Morgunblaðið - 19.02.2004, Side 25
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2004 25
BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700
Þingholt
Veislusalur fyrir öll
tilefni
Spennandi matseðlar og
veitingar
Skoðið verðið á
www.holt.is
• • •
• • •
• • •
Áttu vini í Færeyjum?
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
EH
F.
/S
IA
.I
S
-F
LU
19
66
3
04
/2
00
4
Innifalið: Flug til Færeyja, flugvallarskattur og tryggingargjald.
Takmarkað sætaframboð
Sími: 570 3030
Tengiflug, 50% afsláttur með FÍ frá Akureyri, Ísafirði og
Egilsstöðum vegna Færeyjaferðar (hafið samband við
sölufulltrúa þegar flug til Færeyja hefur verið bókað á netinu).
Einstakt tilboð á flugi,
aðeins 7.500 kr.
Fljót | Í síðustu viku náðust tvær
kindur til byggða í Sléttuhlíð í
Skagafirði, en þá var gerð þriðja
tilraunin til að ná þeim. Vitað var
um tvær kindur, veturgamla á með
lambhrút í fjallinu utarlega í sveit-
inni. Þær sáust upphaflega rétt fyr-
ir jólin á Stafárdal, sem er á mörk-
um Sléttuhlíðar og Fljóta, og voru
þá þrjár á ferð. Strax eftir áramót
var farið til kindanna og þá náðist
ein veturgömul ær, en hinar sluppu
og komust í kletta þar sem ógern-
ingur var að komast að þeim. Önn-
ur tilraun var gerð skömmu síðar
en þá fundust kindurnar alls ekki.
Farið var að svipast um eftir kind-
unum þegar ótíðinni slotaði í síð-
ustu viku og sáust þær í sjónauka
talsvert frá þeim stað sem skilið
var við þær í fyrsta skipti.
Var þá þegar gerður út leið-
angur þriggja bænda úr sveitinni á
vélsleðum og fenginn einn til við-
bótar úr næstu sveit með góðan
fjárhund. Þrátt fyrir að mikill snjór
sé í fjallinu var harðfennið svo mik-
ið að kindurnar gátu farið um mik-
ið svæði. Með aðstoð hundsins gekk
þó vel að ná þeim og var þeim síð-
an ekið heim á vélsleðunum.
Eggert Jóhannsson, bóndi í Felli,
er eigandi allra kindanna. Hann
sagðist vera feginn að þær skyldu
nást því það væri leiðinlegt að vita
af þeim úti í miklum stórviðrum.
Þær hefðu verið mjög villtar eins
og oft yrði með fé sem er á úti-
gangi og nokkuð búnar að tapa
holdum. Þetta eru ekki einu kind-
urnar sem náðst hafa til byggða í
Skagafirði á þorranum því skammt
er síðan bændur í Akrahreppi
fengu fimm kindur. Þær fundust
fram á Öxnadalsheiði, þrjár ær og
tvö lömb.
Sauðfé enn
að nást til
byggða
Morgunblaðið/Örn þórarinson.
Af fjöllum: Veturgamla ærin og lambhrúturinn sem náðust úr Sléttuhlíðarfjöllum komin heim eftir langa útivist.
Húsavík | Á dögunum var lýst kjöri
Íþróttamanns ársins 2003 á Húsavík.
Að venju var það Kiwanisklúbburinn
Skjálfandi sem stóð fyrir valinu.
Íþróttafélög í bænum tilnefna
íþróttamenn, annars vegar 16 ára og
yngri og hins vegar 17 ára og eldri.
Athöfnin fór fram í íþróttahöllinni og
að þessu sinni varð fyrir valinu Pálm-
ar Pétursson, handknattleiksmaður í
Val. Í öðru sæti Baldur Sigurðsson,
knattspyrnumaður í Völsungi, og
jafnar í þriðja sæti urðu þær Sigrún
Björg Aðalgeirsdóttir, frjálsíþrótta-
maður úr Völsungi, og golfarinn
Arna Rún Oddsdóttir úr Golfklúbbi
Húsavíkur.
Pálmar Pétursson er 19 ára og
leikur eins og áður segir með Val í
Reykjavík þar sem hann stendur
vaktina í markinu. Hann hefur leikið
yfir 100 leiki með meistaraflokki fé-
lagsins auk þess sem hann leikur
með 2. flokki þar sem hann er fyr-
irliði. Þá hefur Pálmar verið valinn
bæði í U-18 ára og U-20 ára landslið
Íslands og fór sl. vor með U-20 ára
liðinu til keppni í Búlgaríu. Með U-18
ára landsliðinu tók Pálmar þátt í und-
ankeppni fyrir EM sem fór fram í
Litháen í júní og stóðu Íslendingar
þar efstir í mótslok. Þeir tóku síðan
þátt í lokakeppninni í Slóveníu í
ágúst þar sem þeir urðu Evrópu-
meistarar.
Svo skemmtilega vildi til að hesta-
íþróttamenn ársins á Húsavík 2003
eru feðgar úr Hestamannafélaginu
Grana, Egill Vignisson í yngri flokki
og faðir hans Vignir Sigurólason í
þeim eldri. Í öðrum íþróttagreinum
voru eftirtaldir valdir sem bestu
íþróttamenn ársins:
16 ára og yngri: knattspyrna,
Gústav Axel Gunnlaugsson, Völ-
sungi; handknattleikur, Elva Björg
Arnarsdóttir, Völsungi; frjálsar
íþróttir, Sigrún Björg Aðalgeirsdótt-
ir, Völsungi; skíði, Stefán Jón Sigur-
geirsson, Völsungi; sund, Arna Ýr
Arnarsdóttir, Völsungi; fimleikar,
Svava Bjarkadóttir, Völsungi; boccia,
Ármann Kristjánsson, Völsungi, og
golf, Arna Rún Oddsdóttir, GH.
17 ára og eldri: knattspyrna, Bald-
ur Sigurðsson, Völsungi; handknatt-
leikur, Pálmar Pétursson, Val,
Reykjavík; frjálsar íþróttir, Sigur-
björg Hjartardóttir, Völsungi, og
boccia, Elín Berg Stefánsdóttir,
Völsungi; skotíþróttir, Einar Helga-
son, Skotfélagi Húsavíkur.
Við þessa athöfn var einnig afhent-
ur Hvatningabikar ÍF en hann hlýtur
sá einstaklingur sem að mati stjórnar
og þjálfara Bocciadeildar Völsungs,
sýnir bestu ástundun og mestu fram-
farir í íþróttinni. Þennan farandbikar
hlaut að þessu sinni Kristbjörn Ósk-
arsson.
Morgunblaðið/Hafþór
Viðurkenningar: Þeir Pálmar Pétursson og Baldur Sigurðsson voru báðir
fjarverandi við keppni með liðum sínum þegar kjör Íþróttamanns ársins
fór fram en þær Sigrún Björg Aðalgeirsdóttir og Arna Rún Oddsdóttir t.h.,
sem urðu jafnar í þriðja sæti, tóku við sínum verðlaunum.
Evrópumeistari
íþróttamaður
Húsavíkur
Laxamýri | Margt var
um manninn í félags-
heimilinu Heiðarbæ í
Reykjahverfi þegar
fólk blótaði þorra með
troðfullum trogum af
mat og ekki vantaði
söng, gleði og dans
sem fyllti húsið langt
fram eftir nóttu.
Að venju steig
nefndin á svið og hafa
Reykhverfingar verið
þekktir fyrir að gera
mikið grín að sjálfum
sér og rifja upp ýmsa
atburði liðins árs í
góðu gríni. Margt bar
þar á góma og má þar
t.d. nefna heitapottsdvöl Þorsteins
Ragnarssonar í Hrísateigi sem olli
reyk í Reykjahverfi, stöðu mála í
„Slátrarabæ“ þar sem dvöldu ýmsir
starfsmenn Norðlenska, miðilsfund
merkra Reykhverfinga, ástandið á
bæjarfulltrúa sveitarinnar og ým-
islegt fleira.
Ekki var að sjá annað en að allir
skemmtu sér vel því mikið var
klappað og hlátrasköll heyrðust
lengi í salnum.
Þorrafjör í Reykjahverfi
Þorsteinn Ragnarsson í heita pottinum í Hrísateigi.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon