Morgunblaðið - 19.02.2004, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 19.02.2004, Qupperneq 56
ÍÞRÓTTIR 56 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ ALÞJÓÐA knattspyrnu- sambandið, FIFA, hefur tilnefnt Kristin Jak- obsson sem einn af dóm- urum á sterku móti 20 ára landsliða sem haldið er í Toulon í Suður- Frakklandi í byrjun júní. Mótið er árlegt og er haldið af franska knatt- spyrnusambandinu, í samvinnu við FIFA. Þátt- tökuþjóðir eru Frakk- land, Brasilía, Kína, Kól- umbía, Japan, Portúgal, Svíþjóð og Tyrkland. Þá hefur Kristni verið boðið til Englands þann 17. mars þar sem hann situr ráðstefnu ensku úr- valsdeildardómaranna. Í framhaldi af því fylgir hann dóm- arafernunni sem fer á Old Trafford til að dæma leik Man. Utd. og Tottenham í úrvals- deildinni þann 20. mars. Dómari leiksins er Dermot Gallagher. „Þetta er frábært tækifæri til að fylgjast með störfum dóm- aranna á stórleik í ensku knattspyrnunni en ég fer með þeim í gegnum allan ferilinn í kringum leikinn. Það var Keith Hackett, fyrr- verandi um milliríkjadómari, sem bauð mér á ráðstefnuna,“ sagði kristinn við Morgunblaðið. FIFA sendir Kristin Jakobsson til Frakklands Kristinn FÓLK  ÓLAFUR Ingi Skúlason lék með varaliði Arsenal sem lagði varalið Coventry að velli úti, 2:0. Spánverjinn Fabian Fabregas og Michal Papado- pulous settu mörkin.  JÓHANNES Karl Guðjónsson lék með varaliði Úlfanna á útivelli gegn Middlesbrough í norðurdeild í keppni varaliða, 0:0. Jóhannes Karl var ná- lægt því að skora mark – átti þrumu- skot í stöng af 20 metra færi.  VÍKINGAR úr Ólafsvík, sem unnu sér sæti í 2. deildinni í knattspyrnu síðasta haust, hafa fengið til sín serb- neska leikmanninn Predrag Milo- savljevic. Hann hefur verið leikmaður og þjálfari í Bolungarvík síðustu árin.  GRÉTAR Sigurðarson skoraði bæði mörk Víkings sem gerði jafn- tefli, 2:2, við ÍA í æfingaleik í knatt- spyrnu í Egilshöllinni í fyrrakvöld. Garðar Gunnlaugsson og Finnbogi Llorens Izaguirre skoruðu mörk ÍA.  HÓPUR stuðningsmanna Valencia er að hugsa um að kæra Pedro Trist- ante Oliva, dómara leiks liðsins og Real Madrid í spænsku deildinni um helgina, en þar dæmdi hann víti á Val- encia. Vítið mun ekki hafa verið rétt- mætur dómur en Figo jafnaði metin úr spyrnunni.  BRASILÍSKI miðherjinn Ailton til- kynnti í gær að að hann ætlaði að kvænast sinni heittelskuðu, Rosalie, ef Werder Bremen yrði þýskur meistari í ár. Hann hyggst gifta sig á leikvelli liðsins – Weser Stadion – og öllum stuðningsmönnum Werder verður boðið. Werder er nú með níu stiga forskot og Ailton, 31 árs, er markahæstur í deildinni – með 19 mörk í 20 leikjum. Þar sem Werder leikur síðasta leik sinn á útivelli, von- ast Ailton til að liðið verði orðið eða verði þýskur meistari í næstsíðustu umferðinni, en þá leikur liðið heima gegn Leverkusen.  JIMMY Floyd Hasselbaink, sókn- arleikmaður Chelsea, fékk að vita það í gær að hann væri ekki inni í mynd- inni hjá Dick Advocaat, landsliðs- þjálfara Hollands, sem leikmaður á EM í Portúgal í sumar. Hann er ekki í 28 manna leikmannahópi Advocaat, sem valdi frekar sóknarleikmenn eins og Ruud van Nistelrooy, Roy Maka- ay, Patrick Kluivert, Pierre van Ho- oijdonk og Robin van Persie. Mons Ivar Mjelde, þjálfari fé-lagsins, hefur hrósað Ólafi Erni mikið fyrir frammistöðu sína með liðinu að undanförnu. En þjálf- arinn er ekki einn um að bera lof á varnarmanninn úr Grindavík. „Ég er mjög ánægður með „Olli“. Hann var reyndar dálítið ryðgaður í fyrstu leikjunum en hefur staðið sig frá- bærlega síðan. Hann er svo örugg- ur,“ segir Cato Guntveit, fyrirliði Brann, um Ólaf Örn. Ekki er ólíklegt að Ólafur Örn taki stöðu Roy Wassberg, sem var fyr- irliði í fyrra, en Wassberg er hvorki sár né svekktur. „Hann hefur virki- lega sýnt okkur hvers hann er megnugur,“ segir hann og félagi hans í vörninni, Ivar Rönningen, er á sama máli. „Olli hefur leikið mjög vel. Ég veit ekki hvort rétt er að segja að hann hafi komið okkur á óvart enda vissi ég að hann hefði leikið marga landsleiki fyrir Ísland. Hann hefur enga augljósa veikleika og þegar hann hreinsar frá marki þá gerir hann það með því að koma boltanum til samherja. Það er góður kostur hjá varnarmanni,“ segir hann. Þrátt fyrir að knattspyrna sé leik- ur liðs þá eru ellefu einstaklingar í hverju liði og einstaklingshyggjan oft látin ráða þegar baráttan er hörð um sæti í liðinu eins og hjá Brann. Allir tala þó vel um Ólaf Örn. „Það er frábært að spila með honum. Hann er óhræddur við að tala við samherja sína og samskiptin við hann eru frá- bær,“ segir Ragnvald Soma. Morgunblaðið/Jim Smart Ólafur Örn Bjarnason, fyrrverandi fyrirliði Grindvíkinga, í leik gegn Fylki, þar sem mótherjinn er Ólafur Páll Snorrason. Ólafur Örn heillar alla ÓLAFUR Örn Bjarnason, landsliðsmaður í knattspyrnu, fær mikið hrós frá þjálfara sínum í Brann í Noregi og samherjum. Bergensav- isen sagði í grein í gær að félagið hefði notað um fjórar milljónir norskra króna, um 40 milljónir íslenskra, í kaup á leikmönnum, en sá sem félagið fékk án endurgjalds, Ólafur Örn Bjarnason, hefði staðið sig best allra í æfingaleikjum undanfarið. BJÖRGVIN Sigurbergsson, kylfingur úr Keili, hefur leik í dag á Opna Carlsberg mótinu í Malasíu ásamt 155 öðrum kylf- ingum sem koma víðs vegar að. Björgvin er í fyrri ráshópnum, fer út af tíunda teig kl. 8.40 að staðartíma, eða þegar klukk- una vantar 20 mínútur í eitt eft- ir miðnætti og ætti því að ljúka leik um klukkan sex að morgni, er sem sagt væntanlega kom- inn í hús þegar þetta kemur fyrir augu lesenda. Björgvin leikur með Joon Chung frá Kóreu og Martin Maritz, 27 ára kylfingi frá Suð- ur-Afríku. Á morgun leggja þeir félagar í hann af fyrsta teig og eiga rástíma klukkan 13.10 eða 5.10 árdegis að ís- lenskum tíma. Eftir morgundaginn verður keppendum fækkað um helg- ming eða svo þannig að Björg- vin, sem hefur sett sér það markmið að komast áfram eftir tvo fyrstu dagana, verður að halda vel á spöðunum til að það takist enda mótið gríðarlega sterkt. Björgvin byrjaði snemma Brasilía, Frakkland, Spánn ogHolland eru sem fyrr í fjórum efstu sætunum en Mexíkó lyftir sér upp í fimmta sætið. Þar á eftir koma Argentína, England, Tékkland, Tyrk- land og Ítalía. Króatar eru orðnir efstir af mót- herjum Íslendinga í undankeppni HM 2006 en þeir eru í 19. sætinu og höfðu sætaskipti við Svía, aðra mót- herja Íslands, sem eru þar með í 20. sætinu. Búlgarar falla um þrjú sæti og eru númer 37, Ungverjar falla um tvö sæti og eru númer 74 en Möltubúar sitja um kyrrt í 128. sætinu. Danir efstir á blaði Danir eru efstir Norðurlandaþjóða í 14. sæti, Svíar eru í 20. eins og fyrr segir, Norðmenn eru í 39. sæti, Finn- ar í 42. sæti og Færeyingar í 126. sæti. Albanar, sem mæta Íslendingum í Tirana í lok mars, eru í 90. sæti og Lettar, sem komust óvænt á EM og taka á móti íslenska liðinu í lok apríl, eru í 55. sæti. Alls eru 204 þjóðir á list- anum. Ísland féll um þrjú sæti á FIFA-listanum ÍSLAND er í 59. sæti á nýjum heimslista Alþjóða knattspyrnu- sambandsins sem gefinn var út í gær. Íslenska landsliðið hefur fall- ið um þrjú sæti síðan í janúar þegar það var í 56. sæti en það hefur ekki leikið á þessum tíma og því er það árangur annarra þjóða sem lyftir þeim uppfyrir Ísland í þetta skipti. Það eru Katar, Alsír og Jórdanía sem þar eiga í hlut en Jórdanar lyftu sér um 12 sæti og Alsírbúar um 11 sæti.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.