar
matvönd. Einu sinni hafðir þú eld-
að dýrindis kjötsúpu, ég vildi hana
ekki en þú fékkst mig til að
smakka smávegis með því að gefa
mér hana í fallegri blómaskál. Í
dag er kjötsúpa einn af uppáhalds-
réttunum mínum.
Það var svo gaman að hlusta á
þig segja sögur, þú sagðir mjög
skemmtilega frá, bæði þegar þú
varst ung og sögur af pabba þegar
hann var lítill. Ég man sérstaklega
eftir nokkrum þeirra, t.d. þegar
danski kóngurinn kom til Íslands
og þú áttir að sjá að um losa kopp-
inn hans. Þú beiðst allan liðlangan
daginn eftir að hann pissaði, þegar
það loksins gerðist fórst þú að há-
gráta því þú hélst að það kæmi
blátt piss í koppinn.
Eina páska hafðir þú fengið sent
páskaegg frá Danmörku sem var
sjaldgæf sjón í þá daga en þú mátt-
ir ekki opna það, eggið átti að
standa kyrrt á stofuborðinu til
skrauts. En svo vildi það til að dag
einn hafði það allt orðið að stórri
klessu því sólin hafði skinið á það.
Svo á sprengidaginn þegar mag-
inn í pabba þínum sprakk, hafði
hann þá platað ykkur krakkana,
með því að hafa uppblásna blöðru
undir peysunni og sprengt hana
með títuprjón og þið trúðuð því að
hann hefði sprungið í alvöru.
Þú varst svo klár í höndunum
bæði að prjóna, búa til mat og ekki
síst að baka. Þú hafðir farið til
Kaupmannahafnar ung að árum til
að öðlast bakarapróf og það eru
ófáar kransakökurnar sem þú hef-
ur bakað. Við bökuðum oft saman
jólaköku með súkkulaðibitum, vín-
arbrauð og fjögralaga tertuna þína
góðu. Það var viss regla hjá þér að
vera alltaf búin að baka allar
jólasmákökurnar fyrir afmælið þitt.
Amma, manstu hvað þú varst
glöð þegar við fórum út að versla
og keyptum inn fyrir mánuðinn,
fylltum ísskápinn og búrskápinn af
mat og þú sagðir: „Nú vantar mig
ekkert út mánuðinn nema mjólk,
brauð og sígarettur.“ Svo hjálpaði
ég þér að þrífa á hverjum laug-
ardegi í mörg ár. Þegar búið var að
þurrka af, ryksuga og skúra sagðir
þú: „Nú er allt stífað og straujað
ofan í kommóðuskúffu og ég verð
að tipla á tánum þar til þú kemur
næst.“
Á sumrin reytti ég arfa í litla
garðinum þínum bak við húsið,
málaði veggina og vökvaði blómin.
Þú varst stolt af rósunum þínum
sem blómstruðu svo fallega bleik-
um og rauðum blómum.
Það var svo margt sem þú leyfð-
ir mér að gera, ég lærði svo mikið
af þér og þú varst svo þakklát fyrir
hjálpina. Við föðmuðumst alltaf og
kysstumst bless og þú sagðist
hlakka til að fá mig næst í heim-
sókn. Ekki var gleðin og fögnuður-
inn minni þegar þú sást nýfæddan
son minn í fyrsta skipti nú á um-
liðnum haustdögum. Ég var svo
ánægð að þú fékkst tækifæri að sjá
hann en því miður fær hann ekki
að kynnast þér í þessu lífi, kannski
bara í því næsta.
Nú er komið að kveðjustund, ég
EUGENIA INGER
NIELSEN