Pressan - 05.12.1991, Page 48
48
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. DESEMBER 1991
£4
Nú er fyrsta bindið af
sögu Reykjavíkur eftir
GUÐJÓN FRIDRIKSSON kom- |
ið út. Verkið er unnið á
vegum Reykjavíkurborg-
ar í tilefni af 200 ára af-
mæli hennar og er í bók-
inni að finna feiknamikinn
fróðleik og einstaklega
skemmtilegar frásagnir
úr bæjarlífinu fyrr á öld-
inni. Mjög margargamlar
heimildir hafa varðveist
og nýst við útgáfu bókar-
innar sem aldnir geta
glaðst yfir. Bókina prýða
mörg hundruð Ijósmynd-
Todmobile heldur tón-
leika í íslensku óperunni í
kvöld i þriðja sinn síðan
hljómsveitin tók til starfa.
Tónleikarnir eru haldnir í
tilefni af útkomu nýju
plötunnar, Óperu, sem
kom út í dag. Á síðustu
tónleikum sveitarinnar í |
Óperunni var uppselt og
því verður boðið upp á
forsölu aðgöngumiða í
plötubúðunum. Þre- |
menningunum til aðstoð-
ar á tónleikunum verða
EIDUR ARNARSON, MATTHÍAS
M.D. HEMSTOCK, KJARTAN
VALDIMARSSON Og JÓHANN
HJÓRLEIFSSON.
buomi-félagið, félag
Finna og Finnlandsvina,
heldur þjóðhátíðardag
Finnlands hátíðlegan í
Norræna húsinu á föstu-
dagskvöld með vandaðri
skemmtidagskrá. Tveir
finnskir skemmtikraftar
koma fram, kabarett-
söngkonan marjatta
leppánen og undirleikari
hennar, jaakko salo. Þau
eru aðaldriffjaðrimar í
„Nýja gleðileikhúsinu" i
Finnlandi, sem á hverju
sumri stendur fyrir sýn-
ingum í tívolíinu í Hels-
inki.
Það eru tveir kostir á svona
vetrarkvöldi. Skella sér í
hóp pervertanna og fara á
jólaball í einhverjum fram-
haldsskólanum eða róa á
öruggari mið. Til dæmis
Mímisbar á Sögu. Ef mað-
ur nær ekki í dömu getur
maður að minnsta kosti
krækt í útgerðarmann að
vestan, verið sammála
honum í kvótamálinu og
drukkið frítt allt kvöldið.
UppÁlHAlds
Heiöar Jónsson
snyrtir
„Ég drekk adallega fjórar
tegundir áfengra drykkja.
Létluínin fara ekki uel í mig
og þuí reyni ég aö drekka
sem minnsl af þeim. Þegar
ég er í sueitinni, á Krossum,
þá drekk ég gamalt íslenskt
brenniuín. Þegar ég er stadd-
ur í „grand" ueislum drekk
ég Chiuas Regal „on the
rocks". Þegar ég er slœmur í
maganum og œtla aö boröa
uel fœ ég mér bara Campari
í uatni og þegar ég er þyrstur
og langar til aö fá mér drykk
fœ ég mér gin og tonic."
Svanhildur á útvarpsstöðinni
FM erfulltrúi í blúskeppni fjöl-
miðlanna að þessu sinni og
skorar á Aðalstöðina næstu
helgi. Þá veit maður hver kem-
ur þá.
Kántrýklúbbur íslands með
Baldri Braga og Erlu Friðgeirs-
dóttur stendur fyrir alls kyns
uppákomum á Kántrýkránni í
Borgarvirkinu í kvöld, eins og
alltaf fyrsta fimmtudag hvers
mánaðar. Síðan leikur Borgar-
sveitin með Önnu Vilhjálms og
á föstudag og laugardag
mæta Bjarni Ara og Siggi
Johnnie á svæðið ásamt Borg-
arsveitinni. Á sunnudag kemur
Anna aftur.
Hljómsveitin Síöan skein sól
heldur stórtónleika á Gauk á
stöng í kvöld og sunnudags-
kvöld.
Á föstudagskvöldið kemur
hljómsveitin Gal í Leó á Gauk-
inn. Örn Hjálmarsson leikur á
gitar, Sævar Sverrisson syng-
ur, Rafn Jónsson á trommur,
Einar Bragi saxi, Baldvin Sig-
urðarson á bassa og Jósep Sig-
urðarson á hljómborð. Hljóm-
sveitin leikur blandaða tónlist
en aðallega rokk.
Á laugardagskvöld leikur
hljómsveitin Glerbrot á
Gauknum en hún er svo duló
að það veit enginn neitt um
það band.
LINDA RONSTADT
MA'S CONCIONES
Þetta er önnur plata
Lindu með mexíkólög-
um. Sú fyrri kom
skemmtilega á óvart
og var kærkomin.
Henni hefur tekist sér-
lega vel að tileinka sér
ýms stílbrigði, saman-
ber þrjár plötur með
„standördum". Þetta er
besta „öðruvísi" plat-
an í langan tíma. Hún
fær 8 af 10 mögu-
legum.
I anda Gangis Kahn
Birna íris Jónsdóttir er átj-
án ára nemi á eðlisfræði-
braut Menntaskólans í Kópa-
vogi. Birna er ritari nemenda-
félagsins og jafnframt í leik-
list og kór. Hún er steingeit
og á föstu.
Hvað borðarðu i morgun-
mat? „Ég borða rosalega
sjaldan morgunmat. Drekk
bara undanrennu eða djús."
Kanntu að elda? „Nei, ég
kann ekki að elda en ég kann
að poppa."
Hvar vildirðu helst búa ef
þú ættir þess ekki kost að
búa á íslandi? „Ég mundi vilja
búa í Noregi, mér finnst Nor-
egur svo heillandi."
Hvernig strákar eru mest
kynæsandi? „Grannir, með
djúp og falleg augu, helst
græn."
Hugsarðu mikið um í
hverju þú ert? „Nei, ekki nógu
mikið."
Gætirðu hugsað þér aö
reykja hass? „Nei."
Hvaða ilmvatn notarðu?
„Oscar de la Renta."
Ferðu ein í bíó? „Ég hef
einu sinni gert það og
skemmti mér rosalega vel."
Við hvað ertu hræddust?
„Kóngulær."
Hvað mundirðu gera ef þú
ynnir milljón í happdrætti?
„Ég mundi ferðast um heim-
inn og reyna að skoða sem
mest, á sem lengstum tíma
þó."
Hefurðu verið til vandræða
drukkin? „Já, það hefur kom-
ið fyrir."
Er ungt fólk meövitað um
eyðnihættuna? „Ekki nógu
mikið finnst mér, það mætti
hugsa meira um hana."
Ertu búin að ákveða hvað
þú ætlar að verða? „Heim-
spekingur."
Gætirðu hugsað þér að
vinna í fiski? „Nei, alls ekki."
Hefurðu áhuga á og hugs-
arðu um stjórnmál? „Ekki
ennþá, en það stendur allt til
bóta. I síðustu kosningum
kaus ég Alþýðubandalagið."
Hvaða orð lýsir þér best?
„Heyrðu."
Áttu þér eitthvert mottó í
lifinu? „Að gera það sem mig
langar til."
dUtnesi
Adalsteinn
Ingólfsson
listfraeðingur
PRESSAN bað Adalstein að sjá um
ímyndað kvöldverðarboð þessa vik-
una og var honum heimilt að bjóða
hverjum sem er. Hann ákvað að halda
sig við listaheiminn og þetta varð nið-
urstaðan:
Erró
til að þakka honum fyrir allar þær
máltiðir sem ég hef þegið af hon-
um.
Goncourt-bræðurnir
af því að þeir þóttu slúðrarar í
hæsta gæðaflokki og sérlega
skemmtilegir í kvöldverðarboðum
vegna frásagnarhæfileika.
Peter Ustinov
af því að hann heldur skemmtileg-
ustu tækifærisræður sem ég hef
heyrt.
Alma Mahler
hún var gift mörgum frægum lista-
mönnum og það væri gaman að
sjá hvað það var sem hún hafði
við sig.
Nijinsky
hann var frægur ballettdansari
sem gekk af göflunum og væri
fróðlegt að ræða ástæður þess.
Anton Tsjekov
vegna þess að hann þótti heilmikil
manneskja og mannvinur auk þess
sem hann var snillingur.
Simone De Beauvoir
og Jean Paul Sartre
það þarf örugglega ekki að hvetja
þau mikið til þess að taka þátt í
umræðunum og þá geta þau leitað
sannleikans á mörgum sviðum.
Franz Kafka
til að púrra hann svolítið upp, en
hann var mikill bölsýnismaður.
,,Þad er nýjung hjá okkur
ad vera med opid í hádeginu
og þá bjódum við upp á þaö
sem viö köllum „Mongoli-
an-hraölestina" en fólk á aö
geta komiö hér inn og boröaö
á innan viö tíu mínútum,"
segir Pétur Sturluson, fram-
reiöslumaöur á Mongolian
Barbecue. Pétur tekur þaö
jafnframt fram aö enginn sé
rekinn út eftir tíu mínútur í
hádeginu.
Mongolian Barbecue er að
mörgu leyti öðruvísi staður.
Viðskiptavinurinn velur sér
sjálfur á diskinn nauta-,
svína-, lamba- eða kjúklinga-
kjöt ásamt grænmeti og ol-
íum. Kokkar frá Austurlönd-
um elda síðan fyrir framan
kúnnann og eru snöggir að;
ekki nema tvær eða þrjár
mínútur.
Á kvöldin kosta herlegheit-
in ekki nema 1.480 krónur og
þá er súpa innifalin. En það
besta er eftir; menn mega
nefnilega fara eins margar
ferðir og þeir vilja og borða
eins og þeir mögulega geta.
Kræsingarnar eru slíkar að
menn eiga í vandræðum með
að hætta.
Pétur segir leyndarmálið
að bragðinu felast í olíunum,
en þar sem fólk má fara oft er
hægt að hafa bragðið af
matnum margvíslegt.
Svo er bara að vera
óhræddur við að reyna ol-
íurnar og þótt þér falli ekki
bragðið þá er það allt í lagi —
þú getur bara farið aftur.
Bjartmar Guðlaugsson heldur
tónleika á Tveimur vinum í
kvöld en á laugardagskvöld
kemur Síðan skein sól. Sólin
var á Tveimur vinum um síð-
ustu helgi og þá var fullt út úr
dyrum eins og vænta mátti.
KGB-sveitin með þá Kristján
Guðmundsson á píanó, Stein-
grím Guðmundsson stór-
trommara og Stebba á Þóru-
stöðum á bassa leikur á Blús-
barnum í kvöld en á föstu-
dagskvöldið kemur sjálfs-
skoðunarblúsbandið Fress-
menn með þá Kristján Má
Hauksson gítarleikara, Björn
kassagítar, Pál Júlíusson úr ís-
lenskum tónum á trommur og
Silla bassaleikara innanborðs
og íhugar ytra frymi tilverunn-
ar með látum.
Á laugardagskvöld kemur
Norðurhjarabandið Red
House á Blúsbarinn og á
sunnudag Bjössi Thor og fé-
lagar ásamt söngkonunni
Eddu Borg og Gömlu brýnin
með Bjögga Gísla verða alla
helgina á þönum á Dansbarn-
um.
Hljómsveitin Kubalibra með
þá bræður Jón og Trausta Ing-
ólfssyni innanborðs leikur í
Duus-húsi á föstudags- og
laugardagskvöld. Kubalibra er
leifar af Stuðkompaníinu sál-
uga. Það er eins og áhrif írskrar
þjóðlagatónlistar hafi rekið
upp í fjöru viö suðurströndina,
því um síðustu helgi lék írsk
þjóðlagahljómsveit frá Vest-
mannaeyjum á einu af veit-
ingahúsum borgarinnar og nú
eru það Snæfríður og stubb-
arnir frá Þorlákshöfn sem leika
á sunnudagskvöldið i Duus-
húsi.
I I ' ' \
VEITINGAHÚSIN
Það er hreint ágætt að borða á
Hótel Óðinsvéum. Kannski
ekki á kvöldin en að minnsta
kosti í hádeginu. Þar er hægt
að fá svokallaðn heimilismat,
þ.e.a.s. mat sem áður fyrr var
eldaður á heimilunum. Nú
elda allir franskar og stórsteik-
ur heima en borða kjötbollur
og saltfisk á veitingahúsun-
um. Að minnsta kosti i Óðins-
véum í hádeginu. Annar kost-
ur við staðinn eru kallaklúbb-
arnir sem mæta hádegi eftir
hádegi, borða kjötbollurnar
sínar, stofna fyrirtæki og
koma þeim á hausinn. Á þess-
um hverfulu tímum er alltaf
gott að vita af einhverju sem
aldrei breytist. Sumir kallanna
skipta ekki einu sinni um
klippingu. Þetta voru kostirnir.
Gallarnir koma síðar.
ÞUNGA GÁTAN
LÁRÉTT: 1 skápur ödvalar 11 tónverk 12skófla 13 meginhlutinn 15
stygglyndar 17 sáld 18 hár 20 bati 21 bakmælgi 23 hláka 24 heigull
25 nabbinn 27 rosti 28 karlmannsnafn 29 hljóm 32 elsku 36 vagn 37
vösk 39 konunafn 40 armur 41 tryllast 43 aftur 44 þvaðra 46 djarfan
48 oddinn 49 rúm 50 hysknina 51 iðjusamir.
LÓÐRÉTT: 1 trosna 2 hrakning 3 þreyta 4 beitu 5 flangsa 6 slúti 7
veitingamaður 8 hreyfi 9 félagar 10 tjóni 14 óhreinkar 16 sáðland 19
skeldýrið 22 málið 24 gæsarstegg 26 skynjaði 27 kona 29 dettin 30
kvabb 31 alltaf 33 ófúsan 34 elska 35 menntar 37 hegra 38 eftir-
gangsmunir 41 kindin 42 sannfæring 45 öðlist 47 eðlisfar.