Pressan - 05.12.1991, Síða 16
16
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. DESEMBER 1991
JAKOB
Magnússon er nú örugg-
lega frægastur íslendinga í
útlöndum og hefur tekiö
við af Tælandsförunum.
Víst má telja að hann sé
umdeildastur íslenskra
embættismanna um þessar
mundir. Utanríkisráðherra,
k Jón Baldvin Hannibalsson,
skemmtir sér hið besta yfir
■þessú'en það sama verður
eWr sagt um það þegar síð-
ast varð uppsteytur í þjón-
ustunni. Pá endaði Jón á
að hrekja Hannes Jónsson
sendiherra í burtu sem
reyndar er félagi
BJARNA EINARSSONAR
í Byggðastofnun í
and-EES-samtökunum og
nú er búið að reka Bjarna
og Jónas Hallgrímsson úr
stjórn norrænu útkjálka-
samtakanna. En talandi um
embættismenn er furðual-
gengt að þeir efni til
ágreinings við pólitíkusana.
Nýjasta dæmið er auðvitað
þegar Guðmundur Malm-
quist, forstjóri Byggðastofn-
unar, endaði á því að biðja
Davíð Oddsson afsökunar.
Garðar Halldórsson, Húsa-
meistari ríkisins, hefur
sloppið betur, en margir
stjórnmálamenn hafa viljað
leggja hann niður, þar á
meðal Svavar Geslsson og
Ólafur P. Þórðarson. Nú, þá
lenti
ÓLAFUR ÓLAFSSON
landlæknir upp á kant við
Sighvat Björgvinsson heil-
brigðisráðherra í sumar út
af Hallgrími Magnússyni
kraftaverkalækni og lokun
stofu hans. Ólafur þurfti þó
ekki að segja af sér eins og
aumingja Magnús Thorodd-
sen, sem gerðist of skraut-
legur. Þá má nefna fleiri lit-
skrúðuga þar sem fara Jón
Isberg sýslumaður og Sverr-
ir Hermqnnsson bankastjóri
— fádæma óþægir embætt-
ismenn sem hafa komið sér
upp lager af öðru vísi skoð-
unum.
. IIVUl U. ,V/.'VlJ.V(/SSON
sem er að láta af embætti
gatnamálastjóra, en þá er
líklegt að nagladekkin hefj-
ist aftur til vegs og virðing-
ar í Reykjavík.
Tekjur forstjóra og landverkafólks 1980 og 1990
Höröur Sigurgestsson. A sínu fyrsta heila ári sem forstjóri Eimskipafélagsins hafði hann mánaöartekjur upp á tæplega hálfa milljón króna. A síðasta
ári var hann kominn upp í rúma milljón á mánuði. Áður var hann 5 verkakvenna maki, en nú hefur hann tekjur á við 13 verkakonur.
FOBSTJORAR STÚRFYRIKTfflMA
HAHl TVÖFALOAB TBTJUR SÍNAR
Á sama tíma og forstjórar hafa hækkað í mánaðartekjum úr 455 þúsund krónum í
765 þúsund hafa heildarlaun verkafólks dregist saman um 10 þúsund krónur
Mánaðartekjur forstjóra 16
stórfyrirtækja hafa hækkað
að raungildi úr 455 þúsund
krónum árið 1980 í 764 þús-
und árið 1990 eða um 68 pró-
sent. Hækkunin er þó enn
meiri hjá einstökum forstjór-
um; þannig voru mánaðar-
tekjur Hardar Sigurgestsson-
ar, forstjóra Eimskipafélags-
ins, um 498 þúsund krónur
árið 1980 en voru á síðasta
ári 1.040 þúsund krónur að
núvirði — ríflega ein milljón á
mánuði.
Á sama tíma og forstjórarn-
ir hafa hátt í tvöfaldað mán-
aðartekjur sínar að raungildi
hafa heildarlaun launafólks í
ASÍ, landverkafólks, lækkað.
úr tæplega 111 þúsund krón-
um í 106 þúsund krónur eða
um 4 prósent. Mánaðartekjur
verkakvenna hafa lækkað
mest hlutfallslega,' úr 91.800
krónum í 81.500 krónur eða
um 11 prósent.
Árið 1980 voru forstjórar
16 stórfyrirtækja samkvæmt
skattskrá með að meðaltali
455.500 krónur á mánuði, en
launafólk í ASÍ með 110.700
krónur í heildarlaun á mán-
uði, að yfirvinnu meðtalinni.
Munurinn þarna á milli var
fjórfaldur eða um 310 pró-
sent. Árið 1990 voru forstjór-
arnir komnir upp í 764.000 á
mánuði, en launafólkið í ASÍ
niður i 106.500 krónur. Mun-
urinn á forstjórunum og
launafólkinu hafði aukist upp
í að vera rúmlega sjöfaldur
eða 617 prósent.
HÖRÐUR ORÐINN
13 VERKAKVENNA MAKI
Meðaltölin segja þó ekki
nema hálfa söguna. Hörður
Sigurgestsson var 1980 á
fyrsta heila ári sínu sem for-
stjóri Eimskipafélagsins og
fékk um 498 þúsunda króna
tekjur á mánuði. Verkakonur
voru þá með 91.800 krónur
og var Hörður því með tekjur
á við fimm verkakonur og
rúmlega það. Á síðasta ári
voru mánaðartekjur Harðar
1.040.000 krónur að núvirði,
en mánaðartekjur verka-
kvenna 81.500 krónur. Hörð-
ur var með öðrum orðum
orðinn nær 13 verkakvenna
maki. Ekki má í þessu sam-
bandi gleyma því að Hörður
hefur á tímabilinu eignast
hlutabréf í Eimskipafélaginu
og Flugleiðum sem talin eru
65 milljóna króna virði í dag
og sjálfsagt er arður af þess-
um bréfum þokkalegur.
Þeir eru fleiri en Hörður
sem hafa hækkað verulega í
tekjum. Það gildir til dæmis
um Indrida Pálsson, sem ný-
verið lét af störfum sem for-
stjóri Skeljungs. Mánaðar-
tekjur hans voru 447 þúsund
að núvirði 1980, en 910 þús-
und í fyrra. Raunhækkunin
er því 104 prósent. Vilhjálm-
ur Jónsson er einnig nýlega
hættur sem forstjóri Olíufé-
lagsins. Mánaðartekjur hans
1980 voru 398 þúsund krónur
en 804 þúsund í fyrra. Hækk-
unin er 102 prósent. Ingi-
mundur Sigfússon, forstjóri
Heklu, er hins vegar mikill
eftirbátur þeirra. Á þessu
tímabili hækkuðu mánaðar-
tekjur hans úr 413 þúsundum
í 600 þúsund eða um ,,að-
eins" 45 prósent.
GENGI FORSTJÓRA
HEFUR HÆKKAÐ UM
309.000 KRÓNUR
Samkvæmt skattskrá 1981,
þar sem. er að finna skatt-
skyldar tekjur 1980, höfðu
forstjórar Eimskipafélagsins,
Skeljungs, Heklu, Olíufélags-
ins, Flugleiða^ SÍS, Sláturfé-
lagsins, IBM, Isals, Sjóvár, ís-
lenskra aðalverktaka, Trygg-
ingamiðstöðvarinnar, Trygg-
ingar, Samvinnutrygginga, Is-
bjarnarins og O. Johnson &
Kaaber — forstjórar alls 16
stórfyrirtækia — að meðaltali
455 þúsund krónur á mánuði.
Mánaðartekjur forstjór-
anna voru allt frá 212 þúsund-
um hjá Thor Thors, forstjóra
Aðalverktaka, og 303 þúsund
hjá Hannesi O. Johnson, for-
stjóra Tryggingar, upp í 876
þúsund hjá Ottó A. Michels-
en, forstjóra IBM (og Skrif-
stofuvéla), og 725 þúsund hjá
Ragnari S. Halldórssyni hjá
ÍSAL.
PRESSAN hefur til saman-
burðar tekjukörfu fyrir 1990,
þar sem forstjóra 11 fyrst
töldu fyrirtækjanna er að
finna, en í stað 5 hinna síðast
töldu voru valdir forstjórar
Vátryggingafélagsins, Sam-
vinnuferða-Landsýnar, Sölu-
miðstöðvarinnar, Granda og
Byko. Mánaðartekjur for-
stjóranna í þessari 16 manna
„körfu" voru í fyrra 764 þús-
und krónur eða að meðaltali
309 þúsundum króna hærri
en 1980.
Mánaðartekjurnar innan
þessa forstjórahóps voru allt
frá 403 þúsundum króna hjá
Helga Jóhannssyni hjá Sam-
vinnuferðum-Landsýn og
565 þúsundum hjá Steinþóri
Skúlasyni hjá Sláturfélaginu
upp í 1.040 þúsund hjá Herði
Sigurgestssyni og 1.027 þús-
und hjá Gunnari M. Hanssyni
hjá IBM.
FORSTJÓRARNIR
ÍVILNA SUMUM SINNA
LÆGRA SETTU
Á sama tíma og mánaðar-
tekjur forstjóranna 16 hafa
hækkað um 68 prósent hafa
heildarlaun landverkafólks í
ASÍ lækkað að raungildi um 4
prósent. Þróunin á tímabilinu
hefur reyndar sveiflast tals-
vert, kaupmátturinn hrundi
þannig með stjórnvaldsað-
gerðum 1983 til 1985, en
hafði náð fyrri styrk og rúm-
lega það 1987 til 1988. Síðan
hafa launin lækkað á ný.
En rétt eins og á milli for-
stjóra og launafólks hafa inn-
byrðis launahlutföll raskast
innan ASÍ. Verkakonur og
verkakarlar hafa 10 þúsund
krónum minna í mánaðar-
tekjur en árið 1980 og kaup-
mátturinn hefur minnkað um
9 til 11 prósent. Á hinn bóg-
inn er nú 9 þúsundum króna
meira til skiptanna hjá af-
greiðslukörlum og tæplega 8
þúsundum meira hjá skrif-
stofukörlum.
Um leið hefur launamunur
á milli skrifstofukarla og
skrifstofukvenna aukist úr
því að vera 34 þúsund eða 36
prósent í að vera 47 þúsund
eða 52 prósent. Afgreiðslu-
karlar höfðu áður 22 þúsund-
um króna meira en af-
greiðslukonur eða 26 pró-
sent, en á síðasta ári var mun-
urinn 31 þúsund eða 36 pró-
sent.
Það er því greinilegt að
ekki er nóg með að forstjór-
arnir skammti sér nær tvö-
föld laun miðað við það sem
áður var, heldur hafa laun út-
valinna launþega aukist, sér-
staklega karla í hvítflibba-
störfum, en laun almenns
verkafólks hrunið.
Fríðrík Þór Guðmundsson
MÁNAÐARTEKJUR FORSTJÓRANNA
1980 1990 Mismunur %
Forstjóri Eimskips 498.000 1.040.000 542.000 +109,0%
Forstjóri Skeljungs 447.000 910.000 463.000 +103,6%
Forstjóri Heklu 413.000 601.000 188.000 +45,3%
Forstjóri Olíufélagsins 398.000 804.000 406.000 +102,0%
Forstjóri Flugleiöa 587.000 753.000 166.000 +28,2%
Forstjóri SIS 514.000 1.000.000 486.000 +94,6%
Forstjóri SS 421.000 565.000 144.000 +34,2%
Forstjóri IBM 876.000 1.027.000 151.000 +17,3%
Forstjóri Isals 725.000 846.000 121.000 +16,7%
Forstjóri Sjóvár 394.000 763.000 369.000 +93,5%
Forstjóri Aðalverktaka 212.000 575.000 363.000 +171,6%
„KARFA" 16 FORSTJÓRA 455.000 764.000 309.000 +67,7%
... OG MÁNAÐARLAUN LANDVERKAFÓLKS
1980 1990 Mismunur %
Verkakarlar 115.300 105.000 + 10.300 +8,9%
Verkakonur 91.800 81.500 + 10.300 +11,2%
Iðnaðarmenn 137.700 139.200 + 1.500 +1,1%
Afgreiðslukarlar 106.100 115.400 + 9.300 + 8,8%
Afgreiðslukonur 84.100 84.700 + 600 +0,7%
Skrifstofukarlar 129.200 136.800 + 7.600 +5,9%
Skrifstofukonur 95.200 89.700 + 5.500 +5,8%
LANDVERKAFÓLK ASÍ 110.700 106.500 + 4.200 +3,8%