Morgunblaðið - 19.02.2004, Qupperneq 58
ÍÞRÓTTIR
58 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Intersportdeildin:
Hveragerði: Hamar - Tindastóll ..........19.15
Njarðvík: UMFN - Haukar..................19.15
Seljaskóli: ÍR - KFÍ...............................19.15
HANDKNATTLEIKUR
Haukar - Stjarnan 36:24
Ásvellir, Hafnarfirði, úrvalsdeild karla,
RE/MAX-deildin, miðvikudaginn 18. febr-
úar 2004.
Gangur leiksins: 3:0, 4:2, 9:7, 13:7, 16:9,
17:11, 19:12, 19:16, 23:16, 27:19, 31:21,
34:22, 36:24.
Mörk Hauka: Ásgeir Örn Hallgrímsson 10,
Vignir Svavarsson 5, Jón Karl Björnsson
5/2, Þórir Ólafsson 4, Aliaksandr Shamkuts
3, Gísli Jón Þórsson 3/2, Þorkell Magnús-
son 2, Andri Stefan 2, Matthías Árni Ingi-
marsson 1, Halldór Ingólfsson 1/1.
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 14/1
(þar af 5 til mótherja), Þórður H. Þórð-
arson 5 (þar af 2 til mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Stjörnunnar: Sigtryggur Kolbeins-
son 6, David Kekelia 4, Arnar J. Agnarsson
4, Gunnar Ingi Jóhannsson 3, Jóhannes Jó-
hannesson 2, Björn Friðriksson 2/1, Arnar
Theodórsson 1, Freyr Guðmundsson 1,
Bjarni Gunnarsson 1.
Varin skot: Jecek Kowal 13 (þar af 7 til
mótherja), Guðmundur Karl Geirsson 3
(þar af 2 til mótherja).
Utan vallar: 16 mínútur.
Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Jónas Elí-
asson, áttu ekki góðan dag.
Grótta/KR - KA 30:28
Íþróttamiðstöðin Seltjarnarnesi:
Gangur leiksins: 1:0, 1:3, 3:3, 3:5, 7:8, 8:10,
10:10, 10:15, 11:17, 13:18, 13:15, 17:20,
20:20, 22:21, 22:23, 23:24, 26:24, 28:25,
28:27, 30:27, 30:28.
Mörk Gróttu/KR: Páll Þórólfsson 13/6,
Konráð Ólavson 7, Daði Hafþórsson 5,
Kristinn Björgúlfsson 2, Magnús Agnar
Magnússon 2, Sverrir Pálmason 1.
Varin skot: Hlynur Morthens 17 (þar af
fóru 6 aftur til mótherja), Gísli Guðmunds-
son 1.
Utan vallar: 12 mínútur. Þar af fékk Oleg
Titov rautt spjald fyrir þrjár brottvísanir.
Mörk KA: Andreas Stelmokas 10, Arnór
Atlason 9/5, Jónatan Magnússon 5, Bjartur
Máni Sigurðsson 2, Árni Björn Þórarinsson
1, Andri Snær Stefánsson 1/1.
Varin skot: Hafþór Einarsson 9 (þar af
fóru 4 aftur til mótherja), Hans Hreinsson
6/1 (þar af fóru 2 aftur til mótherja), Stefán
Guðnason 3 (þar af fór 1 aftur til mótherja).
Utan vallar: 20 mínútur. Þar af fékk Andr-
eas Stelmokas rautt spjald fyrir þrjár
brottvísanir.
Dómarar: Gísli H. Jóhannsson og Haf-
steinn Ingibergsson.
Áhorfendur: Um 230.
Staðan:
Valur 4 2 1 1 107:101 13
Haukar 4 3 1 0 126:100 12
ÍR 4 2 0 2 113:111 12
KA 4 2 0 2 122:114 11
Stjarnan 4 2 0 2 110:122 10
Fram 4 1 0 3 112:115 8
Grótta/KR 4 2 0 2 105:116 7
HK 4 1 0 3 102:118 7
Markahæstir:
Arnór Atlason, KA ................................39/19
Andrius Stelmokas, KA..........................33/4
Andrius Rackauskas, HK.......................32/5
Páll Þórólfsson, Gróttu/KR..................29/13
Einar Hólmgeirsson, ÍR............................28
Markús Máni M. Maute..........................27/7
Héðinn Gilsson, Fram................................27
Valdimar Þórsson, Fram 22/5
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Haukum .........22
Andri Stefan, Haukum...............................22
Jón Karl Björnsson, Haukum..............21/10
Elías Már Halldórsson, HK ......................21
David Kekelia, Stjörnunni.........................21
Kristinn Björgúlfsson, Gróttu/KR ...........20
Hannes Jón Jónsson, ÍR............................18
Einar Logi Friðjónsson, KA .....................18
Jón Björgvin Pétursson, Fram ................17
1. deild karla
Þór - Víkingur.......................................23:38
Mörk Þórs: Goran Gusic 10, Árni Þór Sig-
tryggsson 7, Arnór Gunnarsson 2, Þorvald-
ur Sigurðsson 2, Bergþór Morthens 1, Ce-
drik Akerberg 1.
Mörk Víkings: Ásbjörn Stefánsson 9, Dav-
íð Guðnason 8, Tomas Kavolius 6, Brjánn
Bjarnason 2, Þórir Júlíusson 2, Björn Guð-
mundsson 2, Karl Grönvold 2, Bjarki Sig-
urðsson 2, Þröstur Helgason 2, Davíð
Ólafsson 2, Benedikt Árni Jónsson 1.
Breiðablik -Afturelding.......................24:32
Mörk Breiðabliks: Gunnar B. Jónsson 7,
Björn Óli Guðmundsson 4, Kristinn Logi
Hallgrímsson 3, Orri Hilmarsson 2, Davíð
Ketilsson 2, Einar Einarsson 2, Sigurður
Valur Jakobsson 2, Ágúst Guðmundsson 1,
Stefán Guðmundsson 1.
Mörk Aftureldingar: Hrafn Ingvarsson 8,
Daníel Grétarsson 8, Einar Ingi Hrafnsson
5, Daníel Jónsson 3, Reynir Árnason 2,
Hilmar Stefánsson 2, Ernir Hrafn Arnar-
son 2, Níels Reynisson 1, Kristinn Péturs-
son 1.
ÍBV - Selfoss...................................... frestað
Staðan:
Selfoss 3 3 0 0 96:89 6
Víkingur 4 2 1 1 120:97 5
FH 3 2 0 1 100:88 4
Þór 2 1 0 1 56:63 2
Afturelding 4 1 0 2 101:114 2
ÍBV 1 0 1 0 22:22 1
Breiðablik 3 0 0 3 80:102 0
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmót kvenna
Efri deild:
KR - Breiðablik .........................................1:3
Staðan:
KR 3 2 0 1 11:7 9
Valur 2 1 0 1 10:8 3
Breiðablik 3 2 0 1 11:11 6
ÍBV 2 0 0 2 4:10 0
Vináttulandsleikir
Malta - Hvíta-Rússland ........................... 0:2
Maksim Romashchenko 48., 63.
Andorra - Færeyjar..................................0:0
Lettland - Kazakhstan ............................ 3:1
Jurijs Laizans 45., 66., Marian Pahars 40. -
Aksjonovs 34.
Rúmenía - Georgía .................................. 3:0
Adrian Mutu 29., 69., Florian Cernat 86.
Eistland - Moldavía.................................. 1:0
Joel Lindpere 58.
Ísrael - Aserbaídsjan................................6:0
Arbeitman 9., 66., 69., Tal, vítaspyrna, 24.,
Katan 45., 61. - 12.250.
Ungverjaland - Armenía .........................2:0
Imre Szabics 63., Krisztian Lisztes 75.
Makedónía - Bosnía ..................................1:0
Pandev 22. - 8.000.
Líbýa - Úkraína.........................................1:1
Kara 55. - Pukanich 15. - 20.000.
Tyrkland - Danmörk................................0:1
- Martin Joergensen 32. - 19.000.
Albanía - Svíþjóð.......................................2:1
Ervin Skela 67., Ardian Aliaj 75. – Stefan
Selakovic 50. - 15.000.
Grikkland - Búlgaría................................2:0
Dimitris Papadopoulos 26., Zisis Vryzas 60.
- 6.000.
Pólland - Slóvenía.....................................2:0
S. Mila 2., A. Niedzielan 64.
153 áhorfendur sáu leikinn, sem fór fram
í San Fernando á Spáni.
Belgía - Frakklandi ..................................0:2
- Sidney Govou 45, Louis Saha 76. - 45.000.
Holland - Bandaríkin ...............................1:0
Arjen Robben 57.
Írland - Brasilía ........................................0:0
44.000.
Marokkó - Sviss.........................................2:1
Ahmed Ajeddou 78., Houcine Aiajour 81. –
Alexander Frei 89. - 2.000.
Króatía - Þýskaland .................................1:2
Mato Neretljak 86. – Miroslav Klose 34.,
Carsten Ramelow 90. - 15.000.
Ítalía - Tékkland.......................................2:2
Christian Vieri 14., Antonio Di Natale 86. –
Jiri Stajner 42., Tomas Rosicky 89. - 20.035.
Norður-Írland - Noregur.........................1:4
David Healy 56. – Morten Pedersen 17.,
35., Steffen Iversen 43., Keith Gillespie 57.
- sjálfsm. - 11.288.
Wales - Skotland .......................................4:0
Robert Earnshaw 1, 35, 58, Gareth Taylor
78. - 47.124.
Spánn - Perú..............................................2:1
Joseba Etxeberria 31., Ruben Baraja 33. –
Nolberto Solano 21. - 17.000.
Portúgal - England...................................1:1
Petro Pauleta 71. - Letley King 47.
Undankeppni HM 2006
Japan - Oman............................................ 1:0
Kína - Kúveit............................................. 1:0
Indland - Singapúr ................................... 1:0
Víetnam - Maldive-eyjar.......................... 4:0
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna
Njarðvík - Grindavík............................48:59
Stig Njarðvíkur: Andrea Gaines 16, Auður
Jónsdóttir 13, Ingibjörg Vilbergsdóttir 12,
Guðrún Karlsdóttir 3, Dianna Jónsdóttir 2,
Eva Stefánsdóttir 2.
Stig Grindavíkur: Kesha Tardy 23, Sólveig
Gunnlaugsdóttir 15, Petrúnella Skúladóttir
13, Guðrún Guðmundsdóttir 2, Ólöf Páls-
dóttir 2, Jovana Stefánsdóttir 2, Erna
Magnúsdóttir 2.
Staðan:
Keflavík 17 14 3 1397:1050 28
ÍS 17 12 5 1129:969 24
KR 17 10 7 1143:1076 20
Grindavík 17 7 10 1062:1095 14
Njarðvík 17 6 11 991:1188 12
ÍR 17 2 15 943:1287 4
NBA-deildin
Úrslit í fyrrinótt:
Indiana - New Orleans......................... 75:89
New York - Detroit .............................. 92:88
Miami - Utah......................................... 97:85
Milwaukee - Orlando........................ 127:104
Minnesota - Phoenix .......................... 110:95
Memphis - Dallas................................ 109:92
Chicago - Toronto................................. 75:73
Houston - Washington ....................... 107:81
Denver - Philadelphia ........................ 106:85
Sacramento - Boston........................ 127:111
LA Lakers - Portland .......................... 89:86
Staða efstu liða:
Atlantshafsriðill: Nets 31/20, Knicks 29/29,
Celtic 23/32, Heat 23/32, 76’ers 22/32, Wiz-
ards 16/35, Magic 13/42.
Miðriðill: Pacers 39/15, Pistons 33/22, Hor-
nets 29/24, Bucks 28/24, Raptors 25/27.
Miðvesturriðill: Timberwolves 38/15,
Spurs 35/18. Mavericks 33/20, Grizzlies 31/
22, Rockets 31/22, Nuggets 32/23, Jazz 26/
28.
Kyrrahafsriðill: Kings 38/13, Lakers 32/19.
Í KVÖLD
TEODORA Visokaite, handknattleikskona frá
Litháen, er hætt að spila með Gróttu/KR og
fer af landi brott um næstu helgi. Hún kom til
félagsins í október en hefur misst mikið úr
vegna meiðsla og ekki var útlit fyrir að hún
myndi ná sér af þeim strax.
Kristján Guðlaugsson, formaður Gróttu/KR,
sagði við Morgunblaðið að ekki hefði verið
um annað að ræða. „Þetta er mikil óheppni
en við verðum að taka því. Við gerðum við
hana starfslokasamning og viljum þakka
henni fyrir samstarfið,“ sagði Kristján en
Visokaite lék ýmist sem miðjumaður eða
skytta vinstra megin með liðinu.
Visokaite fer væntanlega til Króatíu en
unnusti hennar, Dalius Rasikevicius, sem
hætti hjá Haukum fyrr í þessum mánuði, er
kominn þangað og farinn að spila með NK
Zagreb.
Visokaite hætt
með Gróttu/KR
DANSKI landsliðsmaðurinn í körfuknattleik, Christian Drej-
er, hefur ákveðið að hætta að leika með háskólaliðinu Florida
Gators og hefur hann samið við spænska liðið Barcelona fram
til loka keppnistímabilsins 2004-2005. Drejer er eitt mesta efni
sem hefur komið fram í Danaveldi á undanförnum árum og
mun hann halda til Spánar á næstu dögum og leikur líklega
sinn fyrsta leik með liðinu í Evrópukeppninni þann 3. mars.
Drejer er 21 árs gamall og er 2.04 metrar á hæð og hefur
leikið sem bakvörður, en hann hefur verið eftirsóttur af bestu
liðum Evrópu undanfarin misseri.
Drejer hefur ekki leikið með Gators að undanförnu þar sem
að þjálfari liðsins vissi hvað til stóð og vildi hann ekki nota
danska landsliðsmanninn á meðan hann gæti ekki einbeitt sér
að fullu að náminu og háskólalífinu.
Íslendingar eru í B-deild Evrópukeppni landsliða ásamt
Dönum, Rúmeníu og Azerbaídsjan. Leikið er gegn Dönum
þann 11. september, heima gegn Azerbaídsjan þann 15. sept-
ember og heima gegn Rúmenum þann 18. september. Síðari
umferðin fer fram haustið 2005.
Christian Drejer frá
Flórída til Barcelona
Gestirnir frá Akureyri mættu bet-ur stemmdir til leiks og stór-
skyttan Arnór Atlason fór mikinn til
að byrja með, lét
vaða á vörn Gróttu/
KR og skoraði 6 af
fyrstu 9 mörkum KA.
Þegar heimamenn á
Nesinu neyddust til að koma betur út
á móti honum losnaði um Andreas
Stelmokas línumann KA, honum
héldu engin bönd og þurfti að lág-
marki tvo leikmenn Gróttu/KR til að
reyna að hemja hann en það dugði
stundum ekki til. Þetta ásamt góðri
vörn gerði það að verkum að KA náði
undirtökum en tókst samt ekki að
stinga Gróttu/KR af því þó sóknar-
leikur þeirra væri oftast ekki burðug-
ur tókst að koma boltanum í markið.
Á 20. mínútu tókst Gróttu/KR meira
að segja að jafna í 20:20 en það virtist
ekki gera leikmönnum neitt gott því
KA-menn hertu tökin á leiknum,
skoruðu fimm næstu mörk og höfðu
18:13 í leikhléi.
Það var eins og allt annað lið en KA
mætti til síðari hálfleiks. Gestirnir
voru alltof værukærir og fylgdust
með þegar heimamenn tóku sig á í
vörninni og skoruðu síðan 9 mörk á
tæpum 9 mínútum. Þá loks vöknuðu
norðanmenn af værum blundi svo að
leikurinn var í járnum um tíma. KA-
menn reyndu að taka upp þráðinn í
vörninni og það gekk um tíma en
heimamenn voru búnir að finna fjöl-
ina sína og gáfu ekkert eftir. Þar fóru
fremstir í flokki Páll og Konráð sem
skoruðu 14 af 17 mörkum Gróttu/KR
eftir hlé. Konráð, sem er hefja leik á
ný eftir langt hlé, reyndist svo erfiður
að KA-menn brugðu á það ráð að taka
hann úr umferð undir lokin.
„Við vorum með einfaldar vinnu-
reglur fyrir leikinn og áttum að fara
eftir þeim,“ sagði Páll Þórólfsson sem
var markahæstur hjá Gróttu/KR með
13 mörk. „Vörnin okkar var ekki til
staðar í fyrri hálfleik og þannig vinn-
ur maður ekki KA enda eru átján
mörk í fyrri hálfleik algjörlega óvið-
unandi. Við áttum í vandræðum með
að stöðva Stelmokas í fyrri hálfleik,
hvort sem er öll mörkin sem hann
skoraði eða vítakast sem hann fiskaði.
Þó að hann sé sterkur maður á mann
þýðir ekki að láta þar við standa og
leyfa honum að skora og skora.
Reyndar fannst mér dómararnir að-
eins of góðir við hann þegar hann fékk
sum vítin og þá er erfitt að hemja
hann ef það má ekki koma við hann.
Við ræddum um í hálfleik að ef við
ætluðum að eiga möguleika á sigri
þyrftum við að bæta vörnina og það
gerðum við en mér fannst líka KA-
menn koma slappir til síðari hálfleiks
og gerðu okkur auðvelt að komast inn
í leikinn,“ bætti Páll við. Liðið hefur
misst leikmenn í meiðsli en það virðist
hafa þjappað leikmönnum saman.
„Við höfum lent í því tvö síðustu ár að
missa lykilmenn og við erum ekki
með svo breiðan hóp að við megum
við því en við erum sáttir með fyrstu
leiki okkar. Það er samheldni í liðinu,
menn berjast hver fyrir annan því við
vitum að við erum ekki með besta liðið
og þurfum þá að gefa allt okkar í leik-
inn til að vinna.“ Hlynur Morthens
markvörður skilaði einnig sínu og
Daði Hafþórsson byrjaði vel auk þess
að Magnús A. Magnússon og Kristinn
Björgúlfsson áttu ágæta spretti.
„Ég get ekki gert upp með seinni
hálfleikinn, hvort við vorum lélegri en
dómararnir, það var hörð barátta
lengst af en þegar við vorum að reyna
að rífa okkur upp úr lognmollunni var
okkur snarlega kippt niður aftur,“
sagði Jóhannes G. Bjarnason þjálfari
KA eftir leikinn. „Fyrri hálfleikur var
góður, við skoruðum mikið og gekk
vel að verjast seinni hlutann en hvað
olli því að hálft liðið var ekki með í
leiknum veit ég ekki. Þeir leikmenn
sem komu með okkur suður og fylgd-
ust með leiknum á meðan þeir voru
inni á vellinum verða að svara fyrir
það. Við náðum aldrei takti í leikinn
og vorum reknir útaf fyrir undarleg-
ustu sakir, skildum ekki neitt í neinu
hvað um var að vera. Það var engin
lína í dómgæslunni,“ bætti Jóhannes
við en hann taldi leikmenn líka verða
að taka á sig sök. „Ég ætla samt ekki
að réttlæta þannig okkar leik, við vor-
um hundlélegir í seinni hálfleik og ég
held að leikmenn hafi haldið að sigur
væri í höfn í hálfleik. Nú verða menn
að setjast niður og skoða sín mál. Við
höfum tapað tveimur leikjum í röð og
verðum að finna leið út úr þessu
ástandi.“ Sem fyrr segir var Stelmo-
kas bestur hjá KA og Arnór sterkur
fyrir hlé en síðan voru menn á hæl-
unum.
Værukærð varð
KA að falli
gegn Gróttu/KR
Morgunblaðið/Þorkell
Sævar Árnason, hornamaður KA, reyndir að komast framhjá
Sverri Pálmasyni, varnarmanni Gróttu/KR, á Seltjarnarnesi.
KÁLIÐ er ekki sopið þó í ausuna
sé komið – það fengu KA-menn
svo sannarlega að reyna í gær-
kvöldi þegar þeir sóttu Gróttu/
KR heim á Seltjarnarnesið.
Framan af leik voru Akureyr-
ingar með undirtökin og fimm
marka forskot í leikhlé en eftir
hlé var værukærðin í algleym-
ingi á meðan leikmenn Gróttu/
KR sneru taflinu við, jöfnuðu
eftir 6 mínútur og litu ekki til
baka fyrr en að loknum 30:28
sigri. Mikið munaði um að ref-
irnir Páll Þórólfsson og Konráð
Ólavson fóru á kostum og skor-
uðu 20 af 30 mörkum Gróttu/KR
en stórleikur Andreas Stelmo-
kas dugði KA ekki einn og sér.
Stefán
Stefánsson
skrifar