Pressan - 12.12.1991, Blaðsíða 47

Pressan - 12.12.1991, Blaðsíða 47
FIMMTUDAGUR PRESSAN 12. DESEMBER 1991 47 Út er komin hjá Vöku-Helgafelli ný og endurbætt útgáfa heild- arsafns Ijóöa steins S'rEíN- ars og hefur aö geyma 30 áöur óbirt Ijóö sem fundust nýlega á Lands- bókasafninu. Af þessu til- efni gengst forlagið fyrir bókmenntakynningu á Hótel Borg í kvöld og munu leikararnir bára LYNGDAL MAGNÚSDÓTTIR Og KRISTJÁN FRANKLÍN MAGNÚS lesa úr bókinni, meöal annars sum nýju Ijóö- anna. hörðurtorfa kemur fram í fyrsta skipti á 25- ára I trúbadorsferli sínum með [ hljómsveit á Púlsinum á föstudagskvöld. Meö | Heröi leika blúshljóm- sveitin Vinir Dóra og gít- arleikarinn haraldur reynisson. Tónleikarnir | eru haldnir í tilefni af út- komu nýju plötunnar, „Kveöju”, en eftir tónleik- ana kemur Höröur fram meö blúshljómsveitinni og syngur blús. Hljómplötuútgáfa rún- ars júlíussonar, Geim- steinn, hefur endurútgef- iö eitt af timamótaverk- um islenskrar popptón- listar, plötuna „Lifun" meö Trúbrot. Tónlistin á Lifun er orðin klassísk þótt ekki heyrist hún mik- iö, en hún nýtur sin ör- ugglega enn betur á nýja hljómdiskinum. Þeir sem vilja endurvekja kynni sín af plötunni ættu ekki aö láta þessa útgáfu framhjá sér fara. Ný dönsk og Silfurtónar q miðnozturtónleikum ,,Tónleikarnir bera yfir- skriftina ,,Hátíö Ijóss og frid- ar“ og ueröa með sama snidi og tónleikar sem eru haldnir í midri viku nema bara ad þeir eru haldnir um helgi. Þad er alltaf önnur stemmn- ing í midri viku en um helg- ar,“ segir Björn Friðbjörns- son, bassaleikari hljómsveit- arinnar Ný danskrar, sem leikur á tónleikum á Hótel Borg á föstudagskvöldid ásamt nýrri hljómsveit, Silf- urtónum. „Silfurtónar eru alveg frá- bær hljómsveit, bæði söngur og hljóðfæraleikur, en það hefur farið allt of lítið fyrir þeim. Þeir eru mjög hógvær- ir piltarnir í Silfurtónum og kalla tónlistina sem þeir flytja hallærispopp. Það er mikill misskilningur. Þetta er í einu crði frábær hljómsveit." Af hverju þessi yfirskrift á tónleikunum? „Okkur finnst landinn hafa spennt jólabogann of mikið að undanförnu og með sama áframhaldi verða allir orðnir dauðleiðir á jólunum áður en þau renna í hiað. Þetta er bara smáinnlegg í stemmn- inguna." A tónleikunum annað kvöld ætlar Ný dönsk að kynna efni nýju plötunnar „Deluxe" og munu Björn og félagar hefja leikinn upp úr miðnætti en Silfurtónar, sem einnig flytja frumsamið efni eingöngu, taka við þegar bú- ið verður að hita upp mann- skapinn. 5 kórar ó jólatón- leikum Sinfóníunnar ,,Kórstjórarnir segja okkur ad börnin í kórunum geti varla bedid rneð að koma og syngja með hljómsveitinni enda leggjast tónleikarnir mjög vel í alla. Þetta verður svakalega gaman," segir Runólfur Birgir Leifsson, framkvœmdastjóri Sinfóníu- hljómsveitar Islands, en í kvöld kemur um 120 manna barnakór fram með hljóm- sveitinni á jólatónleikum hljómsveitarinnar í Háskóla- bíói og bera þeir yfirskriftina ,,Jólatónleikar fyrir alla fjöl- skylduna". Það eru barnakórar Austur- bæjar-, Öldutúns-, Árbæjar-, Garðabæjar- og Kársnesskóla sem syngja, en tónleikarnir eru skipulagðir í samvinnu við tónmenntakennara og helgaðir ári söngsins. Ætlun- in er að foreldrar barnanna og aðstandendur taki virkan þátt í flutningi verkanna með söng úr sal. Aðalhljómsveitarstjóri Sin- fóníunnar, Petri Sakari, stjórnar tónleikunum en kynnir verður Sigurður Rún- ar Jónsson. Á efnisskránni eru verk eft- ir Prokofjef, Ochs, Britten, Mozart og Tjajkovskíj auk margra annarra. NÆTURLIFIÐ Þaö er Ijúft á kránum í des- ember. I fyrsta lagi eru allir jólabörn inni í sér og eftir eitt eöa tvö glös brjótast þau fram. Harðsvíraöir stressarar og út- taugaðar mæöur í fjórum störfum verða Ijúf eins og lömb. í ööru lagi kemur náms- fólk aö utan til að halda jól fESKUMYNDIN Úr Stundinni okkar í Nýjan uettvang. Frá Fúsa flakkara að Óskari Guðmundssvni. Þannig uar leið hinnar hippalehu stelpu, Kristínar Ólafsdóttur. til hinnar „félagslegu méðuituðu" konu. Breytingin fellst í þuí að hárið er ekki lengur slegið heldur í hnút. Eins og uandamálin. með fjölskyldum sínum. Það sest að á kránum og finnst allt vera nýtt; snjórinn, myrkriö, slyddan. Hinir smitast. í þriðja lagi eru allir dálítið þreyttir og v/raöir. Eftir fjögur og fimm glös verða allir til í allt. Þeir sem láta þaö eftir sér gefa síð- an stærri og dýrari jólagjafir í von um að þeirra nánustu séu tilbúnir að gleyma því. POPPIÐ______________________ Rúnar Þór & hljómsveit halda útgáfutónleika á Púlsinum í kvöld í tilefni af útkomu nýju plötunnar Yfir hæðina, sem talin er vera besta plata hans hingað til. Þetta verða síðustu útgáfutónleikar Rúnars fyrir jól. Á föstudags- og laugar- dagskvöldið heldur tónlistin á Púlsinum áfram því þá kemur HöröurTorfason.fyrsti íslenski trúbadorinn, fram í fyrsta skipti með hljómsveit með sér en það verða Vinir Dóra sem annast undirleikinn ásamt git- arleikaranum Haraldi Reynis- syni. Tónleikarnir verða hljóð- ritaðir. Að tónleikunum lokn- um halda Vinir Dóra áfram með blús og nokkur vel valin Stones-lög og hver veit nema Hörður blúsi með þeim. Svan- hildur Þorsteinsdóttir á út- varpsstöðinni FM forfallaðist siðustu helgi en kemur núna og skorar á Aðalstöðina aö koma næst. Á sunnudag held- ur Tregasveitin tónleika á Púls- Sigrún Guömundsdóttir í Skinn-galleríi Hvad ætlar þú að gera um helgina, Sigrún? ,,V7ð hjónakornin verðum í galleríinu að vinna bœði á laugardag og sunnu- dag. En á föstudagskvöld- ið œtla ég að horfa á sjón- varpið og laugardags- kvöld að leita að jóla- stemmningunni með pöbbarölti í miðbœnum. Ætli ég slappi svo bara ekki af t faðmi fjölskyld- unnar á sunnudagskvöld- ið, uppgefin eftir helgina." Don Tómas ó jólunum ,,Hann kemur frá Hondúr- as og þykir sérlega góður. Hann kemur reyndar ásamt brœðrum sínum en þeir bera allir sama nafn, munurinn felst í vaxtarlaginu. Sumir eru stuttir og digrir en aðrir langir og mjóir," segir Sölvi Óskarsson, tóbakskaup- maður í versluninni Björk i Bankastrœti, þegar hann lýs- irDon Tómasjólavindlunum í ár. Vindlarnir koma ekki í slor- legum pakkningum, geir- negldum trékassa, sem þýðir Sölvi Óskarsson tóbakskaup- maður. að ekki eru notaðir venjuleg- ir naglar heldur er hver og einn kassi handunninn. Sér- hver vindill hvílir í álumbúð- um svo að þeir geymist sem best, og ekki veitir af, því ferðalagið frá Hondúras tók Tómas 5 mánuði. Hvers vegna er Don Tómas tilhlýðilegur á jólunum? „Vegna þess að hann er svo mildur, það er ekki sterk lykt af honum eins og flestum óvönduðum vindlum, hann brennur hægt og honum fylg- ir ekki sóðaskapur. Þó að reykingar á íslandi hafi al- mennt minnkað þá fylgir vönduðum vindlum ákveðin stemmning og mörgu fólki, sem ekki reykir, finnst gott að fá smávindlalykt í húsið á jól- unum. Ég get líka sagt þér það að vindlamaðurinn Erró er hættur í Kúbuvindlunum og kominn í þá frá Hondúras." inum. Sveitina skipa Guö- mundur Pétursson, Pétur Tyrf- ingsson, Sigurður Sigurösson munnharpa og söngur, Björn Þórarinsson bassi og Guöni Flosason á trommur. Borgarsveitin með Önnu Vil- hjálms leikur á Kántrýkránni í Borgarvirkinu í kvöld en á föstudag og laugardag mæta Bjarni Ara, Siggi Johnnie og bandaríski kántrýsöngvarinn Pat Tennis á svæðið ásamt Borgarsveitinni. Á sunnudag kemur Anna aftur. Hljómsveitin Glerbrot skemmtir á Tveimur vinum á föstudags- og laugardags- kvöld. Glerbrot þykir hörku- Við mæIum ME ð Að fólk láti eftir sér að gera ekki neitt þótt það sé alltaf gott er það aldrei betra en í desember, þeg- ar maður ætti að vera á fullu í útréttingum, hreingerningum og bakstri Skautasvellinu í Laugardal það yngir fólk um áratugi Laxarækt í tjörninni í Reykjavík fólk gæti setið og dorgað í gegnum vök á vetrarkvöldum Sjónvarpsdagskránni í desember það ætti enginn að þurfa að slá slöku við í jólaundirbúningnum hennar vegna ÍNNÍ Það er óskiljanlegt, en samt er það þannig að allir eru farnir að lesa ljóð. Kannski eru þetta áhrif frá fréttablöðunum. Þau hafa vanið fólk við smáfréttirn- ar. Kannski eru þetta áhrif frá skáldsögunum. Margar þeirra mundu sóma sér betur sem stutt prósaljóð. Kannski eru þetta áhrif frá uppatímanum. Þegar hann er liðinn vill fólk gleyma honum með því að sökkva sér í einhverskonar rómantík. Kannski er þetta vegna mikils framboðs af góð- um ljóðum. Kannski, — en varla. ÚTÍ Það þarf enginn að velkjast i vafa um að það er orðið púkó að gefa út endurminningar sín- ar. Ef einhver hefur ekki fattað þetta í fyrra ætti sá hinn sami að átta sig á þessu í ár. Þegar Heiðar Jónsson, Jónas Jónas- son og Erlendur Einarsson eru búnir að gefa út hver sína bók þá getur ekki nokkur maður, sem annt er um orðstír sinn, gefið út endurminningar. Og enn síður í kompaníi við aðra. Því þótt endurminningabækur séu púkó er enn hallærislegra að vera í vagni með öðrum og messa um lífsviðhorfið eða verri helminginn. Að vera einn af átta í slíkri bók er það sama og halda því fram að maður sé átta sinnum ómerkilegri per- sóna en þeir Heiðar, Jónas og Erlendur.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.