Pressan - 05.12.1991, Page 22
22
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. DESEMBER 1991
LANDIÐ FÝKUR ...
Ríó tríó leggur sitt af mörk-
um til ad halda í landiö
med þuí ad gefa út ,,Lartdid
fýkur burt". Landgrœdslan
fœr úgóöann.
EGILL TIFAR ...
Egill Olafsson med stna
fyrstu sólóútgáfu, Tifa Tifa.
Margir þekktir listamenn
adstoda.
YFIR HÆÐINA...
Rúnar Þór med eigin lög
sem hann flytur með sinni
rámu rödd.
BACH...
Edda Erlendsdóttir píanó-
leikari leikur sónötur, fant-
asíur og rondó eftir C.RE.
Bach.
JÖRÐ...
Geiri Sœm fylgir eftir uin-
sœldum Sterans med útgáf-
unni ,,Jörd“.
BLÁR MÁNI...
Sléttuúlfarnir láta gamminn
geysa „Undir bláum mána".
Þrettán ýlfrandi lög.
JÓLABOÐ...
Dengsi lœtur sig ekki muna
um ad snara fram „ Jóla-
balli“ meö félögum sínum.
EINS OG ÞÁ ...
Savannatríóid er komið
fram á sjónuarsviðið eftir
hlé í aldarfjórðung og er al-
veg „Eins og þá“.
Þar sem ekkert upplags-
eftirlit er með plötuútgáfu
hérlendis er erfitt að segja
til um með fullri vissu
hvaða íslenskar plötur hafa
selst mest í gegnum tíðina.
Eftirtalinn listi er byggður á
samtölum við nokkra út-
gefendur og Rokksögu
Gests Guðmundssonar, en
þó ber að taka hann með
fyrirvara.
Mest seldu plöturnar á
þessum lista komu út fyrir
um eða yfir 20 árum og af
þeim seljast enn hátt í eitt
þúsund eintök á ári.
I. —2. Dýrin í Hálsaskógi og
Kardimommubærinn.
Ýmsir leikarar. 40.000 ein-
tök.
3. Vísnaplatan.
Gunnar Þórðarson, Tómas
Tómasson og Björgvin Hall-
dórsson. 20.000.
4. Hönd i hönd.
Systkinin frá Bolungarvík.
20.000. .
5. Dögun.
Bubbi Morthens. 19.100.
6. íslensk alþýðulög.
Ýmsir söngvarar. 19.000.
7. Út um græna grundu.
Gunnar Þórðarson, Tómas
Tómasson og Björgvin Hall-
dórsson. 15.000.
8. í fylgd með fullorðnum.
Bjartmar Guðlaugsson.
14.000.
9. Nóttin langa.
Bubbi Morthens. 13.500.
10. Gamlar, góðar lummur.
Lummurnar. 13.000.
II. Ljúfa líf.
Þú og ég, Jóhann Helgason
og Helga Möller. 13.000.
12. Hvar er draumurinn?
Sálin hans Jóns míns.
12.500.
fc. Úr öskunni í eldinn.
Brunaliðið. 12.000.
UM EÐA YFIR 10 ÞÚSUND
EINTÖK
Meðal hljómplatna sem
hafa selst í um eða yfir 10
þúsund eintökum hver:
12 íslensk bitlalög.
Bítlavinafélagið.
Kona.
Bubbi Morthens.
Dúmbó og Steini.
Stuð, Stuð, Stuð.
Hljómar.
Brottför kl. 8.
Mannakorn.
Uppteknir.
Pelikan.
Á þjóðlegum nótum.
Ríó tríó.
Ekki vill það batna.
Ríó tríó.
Með allt á hreinu.
Stuðmenn.
Sumar á Sýrlandi.
Stuðmenn.
Sykurmolarnir hafa selt plötur á alþjóðamarkaöi í miklu stærra upplagi en nokkur önnur íslensk hljómsveit.
OVINAFAGNAÐUR
• •
METSOLULISTA
Örugg leiö til að afla sér
óvinsœlda er aö útbúa lista
yfir vinsœlustu og mest seldu
íslensku hljómplöturnar fyrr
og síöar og birta hann.
Tölur um mest seldu plöt-
urnar á hverjum tíma hafa
jafnan verið umdeildar svo
ekki sé fastar að orði kveðið.
Utgefendur hafa oft farið í
hár saman vegna þess arna,
svo ekki sé minnst á tónlistar-
menn, sem stundum telja töl-
ur um sölu keppinautanna
haugalygi frá upphafi til
enda. Asakanir um óeðlileg
vinnubrögð við samantekt á
listum yfir vinsælustu lögin
eða mest seldu útgáfurnar
hafa verið háværar frá þeim
sem telja sig hafa borið skarð-
an hlut frá borði við slíka
samantekt.
Hvað sem líður deilum um
hvaða plötur seljast best hafa
menn einatt verið að
klambra saman listum yfir
vinsælustu lögin og plöturn-
ar. í Poppbókinni eftir Jens
Kr. Guðmundsson, sem út
kom árið 1983, er birtur listi
yfir bestu íslensku popp- og
rokkplötur allra tíma. Listinn
er byggður á áliti 25 „popp-
áhuga- og kunnáttumanna",
en tekið fram að birting hans
sé til gamans gerð.
Þarna eru Megas og Spil-
verk þjóðanna í efsta sæti „Á
bleikum náttkjólum" og „ís-
bjarnarblús" Bubba í öðru
sæti. Næst eru síðan Stuð-
menn með „Sumar á Sýr-
landi“ og í fjórða sæti Trú-
brotsplatan „Lifun“... Þar
næst eru það „Fingraför"
Bubba og „Plágan" með
sama. Þannig er Bubbi með
þrjár af sex bestu plötunum á
þessum lista, sem segir sína
sögu.
MEST SELDU ÍSLENSKU
PLÖTURNAR ERLENDIS
Samkvæmt Rokksögu
Gests Guðmundssonar eru
eftirtaldar plötur með ís-
lenskum flytjendum þær
sem mest hafa selst, en
sölutölur munu ónákvæm-
ar:
1. Life's too good.
Sykurmolarnir. 1.000.000.
2. Illur arfur — Here today
tomorrow next week.
Sykurmolarnir. 600.000.
3. Surprise, surprise.
Mezzoforte. 500.000.
4. Rising.
Mezzoforte. 150.000.
MARGT SEM HEFUR AHRIF A SÖLUNA
Elestum ber saman um aö '
þótt lagasmiöum og flytjend-
um takist að koma saman
góöu lagi eöa lögum og gefa
út á plötu sé bara hálfur sigur
unninn. Til aö festa plötuna í
sessi eöa ákveöin lög afhenni
og tryggja góöa sölu þurfi
ýmislegt fleira aö koma til.
Útgefandinn þarf aö standa
vel aö auglýsinga- og kynn-
ingarmálum, platan þarf aö
fá spilun á útvarpsstöövun-
um og œskilegt aö fylgja út-
gáfunni eftir meö hljómleik-
um. Textinn skiptir líka máli
í vinsœldum laga. Magnús Ei-
ríksson sagöi á sínum tíma aö
viðlagiö „Ég er á leiðinni —
alltaf á leiöinni“ heföi haft
mjög mikil áhrif á vinsældir
lagsins og þetta lag muni
hafa selt plötu Brunaliösins1
fyrst og fremst. Þá má benda
á að ýmsir textar sem Bubbi
hefursamið viö eigin löghafa
átt drjúgan þátt í vinsœldum
laganna. Enda ernú almennt
meira lagt upp úr textagerö
en áöur tíökaöist.
Það gefur augaleið að þeir
sem gefa sjálfir út plötur sínar
hafa í fæstum tilvikum efni á
að verja miklu fé til beinna
auglýsinga og eiga því oft erf-
itt með að vekja athygli á út-
gáfunni. Auk þess er þessu
efni oft tekið með nokkurri
tortryggni þar sem það hefur
ekki hlotið náð fyrir augum
stóru útgáfufyrirtækjanna.
Þessar útgáfur eru því sjaldn-
ast á métsölulistum.
Stóru nöfnin í poppheimin-
um berjast jafnan hart á jóla-
markaðinum þegar mest er
gefið út. Þá hleypur mönnum
stundum kapp í kinn og brig-
slyrði ganga á víxl um upp-
lognar sölutölur helstu keppi-
nauta eða útgefenda þeirra.
Umsjónarmenn tónlistar-
þátta útvarpsstöðvanna
liggja undir ásökunum um að
spila sum lög oftar en önnur
og annarlegar hvatir taldar
liggja þar að baki. En það fer
ekki milli mála að sumar út-
gáfur seljast betur en aðrar
og þótt seint verði hægt að
setja saman skotheldan lista
yfir söluhæstu tónlistarútgáf-
urnar er sífellt verið að spá í
þau spil.