Morgunblaðið - 19.02.2004, Blaðsíða 10
LÍKFUNDURINN Í NORÐFIRÐI
10 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
INGER L. Jónsdóttir, sýslumaður á
Eskifirði, boðaði fjölmiðla til fund-
ar kl. 16 í gær vegna rannsóknar á
líkfundi í höfninni á Neskaupstað
að morgni miðvikudagsins 11.
febrúar síðastliðinn. Morgunblaðið
birtir hér í heild sinni yfirlýsingu
sem hún las í upphafi fundar.
„Svo sem kunnugt er fannst líkið
þegar kafari var að kafa við hafn-
arkantinn. Tilefni þess að blaða-
mannafundur er boðaður er meðal
annars það að koma á framfæri
þeim upplýsingum sem unnt er og
rétt þykir á þessari stundu að upp-
lýsa um, meðal annars til að vekja
athygli þeirra sem hugsanlega búa
yfir upplýsingum.
Líkið var klæðalítið þegar það
fannst, pakkað inn í plastumbúðir.
Það þykir vafalaust að líkinu hafi í
þeim umbúðum verið sökkt í höfn-
ina með viðfestum sökkum. Á lík-
inu voru ekki skilríki eða nokkuð
það sem getur vísbendingar um
það hver hinn látni er. Líkið sem
fannst er af karlmanni sem nú
liggur fyrir að er 27 ára gamall
Lithái. Mynd hefur verið gerð af
andliti hins látna sem látin verður
blaðamönnum í té í tengslum við
framangreindar upplýsingar.
Hann var um það bil 182 cm á hæð,
rúmlega meðalmaður í holdum,
fremur stuttklipptur og ljós-
skolhærður.
Við réttarkrufningu kom í ljós
að hinn látni bar fíkniefni innvort-
is sem hann hefur gleypt í sér-
tilbúnum plasthylkjum. Yfirgnæf-
andi líkur eru taldar á því að hinn
látni hafi komið til Íslands með
flugi um Keflavíkurflugvöll núna í
byrjun febrúar. Dánarorsök liggur
ekki fyrir en ljóst þykir að mað-
urinn var látinn áður en hann lenti
í sjónum, og að áverkar á líkinu –
sem eru stungur – eru tilkomnar
eftir andlát mannsins.
Rannsókn þessa máls er á for-
ræði Sýslumannsins á Eskifirði.
Rannsóknin hófst strax í kjölfar
þess að kafarar í Neskaupstað til-
kynntu til lögreglu um líkfundinn.
Í upphafi var óskað eftir aðstoð
tæknirannsóknarmanna lögreglu.
Tæknirannsóknarlögreglumenn
frá tæknideild Ríkislögreglustjór-
ans í Reykjavík hófu tæknirann-
sókn strax sama dag. Það var leit-
að rannsóknaraðstoðar frá
embætti Ríkislögreglustjórans,
samhliða réttarkrufningu rannsak-
aði kennslanefnd Ríkislög-
reglustjóra líkið.
Frá því að rannsókn hófst hafa,
auk starfsmanna frá embætti
sýslumannsins á Eskifirði, embætti
Ríkislögreglustjórans og Lög-
reglustjórans í Reykjavík, lög-
reglumenn frá ýmsum öðrum emb-
ættum aðstoðað. Til þess að gefa
mynd af því hversu umfangsmikil
rannsóknin er og hefur verið þá
hafa á fjórða tug manna úr lög-
reglunni komið að málinu. Eft-
irgrennslan víða um land, sem felst
meðal annars í því að leita upplýs-
inga hjá fólki. Á annað hundrað
manns hafa verið yfirheyrðir nú
þegar. Enginn hefur verið hand-
tekinn vegna rannsóknar málsins.
Það er rétt að geta þess að þeg-
ar hefur farið fram og er í gangi
eftirgrennslan í útlöndum í gegn-
um erlend lögreglulið.“
Líkið er af
27 ára göml-
um Litháa
Lögregla vinnur enn að rannsókn í
tengslum við líkfund í höfninni í Nes-
kaupstað miðvikudaginn 11. febrúar.
Boðað var til blaðamannafundar um
málið í gær og skýrt frá helstu niður-
stöðum rannsóknarinnar.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdótti
Í gær var vika síðan kafari fann fyrir tilviljun lík í höfninni í Neskaupsstað.
ur eða grunaður.
Spurning: En þessi Lithái, er hann
annar af tveimur sem þið leituðuð að í
tengslum við þessa tvo Íslendinga?
Arnar: Um það viljum við ekkert
segja. Við höfum leitað að fjölda,
fjölda vitna og yfirheyrt fjölda vitna.
Spurning: Hvernig vildi það til að
það var farið á heimili manns í Vilnius
og sagt að sonur hans væri látinn, svo
reyndist það ekki vera?
Inger: Það eru ekki fréttir frá okk-
ur.
Spurning: Þessi Lithái sem gaf sig
fram við lögreglu, í gær eða fyrradag
eða hvenær sem það var, og hinn
látni, eftir því sem best er vitað,
tengjast þeir eitthvað?
Arnar: Það hafa margir Litháar
gefið sig fram við lögreglu.
Spurning: Já, en það voru þarna
tveir eða þrír. Einn Íslendingur og
einn eða tveir Litháar sem gáfu sig
fram fyrir nokkrum dögum.
Arnar: Ég er ekki viss hvað þú ert
að tala um því það hefur svo mikill
fjöldi gefið sig fram við lögreglu og
gefið skýrslur.
Hörður: Ég held að það sé óhætt að
fullyrða að það hafa ekki verið stað-
fest nein tengsl þessa látna við nokk-
urn mann. Það er ekkert staðfest um
það. Það er örstutt síðan voru vituð
einhver deili á þessum látna manni,
hver hann geti verið, en það liggja
engin staðfest tengsl fyrir milli hans
eða nokkurs annars. Þess vegna hef-
ur þetta ekki gengið hraðar en þetta.
Spurning: En hafið þið getað rakið
eitthvað ferðir hans hér á Íslandi frá
því hann kom, að því talið er í byrjun
febrúar? Vitið þið um hann einhvers
staðar annars staðar en á flugstöðinni
væntanlega og í höfninni?
Arnar: Að því beinist að sjálfsögðu
rannsóknin að stórum hluta. Það er
að kortleggja, eins nákvæmlega og
unnt er, ferðir allra grunaðra og allra
sem til greina koma og að kortleggja
þá sólarhringa sem þessir atburðir
eiga sér hugsanlega stað. Þá meðal
annars ferðalag þessa manns.
Spurning: Vitið þið hvar hann hef-
ur verið annars staðar?
Arnar: Já við vitum náttúrulega
um eitthvað af ferðum hans, rann-
sóknin beinist meðal annars að þessu
og er alls ekki lokið.
Spurning: Liggur núna fyrir hvort
maðurinn hafi dáið vegna þess að
belgir með fíkniefnum hafi rofnað eða
hvort meltingarfærin hafi gefið sig
með einhverjum hætti?
Hörður: Nei, eins og kom fram hjá
sýslumanni liggur það ekki endan-
lega fyrir. Það má þó skýra frá því að
mér vitanlega hefur ekki annað eins
magn af fíkniefnum fundist innvortis
í einum manni áður. Við teljum að
þetta losi að minnsta kosti 400
grömm af hvítu efni, í tugum pakkn-
inga og það er rétt byrjað að greina
þessar pakkningar, og alls ekki búið
að fara yfir allt efnið, en það gefur
svörun sem amfetamín.
Spurning: Hversu margir tugir
pakkninga voru þetta?
Hörður: Þeir [pakkarnir] eru milli
50 og 60. Það er þó ljóst að þeir ytri
áverkar sem voru á líkinu eru til-
komnir eftir andlát og að viðkomandi
er látinn áður en hann fer í sjóinn.
Spurning: Eru vísbendingar um að
reynt hafi verið að kryfja hinn látna,
eða opna hann með einhverjum hætti,
ná fíkniefnunum úr honum?
Hörður: Ég held ekki, það bendir
ekki til þess.
Spurning: Það voru tilgátur um að
hann hafi verið stunginn til að hann
Spurning: Þetta er 27 ára Lithái,
hvað hét hann?
Inger: Það er óvíst.
Spurning: Eftirgrennslan í útlönd-
um, er það víðar en í Litháen?
Hörður: Interpolnetið teygir sig
náttúrlega mjög um allan heim, ef út í
það er farið.
Spurning: En eruð þið að fókusera
á einhverja aðra staði sérstaklega?
Hörður: Nei, það er verið að nota
þessi sambönd sem við höfum.
Spurning: Hvernig vitið þið að
hann sé 27 ára Lithái þegar þið vitið
ekki hvað hann heitir?
Hörður: Það var rétt í þessu, eða
núna í dag, að koma staðfesting á því
að það er búið að finna út ...
Spurning: Þið hljótið að vita þá
hvað hann heitir.
Hörður: Þetta er spurningin um
hvaða nafn á að nota.
Spurning: Er þetta Litháinn sem
sýndur var í fréttum Stöðvar 2 í gær-
kvöld?
Arnar: Ég bara horfði ekki á fréttir
Stöðvar 2 í gærkvöldi þannig að ég
því miður veit það ekki.
Spurning: Hvernig komust þið á
slóðina hver þessi maður væri?
Hörður: Með fingrafararannsókn.
Spurning: Hann er á sakaskrá hjá
lögreglu í einhverju landi, eða lönd-
um?
Arnar: Það er ekki hægt að segja
það að svo stöddu, það er nýlega kom-
in staðfesting á því hver maðurinn er,
með fingrafarasamanburði, og eins
og kom fram hérna áðan ganga menn
stundum undir fleiri en einu nafni,
þannig að frekari rannsókn á eftir að
fara fram á persónu þessa manns.
Spurning: Þetta nafn eða þessi
nöfn sem heyrst hafa, eða hafa verið
fest við þennan mann, tengjast þau á
einhvern hátt einhverri glæpastarf-
semi svo vitað sé?
Arnar: Það er óljóst á þessari
stundu.
Spurning: Þið vitið að hann kom
hingað í byrjun febrúar, eða hvenær
sem það var, en hann hefur verið hér
á Íslandi af og til?
Inger: Að talið er.
Arnar: Það getum við ekki sagt á
þessari stundu.
Spurning: Sagði ekki sýslumaður
talið er?
Inger: Getum ekki staðfest það.
Spurning: En þið hafið grun um
það?
Inger: Við höfum grun um það.
Spurning: Hvers vegna gerið þið
þetta núna fyrst, að leita til almenn-
ings með mynd af hinum látna, hefði
ekki verið eðlilegt að gera það mikið
fyrr?
Arnar: Mig langar kannski í þessu
sambandi að greina frá því að á Ís-
landi er náttúrulega týnt fólk, týndir
Íslendingar sem var auðvitað byrjað
að kanna, jafnframt öðrum aðgerð-
um, það tók ákveðinn tíma. Það er
bæði af þeim ástæðum og af tillitsemi
við aðstandendur þess sem látinn er,
það var ekki strax farið af stað með að
dreifa myndum. Núna er það tíma-
bært að mati þeirra sem rannsaka
málið og þess vegna er þetta gert á
þessari stundu.
Spurning: Þessir þrír sem voru
ekki teknir en gáfu skýrslu og ganga
lausir, tengjast þeir enn málinu og
var þessi Lithái væntanlega með
þeim?
Arnar: Það hafa eins og kom fram
hjá sýslumanninum á annað hundrað
manns verið yfirheyrð sem vitni og
þau hafa öll sömu stöðu. Það hefur
enginn sakborningur verið yfirheyrð-
myndi ekki fljóta upp, eru einhverjar
vísbendingar um það?
Hörður: Nei, menn velta þessu
náttúrulega fyrir sér, hvert markmið-
ið var að stinga manninn úr því hann
var látinn, eða menn hafi ekki vitað að
hann var látinn, en sem sagt, formleg
niðurstaða krufningarinnar liggur
ekki fyrir.
Spurning: Voru aðrir áverkar á lík-
inu sem gefa til kynna einhverjar bar-
smíðar eða eitthvað slíkt?
Hörður: Nei, engar.
Spurning: Hefur eitthvað komið út
úr þessari bílarannsókn?
Hörður: Bílarannsóknin er hluti af
því sem Arnar var að tala um, það er
búið að ræða við eitthvað á annað
hundrað vitna. Það sást á þessum
dögum í kringum líkfundinn, ég man
ekki hvort það var einum, tveimur,
þremur dögum áður eða um þetta
leyti, þá sást aðkomubíll með að-
komumönnum í. Þetta reyndist vera
sá bíll. Menn sem voru í honum hafa
gefið sig fram, eins og hér hefur kom-
ið fram, og gefið skýringar á sínum
ferðum og til öryggis, eins og alltaf er
gert, til að útiloka alla aðra mögu-
leika, var bíllinn skoðaður og það kom
ekkert sérstakt út úr því. Hann er
kominn á leiguna aftur.
Spurning: Hafið þið útilokað tengsl
þessara manna, sem að töluðu við
ykkur, við þennan tiltekna Litháa
sem fannst í höfninni?
Arnar: Við höfum ekkert útilokað.
Spurning: Eru einhverjir, af því að
Arnar talaði um einhverja grunaða,
eru einhverjir Íslendingar grunaðir
um að tengjast málinu, einhverjir
ákveðnir?
Arnar: Það er enginn sem hefur
verið með það sem við köllum rétt-
arstöðu grunaðs manns. Það hefur
enginn verið yfirheyrður sem slíkur,
rannsóknin er bara í eðlilegum far-
vegi. Þegar um er að ræða mál eins
og þetta tekur það oft ekki daga held-
ur vikur að fá niðurstöður úr grein-
ingum ýmissa sýna og svo framvegis.
Það hefur bara sinn tíma, það er ekki
hægt að flýta því mikið meira. Hún
gengur eðlilega fyrir sig, í góðri sam-
vinnu þessara embætta á Eskifirði,
Reykjavík, hjá Ríkislögreglustjóran-
um, Akureyri og Höfn og víðar á
landinu.
Inger: Og Seyðisfirði.
Spurning: Hafið þið gert húsleit
hjá einhverjum í tengslum við málið?
Arnar: Nei, engar húsleitir hafa
verið gerðar.
Spurning: Nú má vera ljóst að
maðurinn var að smygla fíkniefnum,
eftir hverju vinnið þið núna? Hver er
ykkar kenning? Rannsókninni miðar
vel, það er gangur í henni, eftir
hverju vinnið þið núna?
Arnar: Við vinnum bara eftir stað-
reyndum, öllum þeim staðreyndum
sem við getum safnað saman. Ef þú
ert að tala um brot sem eru framin þá
er það bara óljóst á þessari stundu.
Það er að sjálfsögðu þarna alvarlegur
fíkniefnainnflutningur, það er þarna
mannslát sem þarf að rannsaka, það
hefur komið fram hjá Inger að dán-
arorsök er ókunn og það þarf að safna
þessum staðreyndum saman hægt og
rólega og fá heildarmynd á það.
Spurning: Eruð þið að falast eftir
því með þessari mynd að fá ábend-
ingar frá almenningi um nafn þessa
manns? Er það sem þið eruð að von-
ast eftir núna?
Inger: Ferðir hans.
Arnar: Nafn og allar þær upplýs-
ingar sem almenningur kann að geta
gefið.
Spurning hvaða
nafn á að nota
Inger L. Jónsdóttir, sýslumaður á Eskifirði, Hörður Jóhannesson,
yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í Reykjavík, og Arnar Jensson, að-
stoðaryfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra, svöruðu spurn-
ingum blaðamanna í gær. Hér er útprentun á fundinum, örlítið stytt.