Morgunblaðið - 19.02.2004, Side 21
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2004 21
Garðabær | Lögreglan í Garðabæ, Hafnarfirði og Bessastaða-
hreppi hefur sett sér það markmið að innbrotum og þjófnuðum
fækki um 7% á árinu 2004 frá síðasta ári. Í markmiðssetningu
lögreglunnar eru einnig sett þau markmið að eignaspjöllum
fækki um 10% á árinu og umferðaróhöppum og slysum fækki um
10%. Vegna aukins eftirlits fjölgi skráðum fíkniefnabrotum um
5%. Markmiðssetningin gengur út á að fylgja eftir góðum árangri
síðasta árs og bæta enn um betur.
Lögreglan í umdæminu setti sér mælanleg markmið í fyrsta
sinn í byrjun ársins 2003. Markmiðin sneru að því að fækka brot-
um í ákveðnum mála- og brotaflokkum. Þá hafði brotum eins og
innbrotum, þjófnuðum og eignaspjöllum fjölgað umtalsvert árin á
undan.
Nánast öll markmið sem lögreglan setti sér á síðasta ári gengu
eftir. Innbrotum fækkaði þannig um 15% frá árinu áður, þjófn-
uðum um 26% og eignaspjöllum um 10%. Skráðum fíkniefnabrot-
um fjölgaði um 27% á árinu sem skýrist af aukinni áherslu á eft-
irlit með fíkniefnamisferli.
Þegar tölur fyrir Garðabæ eru skoðaðar sérstaklega sést að
þar er árangurinn jafnvel enn betri en í umdæminu í heild. Í
Garðabæ fækkaði innbrotum um 27% frá árinu 2002 til 2003,
þjófnuðum um 30% og eignaspjöllum um 35%.
Árangursrík
markmiðssetn-
ing lögreglu
Morgunblaðið/Arnaldur
Álftanes | Bessastaðahreppur mun frá og með
17. júní næstkomandi að öllum líkindum bera
heitið „Sveitarfélagið Álftanes“. Í kjölfar um-
ræðu á fundi hreppsnefndar Bessastaðahrepps
17. febrúar 2004 um eflingu sveitarstjórnarstigs-
ins í landinu og sameiningu sveitarfélaga var
samþykkt einróma tillaga sveitarstjóra, þar sem
fram kom að hreppsyfirvöld hafi markað sér
stefnu um framtíðarskipan hreppsins sem sjálf-
stæðs sveitarfélags, „og að sameining við önnur
sveitarfélög verði ekki til umræðu við þá umfjöll-
un um breytta sveitarfélagaskipan í landinu,
sem í gangi er um þessar mundir“.
Hreppsnefnd samþykkti því að hefja þegar
undirbúning að því að sveitarfélaginu Bessa-
staðahreppi verði breytt í bæjarfélag; hrepps-
nefnd verði þar með bæjarstjórn, hreppsráð
verði bæjarráð, sveitarstjóri verði bæjarstjóri
o.s.frv.
Lögmanni Bessastaðahrepps hefur því verið
falið falið, í samráði við hreppsráð og sveit-
arstjóra, að vinna tillögu að breytingu á gildandi
samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfé-
lagsins í samræmi við þetta, til framlagningar á
næsta fundi hreppsnefndar og mun sveitarstjóri
leita umsagnar örnefnanefndar um nafnið
„Sveitarfélagið Álftanes“.
Áformað er að 17. júní 2004, á 60 ára afmæli
lýðveldisins, verði boðað til 1.100. fundar hrepps-
nefndar Bessastaðahrepps, sem jafnframt verði
fyrsti fundur bæjarstjórnar Álftaness.
Bessastaðahreppur
verður Álftanes
Garðabær | Bæjarráð Garðabæjar hefur sam-
þykkt að taka áfram til vors þátt í námsvist-
unarkostnaði vegna nemenda sem stunda nám
í tónlistarskólum utan bæjarins, enda verði
sama afstaða tekin í öðrum sveitarfélögum á
höfuðborgarsvæðinu. Fyrirkomulag greiðslna
verður það sama og var á haustönn 2003. Þetta
kemur fram á fréttavef Garðabæjar, www.-
gardabaer.is.
Bæjarráð beinir því jafnframt til mennta-
málaráðuneytisins að hefja nú þegar markvissa
vinnu við að semja frumvarp til laga um tón-
listarskóla, m.a. með því að kalla saman starfs-
hóp sem tilnefndur hefur verið til að vinna að
málinu.