Pressan - 07.11.1991, Blaðsíða 40

Pressan - 07.11.1991, Blaðsíða 40
40 líl eJfti/i oii ★ * ★ Meöal væntanlegra jóla- bóka frá Vöku-Helgafelli er alfræðiárbókin „ís- lensk samtíð 1992" sem VILHELM G. KRISTINSSON fréttamaður hefur tekið saman. Bókin fjallar um málefni líðandi stundar og er prydd hundruðum litmynda og skýringar- efni. íslensk samtíð kom fram í fyrsta sinn fyrir jól- in í fyrra og varð þá meðal metsölubóka ársins. 181 Hver er skýringin á nú- verandi stöðu Islands á alþjóðavettvangi? Hafa sögulegir atburðir og straumar ráðið þróun I mála? Hvaða menn hafa haft mest áhrif á mótun íslands samtimans? Þessum spurningum og fleirum reynir benedikt grondal. blaðamaður, al- þingismaður, sendiherra og ráðherra, að svara i viðu samhengi i bókinni | „Örlög íslands. Viðburða- rikir tímar — tvisýnt tafl", sem kemur ut fyrir jólin. I Hann fléttar saman sögu- legan fróðleik, minningar um menn og málefni á viðburðarikustu áratug- um íslandssögunnar og | dregur ályktanir af gangi mála. r* •• GUNNAR GUNNLAUGSSON hefur sent frá sér aðra Ijóðabók sina. Bókin ber heitið „llmur af draumi" og birtir myndræn Ijóð sem eru á yfirborðinu hæglát og friðsöm en undir niðri kveður við djúpan seiðandi tón, sem gefur Ijóðunum aukna 'vídd. Bjórhöllin var loksins, loks- ins opnuö aftur um síöustu helgi. Það var svo mikið drukkiö aö þaö átti enginn fyrir leigubíl heim, — ekki einu sinni fyrir strætó. Ég fer þangað aftur í kvöld, með strætómiöa í skónum í þetta sinn. UppÁlnAlds VÍNÍð Haraldur Hjartarson framkvæmdastjóri ..Öll gúð vín eru t’ód. Eitt þud skemmtileiiuslu sem étf geri er ud smukku ný v'm. Afþeim vínunt sem ét{ Itef drukkió síduslu múnudier mér minn- issUedust Búrtfúndívíniö Mu- sit{eni (irund Cru. úrgunnur IUTti frú De-Votfue-nurdin- um. en hunn er um 25 ekrur. Þettu vín er lulid eitt kruft- mestu Búrtfúndívínid. Étf smukkudi þud i Kuupmunnu- höfn. Eluskun kostudi um tíu þúsund dunskur krónur ' i Ölveri. Lífið gengur i hring og það á líka við um einn ástsæl- asta skemmtistað táninganna i menntaskolum höfuðborgar- innar á fyrri árum, Klúbbinn gamla i Borgartúninu. Siðan fimmtudagarnir voru og hétu hefur staðurinn heitið hitt og þetta, Sportklúbburinn þegar þetta er skrifað, en gengur nú orðið undir nafninu Klúbbur- inn. Like in the old days. Þar verða Blautir dropar föstu- dags- og laugardagskvöld með blús, rokk og sól og Jó- hann Þór, söngvari sveitarinn- ar. segir að það verði vitlaust fjör. Jötunuxar verða á Önd- inni föstudags- og laugar- dagskvöld. Eru að megni til gamlir Centaurar. Guðmundur Gunnlaugsson trommari, Hlöðver Ellertsson bassi og Jón Óskar gítar. Auk þeirra er í sveitinni Rúnar (Wang) söngv- ari. Jötunuxar gáfu út plötu i sumar, en hún þykir vist of rokkuð til aö leika i útvarpi. Á laugardagskvöldið verða það Borgarsveitin og hinn góö- kunni Siggi Johnnie sem skemmta i Borgarvirkinu. BP- blús er búið að endurskira sig og heitir nú Blús-lús og sú lús leikur á Blúsbarnum á laugar- dagskvöldið. Það eru þeir Kristján Már Hauksson gitar, Bjössi kassagitar, Páll Júlíus- son úr Islenskum tónum á trommur og Sillibassi. Borgareveitin og Anna Vil- hjálms verða á kántrikránni i Borgarvirkinu á sunnudags- kvöldið og trúbadorinn Sig- urður Björnsson verður á Hressó. FIMMTUDAGUR PRESSAN 7. NÓVEMBER 1991 Þór Tulinius leikari Þór H. Tulinius leikur kín- uerska konu í dularklœdum karlmanns í verdlaunaleik- rilinu ,,M. Bullerfly" eflir David Henry Hwang, sem frumsýnl verdur ú slóra svid- inu í Þjódleikhúsinu i lok múnadarins. Ást, njósnir, blekkingar og svik eru aðalsmerki verksins. Það er byggt á sannsöguleg- um atburðum sem gerðust fyrir nokkrum árum þegar franska leyniþjónustan komst á snoðir um að kínversk leik- kona við Pekingóperuna, sem verið hafði í tygjum við franskan diplómat í tuttugu ár og átt með honum barn, væri njósnari. Við yfirheyrsl- ur kom í ljós að konan var í raun karlmaður í dularklæð- um. Diplómatinn leikur Arn- ur Jónsson. „Höfundurinn tekur sér ákveðið bessaleyfi í túlkun sinni, hann rekur ekki endi- lega hinn sanna söguþráð í verkinu heldur veltir hann fyrir sér þeim spurningum sem vakna í kjölfar svona ótrúlegra atburða, hvernig þeir geta gerst og af hverju. Svo blandar hann saman við þetta madame Butterfly í samnefndu leikriti, japönsku geisunum og svo framvegis, svo að hér verður um ákveðna erkitýpu að ræða." Finnst þér erfitl ad leiku Kínverja? „Já, það er ansi stressandi en um leið geysilega gaman, vegna þess hve það er erfitt. Annars erum við nú ekki komin svo langt að ég geti sagt að það sé komin fullnað- armynd á það ennþá, maður er enn að þreifa fyrir sér." Verdurdu med uppsett húr og prjón í t>egn? „Já, já, í sumum atriðun- um. Það verður fullt af kjól- um." Systa UST fiN ORÐfi „Mér þykir úslæöulausl uö útskýru verkin mín, þuu eiya aö gela Ijúd sig sjúlf. Þella er svipad og þegar þú ferd úl í núttúrunu. Þú veröur uö hjurgu þér alveg upp ú eigin spýlur ef þú vill njótu þess sem þú sérd, þad eru engir merkimidar úl um hvippinn og hvappinn til útskýringur. A suma hútl vil ég að verkin mín skýri sig sjúlf. Þess vegna heitir sýningin „Án orða", en kunnski er ég bara orðin leið ú útskýringunum." Sjölta einkasýning Sigríður Ásgeirsdóttur (Systu) mynd- listarkonu á lágmyndum unn- um í gler hefst á laugardag í Galieríi einn einn við Skóla- vörðustíg. Sigríður hefur ver- ið áberandi á myndlistarsvið- inu á undanförnum árum og hefur tekið þátt i fjölda sam- sýninga hér á landi og á Bret- landi, í Skotlandi, Þýskalandi, Wales og víðar. Verk hennar er að finna í mörgum opin- berum stofnunum og fyrir- tækjum á íslandi og erlendis, meðal annars i Japan og Skotlandi. Síðast þegar þú sýndir i Einn einn, 1989, varstu með grafík og teikningar. Ertu hætt að sinna þeirri list og komin eingöngu í glerið? „Nei, nei, en grafíkin er meira áhugamál hjá mér en svo að ég geti sagt að ég stundi hana af fullum krafti. Ég gríp alltaf til grafíkurinnar þegar ég fer í frí því hún er svo létt í meðhöndlun, en glerið aftur á móti þungt og alvarlegt. Ég er bara of ung ennþá til að binda mig við eitt ákveðið efni." Símsvari vikannar Frjálslyndir hœgrimenn. „Þetta númer er ótengt. Leitið upplýsinga í 03.“ * * * jbfuuana dUtnek Hermann Gunnarsson sjónvarpsmaður PRKSSAN bað Hermann að vera gestiijafa í ímynduðii kvöldverðarboði. Hnnn mátti bjóða hverjum sem er <ii{ yreip tækifærið oi{ bauð eftirfarandi persónum: Gary Kasparov til að taka eina létta eftir matinn. Johan Cruyff til að rifja upp fyrri sam- skipti okkar. Verður látinn halda bolta á lofti undir borðum. Dóra Einars stuðkvikindið, svo ég verði ekki verst klæddi maðurinn. James Dean við vorum ótrúlega tikir þegar ég var 14 ára og hann kenndi mér bylgju- greiðsluna sem entist mér i tvo mánuði. Haila á Heiðarbýlinu hún læknaði mig af heila- himnubólgunni sem James Dean orsakaði og á þvi skil- ið að vera með. Gisli á Uppsolum við þurfum aðeins að ræða um það hvernig er að búa einn. Þá er ekki óliklegt að hann taki eitt tvö lög. Julia Roberts við eigum ýmislegt ósagt hvort við annað. Egill Eðvarðsson án taglsins, það verður að vera eitt glæsimenni á svæðinu ROBBIE ROBERTSON STORYVILLE Annað meistarastykki frá þessum fyrrum leiðtoga The Band. Hún er meiri heild en fyrri sólóplata hans en vantar kannski „hit". Stíllinn er mjög sterk- ur. Fær 8 af 10. Það er dálítið merkilegt að á meðan sumum veitingahús- um, krám og skemmtistöðum er umturnað reglulega og gengi þeirra sveiflast hraðar en fylgi Daviðs Oddssonar njóta aðrir staðir alltaf stöð- ugrar velgengni. Kannski ekki jafnmikillar og tískustaðirnir ná mestri en örugglega meiri en þeir mega þola þess á milli. Tveir þessara staða eru Duus- hús og Fógetinn. Þeir eru búnir aö vera opnir siðan fyrir bjór og eru opnir enn. Og ekkert hefur breyst. Húsakynnin eru eins, fólkið er það sama og stemmningin líka. Þetta eru skemmtistaðir fyrir það fólk sem telur sig ekki til neinnar elitu. Það lætur aldrei sjá sig á heitustu stöðunum og það er aldrei klætt samkvæmt nýj- ustu tisku heldur þeirri sem gekk i gær. En þetta eru trygg- ir kúnnar. Miklu tryggari en þeir sem gera eigendur tísku- húsanna ríka einn daginn og gjaldþrota þann næsta. VEITINGAHÚSIN_____________ Nammi, namm. EES. ítalskir kokkar. Griskir kebab-steik- ingameistarar. Portúgalskir krabbadýrameistarar. Spænskir paellu-galdramenn. Og svo eftir fáein ár. Þá gengur Austur-Evrópa eins og hún leggur sig i EFTA. Þá koma pólskir villisvina-meistarar, ungverskir gúllaskóngar og rússneskir rauðrófusúpu- menn. Og allir taka þeir litið sem ekki neitt fyrir snilldina. Þá verður kátt i Reykjavík. Ostasósunum og hráa hangi- kjötinu og melónunum verður hent. LÁRÉTT: 1 geðfelldum 6 slríöin 11 stillti 12 leng 13 líknarbelgurinn 15 rölti 17 tiátíð 18 hallmæla 20 dá 21 eldstæði 23 ólund 24 stöku 25 trjónur 27 stakan 28 vióskotaillt 29 stirtlu 32 stórgerós 36 mynt 37 hækkar 39 lengdarmálseining 40 stórgrýti 41 kvendýr 43 skel 44 oblátudisk 46 rangar 48 vingjarnleiki 49 glanni 50 skóf 51 nábúi. LÓÐRÉTT: 1 geysist 2 kveifarleg 3 slyng 4 eydd 5 mitti 6 illeppur 7 fen 8 klóra 9 kvenmannsnafn 10 synjun 14 söngflokka 16 leysa 19 hjáróma 22 brenninetla 24 spaka 26 brún 27 fjallsbrún 29 slydda 30 kipra 31 talsháttur 33 klaufsk 34 dula 35 hrjúfi 37 eggjablómi 38 fljót 41 æxli 42 mjög 45 va-tla 47 eira.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.