Pressan - 12.12.1991, Blaðsíða 48
48
FIMMTUDAGUR PRESSAN 12. DESEMBER 1991
lífj ejjtisi
UppÁÍHAlds
VÍNÍð
Guövaröur
Gíslason
veitingamaður
„Mitt uppáhaldshvilvin er
Sancerre og uppáhaldsraud-
uinið mitt er ódýrt en gott uín
sem heitir Chianti Classico
Riserua Ducale. Ég bíð
spenntur eftir að fá 1991-ár-
gerðina af Beaujolais Nou-
ueau, en það uín er að koma
til landsins þessa dagana.
Það er alltafsérstök stemmn-
ing að drekka það."
Ástaratlot heitir ný
fræðslu- og skemmtibók
eftir helsta kynlífsfraeð-
ing Breta, andrew stan-
way, sem Forlagið gefur
út fyrir jólin. í bókarkynn-
ingu segir að bókin svipti
meðal annars hulunni af
gömlum feimnismálum,
miðli þekkingu og auki
skilning á listinni að elska,
takmörkunum hennar og
tækni. Siðast en ekki síst
prýðir bókina fjöldi Ijós-
mynda á þeim tæpu tvö
hundruð blaðsíðum sem
bókin spannar.
Mér
hefur reynst best að kíkja á
almenningshlutafélögin.
Það eru mátulega stórir
vinnustaðir til að fólk
skipti sér af manni þó að
það kannist ekki við mann.
Þar er líka meiri séns á að
hitta góða konu. Ef maður
ætlar að bjarga sér frá að-
fangadagskvöldi í Slysa-
varnafélagshúsinu þarf
maður að fara að krækja í
eina, — og þá helst um
helgina. Það tekur að lág-
marki tíu daga að tala sig
inn á þær svo þær leyfi
manni að vera um jólin.
l'M YOUR FAN
The Songs of Leonard
Cohen
AðdáendurCohens
eru kannski hlutfalls-
lega flestir á íslandi
og i Noregi en tón-
elskir, og sérstaklega í
yngri fylkingunni, eru
lika dyggir „fanar". I'm
Your Fan er gerð til
heiðurs gamla skáld-
inu (sem jafnframt
ætlar að gefa út nýja
plötu á næsta ári sem
að öllum líkindum fær
nafnið Before Real).
Listamenn á borð við
Pixies, R.E.M., James,
Nick Cave, House of
Love, lan McCullock
og John Cale flytja
hér 18 lög ásamt
minni spámönnum.
Þetta er indæl plata
þótt flutningi Cohens
sjálfs verði ekki slegið
við. Með betri safn-
plötum og fær 7 af 10.
gott ballband en i henni eru
Vignir Daðason söngvari og
munnhörpuleikari, Ari Daní-
elsson saxófónleikari, Ari Ein-
arsson gítarleikari, var áður í
íslandsvinum, Hafsteinn Val-
garðsson, áður í Rokkabilly-
bandi Reykjavíkur, Jón B. Lofts-
son trommari íslandsvina og
Valgeir Margeirsson hljóm-
borðs- og trompetleikari. Á
sunnudagskvöldiö skemmtir
hinn Ijúfi og geöþekki trúba-
dor og myndlistarmaöur Guð-
mundur Rúnar Lúðvíksson.
Tveir vinir hafa tekið i notkun
120 tommu myndvarpa þar
Geimsteinn hefur gefið
út hljómdiskinn „Skáld á
nýjum skóm", sem hefur
að geyma 13 lög og
eftir kristjAn hreinsson.
Kristján er betur þekktur
sem skáld; hann hefur
gefið út sex Ijóðabækur
og kom sú síðasta út fyrir
fáeinum dögum. Á
hljómdiskinum nýtur
Kristján aðstoðar pálma
GUNNARSSONAR Og MAGN-
ÚSAR ÞÓRS SIGMUNDSSON-
ar við bakraddirnár á
plötunni en tryggvi
HÚBNER og PÉTUR HJALTE-
sted leika með honum á
hljóðfærin.
Á menningarkvöldi
Hressó í kvöld les árni
tryggvason leikari úr bók
sinni og ingólfs mar-
geirssonar, „Lífróðri", él-
ÍSABET JÖKULSDÖTTIR leS Úr
nýrri bók sinni, „Rúm eru
hættuleg" og þórarinn
eldjárn kemur og les úr
tveimur Ijóðabókum sín-
um sem koma út fyrir jól-
in, „Ort" og „Hinni há-
fleygu moldvörpu". Eftir
lesturinn kemur fram nýr
leikhópur sem nefnist
„Leikkonukrílin" og flytur
stutta gamanþætti. Krílin
eru bAra lyngdal magnús-
dóttir og tvíburarnir ásta
og harpa arnardætur.
Guðlaugur Bjarnason
Innísetning í cinn einn
,,Á sýnirtgunni ueröur fjöldi
Ijósmynda af mjög huers-
dagslegum hlutum. Þelta eru
myndir frá Európu og Reykja-
uík, af sandhrúgum, götu-
eda byggingarframkuœmd-
um, stillönsum og þess hátt-
ar,“ segir Guðlaugur
Bjarnason myndlistarmad-
ur, sem nú er ad opna sýn-
ingu í gallerí Einn einn á
Skólauördustíg.
„Innísetning" er íslenskt
orð yfir installation.
„Ég ætlaði upphaflega að
sýna skúlptúra sem ég gerði í
Edinborg, en þegar ég kom á
staðinn og sá salinn fannst
mér spennandi að hann var á
byggingarstigi og þá ákvað
ég að notfæra mér það
ástand. Ég safnaði því saman
öllu sem varð afgangs við
endurbygginguna; gömlum
rörbútum, hurðum, einangr-
un, timbri og öðru slíku, og
raðaði því upp á skipulegan
hátt í salnum. Inni var opinn
veggur sem eftir var að
ganga frá og að lokinni sýn-
ingu kom ég fyrir í veggnum,
áður en honum var lokað,
ýmsu dóti sem verið hafði
hluti af sýningunni."
En nú ertu með Ijósmyndir.
Ekki getur það talist innísetn-
ing?
„Ekki beint, en ég tengi
sýninguna frá í febrúar við
sýninguna núna með þeim
hætti að þegar ég kom síðast
þá tók ég mikinn fjölda ljós-
mynda af þakinu á húsinu
sem sýna viðgerðirnar á því.
Þessar myndir hengi ég á
vegginn í salnum sem geymir
inni í sér ýmsa muni sem
voru hluti af sýningunni síð-
ast. Að öðru leyti eru á sýn-
ingunni þessi mótíf sem ég
talaði um áðan.“
© do
Klara Ægisdóttir er tvítug
og starfar í Pennanum á dag
inn en á kvöldin er hún í
Skrifstofu- og ritaraskólan-
um. Klara er tvíburi, hún er
trúlofuð og í sambúð.
Hvað borðarðu í morgun-
mat? „Ekki neitt, ég borða
aldrei morgunmat.
Kanntu að elda? „Já já, ég
kann að elda allt sem nöfnum
tjáir að nefna."
Hvar vildirðu helst búa ef
þú ættir þess ekki kost að
búa á íslandi? „í Austurríki,
þá gæti ég farið á skíði."
Hvernig strákar eru mest
kynæsandi? „Háir, vel vaxnir
og Ijóshærðir."
Hugsarðu mikið um í
hverju þú ert? „Já, ég reyni
að vera þokkalega til fara."
Gætirðu hugsaö þér að
reykja hass? „Nei, alls ekki."
Hvaða ilmvatn notarðu?
„Ysatis."
Ferðu ein í bíó? „Nei, ég
hef aldrei farið ein í bíó og
langar ekki til að reyna það."
Við hvað ertu hræddust?
„Ógeðsleg skorkvikindi. Ég er
kannski ekki beint hrædd við
þau, en þau eru viðbjóðsleg."
Hvað mundirðu gera ef þú
ynnir milljón í happdrætti?
„Reyna að kaupa mér ibúð."
Hefurðu verið til vandræða
drukkin? „Já, einu sinni, og
ég vil ekki endurlifa það."
Er ungt fólk meðvitað um
eyðnihættuna? „Já, ég held
að það sé að aukast. Umræð-
an hefur aukist mjög í kjölfar
játningar Magic Johnson og
dauða Freddy Mercury."
Trúirðu á ást við fyrstu
sýn? „Já, hún er til."
Gætirðu hugsað þér að
vinna í fiski? „Ég hef unnið í
fiski en ég gæti samt ekki
hugsað mér að gera það til
frambúðar."
Hvaða orð lýsir þér best?
„Ákveðin."
Áttu þér eitthvert mottó í
lífinu? „Að lifa fyrir daginn í
dag."
dUute/i
Bjartmar
Gudlaugsson
tónlistarmaður
PRESSAN bað Bjartmar að
stilla upp ímynduðu kvöld-
verðarboði þessa vikuna.
Var honum að sjálfsögðu
heimilt að bjóða hverjum
sem er. Þetta eru gestir Bjart-
mars:
Davíð Oddsson
til að sjá um að menn gleymi
ekki að skála.
Hannes Hólmsteinn Gissur-
arson
til að sjá um að Davíð gleymi
ekki að tala.
Jóhanna Siguröardóttir
vegna þess að hún er ekki
strákur.
Sighvatur Björgvinsson
til að segja veislugestum
hvernig á að laekna sjúka með
hugarorku.
Eiöur Guönason
til að flokka ruslið eftir mat-
inn.
Jón Baldvin Hannibalsson
hann gæti talið veislugestum
trú um að langhalinn, sem
fram verður borinn, sé humar.
Friðrik Sophusson
til að dobla út úr honum Bún-
aðarbankann og til að borga
veistuföngin.
Óli kommi
til að halda hátiðarræðuna.
sem er ætlunin að sýna í fram-
tíðinni tónlistarmyndbönd,
stuttmyndir og beinar útsend-
ingar frá kappleikjum.
Hljómsveitin Blautir dropar
leikur á Staðið á öndinni bæði
föstudags- og laugardags-
kvöld. Það verður ekkert sleg-
ið af í fjörinu segir Búðdæling-
urinn Jóhann Þór Kjærnested
söngvari dropanna. Aðrir í
sveitinni eryu Brynjar Reynis-
son bassaleikari, Stefán H.
Henrýsson á hljómborð, Gunn-
ar Þór Eggertsson gítarleikari
og Haraldur Ó. Leonardsson á
trommur.
Sálin hans Jóns míns leikur á
Gauk á stöng í kvöld en
Glaumar föstudags- og laugar-
dagskvöld. í Glaumum eru
meðal annarra Jakob, Jósep
og Eggert sem voru í Skriðjökl-
unum sálugu. Jakob var auk
þess í Góðkunningjum lögregl-
unnar. Glaumar eru þrusu
helgarband sem leikur lögin
sem öll þjóðin þekkir, rútu-
bíla- og skátasöngva, enda
slógu þeir eftirminnilega í
gegn á afmæli Gauksins í nóv-
ember síðastliðnum. Á sunnu-
dagskvöldið verður hið þræl-
skemmtilega Sniglaband á
Gauknum.
VEITINGAHÚSIN
Eitt það versta sem getur
komið fyrir nokkurn mann er
fara á veitingahús til að njóta
Ijúfrar máltíðar í góðum fé-
lagsskap og vera rétt byrjaður
á súpunni þegar leifarnar af
jólaglöggs-partíi Sambands-
ins hellast inn og yfirtaka
næsta borð meö hópsöng, rifr-
ildum, þukli undir borðum og
hrópum á þjónustuliðið. (Það
skal strax tekið fram að þetta
er ekki bundið við starfsfólk
Sambandsins. Það er sama
hvaða fólk er tekið og látið
drekka lystauka í fimm
klukkustundir, — það verður
óhæft til kvöldverðar og enn
verra ef lystaukinn er soðið
rauðvín með rúsinum og
kláravini út í.) Eina ráðið viö
þessu er aö fara ekki út aö
borða með elskunni sinni í
desember. Annað sem mætti
reyna er að drekka líka lyst-
auka í fimm klukkustundir áð-
ur en haldið er út á lífið. í því
ástandi er fátt sem pirrar
mann.
LÁRÉTT: 1 fingralöng 6 ládeyða 11 athyglin 12 fjúka 13 kvendýrið
15 steintegund 17 askur 18 vefjarlóð 20 viður 21 stórstraumsíjara 23
svefn 24 fæðingu 25 afturgöngu 27 fornskáld 28 götuheiti 29 ausa
32 kirtill 36 kramur 37 kverk 39 krika 40 tré 41 ákafur 43 kjaftur 44
vann 46 þefaði 48 rykkornið 49 skip 50 þáttur 51 fylgismaðurinn.
LÓÐRÉTT: 1 þrengsli 2 hræðsluna 3 þögulu 4 málmur 5 gildi 6
glyrna 7 púðrar 8 þakskegg 9 skógarmur 10 bersýnilegs 14 bruðlir
16 smásilungur 19 stálma 22 skvettir 24 hvammurinn 26 spök 27
slæða 29 feiti 30 stefna 31 áburðardýr 33 prúði 34 eytt 35 trjónan
37 kæki 38 fylgihnöttur 41 hugarfarið 42 vinur 45 fugl 47 seyði.