Morgunblaðið - 19.02.2004, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2004 55
DAGBÓK
ÁRNAÐ HEILLA STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert mjög viðkvæm/ur en
á sama tíma óbugandi. Þú
lætur þér annt um þá sem
minna mega sín. Á þessu ári
muntu læra mikilvæga hluti
af einverunni.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Reyndu að efla tengslin við
vini þína og nágranna í dag.
Þú finnur til hlýju í garð fólks-
ins í kringum þig og munt
njóta þess að vera í sam-
skiptum við það.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þetta er góður dagur til að
staldra við og taka eftir feg-
urðinni sem er allt í kringum
þig. Þú ættir ef til vill að fara í
hugleiðslu eða jóga.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú ert tilbúin/n til að hjálpa
vini þínum í dag. Hikaðu ekki
við að bjóða fram aðstoð þína.
Þú munt njóta þess.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú verður hugsanlega beðin/n
um að hanna eitthvað eða taka
að þér að fegra vinnuumhverfi
þitt. Þú munt njóta þess að
vinna þetta verk.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert opin/n fyrir fegurðinni í
kringum þig. Veittu sjálfri/
sjálfum þér tækifæri til að
njóta lista og fegurðar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Einhver er tilbúin/n til að
veita þér fjárhagslega aðstoð í
dag. Hikaðu ekki við að þiggja
þá hjálp sem þér er boðin. Það
fylgja henni engar kvaðir.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ert óvenju næm/ur fyrir
þörfum þinna nánustu í dag.
Þú hefur einnig næman skiln-
ing á þörfum þjóðfélagsins.
Þetta er því góður dagur til að
sinna félagslegum skyldum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Samstarfsfólk þitt er sérlega
hjálplegt í dag. Þú ert einnig
tilbúin/n til að hjálpa öðrum.
Þetta ætti að gera alla sam-
vinnu ánægjulega og árang-
ursríka.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Margir bogmenn munu verða
ástfangnir í dag. Þetta er einn
af þessum dögum þegar
draumar geta ræst. Leyfðu
þér að njóta listsköpunar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú finnur til sterkrar sam-
kenndar með einhverjum í
fjölskyldunni í dag. Þú ert
tilbúin/n til að láta þarfir ann-
arra ganga fyrir þínum eigin
þörfum. Þér finnst umhyggja
fyrir öðrum auðga líf þitt.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ert í þægilegu draum-
kenndu ástandi og því munu
dagdraumar setja svip sinn á
daginn hjá þér. Við eigum öll
svona daga inni á milli hvers-
daganna.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þig langar til að eyða pen-
ingum í fallega hluti í dag.
Listaverk, falleg föt, skart-
gripir og góður matur höfða
sterkt til þín.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
50 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 19.
febrúar, er fimmtugur
Hörður Jóhannesson, yf-
irlögregluþjónn í Reykja-
vík. Hann heldur upp á dag-
inn og ætlar að taka á móti
gestum í Glersalnum að
Salavegi 1 í Kópavogi í
kvöld kl. 20–23.
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 20. desember sl. í dómkirkj-
unni í Valencia í Venesúela þau María Carolína Castillo og
Davíð G. Waage. Heimili þeirra er á Spáni.
Eftir fjögur fyrstu spilin í
leik Íslands og Búlgaríu í
Yokohama leiddi íslenska
sveitin með 25 IMPum gegn
engum. Fyrstu stig Búlgara
komu í fimmta spili:
Norður gefur; NS á hættu.
Norður
♠82
♥D432
♦Á8
♣ÁKDG10
Vestur Austur
♠63 ♠Á4
♥96 ♥Á85
♦D109764 ♦KG532
♣852 ♣973
Suður
♠KDG10975
♥KG107
♦–
♣64
Vestur Norður Austur Suður
Karaiv. Þröstur Trendaf. Bjarni
– 1 lauf 1 tígull 1 spaði
4 tíglar Dobl * Pass 5 spaðar
Pass 6 spaðar Dobl Allir pass
Þröstur og Bjarni spila
Standard og doblið á fjórum
tíglum sýnir góða opnun. Það
freistar Bjarna til að reyna
við slemmu með stökki í
fimm spaða, sem Þröstur
hækkar í sex. Í sjálfu sér er
lítið út á sagnir að setja – allt
er innan skynsemismarka,
nema þá helst niðurstaðan.
AV uppskáru einfaldlega vel
fyrir athafnasemi sína. Dobl
Trendafilovs í lokin var
hreint græðgisdobl, sem
Karaivanov túlkaði sem Lig-
htner-dobl og kom út með
lauf. Einn niður og 200 til
Búlgara.
Á hinu borðinu skiptu Ant-
on og Sigurbjörn sér ekkert
af sögnum og Búlgarar náðu
að stansa í fimm spöðum:
Vestur Norður Austur Suður
Anton Stamatov Sigurbj. Tsonchev
– 1 lauf * Pass 1 spaði
Pass 2 lauf Pass 3 spaðar
Pass 4 lauf Pass 5 tíglar *
Pass 5 hjörtu * Pass 5 spaðar
Pass Pass Pass
Eftir sterka laufopnun
festir Tsonchev spaðann
fljótlega sem tromplit og
stekkur svo í fimm tígla til að
spyrja um lykilspil fyrir utan
tígulinn. Svarið á fimm hjört-
um sýnir eitt lykilspil eftir
þeirra aðferðum.
Anton fann besta útspilið –
hjartaníu. Sigurbjörn tók
með ásnum og spilaði aftur
hjarta. Sagnhafi getur nú
fengið ellefu slagi með því að
henda tveimur hjörtum
heima niður í tígulás og lauf,
en þá þarf laufliturinn að
brotna 3–3. Tsonchev leist
illa á þann möguleika og
valdi að fara í trompið. En
Bessi tók strax á ásinn og gaf
bróður sínum stungu í
hjarta. Einn niður og aðeins
3 IMPar til Búlgara.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
1. c4 c6 2. Rf3 d5 3. e3 Rf6
4. Rc3 e6 5. d4 Rbd7 6. Dc2
Bd6 7. b3 e5 8. Bb2 e4 9.
Rd2 a6 10. Be2 De7 11. 0–
0–0 b5 12. f3 exf3 13. Bxf3
bxc4 14. bxc4 Ba3 15. c5
Bxb2+ 16. Kxb2 0–0 17.
Hhe1 Dd8 18. e4 dxe4
19. Rdxe4 Rd5 20. Rxd5
cxd5 21. Rd6 Rf6 22. h3
Be6 23. Dc3 Dc7 24. Ka1
Hfb8 25. Hb1 Dc6 26.
Hb3 Da4 27. Bd1 Hxb3
28. Bxb3 Da3 29. He3
Hd8 30. De1 Hb8
Staðan kom upp í
þýska meistaramótinu
sem lauk fyrir skömmu.
Klaus Bischoff (2.561)
hafði hvítt gegn Karsten
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Mueller (2.517). 31. Hxe6!
fxe6 svartur afræður að
láta kæfingarmáta sig en
hann hefði einnig getað lát-
ið máta sig upp í borði eftir
31. … Hxb3 32. He8+ Rxe8
33. Dxe8#. 32. Dxe6+ Kh8
33. Rf7+ Kg8 34. Rh6+
Kh8 35. Dg8+ Rxg8 36.
Rf7#.
MÓNA LÍSA
Var ekki dapurt á verkstæði hans,
þessa vitskerta manns,
sem hugðist að fljúga eins og fugl,
með allt sitt tilraunaamstur
og uppfinningarugl?
Varst’ ekki fegin að flytjast
í fallegan sal,
og draga að þér allra augu,
dáð eins og tignasta drottning?
Leiddust þér ekki heimsóknir hans
í höllina, krjúpandi af lotning?
Og Móna Lísa mælir
í mildu, dulræðu brosi:
Ég var aldrei til nema í vitund hans,
þessa vitskerta manns.
Kristján frá Djúpalæk
LJÓÐABROT
MEÐ MORGUNKAFFINU
Jú, ég veit að þú fékkst launahækkun ... en það eru
sex mánuðir síðan!
Laugavegi 20b, sími 552 2515
Síðustu dagar útsölu
Afslátturinn í botni
Bankastræti 11,
sími 5513930
Allsherjar útsala
Allt á hálfvirði
Kvöldfatnaður
Brúðarkjólar st. 4-16
Brúðarskór st. 35-42
Spariskór st. 35-42
Skartgripir
Sjöl, belti, töskur
Opið laugardag kl. 11-17
Ferming í Flash
Laugavegi 54, sími 552 5201
Kjólar
Pils
Toppar
Blússur
Buxur
Jakkar
Ótrúlegt úrval
Upplýsingar og skráning hjá Birgi 822 7896
og Erlu 566 7803 eða cranio@strik.is
Höfuðbeina- og
spjaldhryggjarmeðferð
Næstu kynningarnámskeið á Upledger CranioSacral
therapy verða í Reykjavík 20. og 21. febrúar og einnig
5. og 6. mars.
Kennarar eru Erla Ólafsdóttir sjúkraþjálfari og
Birgir Hilmarsson nuddfræðingur.