Morgunblaðið - 18.04.2004, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.04.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 SUNNUDAGUR 18. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ 102 HEIMILISLAUSIR Alls eru 102 einstaklingar skil- greindir heimilislausir á Íslandi í dag, þar af eru 69 sem kljást við fíkn eða geðfötlun, en 33 eru heim- ilislausir af öðrum orsökum. Þeir sem reynslu hafa af heimilisleysi og talsmenn samtaka sem vinna í þeirra þágu eru sammála um að viðbótarúrræða sé þörf fyrir heim- ilislaust fólk í neyslu. Samið um raforku Skrifað var undir samninga um öflun raforku frá Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suð- urnesja til stækkunar Norðuráls á Grundartanga úr 90 í 180 þúsund tonn. Þetta er í fyrsta sinn sem önnur fyrirtæki en Landsvirkjun gera samning um orkusölu til stór- iðju af þessari stærðargráðu. Erfitt að st jórna stofninum Erfitt ef ekki ómögulegt er að stjórna stofnstærð villiminks, að mati sérfræðings. Hann telur að til að halda minknum í skefjum sé ár- angursríkast að gera mesta veiði- átakið á veturna og undir vor þeg- ar stofninn er minnstur. Flest bestu minkaóðulin eru setin af af- komendum minka sem sluppu árið 1932 og árin þar á eftir. Aliminkar í dag eru minni en þeir villtu, og eru lífslíkur þeirra hverfandi í náttúrunni. Blair í trekar staðfestu Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hét því í gær að ríkin sem standa að hernámi Íraks und- ir forustu Bandaríkjamanna mundu „standa það verkefni af sér“. Sagðist hann, daginn eftir fund sinn með George W. Bush Bandaríkjaforseta, skynja „algjöra staðfestu“ hvað varðar hið áform- aða valdaframsal í hendur bráða- birgðastjórnar Íraka í sumar. Tveir japanskir gíslar sem eftir voru í haldi mannræningja í Írak voru látnir lausir í gær, en enn eru um 40 manns af 12 þjóðernum taldir í haldi íraskra uppreisnar- manna. Mjólkurkvótinn of hár Guðni Ágústsson landbún- aðarráðherra sagði á aðalfundi Landssambands kúabænda að verð á mjólkurkvóta væri orðið allt of hátt og breytinga væri þörf. Vilji væri til þess að gera góðan samn- ing við kúabændur. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Hugvekja 63 Hugsað upphátt 49 Myndasögur 58 Listir 28/35 Bréf 58/59 Af listum 28 Dagbók 60/61 Umræðan 38/39 Auðlesið efni 62 Forystugrein 36 Leikhús 64 Reykjavíkurbréf 36 Fólk 64/69 Skoðun 40/41 Bíó 66/69 Minningar 42/47 Sjónvarp 70/71 Þjónusta 51 Veður 71 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is ÍSLENSKUR arkítekt í Þýskalandi, Gunn- laugur Stefán Baldursson, hefur unnið tvær hönnunarsamkeppnir á undanförnum mán- uðum. Skömmu fyrir síðustu áramót vann Gunnlaugur samkeppni um hönnun borg- arkjarna í bænum Olpe um 50 kílómetra aust- ur af Köln sem kosta mun milljónir þýskra marka að því er segir í fréttum þýsku blað- anna Westfalenpost og Siegener Zeitung. Þá vann Gunnlaugur fyrir fáum vikum einn- ig hönnunarúrval vegna nýrrar þjónustu- miðstöðvar Daimler-Chrysler í Köln og hefur tillaga hans verið valin til útfærslu á henni. Byggt fyrir kaþólsku kirkjuna Í samtali við Morgunblaðið sagði Gunn- laugur þessi verkefni bæði vera stór en ger- ólík. Í Olpe ætti kaþólska kirkjan lóðir í miðri borginni og hún hefði valið sjö arkítekta víðs vegar í Þýskalandi til þess að gera tillögu um skipulag og hönnun 15 þúsund fermetra byggðar, m.a. fyrir sjúkradeildir svo og fyrir verslunar- og íbúðarhúsnæði. „Á svæðinu er klassísk villa rúmlega 100 ára gömul sem nota á fyrir opinbert sýningarhald og annað þ.h. Í minni tillögu var tekið sérstakt tillit þessar gömlu byggingar og í henni er gengið út frá að nýbyggingarnar myndi ann- ars vegar heild með henni en að þær verði í allri uppbygg- ingu og arkítektúr í andstöðu við þetta gamla og virðulega hús. Þannig verða nýbygg- ingar klæddar stálklæðningu í grænum koparlit. Í svona samkeppni snýst þetta um að finna út hvað er rétt fyrir svona stað. Það er eiginlega galdurinn að finna það út en það er heilmikil vinna eftir, þetta er eiginlega bara byrjunin, þetta er stórt verk sem tekur nokkur ár að koma upp,“ segir Gunnlaugur. Um hina hönnunarkeppnina segist Gunn- laugur hafa byggt töluvert fyrir bílageirann, m.a. Mercedes Benz. „Í gegnum það orð sem ég sennilega hef á því sviði var mér boðið ásamt öðrum að gera tillögu fyrir Daimler- Chrysler í Köln. Þeir völdu svo mína tillögu, sennilega vegna reynslu minnar á þessu sviði. Í svona verkefni er maður svolítið bundnari í sambandi við útfærslur því þeir hafa vissa staðla. En þetta er mjög spennandi verkefni á mjög skemmtilegum stað í Köln.“ Fær verkefni í gegnum samkeppnir Aðspurður segist Gunnlaugur hafa byggt af- komu sína á því að komast í verk í gegnum ein- hvers konar samkeppnir. „Það er eini mögu- leikinn fyrir útlending hér sem ekki hefur sömu tengsl og innfæddir arkítektar. Árang- urinn af margra ára þrotlausri vinnu er kannski fyrst að koma fram nú síðustu 5-7 ár- in. Ég er enginn byrjandi og í okkar fagi þá er þetta þannig að menn eru ekki orðnir arkítekt- ar fyrr en þeir eru komnir undir fimmtugt.“ Gunnlaugur lauk námi í arkítektúr frá há- skólanum í Karlsruhe og hefur unnið sem sjálf- stætt starfandi arkitekt í Köln frá árinu 1984 en frá árinu 1991 hefur hann rekið eigin teiknistofu í háskólaborginni Siegen austur af Köln og starfa að jafnaði hjá honum 3-5 manns. Honum hafa áður verið veittar við- urkenningar fyrir hönnun, m.a. nýlega fyrir tillögu í alþjóðasamkeppni arkítekta fyrir Nietzsche-stofnunina í Naumburg og svo fyrir tillögu fyrir þýska sendiráðið í Varsjá í Pól- landi. Gunnlaugur Stefán Baldursson Sigurtillaga Gunnlaugs að þjónustumiðstöð Daimler-Chrysler í Köln sem valin hefur verið til frekari útfærslu. Vann tvær hönnunarsamkeppnir ALLAR líkur eru á að á næstu ár- um muni hlýna í Reykjavík og að þegar líður á 21. öldina verði hlýrra en nokkurntíma síðan mælingar hófust. Þetta kemur fram í spá um ársmeðalhita sem Kristján Jón- asson, stærðfræðingur á Raunvís- indastofnun Háskóla Íslands, gerði og kynnti á Raunvísindaþingi í gær. Meðalhiti næstu tíu ára verður 5,2°C í Reykjavík og næstu tíu ár þar á eftir 5,4°C, samkvæmt spánni. Meðalhiti síðustu tíu ára var hins- vegar 4,8°C, 4,3°C næstu tíu ár þar á undan og aðeins 4°C á árunum 1973-83. „Það er eins og við séum að ná okkur upp úr kuldaskeiði á sama tíma og gróðurhúsaáhrifin eru að byrja að segja til sín. Hitamælingar alls staðar í heiminum sýna að það er að hlýna frekar hratt, hraðar en fyrir um 10-20 árum. Núna virðist sem það sé að hlýna talsvert hraðar hér á landi en gróðurhúsaáhrifin segja til um,“ segir hann. Síðan mælingar hófust hér á landi hefur meðalhiti sveiflast þannig að kulda- og hitaskeið hafa skipst á. Kristján segir að hitastigið nú sé að ná því að verða svipað því sem var um miðja síðustu öld, en þá var meðalhiti með hæsta móti. Meðaltal áranna 1939-1949 var 5,2°C. Síðasta ár var óvenjuhlýtt, með- alhiti var 6,1°C og var veturinn 2002-2003 einnig óvenjumildur. Í rannsókn Kristjáns kemur fram að það sé þó ekki fyrr en talsvert líður á öldina sem reikna megi með því að meðalveturinn verði jafnhlýr og vet- urinn 2002-3. Annað undantekn- ingaár er árið 1979, en þá var með- alhitinn ekki nema 2,9°C og hafði ekki verið kaldara síðan árið 1892. Meðalhiti mun hækka um 3°C á 21. öld Í rannsókn sinni spáir Kristján ársmeðalhita næstu tuttugu árin og fram eftir öldinni með því að tengja sjálffylgnilíkan af náttúrulegum hitasveiflum við nýlegar rannsóknir og mat á væntanlegri gróðurhúsa- hlýnun í Norður-Atlantshafi. Vís- indamenn hafa spáð því að meðalhiti á jörðinni muni hækka um 2-5°C vegna gróðurhúsaáhrifa á næstu öld, en mismunandi er hvaða for- sendur þeir gefa sér. Kristján segir að margir hafi spáð því að hitastigið muni hækka um 3°C í heiminum og að þá spá megi einnig nota fyrir Ís- land. Þannig sé líklegt að hiti hér muni hækka um 3°C á 21. öldinni. Mesti meðalhiti síð- an mælingar hófust þegar líður á öldina                  LÖGREGLUNNI á Selfossi var tilkynnt um ofsaakstur tveggja manna á jeppa við Álftavatn rétt fyrir kl. 6 í gærmorgun. Eigandi sumarhúss á svæðinu hringdi í lögreglu þegar hann varð var við menn sem keyrðu utanvegar og tættu upp gróðurinn. Þegar lögreglan kom á vett- vang höfðu mennirnir keyrt út í Álftavatn og reyndu að keyra fyr- ir höfða úti í vatninu. Vatnið reyndist heldur dýpra en þeir héldu, og þegar farið var að fljóta yfir vélina drapst á bílnum. Menn- irnir komu sér á þak jeppans og syntu í land þegar lögreglan kom að, og reyndu að hlaupa hana af sér á ströndinni. Lögregla hljóp þá uppi og handtók á staðnum. Mennirnir voru ofurölvi að sögn lögreglu, og voru þeir færðir í fangageymslur þar sem þeir voru látnir sofa úr sér. Þeir eiga yfir höfði sér kæru fyrir ölvunarakst- ur, gróðurspjöll og skemmdir. Mennirnir eru báðir um tvítugt og hafði lögreglan ekki upplýsingar um hvort þeir hefðu tekið jeppann ófrjálsri hendi eða ekki, en jepp- inn var skráður á heimili annars mannsins. Óku út í Álftavatn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.