Pressan - 05.12.1991, Síða 14
14
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. DESEMBER 1991
Útgefandi
Blað hf.
Framkvæmdastjóri
Hákon Hákonarson
Ritstjóri
Gunnar Smári Egilsson.
Ritstjórnarfuíltrúi
Sigurjón M. Egilsson
Augiýsingastjóri
Hinrik Gunnar Hilmarsson.
Drcifingarstjóri
Steindór Karvelsson
Ritstjórn, skrifstofur og
auglýsingar: Hverfisgötu 8-10,
sími 62 13 13.
Faxnúmer: 62 70 19.
Eftir lokun skiptlborös:
Ritstjórn 621391, dreifing 621395,
tæknideild 620055.
Áskriftargjald 600 kr. á mánuöi.
Verð í lausasölu 190 kr. eintakið.
Kylfa látin
ráða kasti
í PRESSUNNI í dag er meðal annars
fjallað um hvernig veiðikvóti rekst í
bókhaldi útgerðarfyrirtækja.
Samkvæmt lögum er kvótinn eign
þjóðarinnar. í reynd eru það hins veg-
ar útgerðarmenn sem eiga hann og
ráðstafa, en vegna þessa ákvæðis í
lögum hefur ekki veriö hægt að setja
ákveðnar reglur um meðferð kvótans
í reikningum útgerðarfyrirtækjanna.
Þeim er því nokkuð í sjálfsvald sett
hvernig þau fara meö hann. Og það
skyldi engan undra að þau gera það
með eigin hag að leiðarljósi. Niður-
staðan er síðan sú, að í raun borgar
ríkissjóður stóran hlut af kvótanum
sem fyrirtækin kaupa.
Eins og mörg önnur stórmál hjá
þjóðinni hangir kvótinn í lausu lofti.
í stað þess að unnið sé að sátt um mál-
ið er kylfa látin ráða kasti. Þannig
hafa gjaldþrota sjóðir ríkisins verið
látnir hengslast áfram án þess að á
málum þeirrasé tekið. Sama má segja
um lífeyrissjóðina, landbúnaðinn og
mörg önnur stórmál.
Það er fyrir löngu kominn tími til
að stjórnvöld móti afstöðu í sjávarút-
vegsmálum og hætti vangaveltum
um uppstokkun á kerfinu. Þess í stað
eiga þau að sætta sig við að núver-
andi kerfi er komið til að vera og
móta um það nothæfar reglur.
FJOLMIÐLAR
Eru karfarnir íslenskir rikisborgarar?
Stundum verða mál þeim
mun óskiljanlegri sem meira
er fjallað um þau í fjölmiðl-
um. Eitt þessara mála hefur
verið í fréttum undanfarnar
vikur og fjallar um 3.000 tonn
af karfa eða 3.000 tonn af
langhala.
Eg stend í þeirri trú að þessi
samningur við Evrópubanda-
lagið snúist um skipti á afla-
heimildum. í sjálfu sér getur
ekkert verið á móti þeim. Ef
við getum veitt loðnu eða
einhvern annan fisk sem aðr-
ar þjóðir eiga á ódýran hátt
og boðið þeim að veiða karfa
í staðinn þá er ekkert að því.
Þetta er í raun einfalt reikn-
ingsdæmi. Ef hagur okkar af
loðnuveiðunum er jafnmikill
eða meiri en af karfaveiðun-
um sleppum við vel frá mál-
inu. Það er meira að segja
mögulegt að við græðum á
því.
Þrátt fyrir endalausar frétt-
ir af þessu máli hafa þeir fjöl-
miðlar sem sinna daglegum
fréttum ekki reynt að setja
málið svona upp. Þeir hafa
þess í stað keyrt á einhvers
konar þjóðernisrembingi.
Stundum fær maður á tilfinn-
inguna undir fréttalestrinum
að þessir andskotans karfar
séu íslenskir ríkisborgarar.
Þetta mál er ekki eina
dæmið um að fjölmiðlar
pakki fréttum sínum þannig
inn að neytandanum sé
ómögulegt að mynda sér
nokkra skoðun á málinu sem
fjallað er um. Þannig var
hvalamálið rekið, þannig er
fjallað um eign útlendinga í
fiskvinnslufyrirtækjum,
þannig var skrifað um út-
flutning á ferskum fiski og
þannig var löngum fjallað um
innflutning á landbúnaðar-
vörum.
Kannski er ekkert að því að
fjölmiðlar líti á mál út frá
ákveðnu sjónarhorni. Að þeir
leggi málin ekki fram af mar-'
flötu hlutleysi. En það á að
gera þannig að upplýsingar
málsins fylgi með, þannig að
neytandinn geti litið framhjá
umbúðunum og mótað sér
skoðun sjálfur.
Gunnar Smári Egilsson
„Stundum óskaði ég þess að
Svavar vseri bensínsölumað-
ur og ég i afgreiðslunni. Þó
hefði þetta kannski allt ver-
ið miklu auðveldara."
Spámaðurinn
„Eg get ekki svarað því í dag
hvað ég geri á morgun."
Albert Guömundsson sendiherra
Huldufólkið í Framsókn
„Þetta er kannski of mikið
fylgi tii að hægt sé að trúa
því.“
Steingrímur Hermannsson
* •
^ntT^
IMI
Konnnglegur húrnor
„Eg skemmti mér konungiega
vegna þess að þetta er
húmor. Menn geta grett sig ef
þeir vilja en það sem tríóið
flutti var bæði bráðsmellið
og fyndið."
Jón Baldvin Hannibalsson
GUÐRÚN ÁGÚSTSDÓTTIR SAMBÝLISKONA
Það væri nær
að tala um HM
í bjartsýni
„Við höldum okkar striki í
þessu máli. Við ætlum að
halda HM í handknattleik
eins og til hefur staðið.“
Jón Hjaltali’n Magnusson
formaður HSI
Stökkbreyttur kennari
„Karate er að læra að lemja
fólk með stæl en maður gerir
það auðvitað ekki í
raunveruleikanum.“
Gérard Chinotti
alþingismaður
utanríkisráðherra
framhaldsskólakennari
Vændi og refsing
Á Alþingi hefur verið lagt
fram frumvarp til breytinga á
almennum hegningarlögum
um kynferðisbrot.
Því miður hafa fjölmiðlar
lítið sem ekkert fjallað um
það í heild. En hafa blásið
upp eitt atvik. í umræðum í
þinginu kvaðst Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir því andvíg að
refsa vændiskonum. Það
væri óréttlátt. Enginn stund-
aði vændi nema í neyð af
völdum eiturlyfjaneyslu eða
annarrar félagslegrar ógæfu.
Þessi orð hafa verið ótrú-
lega misskilin og út úr þeim
snúið á alla vegu. Hafa menn
jafnvel ásakað Kvennalistann
fyrir að telja vændi ákjósan-
legan atvinnuveg.
Staðhæfing Ingibjargar er
að vísu umdeilanleg. Nýleg
íslensk rannsókn á vændi
bendir einmitt til þess að hér
sé algengast svo kallað hót-
elavændi. Efnaðir kaupsýslu-
menn kaupi sér lagskonur
meðan þeir doka við í erind-
um sínum. Þær konur virðast
því vera menntaðar og kunna
erlend tungumál. Þær standa
að minnsta kosti ekki í lægstu
þrepum þjóðfélagsins. En
dópistar geta þær verið.
Hitt er þó óumdeilanlegt,
og skiptir meira máli, að í
framkvæmd mundu þessi lög
fyrst og fremst bitna á stúlk-
um, sem lifa í mikilli neyð á
götunum, meira og minna
sjúkar af völdum vímuefna.
Þær eru varnarlausastar og
mestir smælingjar. Og þótt
sumir segi að viðurlögin séu
fyrst og fremst til varnaðar
yrði þó dæmt eftir þeim þeg-
ar til kastanna kæmi.
Álit Kvennalistans er því
eðlileg tilfinning fyrir rang-
læti. Það kemur því á óvart
að þeim finnst aftur á móti
ekkert athugavert við það að
refsa þeim sem kaupa vændi.
Ekki siður getur það þó
leitt til ranglætis. Þaö er al-
kunnugt að fyrsta kynlífs-
reynsla ungra manna í út-
löndum er stundum með
vændiskonum. Þeir hugsa
með sér, ef ungur og graður
maður hugsar þá nokkuð á
þeim tímamótum, að þetta sé
í boði og því ekki á þeirra
ábyrgð. Og það væri annað
en gaman að lenda í tukthúsi
fyrir fyrsta sinnið. Sumir við-
kvæmir strákar biðu þess
ekki bætur. Auk þess er fjöldi
fólks, af báðum kynjum, sem
vegna innri hamla á mjög
erfitt með að nálgast hitt kyn-
ið. Sú staðreynd er reyndar
eitt af mestu tabúum í þjóðfé-
laginu og aldrei rædd opin-
berlega. En þetta fólk hefur
kynhvöt eins og við öll. Það
getur líka verið sérlega við-
kvæmt og brothætt. Og í ein-
manaleika sínum og einangr-
un gæti sumt af því freistast
til að kaupa sér vændi. Að
verða svo dæmt fyrir vikið
gæti hreinlega riðið sumum
að fullu. Síst er á þjáningar
þeirra bætandi. Með mikilli
virðingu fyrir skoðunum
Kvennalistans í þessu máli er
skilningur hans á þessum
punkti fulleinhliða. Kynferð-
ishegðun okkar er mjög flók-
Hertoginn af Islandsmiðum
Fiskverkendur af Suður-
nesjum komu á fund Stein-
gríms Hermannssonar í for-
sætisráðherratíð hans og
lýstu fyrir honum hvert sjáv-
arútvegurinn í kjördæminu
væri að fara. Þeir sögðu hann
stefna lóðrétt til andskotans.
Eftir að hafa hlustað á fisk-
verkendurna um tíma leit
Steingrímur á þá og sagði:
„Hafið þið talað við hann
Kristján?"
Það er erfitt að meta hver
er vitleysingurinn í þessari
sögu. Kannski var það forsæt-
isráðherrann og þingmaður-
inn úr Reykjaneskjördæmi,
sem lét sig áhyggjur fisk-
vinnslukarlanna litlu skipta
og sendi málið frá sér. En
kannski voru það fiskvinnslu-
mennirnir sem áttu að vita að
það skipti í raun engu máli
hvað Steingrímur sagði eða
vildi. Þegar allt kemur til alls
er það Kristján Ragnarsson
sem ræður öllu í íslenskum
sjávarútvegi.
Það hafa fáir þorað að and-
mæla Kristjáni. Að minnsta
kosti enginn sjávarútvegsráð-
herra. Sá sem reyndi það gæti
allt eins pakkað saman og
ið fyrirbæri og lýtur m.a.
ýmsum torskildum dulvituð-
um þáttum. í reynd er því
mjög erfitt að fella hana að
hefðbundnum viðmiðunum
æskilegrar breytni og röklegs
siðferðis. Vændi er síður en
svo eingöngu það að karl-
menn séu að níðast á konum.
En það gæti maður einna
helst haldið á stundum við
málflutning ýmissa róttækra
jafnréttiskvenna.
Refsing fyrir vændi býður
sem sagt ranglæti heim.
Bæði fyrir þá sem selja og
kaupa. Ef vændi á hins vegar
að vera refsivert hvað sem
tautar og raular verður rang-
lætið að ganga jafnt yfir alla.
Þá kemur ekki annað til
mála en að refsingin bitni
jafnt á kaupendum sem selj-
endum.
kysst ráðuneytisstjórann
bless. Þann kost hefur enginn
tekið enn og því hefur Krist-
ján haft þá Þorstein, Halldór,
Steingrím og alla hina í vas-
anum.
Sá eini sem hefur andmælt
Kristjáni nýverið er Jón Sig-
urðsson í Járnblendinu.
Hann sagði að Kristján hefði
aldrei rekið neitt nema kon-
tórinn hjá LÍÚ. Jón skildi því
ekki hvað Kristján var að
vilja upp á dekk til að hafa
skoðanir á því hvernig Járn-
blendiverksmiðjan væri rek-
in.
Kannski er ástæðan fyrir
því hversu fáir stugga við
Kristjáni sú að hann kæfir
alla andstöðu í fæðingu.
Þannig réðst hann á Friðrik
greyið Sophusson um daginn
og sagðist hlessa á þvi að
maður með slíkar skoðanir á
sjávarútvegsmálum gæti
komist í stól fjármálaráð-
herra.
Reyndar hefur enginn skil-
ið almennilega hvað Friðrik
vill í sjávarútvegsmálum.
Hann slær svona í og úr. Frið-
rik er meira að segja nógu tví-
stígandi í þessum málum til
að landsfundur Sjálfstæðis-
flokksins samþykkti ályktun
sem var nokkurs konar upp-
suða á vangaveltum Friðriks
um sjávarútveginn.
En hjá Kristjáni gildir að sá
sem ekki er með honum er á
móti honum. Það var nóg fyr-
ir hann að ekki var hægt að
lesa halleljúa-hróp um LIÚ og
Kristján út úr tali Friðriks.
Það er út frá þessum skýru
línum sem Kristján hefur
haldið kontórnum hjá LÍÚ
saman. Og það þarf skýrar
línur til þess. Innan LÍÚ eru
ótrúlegar ólíkir hagsmunir,
sem í raun eiga ekkert erindi
í sömu samtökin. Þar eru fisk-
verkendur sem eiga báta en
kaupa jafnframt fisk af öðr-
um innan um útgeröarmenn
sem selja aflann hæstbjóð-
anda.
Þessu hefur Kristjáni tekist
að halda saman. Þótt deila
megi um tilganginn er þetta
ábyggilega meira verk en
reka eina járnblendiverk-
smiðju.
Sigurður Þór Guðjónsson
ÁS
\
\
o
o
RíUFflP.Hc.'FfJ fWMWPJ
KVt' epru KftpFíM
pEyttrÁVi'fd M5P Km
'A é& AP
A/eei slafFUR
HA-HA-HA
^\Cf>
SKALLA HA-HA
ViÐ HELDUn AD ÞÚ. V/ERÍR. FAo/frí HTÁ
SKRrMSLÍNiÁ \ BLÁA /-ÓKfÍMlAÍ MíKíD BNri\
AMlJARS UNffrLEG-UR VARSTU (Mt>LiTS-
LyFTíN&Uj^tiVAt?/1 s^VjSLÍ ítLÁftlírfM
m þÝSKU £>ÍSSWKSMEMNiP.Nl ^ SEM
RUNMU SAtfAM í EíTT t\EP OLLUfÁ
GERLUNWn ÞAR. O& STTÓRNA NU
ÖLUk XStANPi JT