Pressan - 05.12.1991, Side 23
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. DESEMBER 1991
23
STEF ER SKAMMSTÖFUN FYRIR
Samband tónskálda og eigenda
flutningsréttar og fer með og gætir
þess réttar sem höfundalög veita
lagasmiðum og söngtextahöfund-
um. Hér er um alþjóðasamtök að
ræða sem stofnuð voru í París á sín-
um tíma.
Um kveikjuna að stofnun STEF er
sögð sú saga að nokkrir ungir tón-
smiðir hafi verið að borða á veit-
ingahúsi í París. Þegar kom að reikn-
ingnum fóru þeir að ræða um það
sín á milli að það væri óréttlátt að
þeir þyrftu að borga veitingarnar
fullu verði en hljómsveit hússins
léki lög þeirra án þess þeir fengju
nokkrar greiðslur. Þetta endaði með
því að þeir neituðu að borga reikn-
inginn og hurfu á braut. Eigandi
vertshússins fór í mál við tónsmið-
ina og vildi fá þá dæmda til að
greiða reikninginn en hann tapaði
málinu.
BRESKA HLJÓMSVEITIN SEX PIST-
ols skapaði pönkið ásamt Clash. Þau
í Sex Pistols létu öllum illum látum
á sviði og utan þess og endaði með
ósköpum. Bassaleikarinn Sid Vicio-
us stakk auga úr bróður söngkon-
unnar Patty Smith, myrti svo unn-
ustu sína, Nancy, og framdi loks
sjálfsmorð.
JEPPA
HJÓLBARÐ-
ARNIR
VINSÆLU
»HANK00K
Jeppahjólbarðar
frá Suður-Kóreu:
215/75 R15 kr. 6.550
235/75 R15 kr. 7.460
30- 9,5 R15 kr. 7.950
31- 10,5 R15 kr. 8.950
31-11,5 R15 kr. 9.950
33-12,5 R15 kr. 11.600
Hröð og örugg
þjónusta
BARÐINN hf.
Skútuvogl 3 ■ Rayfcjavfk
BRUNALIÐIÐ NEFNDIST HLJÓM-
sveit sem Jón í Skífunni klastraði
saman í hasti seint á áttunda ára-
tugnum. í Brunaliðinu voru Ragn-
hildur Gísla, Laddi, Magnús Kjart-
ansson, Pálmi Gunnarsson, Magnús
Eiríksson og fleiri. Hljómsveitin
varð vinsæl um skeið út á lagið „Ég
er á leiðinni". Af einhverjum ástæð-
um fékk Reykingavarnarnefnd mik-
ið dálæti á Brunaliðinu og gaf út
plakat með mynd af liðinu sem átti
að sýna heilbrigða listamenn sem
rr
ekki reyktu. Yfirskriftin var: Við
reykjum ekki. Þessu til viðbótar gaf
Reykingavarnarnefnd út plötu með
Brunaliðinu. Þetta þótti ýmsum
nokkuð skondið því mikið sukk var
á Brunaliðinu og allir meðlimirnir
reyktu nema einn eða tveir.
HLJÓMSVEITIN KAMARORGHEST-
ar gaf út plötuna „Bísar í banastuði"
fyrir einum tíu árum. Meðal laga á
plötunni var eitt sem hét því hug-
ljúfa nafni „Bítt’í rassgatið á þér“.
Annað lag hét „Samviskubit” og í
texta þess var talað um að fá sér á
snípinn. Þessi lög voru bönnuð í Rík-
isútvarpinu.
NAFNAFLÓRA ÍSLENSKRA HUÓM-
sveita gegnum árin er hin skrautleg-
asta. Nokkur dæmi: Crass, íkarus,
Loðin rotta, Lummurnar, Galdra-
karlar, Hljómar, Trúbrot, Manna-
korn, Friðryk, Celsíus, Ljósin í bæn-
um, Lúdó, Plútó, Taugadeildin,
Fræbbblarnir, Mogo Homo, Anna &
grafararnir, Bodies, Snillingarnir,
Þrælarnir, Bravó, Tempó, Q4U, Þeys-
arar, Scream, Gúanóbandið, Diabol-
us in Musica, Tappi tíkarrass, Bruni
BB, Kukl, Purrkur Pillnikk, Paradís,
Póker, Start, Chaplin, Þrek, Tíbrá,
Óðmenn, Mánar, Ævintýri, Bláber,
Moldrok, Miðaldamenn, Sauðfés,
Ræsið, Rotþróin, Sogblettir, Soror-
icide, Exit, Saktmóðígur, Risaeðlan,
Vaselin, Oxsmá, Iss, Júdas.
SMEKKLEYSA VEITTI SMEKK-
leysuverðlaun þeim sem höfðu skar-
að fram úr í smekkleysu. Fyrsti verð-
launahafinn var Hrafn Gunnlaugs-
son fyrir hæfileika sína við að koma
verkum sjálfs sín, fjölskyldu sinnar,
vina og ættingja að í sjónvarpinu
eftir að hann tók við dagskrárdeild-
inni. Jakob Frímann Magnússon átti
að fá smekkleysuverðlaunin næst
en hann afþakkaði þau.
JOUJAPIS
Hjá okkur í JAPIS getur þú fundið gott úrval hljómtækja stök
eda í stæðum, lítil tæki og stór á þeim verðum sem henta þér.
Verum hagsýn þessi jól og verslum í JAPIS.
Panasonic
S G H D 5 2
•Alsjálfvirkur plötuspilari
•fullkominn geislaspilari
•tvöfalt segulband
•útvarp m/FM, MW, LW
•magnari 180 w
•7 banda tónjafnari m/minni
•fallegir hátalarar í viðarkassa
•fjarstýring.
kr. 69.800 stgr.
Panasonic
S G H M 4 2
•hálfsjálfvirkur plötuspilari
•fullkominn geisiaspilari
•tvöfalt segulband
•útvarp m/FM, MW, LW
•50 w. magnari
•5 banda tónjafnari
•fallegir hátalarar í viðarkassa
•fjarstýring
kr. 56.950 stgr.
Panasonic
S G H M 2 2
•hálfsjálfvirkur plötuspilari
•fullkominn geislaspilari
•tvöfalt segulband
•útvarp m/FM, MW, LW
•20 w. magnari
•5 banda tónjafnari
•fallegir hátalarar í viðarkassa
•fjarstýring
kr. 49.970 stgr.
JAPISS
BRAUTARHOLTI 2 • KRINGLUNNISÍMI 625200