Morgunblaðið - 19.02.2004, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 19.02.2004, Blaðsíða 31
LISTIR/VETRARHÁTÍÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2004 31 Fimmtudagur Háskólabíó kl. 9.30–12.30 Sinfón- íuhljómsveit Íslands verður með opna æf- ingu á 7. sinfóníu Gustavs Mahlers. Hljómsveitarstjóri er Petri Sakari. Bankastræti kl. 19.15 Lúðrasveitin Svanur leikur. Þórólfur Árnason borgarstjóri setur hátíðina. Afhjúpuð verður gjöf SPRON til Reykjavíkurborgar, höggmyndin Rætur eftir Steinunni Þórarinsdóttur. Kyndilganga með lúðrasveit á Miðbakka Reykjavíkurhafnar. Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús kl. 19.30–22 Safnið opið í tilefni hátíð- arinnar. Aðgangur ókeypis fyrir yngri en 18 ára. Bankastræti kl. 19.35 Ljósablóm. Lista- verk á ljósastaurum eftir hópinn Norðan bál. Aurum, Bankastræti 4 kl. 19.35 Hverfull, ljósmyndaverk eftir Katrínu Elvarsdóttur verður til sýnis alla hátíðina. Rauðhetta og úlfurinn, Laugavegi 7 kl. 19.35 Myndbandsgjörningur eftir Jón Sæmund Auðarson meðan á hátíðinni stendur. Reykjavíkurtjörn kl. 19.45 Skúlptúr eftir Aðalheiði S. Eysteinsdóttur verður til sýnis hátíðisdagana. Miðbakki Reykjavíkurhafnar kl. 20 Slökkviliðið framreiðir í samvinnu við ljósahönnuði laserljósasýningu. Borgarskjalasafn Reykjavíkur, Tryggva- götu 15 kl. 20–21 Kynning á opinber- um skjölum sem tengjast einstaklingum sem búið hafa í borginni sem safnið varð- veitir og aðgengið að þeim. Borgarbókasafn, Grófarhúsi, kl. 20.15– 21.15 Sýn ljósmyndara á samtíma sinn og umhverfi. Ljósmyndaskyggnusýning Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Hitt húsið, Pósthússtræti 3–5 kl. 20.40–22.30 Fimmtudagsforleikur á Loftinu. Fríkirkjan kl. 20.40 Margrét Eir, Guðrún Gunnarsdóttir og Ragnar Bjarnason syngja ásamt hljómsveit Carls Möller íslenskar og erlendar dægurperlur. Ráðhús Reykjavíkur kl. 20.40–21.10 Leikur að siðum og venjum. Gjörningur eftir Þórunni Björnsdóttur. Ingólfsnaustkl. 20.40 Glæpasöguganga á vegum Borgarbókasafns. Staldrað við á stöðum sem tengjast íslenskum glæpasög- um, gömlum og nýjum. Leiðsögumenn eru Úlfhildur Dagsdóttir og Ævar Örn Jós- epsson sem einnig les úr nýjustu bók sinni, Svörtum englum, á viðeigandi stað. Ottó Magnússon sker út drottningu Vetr- arhátíðar. Leikfélag Akureyrar sýnir brot úr Draumalandinu eftir Ingibjörgu Hjart- ardóttur. Verkið verður frumsýnt 6. mars. Söngskólinn í Reykjavík, Snorrabraut 24 kl. 20.30 Lára Bryndís Eggertsdóttir flytur, ásamt lítilli kammersveit, kant- öturnar Der Weiberorden eftir Telemann og Tu fedel, tu costante eftir Händel. Þjóðleikhúskjallarinn kl. 21 Dansarar Kramhússins sýna dansa. M.a. sýnir Mart- in Maher Kishkson frá Egyptalandi aust- urlenska dansa. Hressó kl. 21.30 Tríó Kristjönu Stef- ánsdóttur. TÓNLEIKAR í Gulu áskriftarröð Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru í kvöld, kl. 19.30, í Háskólabíói að vanda. Þar verður flutt Sinfónía nr. 7 eftir Gustav Mahler og er það í fyrsta sinn sem hún fær að hljóma í flutningi SÍ en Sinfóníuhljómsveit æskunnar flutti verkið á tónleikum árið 1992. Hjómsveitarstjóri er Petri Sakari. Verkið er í fimm þáttum: Langsam (Adagio) Nachtmusik. Allegro mod- erato Scherzo. Schattenhaft – Trio Nachtmusik. Andante amoroso Rondo-Finale. Tempo I (Allegro or- dinario). Árni Heimir Ingólfsson segir m.a. í tónleikaskrá: „Austurríska tónskáld- ið Gustav Mahler (1860–1911) samdi níu sinfóníur á árabilinu 1888–1991 og var langt kominn með smíði þeirr- ar tíundu þegar hann lést af hjarta- þelsbólgu langt fyrir aldur fram. Mahler var sumartónskáld. Á vet- urna stjórnaði hann Vínaróperunni og hafði hvorki tíma né næði til að helga sig tónsmíðunum nema þrjá mánuði hvert sumar. Annar og fjórði kafli sjöundu sinfóníunnar bera und- irtitilinn „Nachtmusik“ og urðu til í Maiernigg sumarið 1904, þegar Mahler var önnum kafinn við að ljúka sjöttu sinfóníunni. Út úr óræðum upphafshljómi fyrsta kaflans vex hægur mars sem leikinn er af tenórhorni og skýtur aft- ur og aftur upp kollinum á ólíklegustu tímum í verkinu. Fyrsti nætursöngurinn er mars með tveimur millispilum (tríóum). Hann hefst á einmanalegum lúðra- blæstri, en smám saman taka fleiri blásarar undir og auk herlúðraþyts- ins heyrist fuglasöngur sem verður sífellt háværari. Miðkaflinn er scherzó sem Mahler biður um að sé leikið „skuggalega“ (schattenhaft). Smám saman tekur draugalegur valsinn á sig mynd, og glannaleg glissandóin í fiðlunum gefa honum óhugnanlegt yfirbragð. Seinni nætur- söngurinn er serenaða eða morgun- söngur, sem Mahler biður um að sé leikinn „með ástleitni“ (Andante am- oroso). Lokakaflinn er í rondóformi; í honum skiptast á aðalstef sem snýr aftur með reglulegu millibili og önnur sem koma sjaldnar fyrir. Að loknum tilþrifamiklum pákuslætti leika horn- in mikilfenglegt stef sem minnir um margt á forleik Wagners að Meist- arasöngvurunum.“ Sumartónskáld á Sinfóníutónleikum Gustav Mahler Petri Sakari ER NEFIÐ STÍFLAÐ? Fæst í apótekum og lyfjaverslunum STERIMAR Skemmir ekki slímhimnu er náttúrulegur nefúði sem losar stíflur og léttir öndun. Fyrir 0-99 ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.