Pressan - 05.12.1991, Side 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. DESEMBER 1991
9
F
JL orvitnilegt er að taka tölur í
vinsældakönnun DV og umsnúa
þeim í fjölda kjósenda. Þannig kem-
ur í ljós að í maí sl.
töldu um 27 þúsund
kjósenda Davíð
Oddsson óvinsæl-
asta stjórnmála-
mann þjóðarinnar,
en nú um mánaða-
mótin eiga liðlega
60 þúsund kjósendur að vera komn-
ir á þessa skoðun. Með öðrum orð-
um hefur Davíð að því er virðist of-
boðið um 33 þúsund manns og þá
líklega allra síðustu daga. Líkast til
eru samráðherrar hans fegnastir at-
hygli Davíðs, til að mynda Friðrik
Sophusson vegna niðurskurðar-
mála, Jón Baldvin Hannibalsson
vegna EES-mála og Sighvatur
Björgvinsson vegna niðurskurðar
í heilbrigðis- og tryggingamálum.
Ingi Björn Albertsson hefur af
vísbendingum könnunarinnar heill-
að til fylgilags við sig um 8.500 kjós-
endur, en á móti ofboðið tæplega 3
þúsund manns . ..
F
M. yrirhugað er að halda hér á
landi vestnorrænt kvennaþing á
næsta ári. Búið er að ráða fram-
kvæmdastjóra vegna þingsins. Það
var Guðrún Ágústsdóttir, fyrrum
aðstoðarmenntamálaráðherra og
varaborgarfulltrúi Alþýðubanda-
lagsins, sem var ráðin til starfans.
Það verða konur frá íslandi, Færeyj-
um og Grænlandi sem sækja þingið.
Ekki er vitað hversu margar þær
verða, en það ræðst af styrkjum frá
Grænlandi og Færeyjum . . .
V
v inir Haralds Haraldssonar í
Andra kalla hann nú oft sín á milli
„Halla á Þjóðviljanum". Haraldur
þykir röggsamur og
beitir sér af krafti í
verkefnum sínum,
nú síðast hinu nýja
og stóra dagblaði,
sem á að koma út á
næsta ári. . .
P
JL ressan fjallar í dag um stöðu
Skálholtsskóla. Þess má geta að
skólinn var ekki inni í tölum Press-
unnar í fyrri viku
um heildargreiðslur
til kirkjumála. Skóli
þessi fellur undir
menntamálaráðu-
neytið hans Ólafs
G. Einarssonar, en
þegar þangað var
leitað um málefni hans var blaða-
manni vísað á kirkjumálaráðuneyt-
ið. Þó sitja í nefnd um framtíð Skál-
holtsskóla fulltrúar frá mennta-
mála- og fjármálaráðuneytum, en
enginn frá kirkjumálaráðuneyti.
Fulltrúi menntamálaráðherra er
hins vegar prestur. Þegar nefndar-
menn skila af sér tillögum eiga þær
að sendast til Þorsteins Pálssonar
kirkjumálaráðherra og Ólafs
Skúlasonar biskups ...
90 milUóna króna nróði af strandinu
Þegar Steindór GK 101 strandaði
við Krísuvíkurbjarg um miðjan
febrúar á þessu ári varð mannbjörg,
en báturinn náðist ekki út og er
ónýtur. Þáverandi eigandi bátsins
hafði átt hann í nokkrar vikur þegar
hann strandaði. Hann keypti bátinn
á 170 milljónir króna, með afla-
heimild sem ein og sér kostar um
100 milljónir.
Eftir að báturinn eyðilagðist á
strandstað greiddi tryggingafélagið,
Tryggingamiðstöðin, eigandanum
tryggingaverðmæti bátsins, 160
milljónir króna. Tryggingaverðið
var sem sagt 10 milljónum lægra en
báturinn kostaði með kvóta, en eftir
að eigandinn fékk bátinn greiddan
átti hann kvótann eftir. Hagnaður
útgerðarmannsins á þessari stuttu
útgerð var því um 90 milljónir
króna.
Sem sagt; útgerðarmaðurinn hef-
ur eftir strandið fullt vald á með
hvaða hætti hann ráðstafar kvóta
sem kostar um 100 milljónir króna.
MT a hefur vakið kátínu hjá mörg-
um að Hreggviður Jónsson, fyrr-
verandi þingmaður, hefur tilkynnt
Ólympíunefnd íslands að hann ætli
ekki að vera fararstjóri skíðamanna
á leikana í Albertville. Eins og marg-
ir muna varð Hreggviður fyrir
mörgum kárínum þegar hann
gleymdi skíðum landsliðsins þegar
leikarnir voru haldnir í Lake Placid
fyrir fjórum árum . . .
Báturinn Steindór GK strandaði við Krísuvíkurbjarg í febrúar. Eigandi bátsins hagnaðist um 90 milljónir við strandið.