Morgunblaðið - 18.04.2004, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 18. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Við þurfum ekki að hafa stórar áhyggjur af þessu hryðjuverkaliði eftir að við hervæddumst.
Opið hús Viðskiptaháskólans á Bifröst
Erum og viljum
vera lítill skóli
Opið hús verður íViðskiptaháskól-anum á Bifröst í
Norðurárdal á sumardag-
inn fyrsta, fimmtudaginn
22. apríl, frá kl. 13 til 17.
Að sögn Hólmfríðar
Sveinsdóttur verkefnis-
stjóra eru allir velkomnir í
kaffi og vöfflur og „alveg
gráupplagt að nota daginn
til að renna í Borgarfjörð-
inn og skoða uppbygg-
inguna á Bifröst“.
Til hvers opið hús
Hólmfríður?
„Tilgangurinn er fyrst
og fremst að bjóða fólki til
okkar í Borgarfjörðinn og
kynna fyrir áhugasömum
allt það nám sem við höf-
um upp á að bjóða og þá
góðu aðstöðu sem hér er.“
Hvað geturðu sagt okkur um
það sem kynnt verður á opnu húsi
á Bifröst?
„Þar munum við kynna námið
og aðstöðuna á Bifröst. Við-
skiptaháskólinn á Bifröst er eini
íslenski háskólinn sem sérhæfir
sig í viðskiptamenntun á breiðum
grunni. Við erum með tvær há-
skóladeildir, viðskipta- og lög-
fræðideild. Við vorum fyrsti ís-
lenski skólinn, fyrir utan HÍ, til að
bjóða upp á nám í lögfræði og er-
um eini skólinn sem kennir við-
skiptalögfræði. Við erum líka með
frumgreinadeild sem er nokkurs
konar þrep upp í háskólanám fyr-
ir einstaklinga sem ekki hafa lok-
ið stúdentsprófi en hafa talsverða
starfsreynslu. Og ekki má gleyma
meistaranáminu okkar. Fólki
gefst tækifæri til að skoða há-
skólaþorpið undir leiðsögn; nem-
endagarðana, leikskólann, versl-
unina, kaffihúsið sem og alla aðra
aðstöðu.“
Er eitthvað um skemmtilegar
nýjungar?
„Já það eru alltaf nýjungar í
boði, enda skólinn í örri þróun
þessi misserin og árin. Skólinn
hefur alla tíð verið í fararbroddi
skólamála hérlendis og hefur
starfsemi hans því ávallt ein-
kennst af sóknarbaráttu og fram-
sækni. Helstu nýjungarnar okkar
núna felast í meistaranáminu. Við
hófum kennslu á meistarastigi við
viðskiptadeild sl. sumar. Boðið er
upp á tvær gráður við deildina á
þessu sviði: MS-nám í viðskipta-
fræði fyrir fólk sem hefur
grunngráðu í viðskiptatengdum
fögum og MA-nám í hagnýtum
hagvísindum fyrir fólk sem hefur
fyrstu háskólagráðu í hvaða há-
skólagrein sem er. Hægt er að
velja mismunandi leiðir. Innan
MA-námsins má nefna Evrópu-
fræðival, menningar- og mennta-
stjórnunarval, stjórnsýslufræði-
val og umhverfis- og auðlinda-
hagfræðival. Innan MS-námsins
er hægt að velja á milli fjármála-,
nýsköpunar- og frumkvöðlafræða
og stjórnunar.
Í sumar hefst svo meistaranám
við lögfræðideildina. Þar verður
boðið upp á nám á tveimur svið-
um, ML-nám í lögfræði
og MS-gráðu í við-
skiptalögfræði. Í báð-
um tilvikum er um að
ræða meistaranám
sem er sniðið að bak-
grunni nemenda með BS-gráðu í
viðskiptalögfræði eða sambæri-
legt nám.
Í meistaranámi í lögfræði er
markmiðið að þjálfa nemendur
sem vilja hasla sér völl sem mál-
flytjendur á meðan meistaranám í
viðskiptalögfræði hefur sterkari
einkenni fjármála- og viðskipta-
greina. Innan viðskiptalögfræð-
innar er svo boðið upp á sérhæf-
ingu á sviði skattamála, stjórn-
unar og fjármála.
Meistaranám við skólann er
þannig skipulagt að unnt er að
stunda það með vinnu eða sem
fullt nám og er það blanda af stað-
námi sem fer fram að sumarlagi
og fjarnámi.“
Hver er helsta sérstaða Bif-
rastar?
„Við erum og viljum vera lítill
háskóli sem getur boðið nemend-
um upp á góða og persónulega
kennslu. Það hefur líka sýnt sig
að brottfall hjá okkur er afar lítið,
ekki nema 4% fyrir þetta skólaár.
Kampusinn, eða háskólaþorpið, er
líka ótvírætt okkar sérstaða og 85
ára farsæl saga skólans vinnur
svo sannarlega með okkur. Ekki
má heldur gleyma að við erum
mjög alþjóðlegur skóli. Við kenn-
um hluta af náminu á ensku og
um 40% af nemendum okkar taka
hluta af námi sínu erlendis við
fjölmarga samstarfsháskóla Bif-
rastar í Evrópu, Norður-Amer-
íku, Kína og Japan.“
Af því að þetta er skóli í
sveit … er mikið sótt í hann eða
setja ungmenni það fyrir sig að
fara út fyrir borgarmörkin til
náms?
„Við erum kampus-háskóli í um
100 km fjarlægð frá miðborg
Reykjavíkur. Í háskólaþorpinu
Bifröst búa og starfa um 600
manns og hérna er öll dagleg
þjónusta. Ég tel að það styrki
stöðu okkar frekar en hitt að vera
í útjaðri Reykjavíkur. Fólk setur
það síður en svo fyrir sig að flytj-
ast á Bifröst, enda er hér öll að-
staða til náms til fyrirmyndar.
Um 60% nemenda okkar koma af
höfuðborgarsvæðinu sem endur-
speglar búsetudreif-
ingu á landinu.“
Það eru því bjartar
horfur hjá Viðskiptahá-
skólanum á Bifröst?
„Já, við lítum afskap-
lega björtum augum til framtíð-
arinnar. Við erum líka mjög sátt
við nútíðina og stolt af fortíðinni.
Við teljum okkur hafa alla mögu-
leika á að vaxa og dafna. Ég vil að
lokum hvetja alla þá sem eru í
námshugleiðingum sem og aðra
landsmenn að koma í heimsókn til
okkar á Bifröst sumardaginn
fyrsta og kynnast því sem við höf-
um upp á að bjóða.“
Hólmfríður Sveinsdóttir
Hólmfríður Sveinsdóttir fædd-
ist á Akranesi 1967. Stúdent af
íþróttabraut frá Fjölbrautaskóla
Vesturlands 1988. BA í stjórn-
málafræði frá HÍ árið 1994 og
með meistaragráðu í opinberri
stjórnsýslu frá Katholieke Uni-
versiteit Leuven 2003. Er verk-
efnisstjóri rannsókna og upplýs-
ingamála við Viðskiptaháskól-
ann á Bifröst.
Við kennum
hluta af nám-
inu á ensku
UM 15% nemenda í framhaldsskól-
um hurfu frá námi milli skólaáranna
2002 og 2003, að því er fram kemur í
skriflegu svari menntamálaráð-
herra, Þorgerðar K. Gunnarsdóttur,
við fyrirspurn Björgvins G. Sigurðs-
sonar, þingmanns Samfylkingarinn-
ar. Meðal karla var brottfallið á
þessu tímabil 17,1% en meðal kvenna
var það 13,2%.
Í svarinu er minnt á að sveigjan-
legt og opið skólakerfi hér á landi
geri nemendum kleift að hverfa
tímabundið frá námi. „Nemendur
vita að skólinn stendur þeim opinn ef
þeir kjósa að snúa sér að námi á nýj-
an leik. Oft er um að ræða nemendur
sem af eðlilegum ástæðum kjósa að
hverfa frá námi.“
Í svarinu kemur einnig fram að
hlutfallstölur brottfalls fyrir ein-
staka skóla séu mismunandi; allt frá
því að vera engar eða mjög lágar upp
í það að vera mjög háar. Brottfall
nemenda úr Borgarholtsskóla á
þessu tímabili var t.d. 24,3%. Þá var
brottfall úr Fjölbrautaskólanum við
Ármúla 20,8% og úr Iðnskólanum í
Hafnarfirði, 28,3% svo dæmi séu
nefnd. Ekkert brottfall var hins veg-
ar úr Hússtjórnarskólann á Hall-
ormsstað, Listdansskóla Íslands og
Myndlistarskóla Reykjavíkur.
Heldur meira brottfall
hjá konum en körlum