Morgunblaðið - 19.02.2004, Page 48
Í KVÖLD, fimmtudagskvöldið
19. febrúar, klukkan 20.40 verð-
ur sérstök tónlistardagskrá í Frí-
kirkjunni í Reykjavík.
Þar munu þau Guðrún Gunn-
arsdóttir, Margrét Eir, Ragnar
Bjarnason og Anna Sigga syngja
ásamt Fríkirkjukórnum við und-
irleik stórsveitar Carls Möllers.
Á efnisskránni eru meðal ann-
ars lögin hennar Ellý Vilhjálms,
gospellög ásamt öðrum inn-
lendum og erlendum dæg-
urperlum. Tónlistardagskrá
þessi er unnin í samvinnu við
Vetrarhátíð í Reykjavík. Dag-
skráin hefst klukkan 20.40 og er
öllum opin og er aðgangur
ókeypis.
Sjáumst hress í kvöld.
Safnaðarstarf Fríkirkjunnar í
Reykjavík.
Vetrarperlur
við tjörnina
Morgunblaðið/Júlíus
Fríkirkjan í Reykjavík.
KIRKJUSTARF
48 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Í dag er samvera eldri borgara
kl. 15:00.
Allir hjartanlega velkomnir.
Landsst. 6004021919 VIII
I.O.O.F. 5 1842198 FL
Hugleiðsla/
sjálfsuppbygg-
ing
Áruteiknun
Miðlun
Fræðsla
Halla Sigurgeirsdóttir,
andlegur læknir.
Upplýsingar í síma 553 8260
fyrir hádegi.
Fimmtudagur 19. febrúar
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 20:00.
Predikun Kristinn P. Birgisson.
Mikill söngur og vitnisburðir.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Föstudagur 20. febrúar
Opinn AA-fundur kl. 20:00.
Mánudagur 23. febrúar
Biblíulestur í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 19.30.
Þriðjudagur 24. febrúar
UNGSAM í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 19:00.
Uppbyggilegt starf fyrir
ungt fólk í bata.
www.samhjalp.is
I.O.O.F. 11 1842198½ KK.
Í kvöld kl. 20.00. Lofgjörðar-
samkoma í umsjón Áslaugar
Haugland. Allir velkomnir.
Áskirkja. Hreyfi- og bænastund kl.
12.15 í neðri safnaðarsal. Opið hús kl.
14–17 í neðri safnaðarsal fyrir unga
sem aldna. Organisti Áskirkju leiðir
söng. Allir velkomnir.
Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10–
12.
Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 14–16 í safnaðarheimilinu,
Lækjargötu 14.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.
Orgelleikur, íhugun. Léttur málsverður í
safnaðarheimilinu eftir stundina.
Háteigskirkja. Taize-messa kl. 20.
Mömmumorgnar kl. 10. Vinafundir kl.
13–15.
Landspítali – Háskólasjúkrahús. Arn-
arholt. Guðsþjónusta kl. 20. Sr. Kjartan
Örn Sigurbjörnsson.
Laugarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12 á
hádegi. Gunnar Gunnarsson leikur á
orgelið frá kl. 12. Þjónustu annast
Bjarni Karlsson og Sigurbjörn Þorkels-
son meðhjálpari. Kl. 12.30 er léttur
málsverður í boði í safnaðarheimilinu.
Samvera eldri borgara kl. 14. Heimsókn
pilta úr fermingarstarfi safnaðarins og
greina þeir hinum fullorðnu frá áhyggj-
um sínum og áhugamálum. Líflegt og
fróðlegt samtal þar sem þau sem eldri
eru segja hinum yngri frá áhugamálum
og áhyggjum aldraðra. Stjórn dagskrár í
höndum sóknarprests, en allur undir-
búningur og umsjón veitinga er í hönd-
um þjónustuhóps kirkjunnar og kirkju-
varðar. Unglinga-Alfa kl. 19. Matur,
fræðsla og samfélag fyrir unglinga í 9.
og 10. bekk Laugalækjarskóla og öll
gömul fermingarbörn úr þeim árgöngum,
hvar sem þau annars búa. Spennandi
tækifæri, frjáls mæting og eintóm
ánægja. (Námskeiðinu lýkur með tilboði
um helgarferð í Vatnaskóg.)
Neskirkja. Krakkaklúbburinn kl. 14.30.
Starf fyrir 8 og 9 ára börn. Sögur, leikir,
föndur o.fl. Stúlknakór Neskirkju kl. 16.
Kór fyrir 8 og 9 ára stúlkur. Stjórnandi
Steingrímur Þórhallsson organisti. Uppl.
og skráning í síma 896 8192. NEDÓ
unglingaklúbburinn. 8. bekkur kl. 17. 9.
bekkur og eldri kl. 19.30. Umsjón
Munda og Hans.
Félagsstarf aldraðra laugardaginn 21.
febrúar kl. 14. Myndasýning frá Fær-
eyjum. Fram verður borin létt máltíð.
Þeir sem ætla að neyta matarins þurfa
að tilkynna þátttöku í síma 511 1560
milli kl. 10–12 fram á föstudag. Allir
velkomnir. Sr. Frank M. Halldórsson.
Seltjarnarneskirkja. Helgistund í íbúð-
um aldraðra á Skólabraut kl. 13.30.
Óháði söfnuðurinn. Tólf sporin, andlegt
ferðalag í kvöld kl. 19.
Árbæjarkirkja. Kl. 15.15 STN-starf með
sjö til níu ára börnum í Selásskóla.
Breiðholtskirkja. Tilvist, trú og tilgangur
II: Biblíulestrar í samvinnu leikmanna-
skólans og Reykjavíkurprófastsdæmis
eystra kl. 20–22. Kennari dr. Sigurbjörn
Árni Eyjólfsson héraðsprestur.
Digraneskirkja. Foreldramorgnar kl. 10.
Leikfimi ÍAK kl. 11.15. Bænastund kl.
12.10. Unglingakór Digraneskirkju kl.
16.30–19. Barnastarf 6–9 ára kl.
17.15–18 á neðri hæð kirkjunnar. (Sjá
nánar: www.digraneskirkja.is.)
Fella- og Hólakirkja. Fjölskyldustund
(mömmumorgnar) kl. 10–12. Biblíulest-
ur og helgistund í Gerðubergi kl. 10.30–
12 í umsjá Lilju djákna. Stúlknastarf 8–
10 ára kl. 16.30–17.30. Alfa-námskeið
kl. 19. Sjá nánar: www.kirkjan.is/fella-
holakirkja.
Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl.
10. Dagskráin er fjölbreytt. Boðið er
upp á áhugaverða fyrirlestra og
skemmtilegar og fræðandi samveru-
stundir. Kirkjukrakkar fyrir börn á aldr-
inum 7–9 ára kl. 17.30–18.30 í Graf-
arvogskirkju og einnig í Húsaskóla á
sama tíma. Æskulýðsfélag fyrir unglinga
í 8. bekk í Grafarvogskirkju kl. 20.
Hjallakirkja. Opið hús kl. 12. Kirkju-
prakkarar, 7–9 ára starf kl. 16.30.
Kópavogskirkja. Starf með eldra fólki
kl. 14.30–16 í safnaðarheimilinu Borg-
um. Umsjón Sigríður Baldursdóttir.
Bæna- og kyrrðarstund kl. 17. Fyrir-
bænaefnum má koma til kirkjuvarðar
eða presta.
Lindakirkja í Kópavogi. Bænastund kl.
12 í safnaðarheimilinu, Uppsölum 3.
Seljakirkja. KFUM 9–12 ára kl. 17.30.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund í
kirkjunni kl. 22. Bænarefnum er hægt
að koma til prestsins fyrir stundina.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 8–9
ára börn í safnaðarheimilinu Strand-
bergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldrastund (sbr.
mömmumorgunn) í dag kl. 13. Kjörið
tækifæri fyrir heimavinnandi foreldra til
að koma saman og eiga skemmtilega
stund í notalegu umhverfi. Kaffi og létt-
ar veitingar, spjall, föndur, fyrirlestrar,
kynningar og fleira.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir
10–12 ára krakka kl. 16.30–18.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 10
mömmumorgunn í Safnaðarheimilinu.
Kaffi, djús og gott samfélag. Sr. Þor-
valdur Víðisson. Kl. 20 Tólf spora vinna
heldur áfram í KFUM&K-heimilinu. Um-
sjónarfólk. Kl. 20 kóræfing kirkjukórs
Landakirkju.
Keflavíkurkirkja. Fermingarundirbúning-
ur í Kirkjulundi: Kl. 15.10–15.50 8. A í
Holtaskóla, kl. 15.55–16.35 8. B í
Holtaskóla.
Þorlákskirkja. Bænastund kl. 9.30. For-
eldramorgnar kl. 10.
Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir
velkomnir.
AD KFUM, Holtavegi 28. Fundur í kvöld
kl. 20. Úr pokahorninu, myndir og minn-
ingar. Efni í umsjón Birgis Albertssonar,
kennara. Hugvekja, sr. Ingþór Indriða-
son Ísfeld, fyrrverandi sóknarprestur.
Allir karlmenn velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía. Í dag er
samvera eldri borgara kl. 15. Allir vel-
komnir.
Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund kl. 12. Léttur hádegisverður á
vægu verði í safnaðarheimili eftir stund-
ina. Samhygð kl. 20.30.
Glerárkirkja. Mömmumorgnar kl. 10–
12. Æfing barnakórs Glerárkirkju kl. 17.
Í dag verður samvera eldri borgara í
safnaðarsal kl. 15. Ólafur Ásgeirsson
aðstoðaryfirlögregluþjónn er gestur
samverunnar. Örn Viðar Birgisson tenór
syngur nokkur lög við undirleik Helenu
G. Bjarnadóttur, kaffiveitingar og helgi-
stund. Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 20
unglingafundur fyrir 8. bekk og upp úr.
Safnaðarstarf
Bridsfélag SÁÁ
Mætingin hjá Bridsfélagi SÁÁ
var ágæt sl. fimmtudag, 10 pör
skráðu sig til leiks. Spilaður var
Howell, 9 umferðir, 3 spil í umferð.
Þessi pör urðu hlutskörpust:
Einar L. Pétursson – Örlygur Örlygss. 133
Björn Friðrikss. – Jóhannes Guðm. 132
Guðbjörg E. Bald. – Baldur Óskarss. 122
Hákon Stefánsson – Reynir Grétarsson
118
Spilað verður nk. fimmtudag, 19.
febrúar og eru spilarar hvattir til
að fjölmenna. Spilamennskan hefst
stundvíslega kl. 19.30. Spilastaður
er Sóltún 20, Lionssalurinn. Kaffi
verður frítt. Umsjónarmaður er
Matthías Þorvaldsson og má skrá
sig á staðnum eða í síma 860 1003.
Hjálpað er til við myndun para ef
óskað er. Nýliðum er tekið fagn-
andi og fá yngri spilarar helmings-
afslátt af spilagjaldinu. Loks er
vakin sérstök athygli á heimasíðu
félagsins, slóðin er: www.bridge.is/
fel/saa.
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Mánudaginn 16. febrúar var spil-
aður eins kvölds tvímenningur.
Úrslit urðu þannig:
Sigurður Sigurj. – Guðni S. Ingvarss. 212
Harpa F. Ingólfsd. – María Haraldsd. 203
Einar Sigurðsson – Halldór Einarsson 190
Kristinn Kristinss. – Halldór Svanb. 184
Hafþór Kristjánss. – Hulda Hjálmarsd.
183
Ómar Óskarson – Helgi G. Jónsson 172
Vegna Bridshátíðar verður ekki
spilað hjá félaginu 23. febrúar, en
hafist handa við þriggja kvölda
hraðsveitakeppni 1. mars.
Dagskráin til vors verður þannig:
01.03. Hraðsveitakeppni
08.03. Hraðsveitakeppni
15.03. Hraðsveitakeppni
22.03. Tvímenningur – Mitchell
29.03. Tvímenningur – Mitchell
05.04. Tvímenningur – Mitchell
19.04. Félagakeppni milli BH og
Barðstrendinga/Kvenna
26.04. Einmenningur
03.05. Tvímenningur og aðalfund-
ur
Bridsfélag Akureyrar
Fyrsta kvöldið af þremur í
heilsuhornstvímenningi Bridsfélags
Akureyrar var spilað þriðjudags-
kvöldið 17. febrúar. 16 pör taka
þátt.
Staðan er:
Pétur Ö. Guðjónss. – Stefán Ragnarss. 52
Hjalti Bergmann – Gissur Jónasson 51
Jón Sverrisson – Una Sveinsdóttir 49
Stefán Sveinbjörnss. – Reynir Helgas. 35
Stefán G. Stefánsson – Sveinn Pálsson 34
Hermann H. Huijb. – Ólafur Ágústss. 12
Sunnudagskvöldið 15. febrúar
var spilaður Howell-tvímenningur.
Úrslit voru:
Soffía Guðm. – Ragnheiður Haraldsd. 18
Jón Sverrisson – Una Sveinsdóttir 17
Stefán G. Stefánss. – Hans V. Reisenhus 8
Gissur Jónasson – Hjalti Bergmann 5
Spilað er á þriðjudags- og sunnu-
dagskvöldum klukkan 19.30 í Fé-
lagsheimilinu Hamri. Á þriðjudags-
kvöldum eru forgefin spil og
keppnisstjóri er á staðnum. Allir
velkomnir.
Bridskvöld nýliða
Sunnudaginn 15. feb. spiluðu 6
pör tvímenning. Lokastaðan:
Rafn Jónsson – Ísak Sigurðsson 19
Stefán Óskarsson – Jórunn Kristinsd. 3
Guðmundur Gestsson – Þórir Jóhannss. -3
Erla Ólafsd. – Kristín Sigfúsd. -4
Spilamennska fellur niður sunnu-
daginn 22. feb. vegna Bridshátíðar.
Næsta spilakvöld er því 29. feb.
Spilað er öll sunnudagskvöld í Síðu-
múla 37, 3. hæð og hefst spila-
mennska kl. 19.30.
Allir sem kunna undirstöðuatrið-
in í brids eru velkomnir. Umsjón-
armaður er Sigurbjörn Haraldsson
og aðstoðar hann við að finna spila-
félaga fyrir þá sem mæta stakir.
Bridsdeild Barðstrendinga og
Bridsfélag kvenna
Mánudaginn 16. febrúar lauk að-
alsveitakeppni félagsins á drama-
tískan hátt. Sveit séra Hermanns
var með þriggja stiga forystu á
sveit Guðrúnar í upphafi kvöldsins
en náði aðeins jafntefli í sjöundu
umferð á meðan Guðrún halaði inn
20 stig.
Í síðustu umferð setti sveit séra
Hermanns pressu á sveit Guðrúnar
með því að vinna sinn leik 23-7.
Sveit Guðrúnar náði hins vegar að-
eins jafntefli og sigurinn því sveitar
Hermanns. Sveitir Vina og Dropa-
steins höfnuðu jafnar í þriðja sæt-
inu og samkvæmt reglugerð móts-
ins réð stigafjöldi á móti þremur
efstu sveitunum röðinni. Báðar
sveitir höfðu þar náð samtals 43
stigum og varð því að grípa til inn-
byrðis viðureignar sveitanna. Sá
leikur fór 15-15 eða 37-37 í impum.
Varð því að grípa til þriðju reglu,
að draga spil úr spilastokk. Þar
hafði sveit Vina betur og úr-
skurðast því í þriðja sæti. Loka-
staða efstu sveita varð þannig:
Séra Hermann 151
Guðrún 146
Vinir 138
Dropasteinn 138
Sveit Bryndísar 132
Anna Guðlaug Nielsen 115
Eðvarð 115
Esja 114
Spilarar í sveit séra Hermanns
voru Hermann Friðriksson, Ingólf-
ur Hlynsson, Snorri Sturluson,
Guðjón Sigurjónsson og Helgi
Bogason. Næsta mánudag, 23.
febrúar, fellur spilamennska niður
hjá félaginu að venju vegna
Bridshátíðar, en mánudaginn 1.
mars hefst barómeterkeppni fé-
lagsins sem stendur yfir í 3 kvöld.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
STYRKTARFÉLAGI
krabbameinssjúkra barna
hefur verið afhentur
250.000 króna styrkur
sem er hluti af hagnaði
jólatrjáasölu Landakots.
Þórir Kr. Þórisson og
Baldur Freyr Gústafsson
afhentu Rósu Guðbjarts-
dóttur, framkvæmda-
stjóra SKB, styrkinn á
skrifstofu félagsins fyrir
skemmstu.
Styrkur til
krabba-
meinssjúkra
barna