Pressan - 07.11.1991, Page 24
24
FIMMTUDAGUR PRESSAN 7. NÓVEMBER 1991
Kristján „The Broncó Kid": Allir slitfletir tætast upp ef ég er á
Bronconum á götunum.
Lengi vel var Wagoneer-
jeppinn ímynd lúxusjeppans
og gegnum árin hefur mátt
sjá margan mætan manninn
aka um á slíku farartæki.
Einn af þeim sem hafa haldið
tryggð við eina gerðina af
þessum bíl er Þorvaldur
Jónsson skipamiðlari.
„Þessi Wagoneer sem ég á ;
er af gerðinni Cherokee
Chief, tvennra dyra og spor-
breiðari en venjulegur Wag-
oneer, — er svona aðeins
meiri jeppi. Þetta er 12 ára
gamall bíll sem hefur reynst
frábærlega vel og gefur nýj-
RÚSSNESKT LOFT
Þegar farið var að flytja
Rússajeppa til landsins voru
ýmsir vinstrisinnar með
þeim fyrstu til að festa kaup
á slikri bifreið, enda sann-
færðir um yfirburði alls þess
sem framleitt væri austur i
sæluríkinu.
Bóndi á Norðuriandi og ákaf-
ur stuðningsmaður Sováts-
ins var svo stálheppinn að
krækja i einn af fyrstu Rússa-
jeppunum. Hann brá sér til
Reykjavikur og sótti gripinn.
Þegar heim kom lát hann
það verða sitt fyrsta verk að
rogast meö varadekkið inn á
mitt stofugóH. Kallaði siðan
á allt heimilisfólkið og
hleypti úr dekkinu svo hið
sováska loft mætti leika um
vit fólksins.
um bílum ekkert eftir. En til-
fellið er að það þarf að breyta
öllum þessum jeppum eitt-
hvað til að þeir geti það sem
við ætlumst til af þeim. Þú
verður mjög leiður yfir því ef
þú ert á jeppa og uppgötvar
að aðrir jeppar geta_ gert
miklu meira en þinn. Ég hef
til dæmis hækkað minn og
sett í hann loftlæsingar,"
sagði Þorvaldur.
„Okkur finnst sem þessir
jeppar bili miklu frekar á
höktinu hérna í bænum en á
ferðum út um land. Það er
eins og þeir kunni betur við
sig þegar malbikinu sleppir.
Þess vegna er það auðvitað
„ÉgáScout módel 1974, en
hef reyndar breytt nær öllu í
bílnum sem ég hef getað. Það
er búið að breyta boddíinu og
svo er til dæmis kominn í
hann stór millikassi og drif-
sköft með endum úr léttum
vörubíl. Þá hef ég sett í hann
455 kúbika Buickmótor, eða
rétt um sjö og hálfur lítri að
rúmtaki, stóran vatnskassa
og þannig mætti lengi telja.
Ég er með renniverkstæði og
hef gert þetta allt sjálfur,"
sagði Ægir K Bjarnason.
Hann er búinn að eiga
toppurinn ef menn geta átt
Fíat í bæjaraksturinn og síð-
an jeppa tilbúinn inni í skúr í
ferðalög. í haust fórum við á
jeppanum í fimm daga ferð
þvert yfir landið frá Kerling-
arfjöllum og enduðum í Snæ-
felli. Síðasta spölinn fórum
við á jökli, því ekki er hægt
að komast yfir Jökulsá á Brú,
og einnig er friðað svæði
uppundir jökli sem heitir
Kringilsárrani. Við keyrðum
því upp á Brúarjökul til að
klára ferðina og komum nið-
ur rétt fyrir sunnan Snæfell.
Það var rosalega gaman í
þessari ferð og ekki brást bíll-
inn,“ sagði Þorvaldur.
þennan jeppa í sex ár og not-
ar hann jafnt í lengri sem
skemmri ferðir auk þess sem
hann fer á honum til og frá
vinnustað. Sumarferðir eru
yfir Kjöl og Sprengisand, í
Landmannalaugar og Jökul-
heima. Ægir sagðist ekki síst
fara í vetrarferðir á jeppanum
og hann kæmist allra sinna
ferða í snjó, enda væru þessi
stóru dekk eingöngu fyrir
akstur í snjó. Þá er dimmviðri
lítil hindrun í vetrarferðum
þar sem Ægir er með GPS-
tæki sem gefur upp staðsetn-
• „Ég er búinn að gera
óhemjumikið fyrir bílinn og
hann er allur breyttur. Til
dæmis er hann núna með
hásingu undan ’74-módeli af
Bronco, ég er með 5:38 hlut-
föll í honum og hann er læst-
ur að framan og aftan. Svo er
ég líka með spil, lóran og
Gufunes. Þetta er einn með
öllu,“ sagði Kristján Ellerts-
son, sem á Bronco II árgerð
1987.
Kristján sagði að það hefði
verið gífurlega mikil vinna að
breyta bílnum og þúsundkall-
arnir flqgið eins og skæða-
drífa. „Ég varð að þróa þess-
ar breytingar og endurbætur
sjálfur, því enginn annar var
með svona bíl. Þetta tók sinn
tíma og ýmislegt sem brotn-
’ingii samkvæmt merkjum frá
gervihnöttum. Með þetta
tæki um borð er nóg að sjá
rétt fram fyrir vélarhlífina.
En er ekki orðið lítið um
jeppa af gerðinni Scout?
„Þeir eru farnir að standa
upp úr núna. Menn eru farnir
að gera þá meira upp en var
áður þegar þeir tóku frekar
Bronco, en Willys er alveg sér
á báti og stendur alltaf fyrir
sínu. En það er búið að gera .
nokkra Scout upp á síðustu
árum," sagði Ægir.
aði og bilaði áður en bíllinn
var orðinn pottþéttur. En
þetta er dálítið dýr útgerð.
Maður þarf alltaf að vera að
endurnýja suma hluti því það
er svo rosalegt slit á þessu,"
sagði Kristján.
Kristján gengur undir
gælunafninu „The Bronco
Kid" meðal kunningja úr
jeppavinahópnum. Er þekkt-
ur fyrir að ferðast mikið um
hálendið á bílnum. Oft einn
eða með hund sem ferðafé-
laga.
„Það er rétt, ég fór mikið
með tíkina mína í þessi ferða-
lög og hún kunni því afskap-
lega vel og það var ofsalega
gaman að hafa hana með. En
ég varð því miðurað láta lóga
henni,“ sagði Kristján. Hann
sagðist hafa ferðast á bílnum
um hálendið í heilan mánuð
síðastliðið sumar. Fyrst einn í
hálfan mánuð en síðan í sam-
floti með kunningjum á fimm
jeppum.
„Ég er með annan bíl til að
nota í bænum. Það tætast ail-
ir slitfletir upp ef ég er á Bron-
conum á götunum,” sagði
Kristján Ellertsson.
UPPRÉTTUR -
EÐA Á BAKINU
„Þriggja manna bekkurinn
aftur i hefur fremur harða
setu og tvær stillingar á bak-
halla. Sú brattari er fyrir
minn smekk óþarflega upp-
rátt, en tilfellið er að maður
situr vel i honum og sár vel
út, bæði fram og til hliðanna.
Góð hvíld er að geta hallað
þvi meira i viðlógum en þá
finnst mörgum þeir vera
lagstir á bakið — þarna vant-
ar i rauninni millistigið."
Úr jeppadómi i DV
Torfœrubifreiö
MIÐFRÍHORN
ER HORFIÐ ...
Samkvæmt þeim regl-
um sem eru í gildi hjá Bif-
reiðaskoðun íslands er
engin ein skilgreining á
því hvað telst vera jeppa-
bifreið. Margir jeppar
munu hins vegar falla
undir skilgreiningu
reglna um torfærubifreið,
sem er eftirfarandi:
„Fólksbifreið, sendibif-
reið eða hópbifreið 1 með
drifi á öllum hjólum telst
vera torfærubifreið ef
hún kemst af eigin ramm-
leik upp 30% halla og
stenst 5 af eftirfarandi
kröfum:
a. Fremra fríhorn
a.m.k. 25°
b. Aftara fríhorn a.m.k.
20°
c. Miðfríhorn a.m.k.
20°
d. Minnsta hæð undir
framás 180 mm
e. Minnsta hæð undir
afturás 180 mm
f. Minnsta hæð undir
lægsta punkt milli ása
200 mm
Fremra fríhorn er horn-
ið á milli yfirborðs lárétts
vegar og plans sem er
snertill við framhjólin og
snertir ökutækið að neð-
anverðu framan við fram-
hjól án þess að nokkur
fastur hluti ökutækisins
gangi í gegnum planið.
Aftara fríhorn er horn-
ið á milli yfirborðs lárétts
vegar og plans sem er
snertill við öftustu hjólin
og snertir ökutækið að
neðanverðu aftan við aft-
urhjól án þess að nokkur
fastur hluti ökutækisins
gangi i gegnum planið.
Miðfríhorn er hornið á
milli yfirborðs lárétts veg-
ar og plans sem er snertill
við framhjólin aftanverð
og snertir lægsta punkt
bifreiðarinnar mitt á milli
ása án þess að nokkur
fastur hluti ökutækisins
gangi í gegnum planið að
viðbættu samsvarandi
horni framan við aftur-
hjól."
Svona hljóðar þetta og
er öllum auðskilið — eða
hvað?