Morgunblaðið - 06.02.2004, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 06.02.2004, Blaðsíða 53
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 53 ræða þetta við hljómsveitina. Svar barst 2. febrúar um þá yfirlýsingu sem hljómsveitin var reiðubúin [að] gefa út: „Hljómsveitin Mínus mun ekki koma fram undir áhrifum á Samfés- balli 27. febrúar nk. og hefur aldrei hvatt til neyslu fíkniefna.“ Að ofangreindu má vera ljóst að Samfés gat ekki gengið til endanlegr- ar samningsgerðar við Mínus þar sem samningsforsendur voru brostnar. Hljómsveitin treysti sér ekki til þess að uppfylla skilyrði Samfés um að hrekja til baka sögusagnir og blaða- greinar um meinta eiturlyfjaneyslu. Þarna hefði hljómsveitinni Mínus gef- ist kjörið tækifæri til að svara þessum neikvæða fréttaflutningi. Því hafna hljómsveitarmeðlimir og kjósa frekar að blása í herlúðra með viðeigandi rangfærslum og ærumeiðingum í garð þeirra 90 félagsmiðstöðva sem starfa á landinu og mynda Samfés. Þess má geta að Samfés kom hreint og beint til dyranna í þessu máli og lagði mikla vinnu í að ná viðunandi samkomulagi.“ BLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá SAMFÉS: „SAMFÉS, samtök félagsmið- stöðva á Íslandi, hafa tekið þá ákvörð- un að hljómsveitin Mínus spili ekki á dansleik Samfés hinn 27. febrúar 2004. Búið var að komast að sam- komulagi við hljómsveitina en nánari útfærsla átti eftir að fara fram í skrif- legum samningi. Eftir bókun hljóm- sveitarinnar seinni hluta janúar birt- ust blaðagreinar um meinta eiturlyfjaneyslu hljómsveitarinnar. Framhjá þessum greinum og þeirri ímynd sem hljómsveitin vill marka sér verður ekki horft af hálfu Samfés. Samtökin starfa eftir uppeldis- og for- varnagildum og hafa markað ímynd sína með jákvæðan og heilbrigðan lífsstíl í forgrunni. Samfés er m.a. í samstarfi við tóbaksvarnanefnd og áfengis- og vímuvarnaráð. Allir við- burðir á vegum Samfés eru vímulaus- ir og samtökin kappkosta að þeir listamenn og aðrir sem fram koma fyrir hönd þeirra geri sér grein fyrir mikilvægi sínu sem fyrirmyndir. Umboðsmaður hljómsveitarinnar Mínuss var boðaður á fund hinn 28. janúar. Tilefni fundarins var að ræða greinar um hljómsveitina sem birst höfðu í blöðum. Þar var farið yfir stöðu mála og umboðsmanninum tjáð að samtökin gætu ekki borið þá ábyrgð að láta Mínus koma fram á dansleiknum án þess að þeir bæru af sér sögusagnir um meinta eiturlyfja- neyslu. Í kjölfar þessa fundar var sendur eftirfarandi tölvupóstur til umboðsmannsins þar sem farið var fram á eftirfarandi yfirlýsingu frá hljómsveitinni: „Hljómsveitarmeðlimir bera af sér þann fréttaflutning sem hefur átt sér stað að undanförnu í dagblöðum, þ.e. umræðan um notkun eiturlyfja er ekki byggð á staðreyndum og er orð- um aukin. Hljómsveitarmeðlimir Mínusar nota ekki ólögleg vímuefni og hvetja ekki til notkunar á þeim.“ Daginn eftir kemur tölvupóstur frá umboðsmanninum þar sem hann seg- ist vera á leiðinni til útlanda og ætli að SAMFÉS um Mínus Neituðu að bera af sér sögusagnir Fishersundi 3 kl. 20.30. Hin ár- lega Kyndilmessuhátíð Félags ís- lenskra safna og safnmanna verður haldin í samstarfi við Sögufélagið. Eggert Þór Bernharðsson sagn- fræðingur mun spjalla um grein sína í síðasta hefti Sögu um miðlun sög- unnar með sýningum. Spjallið verð- ur kryddað fjölda mynda sem Egg- ert hefur tekið í rannsóknarferðum sínum um söfn landsins. Ráðstefna um örugga netnotkun barna verður í Borgarleikhúsinu í dag, föstudaginn 6. febrúar kl. 13– 16.30. Heimili og skóli – lands- samtök foreldra standa fyrir ráð- stefnunni sem ber yfirskriftina „Réttur barna til öruggrar netnotk- unar.“ Ráðstefnan er haldin í tilefni af evrópskum degi öruggrar net- notkunar sem haldinn verður hátíð- legur samtímis í fimmtán Evr- ópulöndum í tengslum við Safer Internet Action Plan áætlun Evr- ópusambandsins. Ráðstefnustjóri er Jónína Bjart- marz, þingmaður og formaður Heimilis og skóla, og Björn Bjarna- son dómsmálaráðherra flytur opn- unarávarp. Hægt verður að horfa á ráðstefnuna í beinni útsendingu á vefsetrinu www.saft.is. Markmið dagsins er að vekja athygli á rétti barna til öruggrar netnotk- unar og vekja samfélagið til vitundar um ábyrgð sína í þessu máli. Má þar nefna sérstaklega hið opinbera, aðila netiðnaðarins, foreldra og skóla- starfsmenn. Í DAG FLUGIÐ, tímarit um flug- mál, er nýlega komið út í þriðja sinn en að útgáfunni standa Þórir Kristinsson og Guðmundur Sigurðsson. Blað- ið er 72 bls. og í því eru greinar um flug, flugfélög og tæknimál er tengjast flugi. Aðstandendur blaðsins telja fulla þörf fyrir sérhæft flugblað sem þetta og segja að af nógu efni sé að taka. Segja þeir flug jafnan hafa búið við miklar sveiflur og eigi það við um flugnám, at- vinnuflug og einkaflug. Nú sé nokkuð bjart framundan, ís- lensku flugfélögin í sókn, ekki síst erlendis, og áhugi á einkaflugi vaxandi. Flug fæst keypt í áskrift og í lausasölu á blaðsölustöðum. Tímaritið flug komið út á ný Opinn fundur um heilbrigðismál. Framsóknarfélagið í Reykjavík- urkjördæmi suður heldur opinn fund um heilbrigðismál með Jóni Krist- jánssyni heilbrigðisráðherra og Jón- ínu Bjartmarz, formanni heilbrigðis- og trygginganefndar alþingis, á morgun, laugardaginn 7. febrúar, frá klukkan 13–15, í fundarsal Fram- sóknarflokksins, Hverfisgötu 33, 3. hæð. Rætt verður m.a. um málefni Land- spítala – háskólasjúkrahúss, upp- byggingu heilsugæslu og öldr- unarþjónustu á höfuðborgarsvæðinu o.fl. Að loknum framsöguerindum verða umræður með þátttöku fund- armanna. Á MORGUN VINSTRIHREYFINGIN – grænt framboð var stofnuð 6. febrúar 1999 og því fagna Vinstri grænir fimm ára afmæli sínu í dag. Skipulagt afmæl- ishald verður á eftirtöldum stöðum í dag, föstudaginn 6. febrúar: Á Akureyri verður afmælisveisla á Café Amour frá kl. 20.30. Steingrím- ur J. Sigfússon ávarpar gesti. Skemmtiatriði, fjöldasöngur og gamanmál og Hrafnaspark spilar. Í Reykjavík og Suðvesturkjör- dæmi hefst afmælisganga kl. 16.30 við Minjasafn Orkuveitu Reykjavík- ur. Kaffi og meðlæti að lokinni gönguferð. Katrín Jakobsdóttir, varaformaður VG, flytur ávarp. Á Sauðárkróki verður afmælis- kaffi kl. 17–19 á Ströndinni, Sæ- mundargötu 7a. Upplestur og skemmtiatriði. Á Selfossi verður afmæliskaffi í Tryggvaskála kl. 20. Boðið verður uppá kaffi og meðlæti. Vinstri grænir fagna fimm ára afmæli HEIMSMEISTARAMÓT seniora í standarddönsum fer fram á morg- un, laugardag 7. febrúar. Seniorar er flokkur keppenda 35 ára og eldri. Mótið fer fram í Antwerpen í Belgíu. Íslendingar munu eiga tvö pör sem fulltrúa á þessu móti. Þau eru Björn Sveinsson og Bergþóra María Bergþórsdóttir, frá Dans- íþróttafélagi Hafnarfjarðar og Jón Eiríksson og Ragnhildur Sandholt, frá Dansíþróttafélaginu Gulltoppi. Dansararnir sem taka þátt í heimsmeistaramótinu eru Björn Sveinsson, Bergþóra María Bergþórsdóttir, Ragnhildur Sandholt og Jón Eiríksson. Tvö danspör frá Íslandi fara á heimsmeistaramót BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700 Matarlist og leikhús Leikhúsmatseðill milli 18.00 - 20.00 Þryggja rétta kvöldverður á 4.500 kr. Upplýsingar á www.holt.is • • • • • • • • •
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.