Pressan - 05.12.1991, Page 44
44
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. DESEMBER 1991
RAGNHILDUR GÍSLADÓTTIR þykir spes og skemmtileg. Og
ekki skemmir líkamsslátturinn fyrir útkomu hennar.
Berta væri afbragð annarra
kvenna, þótt hann vildi einn-
ig taka það fram að Linda
væri alveg hreint asskoti sæt
og sexí líka. „Gudrún Gísla-
dóttir, hún er alveg rosalega
sterkur og mikill karakter,"
sagði enn annar. Hann sagði
karakterinn skipta öllu máli
en ekki endilega útlitið.
„Ragnhildur Gísladóttir hef-
ur alltaf verið dálítið spes,“
sagði piltur einn. Margrét
Örnólfsdóttir í Sykurmolun-
um er ögrandi og sexí,“ sagði
annar. Sá hinn sami sagðist
ávallt hafa verið spenntur fyr-
ir Ellen Kristjánsdóttur. „Hún
er mjög sæt og með flotta
sviðsframkomu, flottar hreyf-
ingar og flott svipbrigði,"
sagði hann og var ekki í
vandræðum með lýsingar-
orðin.
ANNA MARGRÉT JÓNS-
DÓTTIR með kattarandlit. Töff
og ögrandi týpa.
DÖKKHÆRÐAR KONUR
MEIRA SPENNANDI
Þetta eru semsagt þær kon-
ur sem íslenskum karlmönn-
um finnst öðrum konum kyn-
þokkafyllri. Fríður og föngu-
legur hópur og alls ekki eins-
leitur. Enda kom það í Ijós að
það er afar misjafnt hvað
GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR eina
leikkonan í hópnum. Mikill ka-
rakter og er sveipuð dulúð
sem gerir hana spennandi.
ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR
hún þykir í einu oröi flott. Og
hún syngur líka alveg skínandi
vel.
BRYNJA NORDQUIST hún þykir falleg og bera það með sér að
hún sé ákveðin, menntuð og þroskuð.
karlmönnum finnst kyn-
þokkafullt. „Þetta er svo mis-
jafnt, það er eitthvað sexí við
hverja konu,“ sagði einn við-
mælenda PRESSUNNAR.
Annar sagði: „Línurnar
skipta ekki öllu máli. Eftir að
maður byrjar að kynnast
konu þá er það hugarfarið og
að hún sé líberal sem skiptir
máli. Það eru til sætar stelpur
og sexí stelpur. Skemmtilegar
og leiðinlegar stelpur. Og svo
er það þessi eina sem býr yfir
réttu blöndunni sem virkar
og heillar mann úr fötunum,"
lýsti annar yfir og var rétt að
komast á flug. Hann sagðist
ætla að hringja í mig eftir
smástund, þyrfti bara aðeins
að bregða sér frá og þá gæti
ég fengið meira að heyra.
Hárið skiptir líka máli.
Bæði hvort það er stutt eða
sítt og ekki síður hvernig það
er á litinn. „Mér hefur alltaf
SÚSANNA SVAVARSDÓTTIR
hún hefur svo nautnalegan
munn sagði einn sem heillað-
ist af henni er hún birtist á
skjánum. Svo er þetta náttúr-
lega kona sem veit hvað hún
vill og er ákveðin.
fundist meiri mystík yfir þess-
um dökkhærðu," sagði sá
með lýsingarorðin. „Rautt
hár er náttúrlega alltaf svolít-
ið eggjandi," sagði maður
sem blandaði sér óvænt í um-
ræðuna.
Margir virtust þeirrar skoð-
unar að erfiðara væri að sjá
dökkhærðar og rauðhærðar
konur út en þær ljóshærðu.
Þær dökkhærðu væru ein-
hvern veginn dularfyllri og
meira spennandi en þær ljós-
hærðu. Það reyndist erfitt að
fá þá til að rökstyðja þetta af
einhverju viti. „Þetta er bara
eitthvað svona sem maður
hefur á tilfinningunni," var
viðkvæðið. Þarna virðist því
vera á ferðinni þjóðsagan um
heimsku blondínuna með
tóma andlitið, sem allir geta
lesið eins og opna bók með
extra stórum stöfum.
AUGNARÁÐIÐ
MIKILVÆGT
Augnaráðið er mikilvægt
fyrir kynþokka kvenna að
mati margra karlmanna.
„Augnaráðið þarf að vera
svona mátulega villt. Ef þú
sérð konu á veitingastað
renna tómum augum yfir sal-
inn þá er hún hræðilega
óspennandi. En sé líf í augun-
um, einhver dulúð, þá langar
mig til að kynnast henni bet-
ur, því þannig konur eru
sexí.“
Einn sagði þær konur mest
spennandi sem ekki væru
raunverulegar. „Konur sem
eru ósnertanlegar og maður
veit að maður kemst aldrei
yfir. Það eru þær konur sem
ég læt mig dreyma um þegar
mér leiðist."
„Femmes fatales, hættuleg-
ar konur sem þú veist aldrei
hvar þú hefur. Þær eru sexí."
„Hvað ersexí? 36,24, 36, það
er sexí," sagði smiður.
Og svo eru það að sjálf-
sögðu leggirnir, rassinn,
brjóstin og allt hitt sem eggja
karlmenn. Stundum til dáða
en stundum leggja þeir upp
laupana og flýja skelfdir þeg-
BERTA MARÍA WAAGFJÖRÐ hún er Bardot-leg og getur verið feikilega erótísk á myndum þótt
ekkert sjáist nema andlitið.
ar þeir finna að konan er
kannski ekki eins fjarlæg og
þeir vilja hafa hana.
BARBIEDÚKKUR LJÓTAR
Þá vitum við allt um það
hvað er sexí, en eitthvað hlýt-
ur það að vera sem er virki-
lega stuðcuidi og fráhrind-
andi í fari kvenna. Hvað er
það?
„Mér finnst Ijótt þegar geir-
vörturnar breiða úr sér og ná
yfir öll brjóstin. Þegar maður
er á sólarströnd og sér flotta
skvísu langar mann til að
skoða betur. Og ef þá kemur
í ljós að geirvörturnar þekja
öll brjóstin þá hryllir mann
við,“ sagði einn. Og áfram
hélt hann: „Annars skipta
brjóst ekki öllu máli. Konur
með lítil brjóst geta líka verið
spennandi viðfangsefni,"
sagði hann hógvær.
Annar sagði vöxtinn skipta
miklu máli, þótt mjög grann-
ar konur eða dulítið þybbnar
gætu líka verið kynæsandi
„en þá erum við komnir að
þessu með persónuleikann".
Barbiedúkku-fegurð er
ekki kynæsandi, var mat
eins, og sá hinn sami vildi
heldur ekki hafa konur með
allt of langa leggi, þótt þeir
yrðu að sjálfsögðu að ná upp
úr skónum.
Almennt var niðurstaðan
sú að vöxturinn skipti miklu
máli og þá einnig persónu-
leikinn. Það er nefnilega ekk-
ert gaman að sitja uppi með
hundleiðinlegt stúlkutetur
þótt kynæsandi sé, sögðu
margir.
Ætli kona að virka eggj-
andi á karlmann þarf hún
semsagt að passa að vaxa
ekki mikið í allar höfuðáttirn-
ar. Að minnsta kosti ekki það
mikið að hún geti haldið fjöl-
mennan fund ein sín liðs.
VIGDÍS GRÍMSDÓTTIR hún
hefur líka dulúð, er dökk á
brún og brá og virðist búa yfir
mörgum leyndardómum sem
menn hefðu ekki á móti að fá
að kynnast.
ARINELDUR, KONÍAK,
ÉG OG LINDA PÉ
Linda Pétursdóttir var sú
sem oftast var nefnd og hún
virðist vera kynþokkafyllsta
kona landsins nú um stundir.
Allir voru sammála um að
hún væri með eindæmum
kynþokkafull, að minnsta
kosti eins og hún birtist á
myndum, en enginn kvaðst
þekkja hana persónulega, —
að minnsta kosti ekki nema
lítillega.
Menn voru ófeimnir við að
lýsa Lindu og lýsingarorðin
voru ekki spöruð (sum eiga
reyndar ekki heima í fjöl-
skyldublaði eins og PRESS-
UNNI). En lítum þá á hvað
menn höfðu að segja um
Lindu:
„Það er svo margt og mikið
sexí við Lindu. Hvernig hún
hreyfir sig og hvernig hún
stendur." „Hún er svona djúsí
bunny girl," — jú jú, það er
aftur sá með lýsingarorðin.
„Linda er eins og lúxusbíll
með öllum aukahlutum."
„Linda gerir út á að vera sexí.
Af konum sem eru áberandi
gerir hún út á kynþokkann
meðan hinar reyna að klæða
hann af sér og fela hann."
„Hún er vel vaxin og hefur
ofboðslega góðan líkama."
„Hún er vel vaxin, falleg og
hefur karakter, að minnsta
kosti á myndum — ég þekki
hana ekki neitt.“ „Arineldur,
koníak, ég og Linda Pé!"
Haraldur Jónsson