Morgunblaðið - 18.04.2004, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 18.04.2004, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. APRÍL 2004 61 DAGBÓK Hverafold 1-3 • Torgið Grafarvogi • Sími 577 4949 Skipagötu 5 • Akureyri • Sími 466 3939 Afmælis- & opnunardagar í NÆS Fögnun nú 1 árs afmæli í Torginu, Grafarvogi og opnun nýrrar verslunar að Skipagötu 5, Akureyri 20% afmælis- og opnunarafsláttur af öllum vörum dagana 19.-24. apríl Úrval af glæsilegum fatnaði fyrir konur á öllum aldri Stærðir 36-52 Opnunartími mán.-fös. kl. 11-18 lau. kl. 11-14 Námskeið í indverskri grænmetismatargerð Fæða fyrir sál og líkama Skemmtilegt eitt kvöld, grunnnámskeið 21. apríl, 28. apríl og 5. maí og framhaldsnámskeið 26. apríl, 3. maí og 10. maí. frá kl. 18—22.30 með Shabönu, símar 581 1465 og 659 3045. Indversk matargerð í eldhúsinu þínu. Ef þú vilt halda veislu þá kem ég á staðinn og sé um matinn. Skemmtileg gjafabréf fyrir þá, sem ætla að gefa skemmtilega gjöf. STJÖRNUSPÁ Frances Drake HRÚTUR Afmælisbörn dagsins: Þú ert kraftmikil/l og heið- arleg/ur og hefur sterka réttlætiskennd. Það eru nýir og spennandi hlutir að koma inn í líf þitt. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú ert að velta því fyrir þér hvernig þú getir bætt vinnu- aðstæður þínar. Þú vilt ein- faldlega hafa minna fyrir því að vinna fyrir kaupinu þínu. Naut (20. apríl - 20. maí)  Sólin er að fara inn í merkið þitt og því áttu skemmtilegan mánuð í vændum. Það er loks- ins komið að þér að end- urhlaðið batteríin. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Við höfum öll gott af því að staldra við og líta yfir farinn veg. Reyndu að gefa þér tíma til einveru á næstu vikum. Þú munt hafa bæði gagn og gam- an af því að vera ein/n með sjálfri/sjálfum þér. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Búðu þig undir mikið annríki í félagslífinu. Það er eins og það vilji allir vera í návist þinni á næstunni. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Afstaða sólarinnar gerir það að verkum að þú færð mikla og jákvæða athygli þessa dag- ana. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú hefur lagt hart að þér að undanförnu og nú langar þig í einhvers konar tilbreytingu. Það er eins og þig langi hrein- lega til að stinga af frá öllu saman. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú hefur sterkar skoðanir á hlutunum þessa dagana og það hefur áhrif á öll samskipti þín við aðra. Það er eins og þú viljir komast til botns í öllum hlutum. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Sólin er eins langt frá merk- inu þínu og hugsast getur og því þarftu á meiri hvíld að halda en venjulega. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú þarft að leggja hart að þér næstu vikurnar til að koma öllu í verk sem þú þarft að gera. Þú hefur þörf fyrir að taka til í kringum þig og koma skipulagi bæði á umhverfi þitt og líf þitt. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Það verður mikið að gerast í ástamálunum hjá þér næstu sex vikurnar. Þú ættir að láta það eftir þér að kaupa þér eitthvað fallegt sem ýtir undir sjálfstraust þitt. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Heimilið og fjölskyldan verða í brennidepli hjá þér næsta mánuðinn. Þú verður hugs- anlega boðin/n í fjölskylduboð eða þá að ættingjar þínir banka upp á hjá þér. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Það verður annríki í vinnunni auk þess sem þú munt líklega fara í stutt ferðalög og hafa mikið að gera í félagslífinu. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. VORVÍSA Vorið er komið, og grundirnar gróa, gilin og lækirnir fossa af brún, syngur í runni, og senn kemur lóa, svanur á tjarnir og þröstur í tún. Nú tekur hýrna um hólma og sker, hreiðra sig blikinn og æðurin fer, hæðirnar brosa og hlíðarnar dala, hóar þar smali og rekur á ból, lömbin sér una um blómgaða bala, börnin sér leika að skeljum á hól. Jón Thoroddsen LJÓÐABROT FJÓRIR spaðar er enginn draumasamningur, en verri geim hafa unnist: Vestur gefur; allir á hættu. Norður ♠Á743 ♥ÁK10742 ♦10 ♣109 Suður ♠10982 ♥85 ♦ÁK6 ♣K863 Spilið er frá annarri um- ferð Íslandsmótsins og yf- irleitt var spilaður bútur í hjarta eða spaða. En nokkur pör reyndu fjóra spaða, gjarnan eftir opnun vesturs á veiku grandi (12-14). Ein sagnröðin var þannig: Vestur Norður Austur Suður 1 grand 2 lauf * Pass 2 tíglar * Pass 2 hjörtu Pass 2 spaðar Pass 4 spaðar Allir pass Innákoma norðurs sýnir hálitina og svar suðurs á tveimur tíglum gefur til kynna jafna háliti eða ein- hvers konar áskorun. Þegar suður breytir tveimur hjört- um í tvo spaða hefur hann sýnt áhuga á spaðageimi. Vestur kemur út með smáan tígul og austur lætur gos- ann. Hvernig er best að spila? Það er langsótt að spilið vinnist nema hálitirnir brotni 3-2, svo það er rétt að slá því föstu. En það er verk að vinna, jafnvel þótt legan sé góð. Hjartað þarf að fría og svo þarf að ná tromp- unum af AV. En til að byrja með verður að henda laufi niður í tígulhámann. Norður ♠Á743 ♥ÁK10742 ♦10 ♣109 Vestur Austur ♠D6 ♠KG5 ♥DG6 ♥93 ♦D975 ♦G8432 ♣ÁD54 ♣G72 Suður ♠10982 ♥85 ♦ÁK6 ♣K863 Aðalmálið er að varðveita vel sambandið við blindan. Ekki má spila spaðaás og spaða, eins og gerðist á einu borði. Austur tekur þá þriðja spaðann og spilar laufgosa í gegnum kónginn. Vörnin styttir svo blindan og hjartaliturinn fer fyrir lítið. Önnur hugmynd er að dúkka spaða til austurs. En þegar hann svarar með lauf- gosa og styttingi, verður að fara í hjartað áður en spaða- ás er tekinn. Einfaldasta leiðin er þó sú að spila hjart- anu strax – taka ÁK og trompa. Spila svo spaðaás og spaða. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson Í FYLGIBLAÐI Frétta- blaðsins, sem nefnist „allt“, 14. þ.m., segir frá sérstökum skóla með ofangreindu nafni. Fyrir- sögnin var þessi: „Streitu- skólinn kippir skapinu í lag.“ Þessi grein minnti mig á það, að snemma á ferli þessara pistla í Mbl. (1990) var birtur pistill undir heitinu Streita – streittur. Tilefnið var það, að erlendu no. stress og lo. stressaður voru farin að smeygja sér inn í tungu okkar og þá þegar allmikið notuð, bæði í mæltu og rit- uðu máli, og er reyndar svo enn í dag. Jafnvel hafði stress fengið sess í OM (1983), en að sjálf- sögðu merkt sem vont mál og óæskilegt. Áður létu menn sér nægja, að e - r væri með þreytu eða þreyttur, þegar hann hafði unnið mikið. Bent var á, að fyrir er í íslenzku no. streita og m. a. haft um þreytu eða lúa. Lægi því beint við að íslenzka no. stress með no. streita. og láta það merkja sama og (tauga)þreytu eða lúa sök- um langvarandi áreynslu, eins og það er skýrt í OM. Hér fengjum við þá í stað- inn orð, sem minnir mjög á stressið, þar sem það hefst einmitt á sama hljóðasambandi str- Í sama pistli var bent á, að í stað lo. stressaður, færi vel á, að nota lo. streittur, sbr. lo. þreyttur. Þá mætti segja sem svo: Ég er (hálf)streittur þessa stundina. Ég held þetta orðalag sé öllum auðskilið. Má í þessu sambandi minna á no. staðall, sem er ekki nema hálfrar aldar gamalt í málinu og kemur fyrir erlenda orðið stand- ard og samsetningar af því orði. Hefur áður verið vik- ið að því snjalla nýyrði í pistlum þessum (2002) og samsetningum þess. Von mín er sú, að no. streita ásamt ýmsum samsetn- ingum þess orðs og eins lo. streittur festist jafnræki- lega í sessi í máli okkar og no. staðall og samsetning- ar þess hafa gert. Sími 557-4977 og tölvufang jaj- @simnet.is – J.A.J. ORÐABÓKIN Streituskóli 1. e4 e6 2. d3 d5 3. Rd2 c5 4. Rgf3 Rc6 5. g3 g5 6. Bg2 h6 7. 0-0 Bg7 8. exd5 exd5 9. He1+ Rge7 10. Rb3 b6 11. c3 a5 12. a4 Bf5 13. d4 c4 14. Rbd2 0-0 15. h4 g4 16. Rh2 Dd7 17. b3 cxb3 18. Dxb3 Hfb8 19. Ba3 Be6 20. Rhf1 Rf5 21. Re3 Rxe3 22. Hxe3 Hc8 23. Hae1 Hab8 Staðan kom upp á meist- aramóti Pétursborgar sem lauk fyrir skömmu. Valery Loginov (2.516) hafði hvítt gegn Genrikh Chepukiatis (2.413). 24. Hxe6! fxe6 25. Hxe6 Dxe6 einnig hefði 25... Hd8 tapað vegna 26. Hd6. 26. Bxd5 Dxd5 27. Dxd5+ Kh8 28. Re4 Rd8 29. Be7 Rc6 30. Bf6 Bxf6 31. Rxf6 Kg7 32. Rh5+ og svartur gafst upp. 2. mótið í bikarsyrpu Eddu verður haldið í kvöld á skákþjón- inum ICC. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik.        MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ætt- armót og fleira les- endum sínum að kostn- aðarlausu. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569- 1329, eða sent á net- fangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík MEÐ MORGUNKAFFINU Ein smámistök, og allt verður vit- laust … Einkenn- andi fyrir karlmenn! KIRKJUSTARF Háteigskirkja. eldri borgarar Eldri borgar- ar. Félagsvist á morgun í Setrinu kl. 13. Skráning í síma 511 5405. Árbæjarkirkja. Kl. 20 Lúkas, æskulýðs- félag Árbæjarsafnaðar, með fundi í safn- aðarheimilinu. Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20. Tek- ið er við bænarefnum alla virka daga frá kl. 9–17 í síma 587 9070. Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir 9. og 10. bekk kl. 20. Mánudagur: Æskulýðsfélag fyrir 8. bekk kl. 20. Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld sunnudag kl. 19.30. Krossinn. Almenn samkoma að Hlíða- smára 5 kl. 16.30. Allir velkomnir. Fríkirkjan KEFAS, Vatnsendabletti 601. Í dag er samkoma kl. 14. Sigrún Einarsdótt- ir talar. Lofgjörð og fyrirbænir. Tvískipt barnastarf fyrir 1–6 ára og 7–12 ára börn á samkomutíma. Kaffi og samfélag eftir samkomu. Allir velkomnir. Nánari upplýs- ingar á www.kefas.is Fíladelfía. Brauðsbrotning kl. 11.00. Ræðumaður Omar Mando frá V-Afríku. Al- menn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Hafliði Kristinsson. Gospelkór Fíladelfíu leiðir í söng. Fyrirbæn í lok samkomu. Barnakirkja á sama tíma. Allir hjartanlega velkomnir. Miðvikudaginn 21. apríl kl. 18.00–20.00 er fjölskyldusamvera með léttri máltíð. Allir hjartanlega velkomnir. Bænastundir alla virka morgna kl. 06.00. filadelfia@gospel.is www.gospel.is Safnaðarstarf Agi og uppeldi í Seltjarnarneskirkju ÞÓRKATLA Aðalsteinsdóttir sál- fræðingur flytur erindi á for- eldramorgni í Seltjarnarneskirkju nk. þriðjudag 20. apríl kl. 10. Er- indið ber yfirskriftina „Agi og upp- eldi“ eitthvað sem allir foreldrar þurfa að eiga við á degi hverjum. Foreldramorgnar eru í Seltjarn- arneskirkju alla þriðjudaga milli kl. 10 og 12. Við bjóðum foreldra hjartanlega velkomna í spjall og kaffi. Starfsfólk Seltjarnarneskirkju. Kvöldmessa í Grensáskirkju Í KVÖLD, sunnudagskvöldið 18. apríl, verður kvöldmessa í Grens- áskirkju og hefst hún kl. 20. Form kvöldmessunnar er afar einfalt með áherslu á létta söngva, fyrirbæn og lofgjörð. Altarisganga er í messunni en töluðu máli stillt í hóf. Kirkjukórinn leiðir söng en org- anistinn, Árni Arinbjarnarson, leik- ur undir á píanó.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.