Morgunblaðið - 19.02.2004, Page 2

Morgunblaðið - 19.02.2004, Page 2
FRÉTTIR 2 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ VÍSBENDINGAR BERAST Lögreglu hefur borist nokkur fjöldi vísbendinga frá almenningi í kjölfar myndbirtingar af manninum sem fannst látinn í höfninni á Nes- kaupstað í síðustu viku, en myndir af manninum voru birtar í sjónvarps- fréttum í gærkvöldi. Maðurinn var 27 ára gamall Lithái, en ekki er enn ljóst hvað maðurinn hét réttu nafni. Gegn múrnum Alþjóða Rauði krossinn fordæmir í nýrri yfirlýsingu múr sem Ísraelar eru að reisa á milli sín og Palest- ínumanna á Vesturbakkanum en sums staðar nær múrinn langt inn á palestínsk svæði. Ísraelar segja að múrinn sé reistur til að hindra hryðjuverkamenn í að komast inn í landið. Alþjóða Rauði krossinn forð- ast yfirleitt að tjá sig um pólitískar deilur en segja að múrinn valdi hundruðum þúsunda óbreyttra borgara miklum erfiðleikum og með honum sé verið að brjóta alþjóðalög. Sendir úr landi í dag Ungu mennirnir tveir frá Sri Lanka sem óskuðu eftir hæli hér á landi sem pólitískir flóttamenn verða sendir úr landi í dag. Dóms- málaráðuneyti hafnaði beiðni mann- anna um að leyfa þeim að dveljast hér á landi þar til ráðuneytið úr- skurðar um ákvörðun Útlendinga- stofnunar að senda þá úr landi. Mannskætt lestarslys Meira en 200 manns, aðallega slökkviliðsmenn, fórust í Íran í gær og mörg hundruð manns slösuðust þegar tugir lestarvagna með sprengifimu efni sprungu við bæinn Neyshabur. Talið er að í vögnunum hafi verið bensín, brennisteinn og efni í áburð en þeir voru á teinunum við járnbrautarstöð, ekki tengdir við eimreið. Vagnarnir runnu af stað og út af sporinu og kom þá upp eldur í þeim. Voru slökkviliðsmenn að störf- um þegar vagnarnir sprungu. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Þjónusta 37 Erlent 14/17 Viðhorf 38 Höfuðborgin 20/21 Minningar 41/47 Akureyri 22 Kirkjustarf 48 Suðurnes 23 Bréf 52 Austurland 24 Dagbók 54/55 Landið 25 Íþróttir 56/59 Daglegt líf 26/27 Fólk 60/65 Listir 27/31 Bíó 62/65 Umræðan 32/40 Ljósvakamiðlar 66 Forystugrein 34 Veður 67 * * * Kynningar – Morgunblaðinu í dag fylgir auglýsingablaðið „Frjálst Ís- land“. Morgunblaðinu í dag fylgir einnig auglýsingablað frá Ímark. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is www.landsbanki.is sími 560 6000 Varðan - alhliða fjármálaþjónusta Nokkrir punktar um beinharða peninga! Vor í París 14. - 17. maí Yndisleg vorferð til Parísar þar sem gist verður á 3ja stjörnu hótelinu Home Plazza Bastille í þrjár nætur. Íslenskur fararstjóri er Laufey Helgadóttir, listfræðingur. Verð: 36.475 kr. á mann í tvíbýli auk 10 þús. ferðapunkta. Innifalið: Flugvallarskattar og þjónustugjöld. Nánari upplýsingar fyrir ofangreind tilboð hjá Icelandair í hópadeild, sími 505 0406 eða sendið tölvupóst á groups@icelandair.is FYLLSTA öryggis var gætt þegar leysigeislaæf- ing fyrir Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar, sem hefst formlega í dag, fimmtudag, fór fram við höfnina í Reykjavík í fyrradag. Slökkvilið Reykjavíkurborgar hefur veg og vanda að viða- mikilli ljósasýningu með leysigeislum sem unnin er í samvinnu við ljósahönnuði og verður opn- unaratriði Vetrarhátíðar. Borgarstjóri, Þórólfur Árnason, setur hátíðina formlega í Bankastræti klukkan 19.30 í kvöld en ljósasýningin hefst á Miðbakka klukkan 20. Dagskrá Vetrarhátíðar er fjölbreytt en hana er hægt að nálgast í heild sinni á vef Reykjavík- urborgar, www.rvk.is. Meðal þess sem er á dag- skrá í kvöld, fimmtudagskvöld, má nefna glæpa- sögugöngu sem lagt verður upp í klukkan 20.40. Vetrarhátíðin er haldin í þriðja sinn í ár og stendur fram á sunnudag. /31 Morgunblaðið/Árni Sæberg Vetrarhiminn lýstur upp með leysigeislum LEIKSKÓLAR í Hafnarfirði verða lokaðir í fimm vikur í sumar en fjórar vikur í Kópavogi. Magnús Baldurs- son, fræðslustjóri Hafnarfjarðar, segir þetta ákvörðun sem fræðsluráð hafi tekið í haust. Gerð hafi verið könnun meðal foreldra þar sem ágæt sátt var um sumarlokanirnar þótt auðvitað væru skiptar skoðanir um lengd þeirra. Spurður hvort í þessu felist góð þjónusta við foreldra segir hann að um það megi deila. Hingað til hafi ekki hávær gagnrýni komið fram á þetta fyrirkomulag frá því það var kynnt foreldrum. Sú breyting hefur orðið að leik- skólarnir eru ekki allir lokaðir í einu á sama tíma eins og í fyrra. Nú er þessu skipt í tvö tímabil sem þó skar- ast þannig að í tvær vikur verða allir leikskólar Hafnarfjarðar lokaðir. Magnús bendir á að foreldrar eiga þess kost að vista börn sín á öðrum leikskólum hafi þeir ekki tök á að fara í frí á tilsettum tíma. Vistun í öðrum leikskóla Halla Halldórsdóttir, formaður leikskólanefndar Kópavogs, segir leikskóla Kópavogs ekki alla lokaða í einu nema í eina viku yfir sumarið. Hver leikskóli sé lokaður í fjórar vik- ur og sumrinu skipt í þrjú tímabil svo skólar í sama hverfi séu ekki lokaðir á sama tíma. „Foreldrar eiga möguleika á að óska eftir að barnið þeirra fari í ann- an leikskóla ef þeir geta ekki tekið sér frí á þessum tíma. Þá mundi það vera leikskóli í sama hverfi. Þetta kemur mjög sjaldan fyrir og er alveg sérstakt,“ segir Halla. Þetta fyrirkomulag er samþykkt strax á haustin og kynnt vel fyrir for- eldrum í leikskólunum segir Halla. Spurð um óánægju foreldra leik- skólabarna segist hún alltaf heyra eina og eina óánægjurödd en þá sé alltaf reynt að finna lausn á vanda- málinu. Leikskólar Hafn- arfjarðar lokaðir í fimm vikur EKKI er full samstaða milli KB banka og skiptastjóra þrotabús kjúk- lingaframleiðandans Móa um gildi veðs sem bankinn átti í viðskiptakröf- ur og vörubirgðir fyrirtækisins. Lýst- ar kröfur í þrotabúið voru um 1.900 milljónir en fram kom á skiptafundi á mánudag að búast mætti við að til skipta kæmu um 180 milljónir. Ástráður Haraldsson skiptastjóri sagði óvissu um hvernig 180 milljón- irnar skiptust. KB banki teldi að verð- tryggingin ætti að ná yfir 128 millj- ónir og milli sín og bankans væri meiningarmunur og að líkindum væri nauðsynlegt að láta reyna á þetta í ágreiningsmáli fyrir dómstólum. Búnaðarbankinn [nú KB banki] fékk á sínum tíma veðrétt í vörum Ferskra afurða en það fyrirtæki var síðar sameinað Móum ehf. Ástráður sagði umdeilanlegt hvort þetta veð gilti um vörubirgðir Móa og eins væri ekki augljóst hvernig fara ætti með vaxtaútreikninga vegna veðréttar. Hann sagði að ef KB banki fengi ítr- ustu kröfum sínum framgengt myndi ekkert fást upp í búskröfur, en sam- þykktar búskröfur nema um 50 millj- ónum króna. Lýstar búskröfur námu um 150 milljónum. Ástráður sagði að látið yrði á það reyna hvort hægt yrði að jafna þennan ágreining á fundum með kröfuhöfum. Ef það tækist ekki færi málið til héraðsdóms. Hann sagði að einnig yrði skoðað hvort nauðsyn- legt væri að höfða riftunarmál vegna ráðstöfunar eigna áður en fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota en sagði ekki hægt að meta hvort svo yrði. Skiptafundur kjúklingabúsins Móa Ágreiningur um veðkröfur KB banka MAÐUR, kona og barn slösuðust al- varlega í bílslysi við Blönduós í gær- kvöld þegar bíl sem þau voru í var ekið aftan á kyrrstæðan malarflutn- ingabíl. Voru þau flutt með þyrlu til Reykjavíkur. Slysið var nokkru eftir kvöldmat í gær. Skyggni var slæmt enda þoku- súld á þessum slóðum. Malarflutn- ingabíllinn var kyrrstæður vegna bilunar við bæinn Húnsstaði, rétt sunnan við Blönduós. Vegna bilunar var ekki unnt að hafa ljós bílsins kveikt. Bíll á norðurleið lenti á vagni vörubílsins og þrennt sem var í bíln- um slasaðist. Lögregla og læknir á Blönduósi komu á staðinn og óskað var eftir að- stoð Landhelgisgæslunnar. Þyrlan kom á vettvang nokkru fyrir klukk- an 10 í gærkvöld og flutti fólkið til Reykjavíkur. Var það alvarlega slas- að en ekki var nánar vitað um líðan þess undir miðnættið. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Lenti á kyrrstæðum malarflutningabíl

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.