Morgunblaðið - 19.02.2004, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2004 63
Svakalegasti
spennutryllir ársins
frá leikstjóra Face/Off
og Mission Impossible 2.
Tilnefningar til
óskarsverðlauna11
Sýnd kl. 4.30. B.i. 12. Sýnd kl. 4. Íslenskt tal.
Charlize Theron:
Golden Globe verðlaun
fyrir besta leik í
aðalhlutverki.
Tilnefnd til Óskarsverðlauna
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 16. Síma-forsýning kl. 8.
MIÐAVERÐKR. 500.
www.laugarasbio.is
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 6 og 10.15.
HJ MBL
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 14.
Forsýning
Frábær
gamanmynd
frá höfundi
Meet the
Parents
f f i
t t
t
Sérstök Síma-forsýning kl.8
Síminn býður 2 fyrir 1 gegn
framvísun tilboðsmiða
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Tilnefningar til
óskarsverðlauna
Besta leikkona í aðalhlutverki
Besti leikari í aukahlutverki
21
GRAMM
www .regnboginn.is
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16.
2
HJ Mbl.
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
ÓHT Rás2
„Dýrmætt
hnossgæti“
EPÓ Kvikmyndir.com
Tilnefningar til
óskarsverðlauna
Besta mynd, besti leikstjóri, besta
handrit og besti leikari í aðalhlutverki
4
BILL MURRAY SCARLETT JOHANSSON
Allir þurfa félagsskap
SV MBL
Fréttablaðið
ÓHT Rás 2
SV Mbl.l
Kvikmyndir.com
ÓHT Rás2
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16 ára.
H A L L E B E R R Y
BRESKA glysrokk-
sveitin The Darkness
kom, sá og sigraði á
Brits-verðlaununum,
stærstu árlegu tónlist-
arverðlaunahátíðinni
sem haldin er í Bret-
landi. Sveitin skondna
vann þrenn verðlaun,
var valin besta breska
hljómsveitin, bestu
bresku rokkararnir og
platan þeirra nýja og
eina besta breska plat-
an á veglegri hátíð
sem fram fór í Lund-
únum á þriðjudags-
kvöld.
Söluhæsti listamað-
ur síðasta árs, söngkonan Dido vann
tvenn verðlaun, fyrir besta breska
lagið „White Flag“ og var valin
besta breska söngkonan. Hún lét sig
samt vanta á hátíðina.
Strákabandið Busted og Justin
Timberlake nældu jafnframt í tvenn
verðlaun hvor og Beyoncé Knowles
var valin besta söngkona heims.
The Darkness sló öllum að óvör-
um í gegn á síðasta ári og tókst að
selja 1,2 milljónir platna af fyrstu
plötu sinni síðan hún kom út í júlí í
fyrra. „Þetta er mikill heiður og
mikið afrek. Ég verð að segja að við
erum trúlega besta hljómsveit Bret-
lands,“ sagði forsprakki The Dark-
ness er hann veitti einum af verð-
launum kvöldsins viðtöku.
Beyoncé mætti á hátíðina skreytt
demöntum að værðmæti 32 milljóna
króna og tók lagið sitt vinsæla
„Crazy in Love“. Daniel Bedingfield
var valinn besti söngvarinn fram yf-
ir Robbie Williams en Bedingfield
gat ekki tekið við verðlaunum sín-
um því hann er enn að jafna sig af
meiðslum sem hann hlaut er hann
lenti í bílslysi á Nýja-Sjálandi á dög-
unum.
Justin Timberlake hlaut svo þann
heiður að veita Duran Duran sér-
stök verðlaun fyrir framlag sveit-
arinnar til popptónlistarinnar og lét
Timberlake þau orð falla að það
hefðiverið eina ástæðan fyrir því að
hann mætti á Brits-verðlaunin. Ba-
sement Jaxx var valin besta dans-
sveitin og The White Stripes besta
hljómsveitin í heimi.
Fyrirsætan Naomi Campbell átti
að veita verðlaun á hátíðinni en
mætti of seint og ekki nóg með það
heldur varð bandsjóðandi vitlaus er
hún komst að því að hún átti að
deila búningsklefa með öðrum.
Varð því ekkert úr að Campbell sæ-
ist á hátíðinni.
Smávesen varð í kringum atriði
Beyoncé því farangur dansaranna
hennar glataðist á leið þeirra vestur
yfir haf – þó væntanlega ekki beint
yfir Atlantshafinu. Þurfti því að
redda nýjum búningum á nóinu.
Mutya Buena og Keisha Buchan-
an úr Sugababes sögðust hafa verið
á höttunum eftir strákum á hátíð-
inni því þær væru orðnar þreyttar á
að mæta einar. Hins vegar er Heidi
Range búin að finna sinn, MTV
kynninn Dave Berry. Stúlknatríóið
þótti glæsilega til fara á hátíðinni,
með nýjan fágaðri stíl.
Simon Le Bon
og heiðurs-
félagar hans
í Duran Dur-
an tóku lagið
og sýndu að
þeir hafa
engu gleymt.
Myrkrið dundi yfir
Brits-verðlaunum
Skrautfjöðrin Justin
Hawkins forsprakki
The Darkness.
Besta poppbandið á Brit
verðlaununum, Busted.
Nýju Duran Duran?
Demantur
kvöldsins
reyndist
hin rán-
dýra
Beyoncé
sem tók
lagið og við
verðlaun-
um.
Reuters
MARGT verður um að vera á fyrsta
degi Vetrarhátíðar í Reykjavík. Til
að nefna eitthvað verður Tríó Krist-
jönu Stefánsdóttur með tónleika á
Hressó. „Við verðum með blandað
prógramm, bæði djassstandarda og
líka gömul popplög í djassútsetning-
um. Þetta ætti að vera frekar að-
gengilegt, lög sem flestir þekkja,“
segir Kristjana um tónleikana en
með henni eru Agnar Már Magn-
ússon á píanó og Róbert Þórhallsson
á bassa.
Þau hafa verið að spila lög frá ní-
unda áratugnum á tónleikum og hef-
ur því verið vel tekið. Á meðal laga
sem þau hafa spilað eru „Addicted
to Love“ með Robert Palmer, „Kiss“
með Prince og „Black Hole Sun“
með Soundgarden. „Þetta er það
sem maður sjálfur ólst upp við.
Þetta er það sem maður var sjálfur
að taka upp á kassettutæki úr út-
varpinu þegar það var ekki neitt
annað í boði.“
Öllu eldri lög verða í fyrirrúmi í
Fríkirkjunni. Þar verða sígild dæg-
urlög frá árinum 1950 til 1970 í aðal-
hlutverki, segir Anna Sigríður
Helgadóttir, söngkona og tónlistar-
stjóri kirkjunnar. Þarna koma fram
auk Önnu, Margrét Eir, Raggi
Bjarna, Guðrún Gunnarsdóttir og
líka Fríkirkjukórinn. Hinn tónlistar-
stjórnandi kirkjunnar, Carl Möller,
gegnir síðan hlutverki hljómsveitar-
stjóra á tónleikunum.
Anna Sigríður segir að þetta sé í
þriðja sinn sem Fríkirkjan taki þátt
í uppákomum á Vetrarhátíð. „Þetta
hefur alltaf verið ofsalega gaman og
alltaf troðfullt hjá okkur. Það eru
allir svo glaðir og jákvæðir, þetta
verður rosa stuð,“ segir hún.
Þeir sem eru meira fyrir dans en
tónlist ættu ekki að verða svekktir á
dansveislu Kramhússins í Þjóðleik-
húskjallaranum. Þar sýnir Martin
Maher Kishkson frá Egyptalandi
austræna dansa. Einnig verður boð-
ið upp á magadans, „bollywood“,
tangó, flamenco, þjóðdansa frá
Balkanskaganum og salsa. Sýningin
endar í sveiflu sem allir geta tekið
þátt í.
Vetrarhátíð í Reykjavík
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
Tríó Kristjönu Stefánsdóttur á Hressó með m.a. popplög í djassbúningi.
Djass, dans og
dægurperlur
Margrét Eir er á meðal þeirra
söngvara sem ætla að koma fram í
Fríkirkjunni.
ingarun@mbl.is
Tríó Kristjönu Stefánsdóttur spil-
ar kl. 21.30 á Hressó. Vetr-
arperlur við Tjörnina í Fríkirkjunni
kl. 20.40. Austurlensk dans-
veisla í Þjóðleikhúskjallaranum
kl. 21. Sjá nánar dagskrá Vetr-
arhátíðar bls. 28.