Morgunblaðið - 06.02.2004, Síða 55
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 e5 6. Rdb5
d6 7. Rd5 Rxd5 8. exd5 Rb8 9.
Df3 Be7 10. Bd2 O-O 11. Be2
f5 12. c4 e4 13. De3 h6 14. O-
O-O Rd7 15. f4 Rc5 16. b4
Ra4 17. Db3 Rb6 18. c5 a6 19.
Rc3 Rd7 20. Be3 Kh8 21. Kb1
a5 22. c6 bxc6 23. dxc6 axb4
24. Rd5 Rc5 25. Dxb4 Be6 26.
c7 De8 27. Bb5 Df7 28. Rxe7
Dxe7 29. Hxd6 Bxa2+ 30.
Kb2 Dxd6 31. Bxc5 Df6+ 32.
Bd4 Df7 33. Hc1 Bd5 34. Dd6
Ha2+ 35. Kb1 e3
Staðan kom upp í Skák-
þingi Reykjavíkur sem lauk
fyrir skömmu. Kristján Eð-
varðsson (2245) hafði hvítt
gegn Heimi Ásgeirssyni
(2107). 36. Dxf8+! Dxf8 37.
c8=D Dxc8 38. Hxc8+ Kh7
39. Hc7?! 39. Bd3 hefði verið
nákvæmara. 39... Hxg2 40.
Bd3 og svartur gafst upp eða
féll á tíma en hann hefði getað
haldið baráttu sinni áfram eft-
ir 40...Be4 þó að hann ætti
vissulega undir höggi að
sækja.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 55
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbörn dagsins:
Þú átt gott með að umgang-
ast annað fólk og hrífa aðra
með þér. Fyrir vikið eru
mörg ykkar, sem fædd eru í
dag, vinsæl, og ekki sakar að
þið hafið auga fyrir því sem
sameinar fólk. Mikilla breyt-
inga er að vænta á árinu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það freistar að eyða pen-
ingum í dag, annaðhvort til
eigin nota og skemmtunar
eða handa barni eða börnum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú lætur skeika að sköpuðu í
dag og stjórnast af hug-
dettum. Þú gætir komið öðr-
um á óvart með því að vera
ófyrirsjáanleg/ur. Þú gætir
jafnvel komið sjálfri/um þér á
óvart.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Í dag verður erfitt að hemja
sig. Eirðarleysi og sjálfstæð-
isþrá munu láta að sér kveða.
Þú vilt fá frelsi til að gera það
sem þér sýnist.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Vinur þinn gæti komið þér
verulega á óvart í dag, en eins
líklegt er að óvenjulegur ein-
staklingur verði á vegi þínum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Óvenjuleg atburðarás gæti
leitt til þess að þú verðir í
sviðsljósinu í dag. Gættu að
því að láta metnaðinn ekki
hlaupa með þig í gönur.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Óvæntir möguleikar til að
ferðast munu bjóðast, en
einnig gætu aðrir kostir á
sviði menntunar eða útgáfu
komið fram. Sveigjanleiki er
lykilorðið.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Óvæntur kaupauki eða greiði
mun gera lífið auðveldara í
vinnunni. En sum ykkar gætu
einnig orðið fyrir óvæntum
skorti á nauðsynjum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Skapandi vinir gera þér boð í
kvöld. Þú gætir einnig kynnst
nýjum vinum, sem eru spenn-
andi og heillandi.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þig langar til að gera breyt-
ingar annaðhvort heima fyrir
eða í vinnunni og vilt ekki að
neinn skipti sér af þínum
ráðagerðum. Þú veist ná-
kvæmlega hvað þarf að gera.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Dagurinn gæti komið á óvart
og jafnvel gæti komið til ástar
við fyrstu sýn. Í dag gæti ver-
ið rétt að taka áhættu.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Ný kynni gætu tekist í dag
fyrir milligöngu fjölskyld-
unnar. Heima fyrir má eiga
von á einhverju óvæntu og
öðruvísi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Hugurinn fer úr einu í annað í
dag. Þú finnur fyrir eirð-
arleysi, spennu og rótleysi.
Málið er að þú þarft að takast
á við eitthvað nýtt og spenn-
andi.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
UTAN HRINGSINS
Ég geng í hring
í kringum allt, sem er.
Og innan þessa hrings
er veröld þín.
Minn skuggi féll um stund
á gluggans gler.
Ég geng í hring
í kringum allt, sem er.
Og utan þessa hrings
er veröld mín.
Steinn Steinarr.
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
80 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 6. febr-
úar, er áttræður Hjörtur
Magnús Guðmundsson. Í til-
efni afmælisins býður hann
og fjölskylda hans gestum á
opnun sýningar á handa-
vinnu sinni í Gjábakka laug-
ardaginn 7. febrúar milli kl.
12 og 13 og til veislu á heimili
sínu, Löngubrekku 47, sama
dag milli kl. 16 og 19.
60 ÁRA afmæli. Sextuger í dag föstudaginn
6. febrúar, Loftveig Kristín
Sigurgeirsdóttir Fram-
nesvegi 20, Keflavík.
Þriðja prófverkefnið er að
spila sex hjörtu, þar sem
reynir á kunnáttuna í
trompbragði með fleiru.
Þraut þrjú:
Norður
♠ÁK7
♥32
♦K654
♣Á973
Norður
♠62
♥ÁKD1096
♦Á72
♣K5
Vestur Norður Austur Suður
– 1 tígull Pass 2 hjörtu
Pass 2 grönd Pass 4 hjörtu
Pass 6 hjörtu Allir pass
Þú ert í suður og lendir í
góðri slemmu, sem alltaf
vinnst ef trompgosinn kem-
ur í þrjá efstu. En það væri
of einfalt. Vestur spilar út
spaðadrottningu, sem þú
tekur með ás og leggur nið-
ur ÁK í hjarta. Vestur fylgir
einu sinni, en hendir svo
tígli. Austur hefur þá byrjað
með gosann fjórða.
Hvað er til ráða?
– – –
Norður
♠ÁK7
♥32
♦K654
♣Á973
Vestur Austur
♠DG10 ♠98543
♥7 ♥G954
♦D10983 ♦G
♣G862 ♣D104
Suður
♠62
♥ÁKD1096
♦Á72
♣K5
Lausn: Hér eru tvær leið-
ir til vinnings. Sú einfaldari
og öruggari er að spila upp á
trompbragð. Stinga lauf og
spaða heima og ná þannig
jafnri lengd við austur í
trompi. En það er ekki sama
hvernig tímasetningin er.
Tígulafkast vesturs bendir
til að hann hafi byrjað með
fimmlit og austur þar með
einspil. Því má ekki enda á
því að spila tígulás og tígli á
kóng. Best er að taka strax
tvo efstu í laufi og trompa.
Spila svo tígli á ás og tígli
heim að kóng. Ef austur
trompar er það á kostnað
tígulslags varnarinnar, svo
það má hann ekki gera. Suð-
ur fær því á ásinn, fer svo í
spaðann og trompar þann
þriðja. Spilar sér svo út á
tígli og fær síðustu slagina á
D10 í trompi.
Flóknari leiðin (og verri)
gengur út á það að þvinga
vestur í láglitunum. Þá er
austri gefinn slagur á
hjartagosa, lauf stungið
einu sinni og spaðakóngur
tekinn. Þegar síðasta
trompið er tekið mun vestur
ekki geta haldið í hæsta lauf
og valdað tígulinn um leið.
Stig: Ef þú spilaðir upp á
trompbragð og fórst rétt í
tígulinn: 10 stig. Og þú gef-
ur þér líka 10 stig fyrir að
spila upp á kastþröngina.
En ef þú hugðist tímasetja
trompbagðið þannig að taka
fyrst á tígulás og svo kóng,
þá detta stigin niður í 3.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
70 ÁRA afmæli. SigfúsJóhannsson vél-
stjóri, Dvergabakka 2,
Reykjavík, varð sjötugur í
gær 5. febrúar. Í tilefni af
því býður hann vinum og
vandamönnum til fagnaðar í
dag 6. febrúar að Hólmgarði
34, Reykjavík, á milli kl.
19:00 og 21:00.
60 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 6. febr-
úar, er sextug, Guðný
Sverrisdóttir, Þverbrekku
2. Hún verður heima á af-
mælisdaginn.
70 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 6. febr-
úar, er sjötug Guðrún Sig-
urðardóttir, Litlagerði 7,
Hvolsvelli.
Guðrún verður að heiman
í dag.
www.hm.is
TÍSKA GÆÐI BETRA VERÐ
ALLT NÝJAR
VÖRUR Í
VERSLUNINNI
Pantið nýja listann: 5 88 44 22
Hverafold 1-3 • Torgið Grafarvogi • Sími 577 4949
Opnunartími mán. - fös. kl. 11-18 & lau. kl. 12-16
Útsölulok
Rýmum
fyrir
nýjum vörum
Fyrir
flottar
konur
Bankastræti 11 sími 551 3930
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið