Pressan - 05.12.1991, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. DESEMBER 1991
7
VELDI
mm
ABHRUNI
KOMM
Allt bendir til að Svavar Egilsson í Ferðamiðstöðinni Veröld neyðist til að
stöðva rekstur fyrirtækisins innan skamms nái hann ekki að fá nýja
eignaraðila að fyrirtækinu. Andri Már Ingólfsson framkvæmdastjóri
gerði Svavari tilboð í fyrirtækið upp á 40 milljónir króna. Því var hafnað
og það varð til þess að Andri Már gekk út. Hann segist ekki sjá að hann
muni starfa meira hjá Veröld.
Svavar Egilsson, eigandi
Veraldar. Mjög kreppir að
Svavari og fyrirtækjum
hans. Framtíð Veraldrar
hangir á bláþræði og óvíst
er hvort honum takist að
bjarga fyrirtækinu frá
stöðvun. Svavar er einnig
kominn á fremsta hlunn
með að tapa fleiri eignum.
Andri Már Ingólfsson, fram-
kvæmdastjóri Ferðamiðstöðvarinn-
ar Veraldar, hefur látið af störfum.
Andri Már hætti þar sem fjárhags-
staða Veraldar er erfið og allt bendir
til þess að SvavariEgilssyni, aðaleig-
anda fyrirtækisins, takist ekki að
bjarga því frá stöðvun. Áður en
Andri Már hætti gerði hann Svavari
tilboð um kaup á Veröld fyrir 40
milljónir króna. Svavar hafnaði til-
boði Andra Más og það varð til þess
að framkvæmdastjóri hætti störf-
um.
Allt bendir til þess að rekstur Ver-
aldar stöðvist næstu daga, nema
takist að fá inn nýja hluthafa. Þetta
staðfestir Svavar Egilsson. Svavar á
í erfiðleikum víðar. Hann á Hótel
Höfða við Skipholt í Reykjavík. Hót-
elið er nú í uppboðsmeðferð. Sama
er að segja um einbýlishús Svavars.
Þá hefur hann tapað talsverðum
peningum á ýmsum viðskiptum,
svo sem kaupum á hlutabréfum í
Arnarflugi, íslenska myndverinu og
fleiri viðskiptum.
VERÖLD Á LEIÐ í GJALDÞROT
Eins og segir hér að ofan virðist
fátt geta komið í veg fyrir verulegar
breytingar á rekstri Veraldar. Svavar
sagði í samtali við PRESSUNA að
vissulega ætti hann í erfiðleikum en
teldi að sér tækist að fá inn nýja
hlutahafa og bjarga fyrirtækinu þar
með.
I tilboðinu sem Andri Már og fleiri
gerðu var gert ráð fyrir stofnun nýs
félags sem keypti reksturinn af
Svavari. í tilboðinu var gert ráð fyrir
að Svavar hætti öllum afskiptum af
fyrirtækinu.
„Hann tók þessu tilboði ekki. Það
átti að stofna nýtt fyrirtæki, með
nýjum mönnum með sterka eigin-
fjárstöðu. Þetta var háð því að hann
hætti öllum afskiptum og þetta er
forsenda þess að ég verði áfram hjá
fyrirtækinu," sagði Andri Már Ing-
ólfsson.
„Það sem var lagt á borðið um síð-
ustu helgi var tilboð, þar sem sterk
fyrirtæki voru með, og það var skil-
yrt að við tækju nýir eigendur og ný
stjórn. Það hefur gengið vel að selja,
til dæmis er metsala á Kanaríeyjar í
vetur. Þessi pakki lá á borðinu og
nýtt hlutafé upp á 40 milljónir,“
sagði Andri Már Ingólfsson.
Hann sagðist ætla að hugsa um
hvað hann tæki sér fyrir hendur en
til að byrja með sagðist hann ætla
að taka sér frí.
„Hann hefur að minnsta kosti
ekki tilkynnt mér það,“ sagði Svavar
þegar hann var spurður hvort Andri
Már væri hættur.
„Við áttum hjá þeim um sex
hundruð þúsund krónur. Við vorum
búnir að reyna að fá það greitt og
náðum því út með herkjum. Þeir
greiddu okkar þetta með farseðl-
um,“ sagði Tryggvi Arnason hjá
Jöklaferðum á Höfn í Hornafirði.
„Þetta er bara bókhaldsatriði,"
sagði Svavar þegar hann var spurð-
ur um þessar greiðslur.
Það eru fleiri aðilar á Höfn sem
eru í vandræðum með innheimtur á
Veröld.
„Við eigum hjá þeim útistandandi
skuldir og höfum ekkert fengið upp-
gert á þessu ári, en þetta eru ekki
stórar upphæðir," sagði Árni Stef-
ánsson, hótelstjóri á Hótel Höfn.
Hann bætti við að hann hefði mikið
reynt til að fá þessa skuld greidda en
ekki tekist.
MARGIR EIGA Á
HÆTTU AÐ TAPA
„Það hlaut að koma að þessu. Það
getur enginn rekið ferðaskrifstofu
án þess að fyrirtækið eigi einhverja
peninga. Það tapa flest fyrirtæki í
þessum rekstri og Veröld er örugg-
lega ekki undanskilin,“ sagði for-
stjóri einnar ferðaskrifstofunnar.
Vegna vandræðanna sem Veröld
á í hefur verið gripið til þess ráðs að
greiða nokkrum kröfuhöfum með
farseðlum fram í tímann.
V i .
SKILDINGANES 62 er einbýlishús
Svavars. Það er í uppboðsmeð-
ferð. HÓTEL HÖFÐI SKIPHOLTI
27. Það er einnig í uppboðsmeð-
ferð. DUGGUVOGUFt 12. Svavar er
þinglýstur eigandi annarrar og
þriðju hæðar. Á eigninni hvíla
miklar skuldir. GULLSPORT VIÐ
STÓRHÖFÐA 15. Svavar á hluta
eignarinnar, en á henni hvíla
miklar skuldir.
Ofantaldir menn eru aðeins hluti
af þeim sem eiga í einkennilegum
viðskiptum við Veröld þessa dag-
ana. Fullyrt er við PRESSUNA að
vanskil Veraldar erlendis séu einnig
umtalsverð.
TRYGGINGARNAR DUGA EKKI
Öllum ferðaskrifstofum er skylt
að vera með tryggingar til að koma
farþegum heim stöðvist rekstur við-
komandi ferðaskrifstofu. Trygging-
arnar ná hins vegar ekki til þeirra
viðskiptavina sem greitt hafa inn á
ferðir sem þeir eiga eftir að fara.
Veröld hefur verið að selja í Kan-
aríeyjaferðir sem hefjast skömmu
fyrir jól. Búið er að greiða inn á
þessar ferðir. Ef Veröld kemst í þrot
gætu þeir sem keypt hafa ferðir til
Kanaríeyja átt á haettu að tapa því
sem þeir hafa greitt.
Andri Már sagðist ekki telja mikla
hættu á að svo illa færi. Hann sagði
Veröld eiga möguleika á að selja
þessar ferðir yfir til annarrar ferða-
skrifstofu.
SVAVAR EKKI BÚINN
AÐ GEFAST UPP
„Þeir sem eru að hugsa um að
koma inn vilja ekki láta fréttast
hverjir þeir eru fyrr en allt er klapp-
að og klárt. Ég á von á að það skýr-
ist í þessari viku. Það eiga fleiri í erf-
iðleikum og það eru daglega fréttir
af fyrirtækjum sem eru í vandræð-
um," sagði Svavar Egilsson.
Andri Már Ingólfsson sagðist vera
búinn að kalla eftir aðgerðum, en
þar sem ekkert raunhæft hefði gerst
hefði hann leitað eftir hluthöfum og
þegar tilboði þeirra var hafnað
hefði hann ákveðið að hætta, þar
sem forsendur áframhaldandi starfs
væru brostnar.
SVAVAR HEFUR TAPAÐ VÍÐA
Svavar Egilsson hefur gert víð-
reist í íslensku viðskiptalífi undan-
farin ár. Hann hóf störf sem sölu-
maður hjá Jöfri, sem þá hét Tékk-
neska bifreiðaumboðið, og síðar
gerðist hann hluthafi þar. Svavar
seldi hlut sinn í fyrirtækinu og hélt
til náms í hagfræði í Kantaraborg.
Meðan Svavar var í námi geymdi
hann fé sitt í fasteignunum Þing-
holtsstræti 1 og Laugavegi 17 í
Reykjavík.
Þegar heim kom byrjaði hann á
að kaupa Naustið. Næst keypti hann
íslenska myndverið. Hann seldi
þessi fyrirtæki fljótlega aftur. Það
var JL-Völundur sem keypti Naustið
en þar sem ekki tókst að aflétta
veði, sem Svavar hafði lánað Stöð 2,
gengu kaupin til baka. Svavar fann
aðra kaupendur að Naustinu. Meðal
kaupendanna voru Helgi Rúnar
Magnússon lögfræðingurj Eggert
Magnússon, formaður KSÍ, og Sig-
uröur Örn Sigurdsson og Sigurdur
Gardarsson, báðir kenndir við Hag-
skipti.
Á meðan á öllu þessu stóð keypti
Svavar Hótel Höfða við Skipholt og
gerði tilboð í Nýjabæ á Seltjarnar-
nesi, sem Sláturfélag Suðurlands
átti. Af þeim kaupum varð ekki.
Svavar gerði einnig tilboð í Arnar-
flugsþotuna (þjóðarþotuna), en því
var ekki tekið. Þá gerði Svavar
Ómari Kristjánssyni í Þýsk-íslenska
tilboð í Útsýn og ásama tíma keypti
hann Ferðamiðstöðina Veröld.
Ómar tók ekki tilboði Svavars. Eftir
þetta keypti Svavar Ferðaskrifstof-
una Polaris af Páli G. Jónssyni.
Skömmu síðar gerði hann tilboð í
meirihlutaeign í Arnarflugi. Hann
bauðst til að greiða 200 milljónir
króna inn í Arnarflug. Hann lét 50
milljónir strax í allskyns pappírum,
sem seinna reyndust verðlitlir. Ekk-
ert varð af frekari kaupum á hluta-
bréfum í Arnarflugi. Fæst þessara
viðskipta hafa gefið nokkuð af sér.
Eina fyrirtækið sem hugsanlega
getur skilað arði er Veröld, en það
fyrirtæki getur ekki haldið hinu öllu
gangandi og er á leið í þrot.
Nú er Svavar skráður eigandi
nokkurra fasteigna í Reykjavík, sem
allar eru mikið veðsettar.
Sigurjón Magnús Egilsson
ásamt Haraldi Jónssyni