Morgunblaðið - 19.02.2004, Side 44
MINNINGAR
44 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Sveinn Péturs-son fæddist í
Rauðseyjum í
Skarðshreppi í Dala-
sýslu 6. ágúst 1920.
Hann andaðist á
Hrafnistu í Hafnar-
firði 11. febrúar síð-
astliðinn. Foreldrar
Sveins voru Pétur
Sveinsson, f. í Skál-
eyjum á Breiðafirði
30. september 1890,
d. 19. október 1973,
og Ástríður Jóns-
dóttir, f. að Barmi á
Skarðsströnd 19.
júní 1888, d. 10. október 1962.
Systkini Sveins voru Guðmundur
Gerilíus, f. 29. nóvember 1912, d.
1998, var kvæntur Herdísi Frið-
riksdóttur, f. 13. maí 1913, d. 1997,
og Svandís Nanna, f. 10. desember
1925, gift Júlíusi Gunnari Þor-
geirssyni, f. 8. mars 1925.
Sveinn kvæntist 26. desember
1940 Rebekku Guðmundsdóttur,
frá Bíldudal, f. 5. október 1921.
Börn Sveins og Rebekku eru: 1)
Pétur rannsóknarlögreglumaður í
Reykjavík, f. 8. janúar 1941, var
kvæntur Sigurveigu Helgu
Thorlacius Jónsdóttur, f. 28. maí
1941, d. 24. nóvember 1991. Börn
þeirra eru: a) Jón, f. 12. nóvember
1961, í sambúð með Eddu Sigurð-
ardóttur, börn þeirra eru Sigur-
manni á Selfossi, f. 19. júní 1942.
Fyrir átti Ástríður þrjú börn með
Símoni Ágústi Sigurðsyni. Þau
eru: 1) Magnea Ingileif, f. 12. maí
1961, gift Áskeli Vilhjálmssyni, f.
6. maí 1952, barn þeirra er Jak-
obína Hrund. Stjúpbörn Magneu
Ingileifar, börn Áskels eru Þórir
Magni og Svanhildur Jónný. 2)
Sveinn, f. 11. október 1962, í sam-
búð með Leilu Arge, f. 2. mars
1967, synir þeirra eru Baldur Arge
og Hörður Arge, fyrir átti Sveinn
dótturina Karen Önnu og á hún
tvær dætur. 3) Ásmundur Krist-
inn, f. 19. september 1964, í sam-
búð með Dagbjörtu Birgisdóttur,
f. 2. október 1966, dóttir þeirra er
Rebekka. Hlöðver átti fyrir þrjú
börn sem eru Sigrún, f. 7. október
1962, Svanhildur, f. 5. apríl 1972
og Halldór, f. 10. október 1973. 4)
Brandur, sjómaður í Reykjavík, f.
13. desember 1945, kvæntur
Khanngoen Hoisang frá Taílandi,
f. 22. október 1952.
Sveinn vann við ýmis störf til
lands og sjávar, þau Rebekka hófu
búskap í Hvallátrum á Breiðafirði
ásamt foreldrum Sveins, árið 1942.
Árið 1948 flutti Sveinn í Voga á
Vatnsleysuströnd, þar sem hann
var til sjós, en síðar hóf hann vinnu
í Hraðfrystihúsi Voga h/f. Flutti til
Reykjavíkur árið 1975, þar sem
hann vann hjá Fiskmati ríkisins,
sem svæðafiskmatsmaður, síðan
sem verkstjóri hjá Granda h/f þar
til hann lét af störfum vegna ald-
urs 73 ára gamall.
Útför Sveins verður gerð frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
veig Helga og Sigurð-
ur Ingi. b) Sveinn, f.
14. október 1962,
kvæntur Þorbjörgu
Svövu Óladóttur. c)
Arnfríður Thorlacius,
f. 2. júní 1965, í sam-
búð með Arngrími
Arngrímssyni. Arn-
fríður átti fyrir tvær
dætur, Dagbjörtu
Fjólu og Sigurveigu
Huldu. d) Pétur Ingi,
f. 30. mars 1974, í sam-
búð með Söru Árna-
dóttir þau eiga soninn
Leon, Pétur Ingi átti
fyrir dótturina Anítu Ýr. Árið
1993 hóf Pétur sambúð með Bjarn-
eyju Kristjönu Friðriksdóttur, f. 4.
júlí 1949, börn Bjarneyjar Krist-
jönu, fósturbörn Péturs eru: a)
Guðný Höskuldsdóttir, f. 30. des-
ember 1969, gift Steinþóri Ás-
geirssyni, saman eiga þau dótt-
urina Hörpu Kristjönu, en fyrir
átti Guðný dæturnar Stefaníu
Bjarneyju og Rebekku Sigríði. b)
Friðrik Höskuldsson, f. 24. janúar
1971, kvæntur Steingerði Sigþórs-
dóttur, saman eiga þau dæturnar
Emmu Ljósbrá og óskírða dóttur.
c) Davíð Höskuldsson, f. 30. janúar
1981.
2) Ástríður, stuðningsfulltrúi á
Selfossi, f. 18. ágúst 1942, gift
Hlöðver Magnússyni, lögreglu-
Við burtför þína er sorgin sár
af söknuði hjörtun blæða.
En horft skal í gegnum tregatár
í tilbeiðslu á Drottin hæða.
og fela honum um ævi ár
undina dýpstu að græða.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Nú þegar pabbi er farinn yfir
móðuna miklu, þá rifjast svo margt
upp fyrir mér. Hann var rólegur og
dagfarsprúður, en samt glettinn og
skemmtilegur maður. Hann og móð-
ir mín, Rebekka, giftust ung og áttu
okkur systkinin þrjú, Pétur, mig og
Brand.
Þá bjuggu þau í Hvallátrum á
Breiðafirði og þar fæddist ég. Árið
1948 fluttu þau að Vogum á Vatns-
leysuströnd, þar sem hann var fyrst
til sjós, svo í frystihúsinu og síðast
var hann fiskmatsmaður. Pabbi og
mamma hafa búið í Reykjavík í um
30 ár.
Ég var alltaf hrifin af pabba, það
mætti segja að ég hafi verið pabba-
stelpa. Ég man að Pétur bróðir fékk
að fara út í Flatey, í staðinn fékk ég
að fara á hestbak með pabba, það er
ein af mínum bestu æskuminning-
um.
Hann var mikill náttúruunnandi
og eyjamaður, það sá ég svo vel þeg-
ar við fórum í heimsókn vestur að
Hvallátrum, hvað hann yngdist upp
við að koma æskuslóðirnar. Hann
fór líka stundum vestur í Flatey til
Hafsteins í lunda. Það voru hans
mestu ánægjustundir.
Pabbi reyndist mér og mínum
börnum alltaf vel, í sorg og gleði.
Þegar ég kynntist Hlöðveri, manni
mínum, tók hann afskaplega vel á
móti honum og var alla tíð ástríkur
og hlýr í okkar garð. Elsku mamma,
þú hefur misst besta vin þinn og fé-
laga og við biðjum Guð um styrk þér
til handa á þessum erfiða tíma.
Við Hlöðver þökkum pabba fyrir
samfylgdina og hlökkum til að hitta
hann aftur, þegar leiðir okkar liggja
saman, að nýju.
Ástríður.
Nú er leiðir skilja um sinn langar
mig til þess að rifja upp minninga-
brot sem sest hafa í huga mér. Ég
man eftir mér fyrst sem ungum
dreng þér við hlið. Ekki man ég
hvert ferð var heitið, en við vorum
tveir á bátnum þínum honum Ljúf.
Ég hafði fengið að stýra en þú sast
mér við hlið, á leið okkar þurfti að
sigla í gegn um straumröst, en þá
báturinn tók að hreyfast í röstinni
þá brást mér kjarkur, man ég eftir
að hafa sigið niður af þóftunni, man
að ég sá ekki annað en himininn, en
stýrissveifinni sleppti ég ekki, ég
man enn er hönd þín tók í mína litlu
hendi og þú sagðir „þetta er allt í
lagi vinur minn“.
Ég minnist þess, er ég fékk að
fara með ykkur í útilegu þegar heyj-
að var í úteyjum, þó ekki væri aldr-
inum fyrir að fara; vera má að ég
hafi suðað mikið í ykkur afa og þið
svo látið undan suðinu, því man ég
ekki eftir.
Ég man einnig eftir því er ég fékk
að fara með ykkur afa í fjárhúsin
þegar við áttum heima í Hvallátrum,
man eftir því er ein kindin stangaði
mig og þú barst mig inn í bæ.
Það síðasta sem ég man úr eyj-
unum frá þessum tíma er þegar við
vorum að flytja og við fórum með
Olívettu til Stykkishólms.
Ég man að ég lá oft og gat ekki
sofið er vonskuveður geisuðu úti,
hlustaði eftir hljóði, hvort þú og Pét-
ur afi væruð ekki að koma, ef þið
voruð á sjó. Ég man oft eftir því að
hafa stoppað á kambinum og horft
út að Skaga til þess að sjá bátana
koma inn með berginu, ég skildi
ekki lífsbaráttuna á þessum árum
og hvað þú þurftir að legga á þig til
þess að við hefðum það sem best.
Síðar, er ég fór sjálfur til sjós, skildi
ég þessa baráttu.
Ég minnist þess er við vorum á
Ágústi Guðmundssyni, vorum á síld-
veiðum fyrir norðan, hvað það var
gott að hafa þig nærri sér.
Leiðir skildu, ég flutti vestur á
Patreksfjörð og stofnaði mitt heim-
ili, en alltaf ræddum við saman af og
til, ég man eftir því að þú hafðir allt-
af samband við mig, vildir vita
hvernig gengi. Eftir að við fluttum
suður þá hittumst við oftar, ég leit
oft við hjá þér á Grandanum.
Ég vil þakka þér fyrir hve vel þú
og mamma studduð við bakið á mér
er Veiga lést í bílslysi, þá varst þú
strax kominn, ræddir við mig og
saman litum við fram á veginn, ég
man alltaf það sem þú sagðir við
mig, „Péti minn, þú átt börnin og
minningarnar, þær verða ekki tekn-
ar frá þér“. Ég hef oft hugsað um
þessi orð þín, veit að þessi fáu orð
sögðu meira en mörg önnur.
Ég vil minnast þess er við fórum
saman að háfa lunda í Oddleifsey í
leyfi Hafsteins frænda okkar, man
hve léttur þú varst á þér er þú
komst út í óspillta náttúruna. Þá
skildi ég hve mikils virði það er að
vera út í eyjum, hafa fegurð
fjallanna á Barðaströndinni, fegurð
eyjanna, kyrrðina, liggja og hlusta á
fuglasönginn, fara að sofa í tjaldinu
þar sem algjör friður ríkti, en að
morgni, vakna upp er fuglarnir
flugu hjá.
Hin síðari ár tók ég eftir því að þú
áttir ekki eins létt með að fara um
þýfðar eyjarnar og fyrr, en hugur
þinn bar þig hálfa leið og alltaf vild-
ur þú koma með. Ég vil fara hér
með vísu sem Matthías Jochumsson
orti á gamals aldri er hann kom til
Flateyjar.
Fögur eins og forðum,
fyrst, er veldisorðum
Guð þér blóman gaf.
Skikkjan græn í skorðum,
skín þér undir borðum
Græðis gullið haf.
Vísan lýsir hug þeirra sem unnað
hafa fegurð eyjanna þinna, eins og
þú sagðir í haust er við fórum vestur
í Reykhólasveit tveir saman, „sérðu
hvað eyjarnar eru fallegar“. Feg-
urðin, friðurinn og mannlífið í eyj-
unum áttu hug þinn, ég hef á vissan
hátt hrifist af eyjunum og vona að
ég hafi tækifæri til þess að halda
áfram að heimsækja eyjarnar og
það ágæta fólk sem þar býr og okk-
ur var og er svo kært.
Ég vil, pabbi minn, þakka þér fyr-
ir hve fast þú stóðst við bakið á mér
þegar ég og Badda hófum sambúð,
hve góður þú varst okkur, það veitti
mér styrk til þess að takast á við hið
ókomna, ég ætla að halda áfram
þessa leið, enda með góða konu mér
við hlið.
Ég minnist orða þinna er þú sagð-
ir við mig er ég fór að heiman 15 ára
gamall, „Péti minn, vertu ætíð heið-
arlegur gagnvart þér og öðrum“.
Nú er komið að kveðjustund,
söknuður er mér í hjarta, ég veit að
við eigum eftir að hittast er minn
tími kemur, ég veit að þér líður vel
og ert laus við þrautir sem hrjáðu
þig síðasta mánuðinn. Ég mun, með-
an ég hef þrek til annast hana
mömmu mína, styðja við bakið á
henni eins og ég get, því skal ég lofa
þér pabbi minn.
Ég kveð þig með vísu eftir frænku
okkar Ólínu Andrésdóttur sem er í
bók hennar sem þér var mjög kær.
Þungt er að vera vinum fjær,
vona og bíða lengi.
En söngvar vakna, ef sorgin slær
sálar hörpustrengi.
Guð geymi þig pabbi minn, þinn
sonur
Pétur.
Elsku hjartans tengdapabbi
minn, mikið er erfitt að hugsa til
þess að þú skulir vera farinn frá
okkur. Ég á eftir að sakna þín mikið.
Strax, þegar ég kom í fjölskyldu
þína fyrir tæpum 11 árum er við
Pétur hófum sambúð, tókstu mér
opnum örmum og samdi okkur alltaf
mjög vel.
Þú varst svo léttur og kátur, mik-
ill húmoristi og alltaf stutt í glensið
og var gaman að koma í heimsókn til
ykkar Rebekku. Þú tifaðir af stað
léttur á fæti, á „hvissandi“ inniskón-
um til að setja á kaffikönnuna, því
ekki var við annað komandi en að
við fengjum kaffisopa. Ég átti strax,
er þið komuð á Boðahleinina, fast
sæti við hlið þér við eldhúsborðið,
síðan var setið og spjallað og voru
þær ófáar sögurnar er þú sagðir
okkur frá eyjunum þínum, af eyjalíf-
inu og lífsbaráttunni þar og það var
yndislegt að sjá hvernig þú lifðir þig
inn í gömlu dagana, þú sagðir svo
vel frá að maður var ósjálfrátt kom-
inn með þér á gömlu slóðirnar sem
þú unnir svo mikið. Við sem yngri
erum gerum okkur örugglega ekki
grein fyrir því hvernig þetta líf var,
en ég minnist þess ekki að þú hafir
borið þig illa yfir því eða talað um að
þetta hefði verið erfitt yfirleitt, þó
að svo hafi eflaust verið. Þú hafðir
mjög gott minni og sagðir skemmti-
lega frá, voru frásagnir þínar oftar
en ekki ljóslifandi fyrir okkur.
Þið nutuð þess er við komum með
sumarblómin og hjálpuðum ykkur
að setja í beðin úti , svo eftir að
blómálfurinn kom í garðshornið
bauð hann alltaf góðan daginn fyrir
okkur er þið lituð út á morgnana.
Ég á eftir að sakna þessara stunda.
Þú hringdir í okkur má segja dag-
lega, ef það féll úr dagur fannst þér
það langur tími, þeirra símtala á ég
eftir að sakna, því alltaf var jafn
gott að heyra í þér.
Það var gaman þegar við suðum
svið, eða eitthvað af þessum allra
besta íslenska mat, hvað þið nutuð
þess feðgarnir að borða og voruð
svo líkir í töktum að maður hafði
gaman af.
Eftir að þú varst orðinn veikur,
gekk þorrinn í garð og færðum við
þér þennan hefðbundna þorramat,
þér fannst svo gott að smakka hann.
Að ég tali nú ekki um er þú fékkst
súru selshreifana frá Hafsteini í
Flatey.
Þú hafðir gaman af því að ferðast.
Mér er sérstaklega minnisstæð
ferðin okkar til Færeyja, hvað þið
Rebekka nutuð þeirrar ferðar með
okkur. Þetta var allt svo skemmti-
legt, keyrslan austur, siglingin út,
dvölin í Færeyjum hjá þessum frá-
bæru vinum sem þið áttuð þar og við
njótum góðs af, siglingin heim og
svo allar minningarnar sem við eig-
um varðandi ferðina.
Þá fórum við aðra frábæra ferð,
vestur á Bíldudal þegar Rebekka
varð áttræð. Þú naust svo ferðarinn-
ar vestur, að horfa út yfir eyjarnar
þar sem þú þekktir hvert sker og
eyju, sem þú unnir svo mikið.
Mér eru líka minnisstæðar ferð-
irnar sem við fórum saman með
Pétri og fleirum í lundaveiði, aðra út
í Oddleifsey þar sem við á léttu nót-
unum vorum að metast um veiðina,
þar hafðir þú að sjálfsögðu vinning-
inn, enda gamall „veiðimaður“ en ég
bara byrjandi. Þetta var yndislegt.
Efst er mér í huga er þú varst að
rifja upp, þá orðinn veikur, 8. janúar
sl. á afmælisdegi Péturs, ferðina
fyrir rúmum 60 árum, úr Svefneyj-
um uppá land að sækja ljósmóður-
ina til að taka á móti frumburðinum.
Þetta var allt svo ljóslifandi fyrir
þér, meira að segja orðaskipti, þó að
ég geti ekki haft þau eftir. Ég er
ansi hrædd um að einhverjum
mundi í dag, vaxa í augum slíkt
ferðalag, á slíkum farkosti, í myrkri
báðar leiðir, en þetta þurftu menn
að gera þá og ekki um annað velja.
Ég á eftir að sakna þín sárt og
mikið en ég veit að þér líður vel á
nýjum stað. Ég veit að þú fylgist
með okkur, þá sérstaklega Rebekku
þinni sem á eftir að sakna þín mikið.
Ég lofa að gera mitt besta til að
hjálpa henni, líta til með henni og
bið góðan Guð að styrkja hana og
börnin ykkar öll og barnabörn, þau
hafa misst svo óskaplega mikið.
Þakka þér, elsku tengdapabbi
minn, fyrir allt sem þú varst mér.
Þín tengdadóttir
Bjarney.
Mér er ljúft að minnast Sveins
föðurbróður míns með nokkrum lín-
um. Kynni mín af Sveini voru fyrst
og fremst á bernskuárum mínum
þegar ég naut þeirra forréttinda að
dvelja í páskafríum og um stakar
helgar á heimili hans í Mýrarhúsum
í Vogum. Þar bjó þriggja kynslóða
samfélag í litla húsinu sem kúrði út
við fjörukambinn í nánd við litla
tjörn – Pétur afi og amma Ástríður,
Sveinn og Rebekka með börnin sín
þrjú, Pétur, Ástu og Brand. Hóp-
urinn hafði flutt búferlum frá Hval-
látrum á Breiðafirði og komið sér
fyrir í þessum litla vinalega bæ,
Mýrarhúsum. Fyrir mig, strákinn
úr Reykjavíkinni, voru þessar heim-
sóknir mínar í Mýrarhús hreinustu
ævintýr og þar leið manni vel. Þeir
feðgar Svenni og afi voru reyndar
stöðugt að vinna í frystihúsinu enda
vetrarvertíð í algleymi og mikil
verðmæti sem varð að bjarga. Ég
fékk í einhver skipti þann starfa að
fara með kaffi og matarföng til
þeirra feðga sem þær amma og Re-
bekka höfðu útbúið. Frystihúsið var
í augum ungs drengs mikil undra-
veröld, full af fólki sem talaði hátt í
rennandi vatni og skrýtinni amoní-
akslykt. Þrátt fyrir augljósar annir,
hróp og köll, gaf Svenni sér tíma til
að leiða mig ungan frænda sinn
stoltur að sýna
SVEINN
PÉTURSSON
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir
Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir
Einarsson,
útfararstjóri.
Bryndís
Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
Baldur
Frederiksen,
útfararstjóri.
Guðmundur Þór
Gíslason,
útfararstjóri.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 551 3485 • Fax 551 3645
Áratuga reynsla í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 896 8284
Eyþór Eðvarðsson
útfararstjóri
Sími 892 5057
Vaktsími allan sólarhringinn