Morgunblaðið - 18.04.2004, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 18.04.2004, Blaðsíða 30
LISTIR 30 SUNNUDAGUR 18. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ VETURINN er svipsterk árstíð á norðurhjara veraldar og hann setur heldur betur mark sitt á ljóðagerð þeirra skálda sem eiga ljóð í vetrarútgáfu ljóðatímaritsins Ice-floe. Þar er safnað saman ljóð- um skálda hvaðanæva af norður- hvelinu. Sumir höfundanna eru frá Anchorage í Alaska en þar er ritið gefið út, aðrir frá Kanada, rúss- neskum sífrera eða spretta upp úr finnskum, sænskum og norskum jarðvegi ellegar koma frá Íslandi. Aðstandendur tímaritsins ræða um andstæður norðursins sem í senn draga dám af rányrkju auð- linda og hreinleika, svörtum pytti iðnframleiðslu og jafnvel þjóðar- morðs undir hvítri snjóbreiðu því að alltaf fellur nýr snjór eftir hverjar hörmungar. Nálægðin við veturinn og fegurð hans er áber- andi í ljóðum og náttúran í sínum mikilleika er áþreifanleg sem markast væntanlega af því að byggðir og borgarlíf eru ekki jafn- sterkur þáttur í menningu norð- urhjarabúans og þeirra sem sunn- ar búa. Himinninn, fjöllin og hafið eru nær. Víða er ort um snjó, frost, veðrabrigði og lesanda finnst stundum eins og náttúruöflin stígi út úr ljóðunum og leiki lausum hala eins og í kvæði Ísaks Harð- arsonar, Þorpið milli hafs og him- ins: Það vex sjór undir húsveggjunum sem heitir Atlantshaf en himinninn yfir lágum þökunum er hærri en öll nöfn sem spretta á jörðu Á morgnana fer fólkið til vinnu í frystihúsið, skólann og elliheimilið en á kvöldin fer það úr vinnu, fötum og líkömum og stígur dans á stjörnusteinum Verk íslenskra höfunda auk verka Ísaks eru eftir Guðberg Bergsson, Nínu Björk Árnadóttur, Pétur Hafstein Lárusson auk Hall- bergs Hallmundssonar sem jafn- framt þýðir verk hinna yfir á enska tungu. Hallberg á hlut að ritstjórn ritsins og sannast sagna hefur vel tekist með valið á hinu íslenska framlagi til ritsins og þýðingar hans sýnast mér með ágætum. Nokkur munur þykir mér vera ljóðagerð Ameríkumannanna og Evrópubúanna. Hin ameríska ljóðagerð einkennist einkum af út- leitnum skáldskap játningakennd- um en hann er dálítið hlaðinn mál- skrúði og myndskreytingum og er oft ætlað að túlka heimspekilegar vangaveltur eða minningarbrot. Hin norrænu ljóð eru aftur á móti að jafnaði hnitmiðaðri og mynd- málið gjarnan inngróið formgerð verkanna. Kveðskapurinn er oftar fáguð túlkun kennda og á stundum hárfínn dans hugmynda og tilfinn- inga enda höfundarnir margir með fremstu skáldum Norðurlanda, t.d. Ylva Eggehorn, Tua Forsström, Bo Gustavsson og Olav H. Hauge. Guðbergur Bergsson á einnig tvær perlur í þessari bók. Kaldhömruð lífsspeki hans í kvæðinu Þessi árs- tími hæfir vel sem túlkun þeirrar ljóðrænu vetrarhugsunar sem er meginþema bókarinnar: Þessi árstími er óspar á regn, storma og brim, en þú dvelur í tímalausri kyrrð jarðarinnar, hugmynd í minningu, fjarri blómi og blóði. Þannig kemst ég til þín en þú aldrei til mín vegna þess að vitund þín er farin úr efninu. Ég horfi á þig svipta einsemd lífsins og öfunda þig af að hafa lokið því sem enginn getur flúið. Ice-floe er vel heppnað og gott framtak manna og kvenna sem hafa skilning á því að ljóðið þekkir engin landamæri og okkur á norð- urhjaranum ber að miðla hug- myndum og sýn okkar á tilveruna hvert til annars. Við það stækkar himinninn fyrir ofan okkur og víð- áttan sem okkur er svo kær verður nánast endalaus. VETRARLJÓÐ BÆKUR Ljóð Ritstjórar: Shannon Gramse og Sarah Kirk. Ice-floe press. Anchorage, Alaska. USA. 2003 – 128 bls. ICE-FLOE. INTERNATIONAL POETRY OF THE FAR NORTH Skafti Þ. Halldórsson TÓNLEIKASKRÁ var ekki til að dreifa á tónleikum Frændkórs- ins í Kópavogskirkju 2. apríl sl. Hins vegar kom fram af viðtali í Mbl. sama dag, að meðlimir hans ættu það allir sameiginlegt að vera afkomendur Jóns Gíslasonar hreppstjóra og alþingismanns og Þórunnar Pálsdóttur húsfreyju, frá Norðurhjáleigu í Álftaveri í Vest- ur-Skaftafellssýslu. Kvað Frænd- kórinn stofnaður í tengslum við ættarmót sumarið 1991 og hafa starfað nær óslitið síðan, oftast undir stjórn Eyrúnar Jónasdóttur, sonardóttur Jóns og Þórunnar. Í landi þar sem mikið er lagt upp úr „hvaðan“ einstaklingi komi til- teknir hæfileikar, þætti sjálfsagt mörgum skemmtilegt uppátæki að setja saman tveggja tylfta bland- aðan kór með þessum formerkjum. Hitt er þó víst, að hvergi þykir genetískur skyldleiki tryggja mús- íkalska lágmarksgetu betur en beinhörð inntökupróf, enda ráða þau jafnan úrslitum um stöður í kórum eða hljómsveitum atvinnu- manna, hversu mikla tröllatrú sem menn kunna annars að hafa á mátt erfðavísanna. Það er því oftast undir hælinn lagt hversu mikið slíkur hópur get- ur haft óvenzluðum hlustanda fram að færa. En því minna sem maður býst við, því fleira getur komið manni ánægjulega á óvart. Átti það við um nokkur kóratriðanna þrett- án, enda þótt samhljómurinn næði í heild varla upp á stig beztu átt- hagakóra landsins. Ekki var til að bæta hann steindauður hljómburð- ur Kópavogskirkju, sem að því leyti er í sérkennilegri andstöðu við sjónræna fegurð. Stiklað á stóru mætti nefna Rúnaslag Ing- unnar Bjarnardóttur, Hjá lygnri móðu Jóns Ásgeirssonar, Land míns föður, „erlenda“ lagið Enn syngur vornóttin, Kvöld í Vagla- skógi (stakkatóið var að vísu full- hvasst og hefði átt að líða meira portato) og frönsku 16. aldar drykkjuvísuna Tourdion eftir Pierre Attaingnant, að líkindum í þýðingu Þorsteins Valdimarssonar. Helga Guðlaugsdóttir söng ein- söng í fjórum lögum við píanóund- irleik Jörgs Sondermanns, þ.e. Betlikerlingu Kaldalóns, Söng Sól- veigar e. Grieg, Skýið e. Emil Thoroddsen og aríu úr Orfeo ed Euridice e. Gluck; allt mjög snot- urlega þrátt fyrir frekar ómótaða rödd. Hins vegar virtist organisti Hvergerðinga stundum hafa mátt eyða aðeins meiri tíma í æfingar. Con amore Kvennakórinn Léttsveit Reykja- víkur, er áður var undir vængjum Kvennakórs Reykjavíkur en mun nú sjálfstætt starfandi, hélt vor- tónleika fyrir sneisafullu húsi í Austurbæ, forðum Austurbæjar- bíói, einu bezta tónleikahúsi lands- ins, sama laugardag og Frændkór- inn – og það bæði kl. 17 og 21. Léttsveitin mun senn á förum suður á Ítalíaló, og bauð af því tilefni upp á eitthvert litskrúðug- asta tónleikaskrárprentmeti sem hér hefur sézt í áraraðir, ritað á báðum þjóðtungum og með sér- stakri kveðju frá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráð- herra. Yfirskriftin var „That’s AMORE“ og vísaði í lag Harrys Warren á dagskránni úr kvik- myndinni „The Caddy“ er Perry Como reið með húsum á 7. áratug. Væntanlega til að minna á að ástúð og umhyggja væri fráleitt fáséðara fyrirbrigði á okkar svölu breidd- argráðum en í mollu Miðjarðar- hafslanda. Má enda segja, að út- hald 106 kvenna kórs (35, 33, 21 & 17 taldar frá 1. & 2. sópran í 1. & 2. alt), með öllu því tilheyrandi aukastússi sem ekki sízt fylgir söngförum til framandi landa, kalli á elju þá og fórnfýsi í garð lista er á alþjóðsku nefnist „con amore“. Samtakamátt sem hver meðal- karlakór mætti öfunda LR af frá dýpstu hjartarótum. Eigi skal óstöðugan æra með því að tilgreina hvert hinna 23 söng- atriða í 6 númerum styttri heima- dagskránni, sem aðeins að rúmlega hálfu leyti endurspeglaði áformaða Ítalíudagskrá, enda hamlar pláss- þröng að auki. Þó má kannski nefna meðal áhrifameiri númera „madrigaletto“ Atla Heimis Sveins- sonar Við svala lind, Fiskimanna- tangóljóð Winklers frá Capri, ítalska þjóðlagið Vieni sul mar (Haf, blikandi haf) og Brindisi úr La traviata Verdis er bæði gerðu mikla lukku; hið síðara að vísu ívið of hægt, meðan næsta lag, „Vespré-kór“ sígaunakvenna úr sömu óperu (di Zingarelle) var aft- ur á móti of hratt. Heillandi létt- leiki var yfir That’s Amore, og Granada, síðasta atriðið, gerði sig einnig stólpavel. Eini losarabragur prentaðrar tónleikadagskrár fólst í að geta ekki ein- og samsöngsatriða ein- söngvaranna Signýjar Sæmunds- dóttur og Þorgeirs Andréssonar. Signý söng lög Jakobs heitins Hall- grímssonar Allar vildu meyjarnar eiga hann og Vorvísu með stakri prýði og Þorgeir m.a. O sole mio, en brilleraði kannski mest með undraverðu úthaldi í sínum hluta af Granada Agustíns Lara á móti Sig- nýju og kórnum síðast á dagskrá. Sem endranær naut kórinn víða góðs af útsetningum píanista síns, Aðalheiðar Þorsteinsdóttur, og – með hæfilegri a cappella tilbreyt- ingu – viðbótarundirleiks Tómasar R. Einarssonar á bassa, Mattis Kallio á fíngerða hnappanikku og Katrínar Jónu Þorsteinsdóttur (alías Stínu bongó) á latneskar húðir í „spænsku deildinni“ undir lokin. Enn sem fyrr fannst manni þó stundum vanta ögn greinilegra „off-bít“ á 2. og 4. slagi sem gít- arleikari hefði getað aukið með sveiflu, t.d. í Caprílaginu og víðar. Hvað sem öllu undangengnu smánarti líður stóð þó upp úr smit- andi sönggleði kórsins, og er ekki að efa að Léttsveitin eigi eftir að gera það gott sunnan Alpafjalla með ferskum norrænum val- kyrjumóð og glaðværum músíkboð- skap. Ríkarður Ö. Pálsson Sungið af erfða- og eðlisávísun TÓNLIST Kópavogskirkja KÓRTÓNLEIKAR Ýmis inn- og erlend lög í meðförum Frændkórsins. Einsöngur: Helga Guð- laugsdóttir. Jörg Sondermann orgel / píanó. Stjórnandi: Eyrún Jónasdóttir. Föstudaginn 2. apríl kl. 20.30. Austurbær KÓRTÓNLEIKAR Vortónleikar Kvennakórsins Léttsveitar Reykjavíkur. Signý Sæmundsdóttir sópr- an, Þorgeir Andrésson tenór, Aðalheiður Þorsteinsdóttir píanó, Tómas R. Ein- arsson kontrabassi, Matti Kallio harm- ónika og Kristín Jóna Þorsteinsdóttir slagverk. Stjórnandi: Jóhanna V. Þór- hallsdóttir. Laugardaginn 3. apríl kl. 17. Staður Nafn Sími 1 Sími 2 Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542 Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600 Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672 Bifröst Ólafur Snorri Ottósson 435 0098 694 7372 Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243 Blönduós Björn Svanur Þórisson 452 4019/864 4820/662 0984 Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965 Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474 Breiðdalsvík María Jane Duff 475 6662 Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381 Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 690 1039 Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 662 1373 Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350 Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123 Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315 Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370 Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885 Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 846 8123 Grenivík Hörður Hermannsson 463 3222 Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608 Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148 Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758 Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 895 0222 Hellissandur/Rif Aron Jóhannes Leví Kristjáns. 436 6925 Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478 Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140 Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823 Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 663 2683 Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 894 5591 Hveragerði Erna Þórðardóttir 483 4421 862 7525 Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711 Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416 Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 821 3475 Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 820 3463 Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024 Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8378 895 7818 Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112 Laugarás Jakop Antonsson 486 8983 Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679 Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173 Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2347 866 7958 Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305 Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230 Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344 Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574 Reykholt Bisk. Oddur Bjarni Bjarnason 486 8900 Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783 Reykjahlíð v/Mýv. Margrét Hróarsdóttir 464 4464 Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674 Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 862 2888 Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700 Seyðisfjörður Hanna Lísa Vilhelmsdóttir 472 1102 690 2415 Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067 Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815 Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141 Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864 Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244 Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 456 4936 Tálknafjörður Rakel Guðbjörnsdóttir 456 2595 696 2663 Varmahlíð Ragnar Helgason 453 8134 867 9649 Vestmannaeyjar Sigurgeir Jónasson 481 1518 897 1131 Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 698 7521 Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135 Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 848 6475 Þingeyri Arnþór Ingi Hlynsson 456 8285 Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627 Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249 Dreifing Morgunblaðsins Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni Bókaforlagið Bjartur hefur gefið út verkið Mynd af ósýnilegum manni eft- ir bandaríska rithöfundinn Paul Aust- er í þýðingu Jóns Karls Helgasonar. Bókin kemur út í ritröðinni Svarta lín- an en hún er helguð verkum sem eru á mörkum tveggja eða fleiri bók- menntagreina.Mynd af ósýnilegum manni er ritgerð sem höfundur skrif- aði í kjölfar andláts föður síns, manns sem virtist lifa lífinu úti á þekju og hverfa á vit dauðans án þess að nokk- ur kippti sér upp við það. Jafnhliða því sem Auster und- irbýr útförina og gengur frá dán- arbúinu reynir hann að draga upp mynd af þess- um ósýnilega manni, áður en það verður um seinan. Upp úr kafinu kemur sex- tíu ára gamalt morðmál sem varpar óvæntu ljósi á persónuleika föðurins og harmræna sögu Austerfjölskyld- unnar. Mynd af ósýnilegum manni er að margra dómi eitt besta verk Pauls Auster. Enda þótt frásögnin sé sjálfs- ævisöguleg glímir höfundur hér við sí- gildar spurningar um samband ná- inna ættingja og þau óafturkræfu tímamót sem dauðinn markar í lífi okkar. Prentun: Oddi hf., kápuhönnun Ásta S. Guðbjartsdóttir, verð kr. 1.480. Ævisaga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.