Morgunblaðið - 18.04.2004, Side 27
en eingöngu beztu tónlistarmönnum
heims var boðið til þessara tónleika,
næsta sjálfsagður, sé hann skoðaður í
því ljósi, að Viktoría drottning og Al-
bert prins voru afi og amma Vil-
hjálms Þýzkalandskeisara. Viktoría
drottning þekkti Ara Maurus, þó
ekki væri nema fyrir það, að hann
söng við Covent Garden í London, og
ólíklegt er að Viktoría drottning hafi
ekki heyrt þessa ástsæla hirðsöngv-
ara getið hjá dóttursyni sínum Vil-
hjálmi keisara eða Ágústu drottningu
hans.
Þrátt fyrir að Ari Maurus byggi
mestan hluta ævi sinnar fjarri ætt-
landi sínu Íslandi og honum hlotnað-
ist frægð og heiður í Þýzkalandi,
Englandi og eflaust víðar, auk þess
að eiga danskan móðurafa (P. Duus,
kaupmann í Keflavík), taldi hann sig
alltaf Íslending, eins og sézt á auglýs-
ingu frá honum, sem hann biður Vísi
að birta. „Vísir 19. maí 1923 – Íslend-
ingurinn Ari Jónsson, óperusöngvari,
Leifsgade 7 (Islands Brygge), Kaup-
mannahöfn, býður Íslendingum, sem
ætla að stunda söngnám í Kaup-
mannahöfn, tilsögn. Hann hefur
sungið í Weimar, Leipzig, Hamborg,
Dresden, Berlín og Covent Garden í
London. 36 af lærisveinum hans, er
lokið hafa fullnaðarnámi, syngja á
leikhúsum bæði í Þýzkalandi og Dan-
mörku. Dómar um listhæfileika hans
eru til sýnis.“
Vitað er að nokkrir Íslendingar
þekktust boð hans, en þeir voru: Ósk-
ar Norðmann kaupmaður, Sigurður
Skagfield óperusöngvari, Viggó
Björnsson, bankastjóri í Vestmanna-
eyjum, og Kjartan Ólafsson rakara-
meistari.
Danir eignuðu sér Ara aldrei
Ari Maurus var auðvitað ekkert
annað en Íslendingur, eða alheims-
borgari, en sá skilningur á veröldinni
er ekki óalgengur meðal okkar Ís-
lendinga. Danir eignuðu sér Ara
aldrei, átti hann þó danskan móður-
afa, eins og áður er minnst á. Kemur
þetta t.d. fram í dánartilkynningu
I.O.F., en þar kallar I.O.F. Ara ís-
lenzka óperusöngvarann, sem varp-
aði ljóma á nöfn Íslands og Danmerk-
ur úti í hinum stóra heimi með list
sinni. Ísland og Danmörk voru eins
og kunnugt er sambandsríki árið
1927 og I.O.F. undirstrikar þjóðerni
Ara Maurusar með því að nefna Ís-
land á undan „stóra bróður“ Dan-
mörku.
Ættartala Ara Maurusar Johnson
sýnir, að sterkir íslenzkir „ stofnar
standa að honum ásamt 4 útlending-
um, sem voru: Þjóðverji, (Gyðingur)
– prófastur – Englendingur – grasa-
læknir – Bergenbúi – langamma – og
Dani – kaupmaður. Íslenzku ættirn-
ar, sem að honum stóðu, voru úr
Reykjavík (Arnarhólsætt, Hlíðar-
húsamenn – Ísafjarðarsýsla og
Húnavatnssýsla), Árnessýslu, Rang-
árvallasýslu, Vestur-Skaftafellssýslu
og Þingeyjarsýslu. Áar hans voru
bændur, formenn, lóðs, söðlasmiður,
grasalæknir, snikkari, prestar, bisk-
upar, sýslumenn og kaupmenn.
Ágætis blanda, ekki satt? Gamalt
máltæki segir: „Römm er sú taug, er
rekka dregur föðurtúna til“.
Og hverfum aftur að fæðingu Ara
Maurusar 30. maí 1860 í Neðsta-
kaupstað á Ísafirði.
Frá fyrstu stundu lífs síns var Ari
Maurus umvafinn kærleika og um-
hyggju foreldra sinna, fóstru sinnar,
systur, afa og ömmu, föðursystra og
frændsystkina, sem hélzt alla ævi
hans, meðan öll lifðu. Var þeim það
einkar ljúft, því að Ari Maurus var að
þeirra sögn ljúfur maður og
hæverskur, kátur og skemmtilegur,
eiginleikar sem hverjum söngvara
eru nauðsynlegir til að geta sungið,
eins og Frk. Guðmunda Nielsen frá
Eyrarbakka lýsir söng Ara Maurus-
ar í Lesbók Morgunblaðsins 32. tölu-
blaði 1927: „Síðan ég sá Ara Johnson
eru 26 ár liðin. Mér er fyrir löngu úr
minni liðið hvernig maðurinn var í
sjón – en söngnum hans gleymi ég
aldrei meðan ég lifi. Það er þó sér-
staklega meðferð hans á einu litlu
sænsku lagi, sem mér er minnisstæð-
ust. Ég á þetta lag í gamalli nótna-
bók, og aldrei hefi ég svo í þessi 26 ár,
blaðað í bókinni, að ég hafi ekki mun-
að eftir Ara Johnson þegar ég kem að
laginu, sem heitir „Liten fogel“ og er
eftir óþekktan höfund.“ Og síðar í
sömu grein: „En hafi hann oft, þ.e,
Ari Maurus, haft slík áhrif og hlýjað
mörgum jafnvel og mér um hjarta-
ræturnar, í þetta eina skipti, sem ég
heyrði hann syngja, þá hefur hann
vissulega ekki til einskis lifað. Og ég
gæti trúað að hann fengi þær stund-
irnar endurgoldnar nú, ef til vill með
því að hafa tækifæri til að syngja
„Liten fogel“ og önnur fögur ljóð í
áheyrn fjölda himneskra hersveita í
landinu því, þar sem sólin aldrei
gengur til viðar.“ Eða eins og gömlu
konurnar í Hamborg minntust söngs
hans tuttugu árum síðar og Pétur
Jónsson, óperusöngvari, segir í ævi-
sögu sinni „Pétur Jónsson óperu-
söngvari 1954“, sem Björgúlfur
Ólafsson skráði eftir frásögn hans.
„Eitt sinn er Pétur hafði sungið í
Hamborg (1916), fékk hann stutt en
einkar vinsamlegt bréf frá tveimur
gömlum konum þar í borginni. Þær
þökkuðu honum innilega fyrir
skemmtunina og voru öldungis hissa
á því, hve vel hann héldi sér, hann
væri bara alveg eins góður og hann
hafði verið fyrir tuttugu árum. Þær
héldu, blessaðar gömlu konurnar, að
þar hefði Ari Jónsson verið að syngja
en hann höfðu þær heyrt syngja, þeg-
ar hann var óperusöngvari í Ham-
borg, þá fyrir fjöldamörgum árum.
Ari Jónsson var reyndar bariton-
söngvari en Jónsson (Ari og Pétur)
óperusöngvari hafði skemmt þeim
yndislega í bæði skiptin.“
Sagt var að Victoría Bretadrottning hefði tregað mann sinn, Albert prins, og
saknað hans sárt. Hún lét taka ljósmynd af sér, syni sínum og tengdadóttur við
styttu Alberts á brúðkaupsdegi Alexöndru og „Berties“.
Daníel Arason Johnson, verslunar-
stjóri í Neðstakaupstað á Ísafirði,
kaupmaður á Eskifirði og síðar stór-
kaupmaður í Kaupmannahöfn. Faðir
Ara Maurusar.
Anna Guðrún Duus, dóttir Peters
Duus, kaupmanns í Keflavík, og konu
hans Ástu Tómasdóttur Bechs,
söðlasmiðs í Reykjavík.
Hannes Þorsteinsson, ritstjóri Þjóð-
ólfs, hlýddi á söng Ara er hann hélt
hljómleika í Reykjavík til ágóða fyrir
minnisvarða Jónasar Hallgrímssonar
árið 1901. Hann hrósaði Ara.
Ása H. Þórðardóttir, frænka Ara M.
Johnson óperusöngvara, hefir safnað
miklum fróðleik um þennan fyrsta
óperusöngvara Íslendinga.
Höfundur er þulur.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. APRÍL 2004 27
Hverafold 1-3 • Torgið Grafarvogi • Sími 577 4949
Skipagötu 5 • Akureyri • Sími 466 3939
Afmælis- &
opnunardagar í NÆS
Fögnun nú 1 árs afmæli í Torginu, Grafarvogi
og opnun nýrrar verslunar að
Skipagötu 5, Akureyri
20% afmælis- og opnunarafsláttur
af öllum vörum dagana 19.-24. apríl
Úrval af
glæsilegum
fatnaði fyrir konur
á öllum aldri
Stærðir 36-52
Opnunartími
mán.-fös. kl. 11-18
lau. kl. 11-14
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Úrval glæsilegra sérferða þar sem þú getur valið um spennandi ferðir
með reyndum fararstjórum Heimsferða. Þeir kynna þér nýja sýn á land
og þjóð og tækifæri til að upplifa menningu og fegurð heillandi
áfangastaða. Við bjóðum þér spennandi valkosti hvort sem þú vilt stutta
helgarferð til að njóta náttúrfegurðar Gardavatns, sigla um fegurðstu
staði Evrópu, fara í menningarreisu um hjarta Evrópu eða ganga um í
einstakri náttúrufegurð Alpanna.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Kynntu þér sérferðabækling Heimsferða
Sérferðir
Heimsferða
í maí og júní
20.–27. maí
Vínsmökkun við
Gardavatn
Farastjóri: Arnbjörg
María Danielsen.
Kr. 63.500
4.–15. júní
Bretland -
Frakkland
Fararstjóri: Lilja
Hilmarsdóttir.
Kr. 159.900
10.–22. júní
Sumar í Tírol
Fararstjóri: Ása María
Valdimarsdóttir.
Kr. 99.500
22.–29. júní
Gönguferð
Austurríki
Fararstjóri: Halldór
Hreinsson.
Kr. 89.900
24. júní–6. júlí
Sumar í Sviss
Fararstjóri: Ása María
Valdimarsdóttir.
Kr. 129.600
2.–13. júlí
Sigling á Rín og
Mósel
Fararstjóri: Lilja
Hilmarsdóttir.
Kr. 132.600