Morgunblaðið - 18.04.2004, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.04.2004, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 18. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Vornámskeið Skógræktarfélags Íslands SKÓGRÆKT ÁHUGAMANNSINS NÁMSKEIÐ BJÖRNS JÓNSSONAR FYRRV. SKÓLASTJÓRA Námskeið sniðið að þörfum þess sem vill sjá árangur ræktunarinnar fljótt og vel. Námskeið Björns Jónssonar fyrrv. skólastjóra Hagaskólans hafa verið fjölsótt undanfarin ár. Hann fjallar um ýmsa þætti sem eru sérlega hagnýtir fyrir áhugafólk um skógrækt, ekki síst sumar- húsaeigendur sem vilja ná góðum árangri fljótt og vel. „Það sem skiptir okkur máli er að við setjum okkur markmið og vinnum skipulega. Þá mun árangur skila sér fljótt og vel.“ Námskeiðin verða í sal Ferðafélagsins, Mörkinni 6: A. 20. og 21. apríl, kl. 20.00-22.30. B. 28. og 29. apríl, kl. 20.00-22.30. Námskeiðsgjald er kr. 5.900 Félagar í skógræktarfélögum fá afslátt og greiða kr 4.900 Hjón fá 10% afslátt Innifalin eru vegleg námskeiðsgögn með handhægum leiðbeiningum. Þátttakendafjöldi er takmarkaður á hvert námskeið. Skráning í síma: 551 8150 eða á netfangið: skog@skog.is LANDSBANKI Íslands annast fjár- málaþjónustu í Flugstöð Leifs Ei- ríkssonar næstu sjö árin. Bankinn mun auka þjónustu við flugfarþega og aðra viðskiptavini á flugvallar- svæðinu. Flugstöð Leifs Eiríkssonar efndi til forvals um aðgang og afnot af verslunar- og þjónusturýmum í flug- stöðinni fyrir tæpum tveimur árum. Forvalið var kært vegna verslunar- hlutans en í haust fékkst leyfi til að halda áfram með fjármálaþjón- ustuna, að sögn Höskuldar Ásgeirs- sonar, framkvæmdastjóra fyrirtæk- isins. Umsóknir bárust frá fjórum fjármálafyrirtækjum og var tilboð Landsbankans talið hagstæðast. Skrifað var undir samninga við bankann við athöfn í flugstöðinni síð- astliðinn föstudag. Hraðbönkum fjölgað Ekki fengust upplýsingar um verðgildi samningsins en Ingólfur Guðmundsson, framkvæmdastjóri hjá Landsbanka Íslands, sagði að bankinn hefði lagt mikla áherslu á að ná þessum samningi til að geta áfram verið aðalbanki þeirra sem koma til landsins og fara frá því. Samningurinn tekur til reksturs banka- og gjaldeyrisþjónustu í komusal á 1. hæð og gjaldeyrisaf- greiðslu á frísvæðinu á annarri hæð. Þessi þjónusta verður efld, að sögn Ingólfs. Þannig verður flugfarþeg- um gert kleift að panta gjaldeyri fyr- irfram hjá þjónustuveri bankans og fá hann afhentan í flugstöðinni við brottför. Einnig verður gjaldeyris- hraðbönkum fjölgað og aukin verður þjónusta við endurgreiðslu á virðis- aukaskatti til erlendra ferðamanna. Höskuldur Ásgeirsson kvaðst ánægður með að samningar hafi náðst við Landsbankann um stór- aukna þjónustu í flugstöðinni. Aukin fjármálaþjónusta í Flugstöð Leifs Eiríkssonar Samið við Landsbank- ann til næstu sjö ára MÁR Haraldsson, bóndi á Háholti og odd- viti Skeiða- og Gnúp- verjahrepps, lést á fimmtudag, 50 ára að aldri. Már fæddist 24. ágúst árið 1953 á bæn- um Stóru-Mástungu í Gnúpverjahreppi, son- ur Haraldar Bjarna- sonar, fv. bónda þar, og Ragnheiðar Haralds- dóttur, húsfreyju. Þau eru nú búsett í Hvera- gerði og lifa son sinn. Að lokinni hefðbund- inni skólagöngu fór Már í Menntaskólann á Laugarvatni og útskrifaðist þaðan sem stúdent árið 1973. Eftir það vann hann ýmis störf, lengst af í jarðvinnu hjá Loft- orku, og stofnaði síðar verktakafyr- irtækið Hlaðir ásamt föður sínum. Már sneri sér að búskap árið 1978 á búi foreldra sinna, Stóru-Mástungu, en flutti að bænum Háholti árið 1980 eftir að hafa kynnst eftirlifandi eig- inkonu sinni, Margréti Steinþórsdóttur, sem bjó þar fyrir. Már starfaði lengi að sveitarstjórnarmálum, var í hreppsnefnd Gnúpverjahrepps í tólf ár og varð oddviti sam- einaðs Skeiða- og Gnúpverjahrepps árið 2002. Hann leiddi meirihluta hrepps- nefndar á umbrotatím- um þegar áform Landsvirkjunar um Norðlingaölduveitu voru til umfjöllunar. Barðist Már gegn þeim framkvæmd- um, alveg fram á síðasta dag. Auk bústarfa og hreppsnefndarsetu átti Már sæti í Þjórsárveranefnd og ýms- um nefndum á vegum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Margrét og Már eignuðust saman tvö börn en fyrir átti hann tvo syni og Margrét átti áður þrjú börn, sem Már gekk í föðurstað. Andlát MÁR HARALDSSON FORSETI Eistlands er væntanleg- ur í opinbera heimsókn hingað til lands í byrjun maí ásamt föruneyti. Skrifstofa forseta Íslands staðfesti þetta í samtali við Morgunblaðið. Arnold Rüütel, forseti Eistlands, verður hér á landi dagana 4. til 5. maí nk. Ekki er ljóst á þessari stundu hverjir verða í föruneyti hans. Forseti Eistlands til Íslands BÆJARSTJÓRN Grindavíkur ákvað á hátíðarfundi sem haldinn var í gær í tilefni af 30 ára afmæli bæjarfélagsins að heiðra Guðberg Bergsson með því að kjósa hann heiðursborgara Grindavíkur. Einnig var ákveðið að veita þremur félögum úr björgunarsveitinni Þorbirni sérstaka við- urkenningu vegna björgunar skipverja af Sigurvini í janúar síð- astliðnum. Forseti Ís- lands sæmdi í gær björgunarmennina af- reksmerki hins ís- lenska lýðveldis. Í samþykkt bæjar- stjórnar segir að á þrjátíu ára afmæli Grindavíkurbæjar sé tilefni til að heiðra Guðberg Bergsson sem náð hafi einstökum árangri á sviði bók- mennta og borið hróður Grindavík- ur og Íslands víða um heim. Guð- bergur er fæddur og alinn upp í Grindavík, þar dvelur hann oft í húsi sínu og hefur ávallt haldið tengslum við staðinn og íbúa hans. Í bókun bæjarstjórnar er þess einnig getið að í sögum Guðbergs séu oft vísanir til æskuslóða hans. Við hátíðahöldin, sem fram fóru í Íþróttamiðstöð Grindavíkur í gær, laugardag, afhenti Hörður Guð- brandsson, forseti bæjarstjórnar, Guðbergi skjal undirritað af öllum bæjarfulltrúum til staðfestingar nafnbótinni. Við sömu athöfn voru björgunarsveit- armennirnir Björn Andrésson, Hlynur Helgason og Vil- hjálmur Lárusson heiðraðir. Annars veg- ar með því að forseti Íslands sæmdi þá af- reksmerki hins ís- lenska lýðveldis og hins vegar með við- urkenningu bæjar- stjórnar. Afreks- merkið er veitt vegna björgunar úr lífsháska og var síðast veitt þyrlusveit Varnarliðs- ins árið 2001 og þar áður áhöfn björgunarþyrlu Land- helgisgæslunnar. Sönnuðu gildi sveitarinnar Björgunarsveitarmennirnir voru á Hjalta Frey, báti björgunarsveit- arinnar Þorbjörns, þegar þeir björguðu á frækilegan hátt tveimur skipverjum af Sigurvini GK 61 austan við innsiglinguna til Grinda- víkurhafnar í janúar síðastliðinum. Í tillögu sem Ómar Jónsson, for- maður bæjarráðs, flutti og sam- þykkt var í bæjarstjórn kemur fram það álit að með þessum björgunar- aðgerðum hafi félagar í björgunar- sveitinni enn einu sinni sannað gildi sveitarinnar og sýnt fram á hversu nauðsynlegt það er að eiga slíka björgunarsveit. Af þessu tilefni ákvað bæjarstjórnin einnig að veita björgunarsveitinni einnar milljónar kr. styrk til tækjakaupa. Guðbergur Bergsson kjörinn heiðursborgari Grindavíkur Morgunblaðið/RAX Þrír félagar Björgunarsveitarinnar Þorbjörns voru sæmdir heiðursmerki íslenska lýðveldisins og fengu þeir einnig viðurkenningu bæjarstjórnar. Var það fyrir björgun tveggja skipverja af Sigurvini í janúar. Hér eru þeir Björn Óskar Andrésson, Vilhjálmur Jóhann Lárusson, Hlynur Sæberg Helgason, Agnar Smári Agnarsson skipstjóri og Birkir Agnarsson, for- maður björgunarsveitarinnar, en myndin er tekin eftir björgunina í vetur. Guðbergur Bergsson Björgunarsveitarmenn heiðraðir MAÐUR um þrítugt slasaðist á fæti í vinnuslysi í álveri Alcan í Straumsvík um klukkan hálffjög- ur aðfaranótt laugardags. Maður- inn var að vinna í steypuskála við að hella málmi í ofn þegar slettist úr ofninum yfir innanverðan fót mannsins og upp á rist. Kallað var á sjúkrabíl og mað- urinn fluttur á slysadeild Land- spítala – háskólasjúkrahúss í Fossvogi, en læknir í sjúkrabíln- um taldi meiðsli mannsins ekki al- varleg. Á slysadeildinni var tekin ákvörðun um að senda hann til sérfræðings í brunasárum, segir Hrannar Pétursson, upplýsinga- fulltrúi Alcan. Talið er að maður- inn muni ná sér að fullu. Brenndist á fæti í álverinu í Straumsvík TONY Pullis, framkvæmdastjóri Stoke, er á leiðinni til Íslands í fyrsta sinn til þess að fara fram á meira fé frá hluthöfum félagsins til kaupa á nýjum leikmönnum, sagði í frétt The Sentinel í gær. Gunnar Gíslason, stjórnarformað- ur Stoke, sagði í samtali við Morg- unblaðið að Pullis kæmi hingað til lands eftir viku og að hann mundi funda með hluthöfum og stjórn Stoke á mánudaginn í næstu viku. Gunnar segir það vera mjög gott að fjárfestar fái að heyra milliliða- laust hvaða möguleika Pullis telji vera á að koma liðinu í úrvalsdeildina og hvað hann álíti þurfa til að gera þann möguleika að veruleika. Spurður hvort til standi að auka hlutafé Stoke segir Gunnar erindi Pullis fyrst og fremst vera að kynna stöðu mála út frá knattspyrnulegum sjónarmiðum. „Hann er dæmdur af árangri á vellinum og eftir því sem hann hefur meira fé því líklegra er að sá árangur verði betri. Við fjárfest- arnir erum dæmdir eftir árangri í rekstrinum og þarna geta auðvitað hugsanlega orðið átök. Við erum núna að vinna að fjárhagsáætlun fyr- ir næstu leiktíð og koma hans hingað er þáttur í þeim undirbúningi, þ.á m að sjá hvernig fjárstreymið verður til eða frá Íslandi eða öllu heldur Lúxemborg því fyrirtækið er skráð þar,“ segir Gunnar. Fram- kvæmda- stjóri Stoke til Íslands FJÖLMENNT lið lögreglunnar í Reykjavík handtók fjóra menn á heimili þeirra í eystri hluta borgar- innar vegna gruns um að þeir hefðu átt þátt í þjófnaði úr bílum undanfar- ið. Þegar lögreglan kom að heimili mannanna um miðnætti á föstudags- kvöld var ljóst að margt fólk væri innandyra og því þótti rétt að senda fleiri lögreglumenn á vettvang. Mennirnir biðu yfirheyrslu í gær- morgun, og ekki var orðið ljóst hvort eitthvað hefði fundist við húsleit á heimili mannanna. Fjórir í haldi vegna þjófnaða ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.