Pressan - 07.11.1991, Page 19

Pressan - 07.11.1991, Page 19
19 FIMMTUDAGUR PRESSAN 7. NÓVEMBER 1991 OFT f JEPPA — ÉG VIL SKREPPA... Sú tíd er af er bændur og adrir sveitamenn voru helstu jeppaeigendur landsins. Fóru í næsta kaupstað á jeppunum þegar þurfti ad gera innkaup milli þess sem jeppunum var beitt fyrir vagna eða heyvinnsluvélar. Þetta voru einkum jeppar af gerðinni Wiliys eða Land Rover, en á tímabili átti Rússajeppinn talsverðum vinsældum að fagna. Þá söng Ellý Vilhjálms að hún vildi fara upp í sveit og „oft í jeppa ég vil skreppa". Þegar talað er um jeppa í dag eiga þeir bílar fátt sameiginlegt með forverum sínum. Nú eru alls konar bílar kallaðir jeppar ef þeir sameina kosti gömlu jeppanna og nýtískufólksbíla. Þetta eru bílar með drifi á öllum hjólum og margs konar aukabúnaði og Bifreiðaskoðun ís- lands hefur ekki lengur sérstakan jeppaflokk í skrám sínum. En svona almennt eru bílar, sem eru betur búnir til ferða um slæma vegi og vegleysur en venjulegir fólksbílar en eru þó ekki vörubílar eða trukkar, kallaðir jeppar manna á meðal. Svo eru fínu forstjórajepparnir sér á parti. Allir alvöru „jeppafríkar“ endurbyggja bíla sína. Ráðast jafnvel að splunkunýjum lúxusjeppum, hækka þá upp, setja stærri hjól undir þá, endursmíða yfirbygginguna, skipta um hitt og þetta og bæta öðru við. Við kíktum aðeins á jeppaæði landans. 'llSPwRT KLUBBURIIMN Frábær aðstaða Góð borð Veitingar á staðnum Borgartúni 32 Sími 624588 624533 KUIBBCIRINN /borgartiíhi\

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.