Pressan - 07.11.1991, Blaðsíða 15

Pressan - 07.11.1991, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR PRESSAN 7. NÓVEMBER 1991 15 ARETTING Að gefnu tilefni skal áréttað að fasteignasalan Austurströnd hf., sem Runölfur Gunnlaugsson og Kristján V. Kristjánsson reka, er í engum tengslum við lögfræði- og rekstrarráðgjafarstofuna Austur- strönd sf., sem bræðurnir Sigfinn- ur og Skúli Sigurðssynir reka. í síðasta blaði var greint frá kær- um á hendur þeim Sigfinni og Skúla. Frétt PRKSUNNAR stendur óhögg- uð, en Runólfur og Kristján hafa orð- ið varir við að fólk rugli þessum fyr- irtækjum saman. Par eru, sem fyrr segir, engin tengsl á milli. Ritstj. Gjaldþrot Adidas-umboðsins Vegna smáfréttar PRESSUNNAR í síðustu viku skal það tekið fram að Björgvin Schram seldi Heildsölu Björgvins Schram fyrir þremur ár- um syni sínum, Ólafi Schram. Heild- salan er nú til gjaldþrotaskipta, eins og kom fram í PRESSUNNI. Þrátt fyrir að hún beri nafn Björgvins skal áréttað, að það gjaldþrot tengist Björgvini ekki sjálfum. PRESSUNNI þykir miður ef hún hefur sært Björgvin með því að birta mynd af honum til hliðar við frétt- ina. Eins og lesa má í greininni erui ástæður gjaldþrotsins ekki raktar til þeirra mörgu áratuga sem Björgvin rak heildsöluna. Ritstj. LAUSN Á KROSSGÁTU Á BLS. 40 \Þ\£\K\K\U\Mm&\£ \A\F K\K\J UAmt PI0H wmrnu öEH rihs fi munmm musmjm mi fimm mam m SJAMPO jOG NÆRING lins og áður hefur komið fram í PRESSUNNI eru deildar meiningar um hvort Framkvæmdasjóður á ógreiddar 30 milljónir króna í þrota- bú Álafoss. Ef sú er raunin verður ríkissjóður, fyrir hönd Fram- kvæmdasjóðs, að greiða peningana. Þá kæmu þessir peningar á móti því sem ríkið hefur greitt vegna ríkis- ábyrgða á launum. Sem sagt, ríkið greiddi og ríkið fengi. Eins er talið líklegt að einhver hluti peninganna færi í skiptakostnað ... flokksráðsfundi sjálfstæðis- manna um daginn mismælti Davíð Oddsson sig. Eftir mismælin þagn- aði Davíð og sagði svo: Það mætti halda að ég væri staddur í Leifsstöð, — og hélt síðan ræð- unni áfram . . . I nýjasta tölublaði Bílasölublaðs- ins er viðtal við Davíð Geir Gunn- arsson á Bílasölunni Bílum í Skeif- unni. í viðtalinu fer Davíð ófögrum orð- um um suma koll- ega sína og segir að því miður sé talsvert um óheiðarlega menn, menn sem hugsi mest um að ná sölulaunum, og þeim sé nánast sama með hvaða hætti það er gert. Þá fer Davíð nokkrum orðum um bílaumboðin og gerir lítið úr útsöl- um þeirra. Hann segir að það tíðkist að verð bílanna sé hækkað fyrir út- sölurnar og lækkað aftur til að sýna afslátt. Hann segir í viðtalinu að hann hafi farið með söluskrá sinnar bílasölu á útsölur hjá umboðunum og þá hafi komið fram að verðið sé á engan hátt öðruvísi en hægt er að fá á flestum ef ekki öllum bílasöl- um ... lin þeirra bóka sem eru að koma út er skáldsagan „Ofurefli" eftir Leó E. Löve lögfræðing. Þetta er þriðja bók hans. Ofurefli er byggð á samtölum höfundar við félags- mann í IRA, írska lýðveldishernum, en viðmælandi Leós hefur verið dæmdur í tuttugu ára fangelsi vegna starfa sinna fyrir IRA. Það er ísafold sem gefur bókina út, en Leó er aðal- eigandi ísafoldar... Þú átt það skilið... Það hefur alltaf verið okkur kappsmal að geta boðið viðskiptavinum okkar fyrsta flokks vörur á sem lægsta verði, og það hefur okkur tekist. Við þökkum það öllum þeim fjölda viðskiptavina sem verslað hafa við Japis i gegnum árin og þeirri viðurkenningu sem vörur okkar hafa fengið. Með beinum innflutningi frá Japan höfum við stuðlað að enn lægra vöruverði. Stöndum saman í baráttunni fyrir lægra vöruverði - við eigum það öll skilið. Panasonic VHS MOVIE Nýja Panasonic NV-Gl videotökuvélin færir þig nær raunveruleikanum hvad vardar myndgæði og verd. Hún er einföld í notkun, með fullkomnum sjálfvirkum fókus, vegur aðeins 900 grömm og er aðeins 3 lux. Komið og kynnist þessari nýju og frábæru vél því sjón er jú sögu rikari. JAPIS BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI SÍMI 62 52 00

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.