Morgunblaðið - 18.04.2004, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 105. TBL. 92. ÁRG. SUNNUDAGUR 18. APRÍL 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Þetta eru spilin
sem ég hef á hendi
Anna Pálína Árnadóttir segir frá bók
sinni Ótuktinni sem er að koma út | 20
Tímaritið og Atvinna í dag
Tímaritið |Fyrstu sporin í heimsborginni Eftirvinnslan í fullu
fjöri Atvinna | Atvinnuleysi minnkaði í marsAð vera íþrótta-
kennari og tómstundaleiðbeinandi
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 300
GEORGE W. Bush Bandaríkja-
forseti hóf að leggja drög að inn-
rás í Írak þegar í desember 2001,
þrátt fyrir að opinberlega hefði
Bandaríkjastjórn þá sagt það
stefnu sína að finna samninga-
lausn á Íraksdeilunni.
Þetta er fullyrt í nýrri bók eftir
bandaríska blaðamanninn Bob
Woodward, sem ásamt kollega sín-
um á Washington Post, Carl Bern-
stein, öðlaðist frægð fyrir að fletta
ofan af Watergate-hneykslinu sem
leiddi til afsagnar Richards Nix-
ons forseta árið 1974. Woodward
er nú einn ritstjóra Washington
Post.
Í bókinni, sem ber titilinn Plan
of Attack (Árásaráætlun), segir að
Bush hafi átt nokkra fundi með
herráði sínu í lok árs 2001, þremur
mánuðum eftir hryðjuverkaárás-
irnar á New York og Washington,
til að leggja drög að innrás í Írak.
Þetta kemur fram í útdrætti úr
bókinni sem Washington Post fékk
til birtingar. Í bókinni er fullyrt að
Bush hafi þegar í síðasta lagi í
janúar 2003 verið búinn að taka
bjargfasta ákvörðun um að grípa
til hernaðaríhlutunar gegn stjórn
Saddams Husseins í Írak.
„Ég tel að okkur beri skylda til
að frelsa fólk,“ hefur Woodward
eftir Bush í bókinni; „ég vonaði
bara að við þyrftum ekki að gera
það með hervaldi.“
Drög að innrás lögð í lok 2001
Washington. AFP.
Reykjavíkurbréf/36
„TIL að geta náð einhverjum bata þarf eitt-
hvert öryggi og þá er húsnæði nauðsynlegt.
Öðruvísi er það vonlaust.“ Það er 54 ára gam-
all útigangsmaður sem talar en hann hefur
verið meira og minna á götunni í tíu ár og er
einn af þeim 102 sem nú teljast heimilislausir
á Íslandi. Af þessum 102 eru 69 sem kljást við
fíkn eða geðfötlun líkt og viðmælandinn, en 33
sem eru heimilislausir af öðrum orsökum.
Þrátt fyrir úrræði eins og Gistiskýlið við
Þingholtsstræti í Reykjavík er alltaf nokkur
hópur fólks sem býr sér svefnstað úti undir
beru lofti eða í yfirgefnu húsnæði. Þeir sem
hafa reynslu af heimilisleysi og talsmenn
frjálsra félagasamtaka sem starfa m.a. í þágu
heimilislausra eru sammála um að viðbótar-
úrræða sé þörf fyrir heimilislaust fólk í neyslu.
Það sem helst er nefnt er annars vegar skil-
yrðislaust úrræði fyrir heimilislausa undir
áhrifum, þ.e. hús þar sem þeir geta komið í
hvaða ástandi sem er og lagt sig í skjóli og
hlýju yfir nóttina, og hins vegar gistiskýli eða
heimili fyrir heimilislausar konur í neyslu.
Þrítug kona sem var meira og minna heim-
ilislaus í fimmtán ár hefur reynt margt mis-
jafnt og veit hvað heimilislausar konur þurfa.
„Ég man oft þegar maður sat á götunni, skít-
kalt með bullandi fráhvarfseinkenni, í einni
lopapeysu í grenjandi rigningu. Maður var
orðinn svo drullugur og ógeðslegur að fólk tók
sveig framhjá manni. Þá óskaði ég mér þess
að ég gæti farið eitthvað og farið að sofa án
þess að þurfa að hafa áhyggjur af því að mér
yrði nauðgað, ég barin eða dílerinn kæmi.
Bara að geta hvílt sig án þess að hafa áhyggj-
ur.“
Reykjavíkurdeild Rauða krossins hefur
unnið að því að koma á fót næturheimili fyrir
konur sem myndi koma til móts við þarfir
heimilislausra kvenna í neyslu, hóps sem allt
að fimmtíu konur tilheyra, að sumra mati.
Rekstrarfé kemur ekki frá Reykjavíkurborg
að svo komnu máli, ekki fyrr en Rauði kross-
inn sýnir fram á nýtingu. Málið verður fljót-
lega tekið fyrir og afgreitt hjá Reykjavíkur-
deildinni.
Um 100 manns heimilislausir á Íslandi
Morgunblaðið/Kristinn
Tímarit/8
KVIKMYNDIN Silný kafe eða
Sterkt kaffi eftir kvikmyndagerð-
armanninn Börk Gunnarsson verður
frumsýnd vítt og breitt um Tékkland
í lok mánaðar-
ins.
Myndin var
tekin með staf-
rænni tækni
og með tékk-
neskum at-
vinnuleikurum
í aðalhlut-
verkum. Ís-
lendingar sem koma við sögu fyrir
utan leikstjórann eru Stefanía Thors
aðstoðarleikstjóri, sem einnig fer
með aukahlutverk í myndinni, og
Thor Thors.
Almennar sýningar á myndinni
munu hefjast í fjórum löndum í vor
og sumar. /66
Sterkt kaffi
tilbúið
STEINWAY & Sons-flygill Rögn-
valdar Sigurjónssonar píanóleik-
ara hefur verið auglýstur til sölu.
Hann var framleiddur um 1946
en Rögnvaldur eignaðist hann um
1970 og kostar nýr um fjórar
milljónir króna. Runólfur Sæ-
mundsson, aldavinur Rögnvaldar,
segir flygilinn vera úrvals-
hljóðfæri. „Þeir voru eins og ein
heild Rögnvaldur og flygillinn,
það voru yndislegustu stundirnar
að hlusta á Rögnvald spila á
hann. Hljóðin voru svo falleg.“
Steinway
Rögnvaldar
MORGUNSÓLIN varpaði skemmtilegum skugg-
um yfir Skerjafjörð og forsetasetrið á Bessastöð-
um í vikunni er ljósmyndari Morgunblaðsins átti
leið um Ægisíðuna. Gangandi og hjólandi veg-
farendur voru komnir á stjá að njóta veðurblíð-
unnar og útsýnisins til Keilis og annarra fjalla á
Reykjanesinu. Nú þegar aðeins nokkrir dagar
eru eftir af vetri hækkar sólin stöðugt á lofti og
dag tekur að lengja. Sumarið er að koma.
Morgunblaðið/RAX
Skuggar yfir Skerjafirði
TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, hét því í
gær að ríkin sem standa að hernámi Íraks undir
forustu Bandaríkjamanna mundu „standa það
verkefni af sér“. Sagðist hann, daginn eftir fund
sinn með George W. Bush Bandaríkjaforseta,
skynja „algjöra staðfestu“ hvað varðar hið áform-
aða valdaframsal í hendur bráðabirgðastjórnar
Íraka um mánaðamótin júní-júlí í sumar, þrátt fyr-
ir ólguna og átökin sem gætt hefur í landinu að
undanförnu.
„Öðrum megin eru ofstækis-, öfga- og hryðju-
verkamennirnir, sem vilja sjá framfarir stöðvað-
ar“ í Írak, sagði Blair í BBC-viðtali eftir fundinn í
Hvíta húsinu. „Hinum megin er íraska þjóðin – yf-
irgnæfandi meirihlutinn, þetta heiðvirða fólk sem
maður hittir fyrir í framkvæmdaráðinu, hjá Sam-
einuðu þjóðunum, hernámsbandalaginu og í hvaða
landi sem er sem vill sjá stöðugleika komast á í
Írak,“ sagði hann. Undir núverandi kringumstæð-
um væri ekki um neitt annað að ræða en að
„standa þetta verkefni af sér og gera hvaðeina
sem þarf til þess“.
Þeir tveir japönsku gíslar sem eftir voru í haldi
mannræningja í Írak voru látnir lausir í gær, heilir
á húfi. En tvítugur varaliðsmaður Bandaríkjahers,
Keith Matthew Maupin, var í fyrrakvöld sýndur á
myndbandi á sjónvarpsstöðvunum Al-Arabiya og
Al-Jazeera, í haldi grímuklæddra byssumanna.
Hann var í hópi níu manna sem týndust eftir árás
á bílalest nærri Bagdadflugvelli 9. apríl sl. Hinir
grímuklæddu krefjast lausnar uppreisnarmanna
úr haldi bandamanna, ella deyi gíslinn. Talið er að
mannræningjar í Írak haldi enn alls um 40 gíslum.
Blair ítrekar staðfestu í Írak
Lundúnum, Bagdad. AFP, AP.
♦♦♦