Morgunblaðið - 18.04.2004, Blaðsíða 9
Áskorun til
ríkisstjórnarinnar
Undirrituð samtök styðja heils hugar áform ríkisstjórnarinnar um að draga úr skattheimtu af matvælum.
Samtökin vilja þó benda á leið í þeim efnum sem þau telja skynsamlega. Hún felst í því að setja öll matvæli
í sama þrep virðisaukaskattsins og fella af þeim vörugjöld samtímis því að ákveðið verður hve mikið lækka
eigi núverandi 14% virðisaukaskatt sem lagður er á flestar tegundir matvæla.
Virðisaukaskattur er í tveimur þrepum, 14% og 24,5%. Samkvæmt gildandi reglum eru flest matvæli
í 14% þrepinu en alls ekki öll. Ávaxtasafar, kolsýrt vatn, maltöl, kökur, sætt kex, kakóduft, ídýfur,
gosdrykkir og súkkulaði eru dæmi um matvæli sem bera 24,5% virðisaukaskatt.
Aðrir skattar, sem ekki eru eins vel þekktir, eru vörugjöld. Þau eru lögð á marga flokka matvæla. Hér má
nefna kaffi, te, súpur, sultur, síróp, ávaxtasafa, súkkulaði, rjómaís, sælgæti og gosdrykki með og án sykurs.
Gjaldflokkar vörugjaldsins eru fjölmargir og spanna frá 8 - 400 kr. á hvert kíló eða lítra. Sum þessara matvæla
eru í hærra þrepi virðisaukaskattsins en önnur í því lægra. Vörugjöld af matvælum eru varlega áætluð um
1,5 milljarðar króna. Á vörugjöldin leggst síðan virðisaukaskattur, ýmist 14% eða 24,5%.
Það væru mikil mistök, og gagnstætt alþjóðlegri þróun, að auka enn á misrétti í skattlagningu matvæla
með því að nota ekki tækifærið við fyrirhugaða breytingu og samræma álagningu virðisaukaskatts og
afnema vörugjöld. Þessi leið hefur nýlega verið farin í Svíþjóð. Þar bera öll mætvæli sama virðisaukaskatt
en vörugjöld hafa verið felld niður.
Undirrituð samtök þeirra sem framleiða, flytja inn, dreifa og selja matvæli skora á stjórnvöld að grípa
tækifærið og hverfa frá tvöföldu kerfi neysluskatta á matvæli.
Samtök iðnaðarins
SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu
Samtök ferðaþjónustunnar
Félag íslenskra stórkaupmanna
Samtök atvinnulífsins