Pressan - 12.12.1991, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR PRESSAN 12. DESEMBER 1991
IFYRS-E FREMST
jón ólafsson. Risabíóið stendur eitthvað í sjálfstæðismönnum í
borgarstjórn. eyjólfur konráð jónsson. Hann og aðrir aðstand-
endur Gullskips fengu 95 milljónir sem nú finnst hvorki tangur né
tetur af.
JÓN ÓLAFSSON
VILL BYGGJA
RISABÍÓ
Innan borgarkerfisins mun
nú vera mikil ólga vegna um-
sóknar frá Jóni Ólafssyni,
eiganda Skífunnar, um að fá
að byggja risabíó í nýja mið-
bænum. Lóðin sem Jón hefur
falast eftir er á horni Kringlu-
mýrarbrautar og Listabrautar
eða hinum megin við Versl-
unarskólann. Þar hafði
reyndar Jón Ragnarsson
fengið úthlutað lóð undir 14
hæða hótel en fajlið frá þeim
hugmyndum. Áður hafði
bandaríska sendiráðið fallið
frá hugmyndum um að
byggja sendiráð þar.
Ekki er ákveðið hvernig á
að nýta þessa lóð og hefur nú
Jón séð möguleika á að auka
veldi sitt enn frekar. Er því
haldið fram að hann njóti
stuðnings þeirra Markúsar
Arnar Antonssonar borg-
arstjóra og Vilhjálms Þ. Vil-
hjálmssonar, borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins. Meðal
annarra í borgarstjórn er hins
vegar ekki eins mikil hrifning
og segja menn reyndar áhöld
um hvernig umsóknin er til
komin.
95 MILLJÓNIR
í SANDINUM
Eitt af furðumálunum sem
finna má í skýrslu ríkisendur-
skoðunar um ríkisábyrgða-
sjóð er Gullskipið, sem hugs-
anlegt er að sé einhvers stað-
ar grafið í Skeiðarársandi. Al-
þingi veitti þeim sem vildu
leita skipsins 50 milljóna
króna ábyrgð á sínum tíma
gegn tryggingu í skipinu. Það
fannst aldrei og ábyrgðin féll
á ríkisábyrgðasjóð; samtals
um 95 milljónir króna að nú-
virði.
Aðstandendur Gullskips
voru margir mætir menn;
meðal annars Kristinn í
Björgun og Eyjólfur Konráð
Jónsson þingmaður. í skýrslu
ríkisendurskoðunar segir að
ríkissjóður hafi greitt Lands-
bankanum lánið eftir að
hann fór fram á gjaldþrot
Gullskips og samkomulag
hafi verið gert um að skipta
ekki upp félaginu.
Fyrir utan sjálfa vitleysuna,
þ.e.a.s. að veita ábyrgð í skipi
sem enginn veit hvar er,
hvort í því eru nokkrir góð-
málmar eða hvort það er ein-
hvers virði yfirleitt ef það
finnst, þá vakna margar
spurningar í þessu máli. Ein
er: Hvað gerðu aðstandendur
Gullskips við 95 milljónir?
Fóru þar allar í laun eða
keypti fyrirtækið einhver
tæki og hvar eru þau nú? Og
hvað er ríkið að skipta sér af
því hvort banki setur eitt-
hvert fyrirtæki í gjaldþrot?
SONUR
LÖGGUNNAR
FÉKK SKÍRTEINI í
ÓÞÖKK
KENNARANS
Páll Andrésson ökukenn-
ari hefur kært til lögreglunn-
ar í Reykjavík afhendingu
ökuskírteinis hjá embættinu.
JOLASVEINNIN
I ÚTVARPI
Á SELF
Fyrsti jólasveinninn,
Stekkjastaur, kom til byggða í
morgun. Eftir að hann hafði
dreift góðgæti í skó um allt
land hélt hann til Selfoss í út-
varpsstö.ðina Endastöðina og
tók að svara fyrirspurnum
barna í beinni útsendingu.
Þessi nýjung er einn liður-
inn í dagskrá Endastöðvar-'
innar en hana reka tveir ung-
ir Selfyssingar, Einar Bárð-
arson og Friðbert Gunn-
arsson. Stöðin næst á Sel-
fossi og í næsta nágrenni.
Jólasveinarnir munu mæta
í hljóðverið á hverjum
morgni og spjalla við börnin.
Þau börn á Selfossi sem ekki
eru ánægð með það sem
sveinki gaf þeim nóttina áður
geta komið kvörtunum sín-
um á framfæri og jafnvel rök-
rætt við jólasveininn hvort
þau hafi verðskuldað það
sem þau fengu í skóinn.
Endastöðin sendir út á
101,7 á FM. Eins og áður
sagði er dagskráin byggð upp
með nokkuð hefðbundnum
hætti en þægilegt jólaefni
verður ráðandi. I hádeginu
alla daga verða svæðis-
bundnar fréttir.
Páll afhenti ekki gögn er
sýndu að nemandi hefði stað-
ist ökupróf og hugðist með
því koma í veg fyrir að nem-
andi hans fengi skírteinið af-
hent þar sem hann hafði ekki
gert upp skuld sína við Pál.
Páll segir það viðtekna
venju að ökukennarar haldi
þessum gögnum eftir þar til
samist hefur um greiðslur,
Umræddur nemandi er sonur
Björns Halldórssonar, yfir-
manns fíkniefnalögreglunn-
ar, og heldur Páll því fram að
Björn hafi þarna beitt áhrif-
um sinum til að sonurinn
fengi skírteinið án þess að til-
skilin gögn lægju fyrir.
„Það er alls ekki viðtekin
venja að ökukennarar haldi
þessum gögnum, þetta er
eina tilvikið sem ég veit um.
Þetta eru opinber gögn sem
ökukennarar hafa ekkert
með að gera,“ segir Elín
Hallvarðsdóttir, fulltrúi hjá
lögreglustjóra.
Hún segir það fjarstæðu að
Björn hafi þarna beitt áhrif-
um sínum og hún hafi raunar
ekki vitað að nemandinn var
sonur Björns fyrr en Páll
sagði henni það. Björn hafi
ekki snúið sér til hennar og
hún ekki til Björns.
Böðvar Bragason hefur
kynnt sér þetta mál og í sam-
tali við PRESSUNA kvaðst
hann taka skýringar Elínar
gildar.
ENGIN LOÐNA
EN SAMT HEILL
HELLINGUR
AF HENNI
Nokkrir loðnubátar voru
fengnir til að leita að loðnu
með skipum Hafrannsókna-
stofnunar fyrr á þessu hausti.
Þá var útlitið svart. Búið var
að banna veiðarnar og fiski-
fræðingarnir sáu fátt sem
benti til að loðna yrði veidd
hér við land i vetur.
Nú hafa þeir félagar í Haf-
rannsóknastofnun, Jakob
Jakobsson og Hjálmar Vil-
hjálmsson, skipt um skoðun
og loðnukvótinn hefur verið
aukinn.
Það vita allir að fiskifræð-
ingar og sjómenn hafa lengi
deilt um hversu mikið má
veiða af hverri fisktegund.
Deilur þessar hafa verið
einna mestar milli fiskifræð-
inga og sjómanna sem stunda
loðnuveiðar.
Það er ekkert nýtt að
loðnusjómenn vilji veiða
meira en fræðingarnir leyfa
þeim. Einn af viðmælendum
PRESSUNNAR telur aukning-
una á loðnukvótanum núna
benda til að sjómennirnir hafi
farið með sigur af hólmi að
þessu sinni.
Þetta er ekki allt. Allar
loðnubræðslurnar eru reknar
með bullandi tapi og treysta
sér ekki til að greiða það verð
fyrir loðnuna sem sjómenn
telja sig verða að fá.
markús örn antonsson. Vill veita Jóni heimild til aö byggja risabíóið. kristinni björgun. Gullskip var aldrei sett i gjaldþrot þrátt fyrir að
það ætti ekki 95 milljónirnar sem það skuldaði. jakob jakobsson. Fyrst sá hann enga loðnu en nú sér hann helling. hjAlmar vilhjálmsson.
Sjómennirnir virðast hafa haft rétt fyrir sér um loðnuna. björn halldorsson. Ökukennari segir að sonur hans hafi fengið afhent ökuskír-
teini vegna starfs föðurins. böðvar bragason. Fellst á skýringar starfsmanna sinna og hafnar rökum ökukennarans.
Hvernig varð þér við
Ragnar, þegar þú
fékkst þann stóra?
Raqnar Ingimarsson
,,Þetta er suo lítid hlutfall
af heildarupphϚinni
sem happdrœttiö borgar
út til vinningshafa þann-
ig ad viö heföum helst af
öllu kosid ad einhver
hefði labbad hér inn og
keypt hina midana á
sama númeri og fengid
þann stóra. Þaö heföi
veriö góð auglýsing fyrir
happdrœttið."
Happdrætti Háskóla íslands
fékk i fyrradag 40 milljóna
vinning á trompmiða og þrjá
einfalda miða á sama númer
þegar dregið var í 12. og síð-
asta flokki ársins.
LÍTILRÆÐI
af ástríduvidtali
Mér skilst að Jón Baldvin
sé ekki gallalaus maður.
Þó virðast allir sammála
um að hann prýði einn höf-
uðkostur.
Hann er einsog hann er en
ekki einsog hann á að vera.
Þetta veldur stundum tals-
verðum taugatitringi á við-
kvæmustu stöðum enda að
verða plagsiður á íslandi að
komast í mikla geðshrær-
ingu af litlu tilefni.
Nei, þegar öllu er á botn-
inn hvolft er Jón líklega ekki
það sem Margrét Thateher
kallar konsensuspólitíkus.
Og nú skilst mér á fjölmiðl-
um að Jóhanna sé alveg ær
útaf ástríðuviðtalinu í
MANNLÍFI og þá líklega
vegna þess að í því hleður
Jón slíku oflofi á Jóhönnu að
líklega hefur hún litið á það
sem íróníu, að hætti Snorra
Sturlusonar, til háðungar.
Trúlega er það rétt ein fjöl-
miðlalygin að nokkrum hafi
fundist að sér vegið í þessu
„Mannlífsviðtali" sem er,
þegar öllu er á botninn
hvolft, hástemmd lofrolla
um samherja, mótherja, við-
hlaejendur og andskota.
Ólafur Ragnar er „hæfi-
leikamaður", Steingrímur
„glúrinn", Halldór Ásgríms-
son „drenglundaður", Svav-
ar „skemmtilegur", Stein-
grímur Sigfússon „mjög
frambærilegur" og fyrrver-
andi ríkisstjórn (haft eftir
Styrmi Gunnarssyni) best
mannaða ríkisstjórn á ís-
landi í hálfa öld.
Eða samherjarnir.
Guðmundur Árni í Hafnar-
firði er „efnilegur" og gæti
átt frama í vændum í Al-
þýðuflokknum þegar og ef
Jón dregur sig í blé fyrir ald-
urssakir.
Og ekki dugði Karvel
minna en leigja sér sérfræð-
ing í guði almáttugum (guð-
fræðing) til að skrifa um Jón.
Og Jóhanna Sigurðardótt-
ir er ekki karlmaður.
Á vissan hátt hefur Jó-
hanna auðvitað komið aft-
anað Jóni með þvi að vera
ekki karlmaður og líklega
hefur kynferði hennar kom-
ið svolítið flatt uppá hann þó
auðvitað hafi honum átt að
vera Ijóst frá upphafi að Jó-
hanna er ekki karlmaður
heldur kvenmaður.
Ef til vill hefði Jón komist
fyrr að hinu sanna í málinu
hefði hann verið kvenmað-
ur og Jóhanna karlmaður.
Auðvitað gæti verið heill-
andi að stíga skrefi lengra í
vangaveltunum um það
hvernig umhorfs væri á lög-
gjafarsamkundunni ef kjörn-
ir fulltrúar væru almennt
kynskiptingar.
í viðtalinu segir Jón orð-
rétt um þá Davíð:
„Við Davíð smullum sam-
an sem menn."
Hugsið ykkur ef Davíð
hefði verið kona þegar þeir
Jón „smullu" saman sem
menn. Það hefði nú orðið
meiri smellurinn, það er að
segja ef Jón hefði þá ekki
verið kona líka.
Og auðvitað hefði þinglið-
inu í gegnum tíðina gengið
verr að para sig ef konurnar
á þingi hefðu verið karlar,
nema þá ef karlarnir hefðu
verið konur.
Mann óar við að hugsa
þessa hugsun til enda ein-
mitt núna þegar fengitíminn
fer í hönd.
En mergurinn málsins er
auðvitað sú staðreynd að
það er og hefur alltaf verið
lífsins ómögulegt að losa sig
við kvenfólk þegar það er
einusinni komið inná gafl
hjá manni.
Eða einsog segir í þingvís-
unni:
Það er nú sona og sona
með sósíaldemókratana
þeir eru að vona og vona
(ef villist í flokkinn kona)
að þeir sitji ekki endalaust
uppí með hana.
Flosi Ólafsson