Morgunblaðið - 18.04.2004, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 18.04.2004, Blaðsíða 33
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. APRÍL 2004 33 S k ó g a r h l í › 1 8 • 1 0 5 R e y k j a v í k S í m i 5 9 5 1 0 0 0 • F a x 5 9 5 1 0 0 1 • w w w . h e i m s f e r d i r . i s ævint‡ri Heimsfer›ir kynna nú glæsilegar haustfer›ir sínar ári› 2004. Vi› fljúgum beint til vinsælustu borga Evrópu og bjó›um frábærar fer›ir me› sérflugi til Karíbahafsins. N‡r áfangasta›ur a› flessu sinni er Kraká, fegursta borg Póllands. Kraká var fyrrum a›setur konunga og er almennt talin me› fallegustu borgum Evrópu, ásamt Prag og Búdapest. Kynntu flér glæsilegt fer›aúrval og trygg›u flér sæti í eftirsóttustu fer›irnar strax. Kynntu flér bækling Heims- fer›a um haustferðir Bæklingurinn er kominn! N O N N I O G M A N N I IY D D A • N M 1 1 7 7 2 /s ia .is Haust Heimsferða Prag 25.550kr. Búdapest 28.550kr. Barcelona 36.590kr. Kraká 29.950kr. Jamaica 89.990kr. Kúba 89.990kr. EKKI er víst að margir Íslend- ingar, sem ekki eru komnir á miðj- an aldur og þar yfir kannist við nafn danska blaðamannsins og rit- stjórans Bent A. Koch. Fremur þremur til fjórum áratugum var nafn hans hins vegar vel kunnugt flestum Íslendingum sem komnir voru til vits og ára, hann var hér vinmargur og aufúsugestur og flestir töldu þjóðina standa í nokk- urri þakkarskuld við hann. Bent A. Koch hefur víða komið við um dagana og eftir lestur ævi- minninga hans, sem út komu á næstliðnu ári, verður ekki dregin önnur ályktun en sú, að hann hafi lifað óvenju viðburðaríku lífi. Hann fæddist á Amákri árið 1928 og tók kornungur virkan þátt í starfsemi dönsku andspyrnuhreyfingarinnar gegn Þjóðverjum á árum síðari heimsstyrjaldar. Að stríðinu loknu gerðist hann blaðamaður og síðan ritstjóri Kristeligt Dagblad. Þar starfaði hann um árabil en gerðist síðan forstöðumaður Ritzau-frétta- stofunnar og enn síðar ritstjóri Fyns Stiftstidende. Hann naut mik- ils álits í dönskum blaðaheimi, kynntist mörgum fremstu stjórn- málamönnum Dana á eftir- stríðsárunum persónulega og gegndi margvís- legum trúnaðar- störfum. Hér á landi var Bent A. Koch kunnastur fyrir afskipti sín af handritamálinu. Hann var í hópi þeirra manna danskra sem hófu baráttu fyrir því að Danir skiluðu Íslendingum hand- ritunum á sínum tíma og fylgdi því máli eftir allt til loka. Frá þeirri baráttu segir gjörla á þessari bók og kemur þar ýmislegt fram, sem ekki mun vera á allra vitorði. Í handritamálinu kynntist Koch mörgum Íslendingum og segir frá kynnum sínum af þeim og sam- starfinu við þá. Eru þær lýsingar margar fróðlegar, þótt ekki séu þær margorðar. En Koch lét sig fleiri málefni nokkru skipta en ritstjórnarstörf og handritamálið. Hann varð einna fyrstur danskra blaðamanna til að vekja athygli á málstað Palestínu- manna og studdi baráttu þeirra með ráðum og dáð. Þá var hann lengi framarlega í Grænseforening- en svonefndu. Þessi minningabók er einkar læsileg og skrifuð af mikill einlægni og hispursleysi. Höfundurinn grein- ir frá málefnum eins og þau komu honum fyrir sjónir, segir kost og löst á ýmsum samferðamönnum og alltaf er stutt í gamansemina. Í bókarlok er athyglisverður kafli, sem ber yfirskriftina „At være dansk“, og má kallast eins konar uppgjör höfundar við þjóðerni sitt, og þó ekki síst vandamál Slésvíkur, sem að hans dómi hefur enn ekki verið leyst. Þetta er fjörlega skrifuð bók og fróðleg um margt. Æviminningar Íslandsvinar BÆKUR Ævisaga Bent A. Koch: Erindringer. Syddansk Uni- versitetsforlag, Odense 2003. 242 bls., myndir. MIN TID Bent A. Koch Jón Þ. Þór Háskólaútgáfan hefur gefið út bókina Miðjan er undir iljum þín- um – héraðs- fréttablöð og nærfjölmiðlun á nýrri öld, eftir Birgi Guðmunds- son. Umræðan um nauðsyn fjölbreytni í fjölmiðlum hefur verið kröftug á Vesturlöndum undanfarin ár og magnast í réttu hlutfalli við vöxt einsleitninnar, sem fylgir hnattvæð- ingu og sívaxandi kröfum um rekstr- arlega hagræðingu. Á Íslandi hefur þessi umræða náð sér á strik síð- ustu misserin, en hefur nær ein- göngu miðast við rekstur fjölmiðla á landsvísu. Þar til nú hefur ekkert verið fjallað um þann fjölbreytileika sem felst í fjölmiðlum sem einbeita sér að nærsamfélaginu og binda sig við tiltekin landsvæði eða hér- uð. Í þessu riti opnar höfundur hins vegar umræðu um mikilvægi slíkra fjölmiðla fyrir þau samfélög sem þeir starfa í, kortleggur þessa flóru og birtir rannsóknarniðurstöður. Hann spyr sérstaklega um mik- ilvægi héraðsfréttablaða og nærfjöl- miðla fyrir samheldni og uppbygg- ingu staðbundinna samfélaga eða byggðarlaga. Slíkar spurningar eru vel þekktar í jafnt fræðilegri sem al- mennri umræðu erlendis, þó lítið hafi borið á þeim í íslenskri byggðaumræðu. Birgir Guðmundsson lauk mast- ersprófi í stjórnmálafræði frá Uni- versity of Manitoba 1984 og BA hon.-prófi í stjórnmálafræði og sögu við University of Essex árið 1980. Hann starfaði sem blaðamaður, fréttastjóri og ritstjóri á dagblöðum frá 1985–2002, en kennir nú stjórnmálafræði, stjórnun og fjöl- miðlafræði við Háskólann á Ak- ureyri. Birgir er ritstjóri Blaða- mannsins, fagrits Blaðamanna- félags Íslands og heimasíðu félagsins, press.is. Nærfjölmiðlar HS Bólstrun ehf. www.bolstrun.is/hs M EI ST AR AF ÉLAG BÓLSTRA R A STOFNAÐ 1928 Fréttir á SMS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.