Pressan - 12.12.1991, Blaðsíða 52

Pressan - 12.12.1991, Blaðsíða 52
HLUSTUM ALLAN SÓLARHRINGINN Pizzur eins og þær eiga að vera Laugavegi 126, s: 16566 VEITINGAHÚS - tekur þér opnum örmum LAUGAVEGI178, S:679967 SÍMI 621373! B úið er að skipa sérstakan ríkis- saksóknara til að fara með mál á hendur Braga Steinarssyni vara- ríkissaksóknara. Bragi var kærður fyrir að hafa sagað niður tré í garði ná- granna síns. Eiríki Tómassyni hæsta- réttarlögmanni hef- ur verið falið að fara með mál gegn Braga af hálfu ákæruvaldsins. . . No I Bæjarins besta, sem gefið er út á ísafirði, lesum við frétt um að Þing- Skeifan 7-108 Reykjavík Sími 91-673434 - Fax: 677638 Verðlauna- peningar bikarar FANNAR o16488 eyringur hafi bitið Bolvíking. At- burðurinn varð í heimahúsi á Bol- ungarvík, en þann bolvíska þurfti að flytja á sjúkrahús þar sem gert var að sárum hans. Mennirnir voru búnir að sitja lengi að sumbli og gerðu sér það til skemmtunar að hringja til skiptis í lögregluna og klaga að hinn hefði klipið, slegið eða hrint þeim sem hringdi... litt þekktasta verslunarfyrir- tæki á Suðurnesjum er gjaldþrota, fyrirtækið Nonni og Bubbi. Þor- steinn Pétursson, skiptaráðandi hjá bæjarfógetanum í Keflavík, úr- skurðaði fyrirtækið gjaldþrota síð- asta föstudag. Eigandi Nonna og Bubba, Jónas Ragnarsson, er þó ekki hættur. Hann á og rekur aðra matvöruverslun, Stórmarkað Kefla- víkur. .. lú er Ijóst að sendiherraskipti verða hjá Bandaríkjamönnum hér á landi á næsta ári. Charles E. Cobb jr., sem núna gegnir sendiherrastöðunni, hverfur til starfa í Bandaríkjunum. Hann verður einn af kosningastjórum George Bush Bandaríkjaforseta, sem á næsta ári freistar þess að ná endurkjöri. Cobb er einmitt einn hans bestu vina og hefur áður unnið fyrir Bush í kosningum. Gert er ráð fyrir að hann hætti um mánaðamót- in janúar/febrúar. Ekki er vitað hver tekur við . . . ón Óttar Ragnarsson gefur út skáldsögu fyrir jólin sem hann nefn- ir „Fimmtándu fjölskylduná' og munu ýmsar per- sónur hennar eiga sér fyrirmyndir í raunveruleikanum. Þannig mun aðal- skúrkurinn Ragnar vera Jón Ólafsson í Skífunni. Páll Magnússon sjónvarpsstjóri kemur fram í bókinni sem Palli Matt og einnig má finna þarna Jón Sig- urðsson, fyrrverandi fjármála- stjóra Stöðvar 2, og fleiri . . . Lesendur og gagnrýnendur eru sammála INGOL. ft MARGE|RSSON_ JJF RÓÐUR Ama Tiy§§vasaiar leikora NR.1 Á BÓKALISTA DV (3/12 og 10/12) „Nákvæm, ýtarleg, samfelld, gegnheil... afar vel skrifuð bók, textinn skipulegur og mikið lagt í stílinn... áhugaverð, fróðleg, skemmtileg ...en fyrst og fremst ærleg, virðingarverð, heiðarleg." Erlendur Jónsson, Morgunblaðifí i.Endurminningar sem eru í senn einlægar og hlýjar. Ingólfur Margeirsson heldur hér vel og skipulega utan um mikið efni. Samstarf þeirra hefur fætt af sér skemmtilega og Ijúfa frásögn sem vísar lesandanum beint inn í hjarta Árna Trygvasonar." Elías Snœland Jónsson, DV ÆVISAGAN ÍÁR ÖRN OG ÖRLYGUR Síðumúli 11 - 108 Reykjavík - Sími: 684866

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.