Pressan - 05.12.1991, Qupperneq 47
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. DESEMBER 1991
47
verði látið í friði með far-
angurinn sinn
hvaða helvítis máli skiptir þótt
það komi með einu leikfanginu
minna eða meira
líf eltiSl <M4>
Draumasveitin leika lög af
nýrri skífu Egils á Púlsinum í
kvöld. Með Agli koma fram
Björgvin Gíslason, Þorsteinn
Magnússon, báðir á gítar,
Berglind Björk söngkona, Har-
aldur Þorsteinsson bassaleik-
ari og Ásgeir Óskarsson
trommari.
Á föstudags- og laugardags-
kvöldiö verður tónlistarvið-
burður á Púlsinum því þá kem-
ur fram bandaríski básúnu-
leikarinn Frank Lacy með
hljórfisveit Tómasar R. Einars-
sonar djasssnillings. Með
þeim verða Einar Valur Sche-
vingi og Sigurður Flosason. Eft-
ir djassleikinn stíga á sviðið
Vinir Dóra með Andreu Gylfa-
dóttur og Pétri Tyrfingssyni
Tregasveitarforingja. Það er
ekki ólíklegt að Lacy verði
einnig á sviðinu með þeim, því
hann er frægur blúsmeistari
líka kallinn.
Við
mæLuivi
MEÖ
Að elnhver taki að sér að
Jakobs Magnússonar
hún vekur miklu meiri athygli
hér heima en úti i Bretlandi.
Það yrði húsfyllir öll kvöld.
Að einhver framleiði faraíma
með innbyggðri rakvél
það væri þægilegt að geta rak-
að sig um leið og maður tekur
fyrsta simtalið á morgnana
Að umræðum í þingfiokki
sjálfstæðismanna verði
útvarpað
það er auðséð að rifrildið i
þingsalnum er aðeins fölt end-
urvarp
Pétur Gunnarsson. Þessi fyrrum
Michael Jackson íslenskra bók-
mennta er löngu horfinn i
skuggann fyrir allt annars kon-
ar liði; Ólafi Jóhanni, Vigdísi
Gríms og þeim sem passa upp
á imyndina og hlýða útgefand-
anum. Pétur, sem áður heillaði
alþjóð með bókum og kátri
sjónvarpsframkomu, er nú orð-
inn að einhverjum manni í Álf-
heimum sem sópar gólf og gef-
ur út vinnubækurnar sínar. Það
er helst að Sigurður A. Magn-
ússon sé hallærislegri rithöf-
undur en Pétur. En hann
(þ.e.a.s. Pétur en ekki Sigurður)
getur huggað sig við að hann
er enn betri rithöfundur en
þessi með finu ímyndina.
Á sunnudaginn verður í
Listasafni Islands dag- j
skrá með Ijóðaþýðingum
Arna ibsen og sverris j
hólmarssonar á verkum
EZRA POUND, WILLIAM CARL-
OS WILLIAMS Og T.S. ELIOT.
Dagskráin ber heitið „Á
rauðum hjólbörum um
eyðilandið" og er unnin í
samvinnu Listasafnsins,
Menningarstofnunar
Bandaríkjanna og Rokk- I
skóga. Lesarar verða við-
AR EGGERTSSON, ÁRNIIBSEN |
Og ARNÓR BENÓNÝSSON Og
REYNIR JÓNASSON leikur á
hljóðfæri.
Menningarvaka Hress-
ingarskálans heldur I
áfram. í kvöld koma fram
fjögur skáld og lesa úr
nýjum bókum sínum. Það
eru þau súsanna svavars- |
dóttir og les úr „í miðj-
um draumi", illugi jók-
ulsson les úr „Fógeta-
valdinu", steinunn sig-
urðardóttir úr „Kúaskít ]
og norðurljósum" og vig-
DlS GRiMSDÓTTIR les Úr |
„Lendum elskhugans".
SÚSANNA SVAVARSDÓTTIR
sendir frá sér tvær bækur
um þessi jól, viðtalsbók-
ina „Gúmmíendur synda |
ekki" og fyrstu skáldsög-
una, „í miðjum draumi",
sem segir frá keflvískri
stórfjölskyldu sem er
með nefið ofan í hvers |
manns koppi. Líf fjöl-
skyldunnar tekur óvænt j
aðra stefnu þegar einn J
fjölskyldumeðlimanna,
hanna, er lögð inn á spít- j
ala eftir þungt höfuð- |
högg.
Að fólk sem kemur til lands-
Gamlar drossíur. Sjáið bara
hvað krakkarnir segja. Drauma-
billinn er Volvo Amazon (Valdi-
mar Flygenring á einn) eða am-
erískir drekar frá sjöunda ára-
tugnum eða upphafi þess átt-
unda. Bilatískan fylgir náttúr-
lega annarri tisku og hún er
farin aftur á Bítlatimann.
Ástæðan mun vera sú að plötu-
útgefendur eru að gefa út allar
gömlu plöturnar á geisladisk-
um. Gömul föt og tíðarandi
fljóta siðan með þegar gömlu
lögin ganga í endurnýjun líf-
daga. Og ástæðan fyrir erfið-
leikum í bandariskum bílaiðn-
aði er sú, að bílaframleiðendur
geta ekki endurútgefið gamla
bíla. Ekki einu sinni á diskum.
/ •
UTI
Satt og
logið
ÖNNCIR ÍSLfiNDSFÖR
FRfiNK LfiCY
Bandaríski básúnuleikar-
inn Frank Lacy er vœntan-
legur hingað til lands í annað
sinn nú um helgina. Hann
leikur með hljómsveit Tóm-
asar R. Einarssonar á fern-
um tónleikum. Þrennum á
Púlsinum á föstudags-, laug-
ardags- og þriðjudagskvöld
og á Hótel Selfossi á sunnu-
dagskvöld.
Lacy var á ferð hér í mars
síðastlidnum en þá hljóðrit-
aði hann geisladiskinn „ís-
landsför" ásamt hljómsveit
Tómasar. Á þeim diski eru lög
eftir Tómas en hljómsveit
hans skipa, auk hans sjálfs,
Sigurður Flosason, Kjartan
Valdemarsson og Einar V.
Scheving.
íslandsför hefur fengið
mjög góða dóma hjá gagn-
rýnendum Berlingske Tiden-
de og Politiken og í BT sögðu
þeir að íslendingar þyrftu
ekki að vera að fá erlenda
gesti til að spila með sér því
þeir gætu svo vel gert þetta
sjálfir.
Að sögn Tómasar hefur lítið
verið gert til að dreifa íslands-
för erlendis. Hún hefur ein-
göngu verið í sérverslunum í
Kaupmannahöfn en nú eftir
áramót ætla Tómas og Pétur
Kristjánsson útgefandi að
setja kraft í dreifingarmálin.
„Það verður hiklaust keyrt á
það eftir áramótin," segir
Tómas.
Frank Lacy hefur spilað
með ekki ófrægari mönnum
en Lester Bowie, Henry Thre-
adgill og Art Blakey. Á tón-
leikunum hér verða flutt lög
eftir Lacy og lög Tómasar.
Koma Lacy er hvalreki fyrir
unnendur djasstónlistar og
þeir ættu ekki að láta þessa
tónleika framhjá sér fara.
Tónleikarnir á Púlsinum
föstudags- og laugardags-
kvöld hefjast stundvíslega
klukkan hálftíu.
NÆTURLIFIÐ
Maðurinn með sannleikaröddina fyrir og eftir
Flugleiðir. Sem ungur maður kom Bogi til liðs við
sjónvarpið og flutti fréttir af kjöri og andláti
Jóhannesar Páls II með traustari rödd en heyrst
hafði áður t sjónvarpi á íslandi. Síðar hvarf hann til
starfa hjá Fluglefðum og þegar hann sneri til baka
var hann orðinn grár fyrir vöngum.
mæli sitt með því að leigja
karaoke. Þetta er í raun dá-
samleg della. Svipuð og kántr-
íæðið í Borgarvirki. Einskonar
unglinga-æði fyrir miðaldra
fólk. Og ef einhver heldur að
þetta tvennt, kántríið og kara-
ókið, sé aðeins bólur þá er það
misskilningur. Þær kynslóðir
sem lifðu æðin á sínum yngri
árum munu halda áfram að
leita þeirra eftir því sem þær
eldast. Þetta var rokkkynslóð-
in, síðan kemur '68-kynslóðin
og svo pönkkynslóðin. Allar
þessar kynslóðir munu vilja
ný og ný æði langt fram eftir
öllum aldri.
POPPIÐ
ÍNNÍ
„Já já, ég er mjög ánœgður
með heildina," sagði Eyjólf-
ur Kristjánsson er hann var
spurður hvort hann vœri
ánœgður með nýju plötuna
sína, ,,Satt og logið". Reyndar
eru áhöld um hvort rétt sé að
tala um plötu, því efnið er að-
eins fáanlegt á geisladiski
eða kassettu. En hvað með
það.
Á plötunni (er þetta ekki
orðið ákveðið hugtak?) eru
tíu lög, níu eru eftir Eyjólf en
eitt eftir Finn Torfa Stefáns-
son og Reyni Harðarson. Það
er gamalt lag Óðmanna sem
hér er í nýjum búningi, meðal
annars nú með íslenskum
texta.
Þeir sem spila með Eyjólfi
eru helstir Birgir Baldursson,
Haraldur Þorsteinsson, Stef-
án Hjörleifsson, Þorsteinn
Magnússon og Jón Ólafsson.
Platan var tekin upp nokkurn
veginn „livé' á innan við tvö
hundruð tímum.
Textar eru eftir Eyjólf, Stef-
án Hilmarsson, Aðalstein As-
berg Sigurðsson, Jón Ólafs-
son og Örn Árnason leikara,
en hann syngur einnig með
Eyjólfi í einu laganna. „Við
gerum létt grín að tónlistinni
sem bar hæst þegar Barry
White var upp á sitt besta,"
sagði Eyjólfur.
Á laugardaginn kemur
verður Eyjólfur í Sjallanum á
Akureyri og ætlar að
skemmta vélsleðamönnum.
Jólahladbord ó
vcitingahúsunum
fESKUMYNDIN
Karaoke-æðið hefur sjálfsagt
ekki farið framhjá neinum.
Þetta svar Japana við Híró-
síma-sprengjunni hefur lagt
stóran hluta af reykvisku næt-
urlifi undir sig og stefnir á árs-
hátíðfrnar. Til dæmis hélt Fé-
lag kvikmyndagerðarmanna
upp á tuttugu og fimm ára af-
Nú eru veitingastaðirnir
byrjaðir með sitt árlega jóla-
hlaðborð og kennir þar ým-
issa grasa.
Naustið býður upp á jóla-
hlaðborð og þar má finna sex
síldarrétti, grafinn og reyktan
lax, spægipylsu, lunda, svart-
fugl, lambalæri, hangikjöt,
roast beef, drottningar-
skinku, kjötbollur og allskon-
ar salöt og brauð og fleira og
fleira.
Veislan á Naustinu kostar
1.550 krónur í hádeginu en
2.080 krónur á kvöldin.
Hótel Loftleiðir er með
hlaðborð í Lóninu og þar má
finna meðal annars hvít-
lauksristaðan smáhumar,
síld, lundabringu, svínasteik,
lambalæri, hreindýrabuff,
kanelkrydduð epli og ótal
annað. Verðið á kræsingun-
um er 1.450 krónur i hádeg-
inu en 2.250 krónur á kvöldin
og þá skemmtir Eyjólfur
Kristjánsson matargestum.
Á Borginni er hlaðborðið á
1.380 krónur í hádeginu en
2.400 krónur á kvöldin. A
kvöldin um helgar er boðið
upp á lifandi tónlist. Hægt er
að velja á milli tveggja heitra
rétta. Meðal annars eru þarna
svínakótilettur, jólaskinka,
London lamb og pottréttur.
Af því kalda má nefna hangi-
kjöt, laufabrauð, kjúklinga,
síld og grafinn silung. Síðan
stendur valið á milli tveggja
eftirrétta, til dæmis jarðar-
berja- og sérrífrómass og
ávaxtagrautar.
A. Hansen í Hafnarfirði er
einnig með hlaðborð. Á því
eru, svo eitthvað sé nefnt,
hangikjöt, bayonneskinka,
svartfugl, grísaflesksteik,
margar tegundir af síld,
brauð, heitur pottréttur og
ýmislegt annað girnilegt.
1.490 krónur í hádeginu og
1.980 krónur á kvöldin er
verðið hjá þeim á A. Hansen.
Og að sjálfsögðu mega allir
borða eins og þeir mögulega
geta á öllum þessum stöðum.
Hljómsveitin Todmobile held-
ur útgáfutónleika í íslensku
óperunni í kvöld í tilefni af út-
komu nýju plötunnar, Óperu.
Todmobile er nýkomin úr
þriggja vikna tónleikaferða-
lagi um landiö. Síöast þegar
sveitin lék í óperunni varö
uppselt á augabragði, svo nú
er eins gott að hafa hraðan á.
Egill Ólafsson og hljómsveitin
Björn Leifsson
eigandi World Class og
Ingólfskaffis
Hvað ætlar þú að gera
um helgina, Björn?
„Það er mjög einfalt. Ég
verö í Ingólfskaffi alla
helgina, langtfram á nœt-
ur, og mun því sofa langt
fram á dag bœði á laugar-
dag og sunnudag. Ég
hefði hins vegar gjarnan
viljað komast á rjúpu en
það er bara enginn tími.
A sunnudagskvöldið fer
ég svo í Bolholtið aö
halda áfram aö lœra
samkvœmisdansana."